Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 Endurfluttir í annað sinn Hærri greiðslur LAUNAGREIÐSLUR: Ábyrgða- sjóður launa innti af hendi tvö- falt meiri greiðslur í fyrra en árið á undan. Greiðslur sjóðsins námu 715 milljónum króna í fyrra en 356 milljónum árið 2001 og 170 milljónum árið 2000. Þetta kemur fram í árs- skýrslu Vinnumálastofnunar sem kynnt var um helgina. ( skýrslunni kemur jafnframt fram úr Ábyrgðasjóði að greiðslur sjóðsins hækkuðu um 9% fyrstu átta mánuði þess árs og þykir það benda til versn- andi rekstrarumhverfis fýrir- tækja hérlendis. Ábyrgðasjóður ábyrgist launagreiðslur og líf- eyrssjóðsgreiðslur launþega þegar fyrirtæki fara í gjaldþrot. Hámarksábyrgð sjóðsins vegna launakrafna nemur nú 250 þús- und krónum á mánuði. TÓNLIST: Vegna fjölda áskor- ana verða tónleikar Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, Gunnars Guð- björnssonar, Kristins Sig- mundssonar og Jónasar Ingi- mundarsonar í Salnum endur- fluttir í annað sinn næstkom- andi miðvikudagskvöld, 1. október, og hefjast klukkan 21. Fjórmenningarnir slógu ræki- lega í gegn á tónleikum í Saln- um síðastliðið föstudagskvöld; fullt var út úr dyrum og gríðar- góð stemmning. Fyrri aukatón- leikar verða í kvöld en uþþselt er á þá. Miðasala á tónleikana á miðvikudagskvöld hófst klukkan 10 í morgun. Hægt er að festa kaup á miðum á Net- inu á slóðinni www.salurinn.is eða hringja í síma 5700 400. Verslanakeðjan lceland í fjársvikarannsókn Grunur um að fjárfestarhafi veríð blekktir ■: \ Verslanakeðjan lceland, sem Baugur á m.a. hlut í, horfir nú fram á ítarlega fjársvikarann- sókn af hálfu Serious Fraud Office í Bretlandi. Frá þessu var greint í frétt í Mail on Sunday í gær. Grunur er um að svik hafi átt sér stað varðandi viðskipti með hluta- bréf í fyrirtækinu í desember árið 2000. Athugunin hófst í vor, þegar fjársvikadeildinni voru afhent gögn fyrirtækjarannsóknardeildar hjá breska viðskiptaráðuneytinu DTI. Var stofnunin beðin um að skoða málið vegna grunsamlegra innherj- aviðskipta með hluti í félaginu. Grunsemdir vöknuðu þegar Maicolm Walker, fyrrverandi stjórnarformaður Iceland, seldi hluti upp á 13,5 milljónir prunda í desember árið 2000. Þá var gengi hlutabréfa í fyrirtækinu skráð mjög hátt, aðeins einum mánuði áður en afkomuviðvörun var gefin út. Malcolm Walker hætti hjá fyrirtæk- inu eftir söluna. Eftir athugun á gögnum um málið ákvað SFO fyrr í þessum mánuði að hefja rannsókn á fyrirtækinu af fullum krafti. Að hluta í eigu Baugs Baugur-ID festi kaup á 14,99% hlut í breska verslunarfyrirtækinu The Big Food Group í fyrrahaust. Kaupverð var 40 pens á hvern hlut. Fyrirtækið á og rekur verslanakeðj- urnar Iceland, Booker og Wood- ward og velti samtals um 5.220 milljónum punda á ári, eða um 710 milljörðum íslenskra króna. Verslanir The Big Food Group eru samtals 936 talsins í Englandi, Skotlandi og írlandi og hjá fyrirtæk- inu starfa yfir 30 þúsund manns. Fyrirtækið á og rekur þrjár versl- anakeðjur, Iceland, Booker og Woodward, sem starfa á matvöru- markaði. Iceland er eitt af sterkustu vörumerkjum Bretlands í frosnum matvörum og rekur 759 verslanir um allt land og versla þar meira en VERSLANAKEÐJAN ICELAND: Rannsókn er nú hafin á því hvort fjárfestar hafi verið blekktir. 4 milljónir viðskiptavina í hverri viku. Rannsókn SFO er, að mati Mail on Sunday, sögð snúast um meira en meint innherjasvik. Verið sé m.a. að skoða fjárhagsstöðu fyrir- tækisins áður en ný stjórn var sett yfir fyrirtækið I byrjun árs 2001. Þá sé verið að skoða rekstrarárangur fyrirtækisins á fyrri helmingi ársins 2000. Snýst það um hvort fjárfest- um hafi verið gefin röng mynd af stöðunni. Fjárfestum var kynntur I september 2000 hagnaður fyrirtæk- isins á fyrri hluta þess árs og ekkert gefið tií kynna um að fyrirtækið horfði fram á erfiðleika. Ný stjórn undir forystu Bill Grimsey sagði að rekstrarhagnaður fyrirtækisins fyrir allt árið 2000 hefði verið 26 milljón- ir punda, eða 13,5 milljónum punda lægri en fyrri stjóm hafði fullyrt að hann væri, og þá aðeins fyrir fyrri hluta ársins, eða 39,5 milljónir punda. hkr@dv.is. Athugunin hófst í vor, þegar fjársvikadeild- inni voru afhent gögn fyrirtækjarannsóknar- deildar hjá breska við- skiptaráðuneytinu DTI. Framsókn styður refsingu við kaupum Landsþing framsóknarkvenna hefur ályktað að leitt skuli í lög að kaup á vændi verði gerð refsiverð. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður Vinstri-grænna, segir að þar með muni a.m.k. tveir þing- menn úr Framsóknarflokki, Sam- fylkingu, Frjálslyndum og hennar flokki leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um hvað skuli í framtíðinni gert refsivert þar sem vændi er annars vegar. Sjálfstæð- isflokkurinn sé hins vegar enn að skoða breytingartillögurnar. Kolbrún sagði við DV að þannig verði refsing ekki lögð við því að stunda vændi en að öðru máli gegni um kaup á því. Með því móti verði áhersla í raun lögð á að vel stæðir menn nýti sér ekki neyð á vændi Kolbrún Halldórsdóttir þeirra sem hafa viljað stunda vændi. Þetta sé viðsnúningur frá núgildandi lögum því að nú sé refsivert að framfleyta sér á slíku. Stunginn fyrir utan Vegna fréttar um hnífstungu við busaball Menntaskólans við Sund á skemmtistaðnum Brodway sem birt- ist í DV laugardaginn 27. september vill Már Vilhjálmsson, rektor skóians, taka fram að hann telji fréttina skaða orðstír skólans og gera eftirfarandi athugasemdir: „f fréttinni segir með- al annars að fómarlambið hafi verið stungið í fjórgang á busaballi." Már segir að þetta sé ekki rétt því að hnífstungan hafi átt sér stað fyrir utan skemmtistaðinn en ekki inni á honum. Már vill einnig taka fram að hvorki árásarmaðurinn né fómar- lambið séu nemendur skólans. Að sögn Más hafa þeir hjá Menntaskólanum við Sund ávallt samband við lögregluna fyrir böll og biðja hana um að vera sýnileg fyrir utan skemmtistaðinn en því miður séu svörin alltaf þau sömu, að lög- reglan hafi ekki mannskap til að sinna slíkum verkefnum. SKÁU: Það var glatt á hjalla á Hverfisbarnum síðastliðið fimmtudagskvöld þegar eigendur barsins handsöluðu samning við Ölgerðina um sölu á Smirnoff lce. Undirskriftin fór fram á miðnætti og kom Morten Bangasgaard frá Smirnoff lce hingað til lands gagngert til að fagna áfanganum með gestum og eigendum Hverfisbarsins. Á myndinni eru Þórður Ágústsson, Jón Diðrik, Bangsgaard, Rósant F. Birgisson og Einar Sturla við ískaldar vodkatunnurnar. DV-mynd Eggert Kaupþing Búnaðarbanki kaupir finnskt fjárfestingarfélag Kaupþing Búnaðarbanki hefur eignast meirihlutann í finnska fjár- festingarfélaginu Norvestia Oyj. Andvirði kaupanna er um 5,5 millj- arðar króna sem greiddir eru með eigin hlutabréfum í Kaupþingi- Búnaðarbanka. í frétt til Kauphallar segir Norvesúa Oyj sé skráð á finnska hlutabréfamark- aðinum. Kaupþing Búnaðarbanki eignast 300.000 óskráða A-hluti og 1.249.617 skráða B hluti, sem samsvara 54,44% atkvæðisréttar í Norvestia, og 30,35% af nafnvirði heildarhlutafjár. Seljandi hlutanna er sænska fjárfest- ingarfélagið Havsfrun AB sem skráð er á O-lista Kauphallarinnar í Stokkhólmi. Havsfhm á enga hluú í Norvesúa eftir söluna. Salan er gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Havsfrun en nú þegar hafa eigendur meira en 50% hlutafjár í Havsfrun skuldbundið sig til að samþykkja söluna. Eftir viðskiptin verður finnska félag- ið dótturfélag Kaupþings en verður rekið áfram sem sjálfstætt félag. I yfir- lýsingu segir Sigurður Einarsson, stjómarformaður að með kaupunum styrkist staða Kaupþings Búnaðar- banka umtalsvert í Finnlands. „Kaupin em annað skrefið í sókn okkar inn á finnska fjármálamarkaðinn í kjölfar kaupanna á Sofi í árslok 2001 og í sam- ræmi við þá stefnu bankans að vera leiðandi norrænn fjárfestingarbanki. Kaupþing Búnaðarbanki hefur tvö- faldast að stærð á hveiju ári undanfar- in fimm ár og á sama tíma hefur arð- semi eigin fjár numið rúmlega 30% á ári, sem er vel yfir markmiðum okkar um 15% arðsemi eigin fjár. Horfur fyrir árið 2003 em góðar og við gemm ráð fyrir því að ná arðsemismarkmiðum okkar."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.