Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Qupperneq 28
28 DVSPORT ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ2003
DV Sport Keppni í hverju orði Ragna úr leik BADMINTON: Ragna Ingólfs- dóttir, (slandsmeistari í badmin- ton, féll í gærmorgun úr leik á heimsmeistaramótinu í bad- minton sem nú er haldið í Birmingham á Englandi. Ragna tapaði fyrir hollensku stúlkunni Judit Meulendijks, 2-11 og 4-11. Hollenska stúlkan er í 13. sæti á heimslistanum í badminton en Ragna i því 44. Góður sigur KNATTSPYRNA: Auðun Helga- son lékallan leikinn þegar lið hans, Landskrona, vann góðan útisigur á Hammerby í Svíþjóð í gær, 1-0. Var þetta fyrsti útisigur Landskrona og fyrsta tap Hammerby á heimavelli á tíma- bilinu, að loknum 15 umferðum. Landskrona situr í 10. sæti en Hammerby í öðru, 3 stigum á eftir Djurgárden. Lést í bílslysi KNATTSPYRNA: Litháski knattspyrnukappinn Audrius Slekys fórst, 28 ára gamall, af slysförum á sunnudag þegar hann missti stjórn á bíl sínum og ók á steinsteyptan vegg. Hann lék með Kaunas og var marka- hæsti leikmaður deildarinnar í fyrra. Hann kom ekki við sögu í landsleikjum (slands og Litháen á undanförnu ári. HSV vann KNATTSPYRNA: Hamburger Sportverein og Borussia Dortmund áttust við í úrslitaleik þýska deildarbikarsins í gær. Leikurinn var hinn fjörlegasti og lauk með 4-2 sigri Hamburg en undir lokin var einn leikmaður úr hvoru liði rekinn af velli. Staðan var 3-1 í hálfleik en leikurinn fór fram í Mainz að viðstöddum 16.700 áhorfendum.
Netfang: dvsport@dv.is Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889
1 Heimsmeistaramótið ísundi í Barcelona - samantekt
Frábær árang-
ur í Barcelona
7 íslandsmet féllu - ÁrangurArnar olli helst vonbrigðum
ÁRANGUR ÍSLENDINGANNA
HM I sundi lauk i Barcelona í gær. 8
(slendingar kepptu á mótinu og settu
samtals 7 (slandsmet. Árangur þeirra
meö tilliti til (slandsmeta og þeirra
þesta árangurs til þessa:
Anja Rlkey Jakobsdóttir, SH:
50 m baksund 30,89 (34/64)
Besti árangurönju er 31,50 sek. *
100 m baksund 1:05,80 (34/60)
PM: Bæting upp á 2,19 sek.
Heiðar Ingi Marinósson, SH:
50 m skriðsund 24,02 (62/163)
PM: Bæting upp á 0,38 sek.
100 m skriðsund 53,15(73/158)
PM: Bæting upp á 0,06 sek.
(ris Edda Heimisdóttir, ÍRB:
50 m bringusund 34,01 (34/58)
PM: Bæting upp á 0,2 sek. *
100 m bringusund 1:13,28(34/64)
PM: Bæting upp á 0,91 sek. ÓL
200 m bringusund 2:38,04 (30/43)
PM: Bæting upp á 0,18 sek.
Heimsmeistaramótinu í sundi
lauk í Barcelona í fyrradag en 7
íslenskir sundmenn tóku þátt.
Árangurinn lét ekki á sér
standa, 7 fslandsmet féllu, 5
syntu undir ólympíulágmarki í
9 greinum og allir bættu sig í
minnst einni sundgrein. Við
ræddum við Steindór Gunnars-
son landsliðsþjálfara.
„Við getum ekki annað en verið
mjög ánægð með árangur okkar
fólks. Heildarbæting hjá sund-
mönnum var 65% og allir sund-
menn náðu að bæta sig í einhverri
grein. Við settum 7 íslandsmet og
komum tveimur sundmönnum í
milliriðla og ég er mjög stoltur af
liðinu," sagði Steindór.
Hann taldi sundfólkið hafa stað-
ið undir væntingum og að erfiði
undirbúningstímabilsins í vetur
væri að bera ávöxt. Okkar besti
sundmaður, Öm Arnarson, náði
sér hins vegar ekki á strik og komst
ekki í úrslitasundið í 100 m
baksundi, eins og vonast hafði ver-
ið til.
„Auðvitað horfír þjóðin til Arnar
og að hann hafi ekki komist lengra
en raunin varð. Þetta er eitthvað
sem við eigum eftir að fara yflr en
hann var vissulega búinn að æfa vel
í vetur og reyndar komu upp smá-
vankantar í kringum smáþjóðaleik-
ana en við héldum að það myndi
ekki trufla okkur. Það kom síðan á
daginn að hann synti mjög vel í
undanrásum um daginn og fór létt
inn, þannig að allt leit vel út. í milli-
riðlunum gekk einfaldlega ekki eins
og skyldi. Einhvern veginn fann
hann ekki taktinn og sundið leit illa
út, því fór sem fór. Aftur á móti
sýndi hann í 50 m baksundinu að
hann hefur mikinn hraða sem er
góðs viti.“
„Við erum hvergi
bangnir og höldum
fyrri stefnu. íBarcelona
bætti Örn tvö íslands-
met og sýndi að hann
hefuryfir góðum hraða
aðráða"
Örn keppti ekki í sinni sterkustu
grein, 200 metra baksundi, og segir
Steindór það hafa komið til vegna
fyrrgreindra erfiðleika stuttu fyrir
mót. „Við ákváðum að taka það
einfaldlega af dagskrá Arnar. Þessi
lengri sund eru erfið og það er
meira en að segja það að skila góð-
um tíma þar.“
Rúmt ár er nú til stefnu þar til
Ólympíuleikarnir í Aþenu hefjast
og hefur Örn áður sagt að hann
stefni á hæstu hæðir þar.
„Við erum hvergi bangnir og
höldum fyrri stefnu. í Barcelona
bætti hann tvö íslandsmet og sýndi
að hann hefur yfir góðum hraða að
ráða. Þó verður 200 m baksundið
áfram hans sterkasta grein og það
mun ekki koma til með að breytast.
Hann er mikill úthaldsmaður og er
sterkari í lengri vegalengdum,"
sagði Steindór. eirikursmdv.is
Jakob Jóhann Svelnsson, Ægi:
50 m bringusund 30,14(47/93)
Besti tími Jakobs er 29,66 sek. *
100 m bringusund 1:03,11(31/92)
(M: Bæting uppá 0,14 sek. ÓL
200 m bringusund 2:15,20(16/56)
(M: Bæting upp á 0,14 sek. ÓL
Jón Oddur Sigurðsson, (RB:
50 m bringusund 29,49 (36/93)
(slandsmet Jóns er 29,31 sek.
100 m bringusund 1:05,91 (53/92)
PM: Bæting upp á 0,05 sek
Kolbrún Ýr Krlstjánsdóttir, (A:
50 mflugsund 28,61 (25/56)
Besti tími Kolbrúnar er 28,58 sek *
100 m flugsund 1:03,49 (30/53)
PM: Bæting upp á 0,86 sek.
50mskriðsund 26,89(42/100)
Besti timi Kolbrúnar er 26,83 sek. ÓL
100 m skriösund 57,94 (38/86)
(M: Bæting upp á 0,23 sek. ÓL
Lára Hrund Bjargardóttir, SH:
100 m skriðsund 59,07 (47/86)
Besti tími Láru er 58,44 sek.
200 m skriðsund 2:04,90 (37/63) |
íslandsmet Láru er 2:04,86 ÓL
200 m fjórsund 2:20,35(31/53)
(M: Bæting upp á 2,07 sek. ÓL
örn Amarson, ÍRB:
50 m baksund 26,18(19/89)
(M: Bæting upp á 0,14 sek. *
100 m baksund 55,67 (10/84)
(slandsmet Arnar er 54,75 sek. ÓL
100 m skriðsund 50,59 (32/158)
ÍM: Bæting upp á 0,86 sek. ÓL
PM: Persónulegt met
(M: Islandsmet
ÓL Synti undir Ólympíulágmarki
*: Ekki keppnisgrein á Ólympíul.
(34/64): Sæti I keppnisgrein/fjöldi
þátttakenda sem luku keppni
eirikurst@dv.is
FRÆKIÐ SUNDLANDSLIÐ: Frá vinstri eru Jakob Jóhann Sveinsson, Jón Oddur Sigurðsson, Anja Ríkey Jakobsdóttir, Heiðar Ingi Marinósson, Örn Arnarson, Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir og Iris
Edda Heimisdóttir. DV-mynd
FLEST VERÐLAUN Á HM
Land: G 5 B Samtals
Bandaríkin 12 13 5 30
Rússland 10 5 6 21
Ástralía 7 13 6 26
Kína 7 4 9 20
Þýskaland 5 6 5 16
HEIMSMETT SETT Á HM
Grein Keppandi Tími
g200 m bri. kv. A. Beard ■2:22,99*1
100mflug. k. lanCrocker 50,98
100mbri. kv. LeiselJones 1:06,37
lOOmbri. k. K. Kitajima 59,78
200 m bri. k. K. Kitajima 2:09,42
200 m fiug. Ic M. Phelps 1:53,93
200mflug. k. M. Phelps 1:56,04
200 m fjór. k. M. Phelps 1:57,52
lOOmflug. k. M. Phelps 51,47
400 m fjór. k. M. Phelps 4:09,09
50 m baks. k. T. Rupprath 8§#<8Q'.i
100 m flug. k. A. Serdinov 51,76
50 m flug. k. Matt Welsh 23,43
4x100 m fj. k. Bandaríkin 3:31,54
* metjöfnun
Michael Phelps
stjarna mótsins
Fyrir mótið var búist við að
Ástralinn lan Thorpe fengi hvað
mesta athygli. Það kom hins
vegar á daginn að 18 ára piltur,
Bandaríkjamaðurinn Michael
Phelps, stal senunni enda setti
hann á mótinu 5 heimsmet.
Þó svo að Phelps og Thorpe
keppi ekki í sömu greinum má auð-
veldlega etja þeim saman enda vilja
þeir sjálfsagt báðir komast á spjöld
sögunnar sem sigursælasti sund-
maður allra tfma. Þá er sérstaklega
horft til mets Bandaríkjamannsins
Mark Spitz sem vann 7 gullverð-
laun á Ólympíuleikunum í
Múnchen árið 1972.
Þá var Rússinn Alexander Popov
einn manna mótsins en þessi 32
ára kappi endurtók afrekin á HM í
Róm 1994 og vann 50 og 100 m
skriðsund auk þess að leiða sveit
Rússa til sigurs í 4x100 m skrið-
sundi karla.
Hollendingurinn Pieter van den
Hoogenband náði ekki að sýna sitt
rétta andlit á mótinu og er talið að
matareitrun fýrir tveim vikum hafi
sagt til SÍn. eirikurst@dv.is.
ÓSTÖÐVANDI: Michael Phelps var fyrsti maðurinn í sögunni til að vinna 5 gullverðlaun,
öll í einstaklingsgreinum, á einu og sama mótinu. Reuters