Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Qupperneq 10
7 0 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ2003
Hátæknilegar aðferðir notaðar við leitina að Loch Ness skrímslinu:
Fundu gamla bauju
en ekkert skrímsli
Finnland
Rússland
Bretland
frland 'i
Kanada
Tyrkland
Ástralía5^
lentína
500 km
Tianchi-vatn|
Elasmosaurus. Þessi forna
skepna passar við lýsingu á
vatnaskrímslum á borð við
það sem á að hafast við I
Loch Ness.
NESSIE Á NETINU
VATNASKRIMSLI UM VIÐA VEROLD
KAFBATUR EN EKKI SKRÍMSU
HRYGGJARLIÐUR: George McSorley sýnir steingerving af hryggjarlið
sem fannst á bökkum Loch Ness fyrir skömmu. Ljóst er að hann er ekki
leifar af hinu eina sanna Loch Ness skrímsli en samt sýnir hann að
Plesiosaur, 35 feta vatnaskepna, hefur eitt sinn búið á svæðinu.
Hið ævaforna skoska vatnaskrlmsli
sem heldur sig I Loch Ness er að
sjálfsögðu komið á Netið.
Áhugamenn um Nessie hafa komið
fyrir netmyndavélum við fljótið og
geta nú haldið sig heima í stofu og
rýnt I tölvuskjáinn I stað þess að
húka við vatnið með ullarteppi og
kaffibrúsa I þeirri von að kvikindið
láti sjá sig. Þessir menn láta ekki
hátæknivædda sérfræðinga eyði-
leggja fyrir sér skemmtunina.
Á www.lochness.co.uk erjafn-
framt að finna ýmsan fróðleik um
skrímslið og tilurð þess.
Hópur sérfræðinga á vegum
bresku BBC-sjónvarpsstöðvar-
innar segjast nú hafa fyrir því
sannanir að það sé ekkert til
sem heiti skrímsli í Loch Ness
vatninu í skosku hálöndunum.
Þessa staðhæflngu sína byggja
séfræðingarnir á rannsóknum sín-
um með hátæknilegum aðferðum
með hljóðbylgju- og fjarsjártækni
frá gervihnöttum. Að þeirra sögn er
hún svo nákvæm að ekkert á að
geta sloppið óséð í gegn.
Tilgangur rannsóknarinnar var
Til þess að setja sig enn
frekar í spor Nessie
rannsökuðu sérfræð-
ingarnir lagarskriðdýra
nútímans eins og
krókódíla.
SÆRINGAR: Reynt hefurverið með
ýmsum ráðum að fá Loch Ness skrímslið til
að sýna sig.
að fá úr því skorið í eitt skipti
fyrir öll hvort tilvist hins
þjóðsagnakennda
skrímslis, sem gengur
dags daglega undir nafn-
inu Nessie, eigi við rök
að styðjast eður ei.
Fjölmargar sögusagnir
hafa gengið um tilvist
Nessie og hefúr það
vissulega leitt til
vangaveltna um að
þar gæti verið á ferð-
inni svokölluð svaneðla
af ætt lagarskriðdýra
sem dó út með risa-
eðlunum.
vatnsins þrátt fyrir að heimkynni
hennar hafi frekar verið í hlýrri
vötnum hitabeltisins. Til þess að
setja sig enn frekar í spor Nessie
rannsökuðu sérfræðingarnir lífs-
venjur lagarskriðdýra nútímans
eins og krókódíla og sæskjaldbakna
og höfðu til hliðsjónar við
athuganir sínar í Loch Ness.
Þeir vonuðust sem sagt í lengstu
lög til að finna eitthvað og fylgdust
því grannt með öllum hreyfingum
mælitækjanna um borð í rann-
sóknarbátnum í von um að þau
greindu þó ekki væri nema súrefn-
isútblásturinn úr lungum Nessie.
Þeir fundu reyndar gamla bauju
sem maraði nokkra metra í kafi, og
þótti þeim það sanna hvað tækni-
búnaðurinn væri góður, en ekkert
fundu þeir
skrímslið.
Lífsvenjur
kannaðar
Það var reynd-
ar staðföst trú og
von þeirra sem
að rannsókn-
inni stóðu að
slfk skepna
gæti hafa
lifað af
köldu
vatni
Loch
Ness
RAUNVERULEIKI: Margir trúa því að Loch
Ness skrimslið sé til þrátt fyrir afneitun
vísindamanna.
Vonuðust eftir
einhverju óvenjulegu
„Við fórum frá einum vatnsbakka
til annars og skönnuðum jafnt yfir-
borðið sem djúpið. Við fórum með
tækin yfir allt vatnið og urðum ekki
varir við neitt í líkingu við lifandi
skrímsli," sagði Ian Florence, einn
sérfræðinganna sem unnu að
rannsókninni fyrir BBC.
Félagi hans, Hugh MacKay, sagði
að þeir hefðu fengið góð og skýr
rannsóknargögn af öllu vatninu,
skref fyrir skref, lárétt og lóðrétt. „í
þeim er því miður ekkert óvenju-
legt og því ekkert til marks um að
Nessie búi í vatninu. Ég viðurkenni
„Fólk sér það sem það
vill sjá og trúir því sem
það vill trúa/'sagði
einn sérfræðinganna.
að menn vonuðu virkilega að tækin
skynjuðu eitthvað óvenjulegt sem
gæti verið skrímsli," sagði MacKay.
Þjóðsagan ein eftir
Að sögn sérfræðinganna stendur
þjóðsagan um Nessie nú ein eftir.
„Fólk sér það sem það vill sjá og
trúir því sem það vill trúa," sagði
einn þeirra. Til að sanna þetta
komu sérfræðing-
arnir í laumi fyrir girðingarstaur
undir yfirborðinu rétt úti fyrir
ströndinni og létu hann rísa upp úr
vatninu þegar hópur ferðamanna
átti leið um. í viðtali á eftir voru
flestir sjónarvottarnir vissir um að
þarna hefði hin eina sanna
Nessie verið á ferðinni og þegar
þeir voru beðnir að teikna
fyrirbærið bjuggu þeir til
mynd af ímynduðu skrímsli.
Lengi lifi Nessie!
Lengi vel var til ágæt Ijósmynd af
Loch Ness skrímslinu eða Nessie,
eins og það er iðulega kallað. Það
var lyfjafræðingurinn Robert Kenn-
eth Wilson sem tók hana árið 1934.
Sú mynd var þekkt áratugum sam-
an en það má segja að hún hafi
misst Ijómann árið 1993. Þá viður-
kenndi ættingi Wilsons á dánar-
beði að hafa tekið þátt í fölsun
myndarinnar. Sagði hann þá
frændur hafa notað fjarstýrðan
leikfangabát til verksins.
Nýlega birtust fréttir af því að vatnaskrímsli hefðu sést íTianchi-vatni í
Kína en lýsingin á kvikindunum sem sáust þar minnir um margt á
lýsingar sem til eru af Loch Ness skrímslinu.
RÚSSLAND
Stærð manns til
samanburðar.
NORÐUR
KÓREA
SUÐUR-
KÓREA
.V"
/V
KNA
Austur-
Klnahaf
Vatnaskrimsli
heimsins
y'
REUTERS
Vatnaskrímsli eru
talin vera í um það
bil 250 vötnum
vlða um heim.
Heimild: The Shadowlands
S> Algengt að tilkynnt
sé um vatnaskrímsli.