Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Blaðsíða 14
74 MENNING MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003
Menning
Leikhús ■ Bókmenntir ■ Myndlist • Tónlist • Dans
Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir
Netfang: silja@dv.is
Sími: 550 5807
Jazzhátíð kvikmynduð
DJASS: Jazzhátíð Reykjvíkur
verður haldin 4.-9. nóv. Hér er
nú staddur sjónvarpsmynda-
framleiðandi frá BET Jazz
Channel til þess að skoða að-
stæður til myndatöku á hátíð-
inni og líta á ýmsa ferða-
mannastaði í nágrenni Reykja-
víkur sem henta til landkynn-
ingar í sjónvarpsþáttum um
hátíðina. Nú þegar hafa verið
sýndir tveir þættir í Bandaríkj-
unum, annar með glefsum frá
hátíðinni I fyrra, hinn með
Broadwaytónleikum Stórsveit-
ar Reykjavíkur með Greg Hopk-
ins. Þessir sjónvarpsþættir hafa
vakið mikla athygli. Á næst-
unni verður svo sýndur þáttur
til kynningar á hátíðinni í nóv-
ember sem væntanlega lokkar
að marga erlenda gesti.
Af Márum
SAGNFRÆÐI: fhádeginuá
morgun flytur Már Jónsson
sagnfræðingur erindið „Heiman
eða heim? Brottrekstur Mára frá
Spáni í byrjun 17. aldar“ í fyrir-
lestraröð Sagnfræðingafélags
(slands, „Hvað er (um)heimur?"
Fyrirlesturinn verður í Norræna
húsinu, hefst kl. 12.05 og lýkur
kl. 13.00. Aðgangur er ókeypis
og öllum opinn.
Seiðandi
TÓNLIST: Annað kvöld kl. 20
heldur Hannes Þ. Guðrúnarson
gítartónleika í Salnum í Kópa-
vogi. Á efnisskrá er tónlist frá
Paragvæ, Mexíkó og Kúbu eftir
Agustin Barrios Mangore,
Manuel M. Ponce og Leo
Brouwer. Þetta eru fyrstu tón-
leikarniraffimm íTónleikaröð
kennaraTónlistarskóla Kópa-
vogs starfsárið 2003-2004.
Sköpunar-
kraftur og áræði
HÖNNUNARGAGNRÝNI
Ásrún Kristjánsdóttir
Textfllistamaðurinn Ingiríður Óðinsdóttir
hefur opnað sýningu á verkum sínum í
Sverrissal í Hafnarborg. Ingiríður er menntuð
í Myndlista- og handíðaskóla íslands og
Valand listaháskólanum f Gautaborg og hef-
ur stundað list sfna jafnt og þétt frá því hún
lauk námi á níunda áratugnum.
Ingiríður hefur víða þreifað fyrir sér innan
hins víðfeðma og heillandi textflfags. Ég
minnist þess að hafa séð eftir hana ofin og
saumuð verk en silkiþrykkt verk hennar á
ýmis eðalefni er það sem kemur fyrst í hug-
ann þegar ferill hennar er skoðaður. Hún var
um árabil kennari í munsturgerð og silki-
þrykki í MHÍ og hefur margur nemandinn
notið tæknilegrar færni hennar og listrænnar
leiðsagnar.
í innri hluta Sverrissalar hefur Ingiríður
stillt upp nokkrum verkum sem eiga það
sameiginlegt að vera unnin í ullarflóka. Þarna
hefurlistakonan enn kannað ný mið. Hráefn-
ið er litaðar ullarkembur. Það þarf að þæfa og
velkjast með ullina þangað til hún verður að
þykkum flóka sem hefur í sér marga tóna af
hverjum lit, auk þess að móta formið. Ingirfð-
ur hefur skorið út form inn í fletina, auk þess
sem hún hefur saumað í einföld munstur
með samlitu garni.
Verkin númer 1,2,3 og 10 eiga það sameig-
inlegt að vera veggverk þar sem formið er fer-
hymt. Sterkast af þeim er „fjólublá skál“, þar
hefur tekist vel til með bæði form og litbrigði.
„Án titils" nr. 9 er sérstætt verk þar sem
bogaform eru mótandi og einfaldur skurður í
miðju verksins vekur upp ótal hugleiðingar.
Skálarnar í miðju salarins eru fallega unnin
og sterk verk þar sem íslenskt grjót leikur lág-
vært og smekklegt hlutverk.
Það er alltaf eitthvað hrífandi
við það þegar búið er að með-
höndla efni þangað tilþað fer
að skína í tærum einfaldleik.
í indíánasamfélögum fyrr á öldum var
textfliðjan notuð til þess að komast í hug-
leiðsluástand. Sömu handtökin aftur og aftur
geta fyllt hugann af friði sem aftur getur birst
í verkunum. Þessi áhrif komast til skila í
„skálaverkum“ Ingiríðar sem bera nöfn sem
SKÁLDIÐ OG USTAMAÐURINN: Þór Stefánsson og Sigurður Þórir með afurðina.
I Ijósi þínu
Ný ljóðabók, í ljósi þínu, gefin út af
Goðorði, geymir sextíu ijóð eftir Þór Stef-
ánsson og þrjátíu pennateikningar eftir Sig-
urð Þóri listmálara. Á hverri opnu bókar-
innar eru tvö ljóð og ein heilsíðumynd sem
á við annað hvort þeirra eða bæði. Ekki er
um neins konar hermilist að ræða því Sig-
urður Þórir túlkar ljóðin frjálslega í mynd-
um sfnum. Ljóðin urðu til fyrst og mynd-
sköpunin varð við lestur þeirra. Þó er jafn-
fróðlegt að rýna í myndimar og ljóðin en
skemmtilegast þó að tengja listformin sam-
an.
í ljósi þínu er fimmta frumsamda ljóða-
bók Þórs og eina hinna eldri, Ljóð út f veður
og vind (1998), myndskreytti Sigurður lika.
Auk þess hefur hann gert bókarkápur á
bæði fmmsamin og þýdd ljóð Þórs.
Ljóðin í bókinni em mörg hver samtöl við
ástvin og viðfangsefni þeirra em tilfinning-
ar milli einstaklinga - ástin í gleði og harmi,
eins og til dæmis kemur fram í 16. ljóði ann-
ars hluta sem Sigurður Þórir myndlýsir
hnitmiðað:
/ tónverki okkar er
hæsti hlátur
og dýpsti tregi.
Hvorlýsir öðrum,
skær hljóm ur gáskans
og dimmur söngur harmsins.
Hvorugur þrífst án hins
enda eru þeir tvær hliðar
sama penings.
FYLLIR HUGANN FRIÐI: „Græn jörð" eftir Ingiríði Óð-
insdóttur.
manni virðast vel viðeigandi: Flókaskál fyrir
kærleika, Flókaskál fyrir vináttu, Flókaskál
fyrir umhyggju, og svo framvegis.
Það tekur listamann alltaf nokkurn tíma að
ná tökum á nýjum miðli. Skála-verk Ingiríðar
gefa fyrirheit um átakameiri verk í framtíð-
inni.
Hreindýraskæði í klæði
Athafnakonan Signý Ormarsdóttir, kennd
við Egilsstaði þar sem hún hefur ámm saman
framleitt og gert merkar tilraunir með fram-
leiðslu á fatnaði úr skinnum, sýnir nú nýjustu
afurðir sínar f sýningarsal Listhúss Ófeigs við
Skólavörðustíg í Reykjavík. Hér sýnir hún
okkur meðferð sína á hreindýraskinni þar
sem hún hefur hannað bæði skinnáferð, litun
og snið.
Ég minnist þess að hafa séð frábærlega vel
hönnuð veiðivesti eftir Signýju. Minnist þess
einnig að hafa handleikið fatnað þar sem allt
fór saman; sterkir, fallegir litir, einföld snið
og hágæðaskinn, þykkt, mjúkt og algjörlega
búið að lúta endurskapara sínum.
Það er alltaf eitthvað hrífandi við það þeg-
ar búið er að meðhöndla efni þangað til það
fer að skína í tæmm einfaldleik. Það þarf svo
mikið til ef láta á efni, sem hefur verið tekið út
úr sínu eiginlega umhverfi, uppheijast f það
að vera næstum eins flott og þegar guð skóp
það úti í náttúmnni. Ég sá dæmi um þetta í
verslun Signýjar á Egilsstöðum þegar ég fór
þar um á ferðalagi fyrir nokkmm ámm.
Á sýningunni í Listhúsinu em sex gínur í al-
klæðnaði. Pils, toppar og kjólar. í sýningar-
skrá segir að stfllinn sé hafinn yfir tísku-
strauma, og má það til sanns vegar færa.
Signý hefur litað húðirnar og látið „rönguna"
snúa út. Þetta framkallar óreglulega litaða
fleti á náttúrulegum hreindýraskinnslitnum.
Sniðin em aðskorin og oftar en ekki tekin
saman með böndum sem þrædd em í gyllta
kósa. Hún leyfir ójöínum jöðmnum á skinn-
inu, eins og það er þegar því er flett af dýrinu,
að mynda útíínur á flíkunum. Auk þess fá öll
göt á skinninu að „njóta sín“. Þetta er áræðin
aðferð sem stundum gerir sig en er þó ofnot-
uð hér. Öll þessi villtu og tilviljanakenndu
form, að viðbættum óreglulegum litaflötum
og götum, kæfir og tekur athyglina frá listi-
lega unnum og fínlegum smáatriðum í
saumaskap og samsetningu sem víða er að
finna á flíkunum.
Litaval er fallegt og ýmist helst í hendur við
náttúmlitinn eða brýtur hann upp. Dæmi um
þetta er glæsilegur skærrauður litur sem
myndar fjölbreytilegustu form sem menn
nytu betur ef útífnur á flíkunum væm ekki
svona óreglulegar.
Vesti úr margsamsettu fiskroði er athyglis-
verð flík þar sem hráefnið er skemmtilega
notað. Mosagræni síðkjóllinn, þar sem bætt
hefur verið í götin með dekkri lit, gefur líka
fyrirheit um áframhald sem spennandi verð-
ur að fylgjast með.
SKINNKJÓLL: Signý leyfir ójöfnum jöðrunum á skinn-
inu að mynda útlínur á flíkunum.
Til hamingju með sýninguna, hún er áræð-
in og full af þrótti. Hún er líka vel uppsett og
fer ágætlega í þessu látlausa sýningarrými.
Graffskt efni á veggjum og kynningarspjöld-
um er vel unnið og fagmannlegt.
Sýning Ingiríðar í Hafnarborg er opin alla
daga nema þriðjudaga kl. 11 -17 og henni lýk-
ur 6. okt.
Sýning Signýjar í Listhúsi Ófeigs stendurtil 8.
okt.