Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Blaðsíða 16
76 SKOÐUN MÁNUDAGUR29. SEPTEMBER2003 Ríkið þenst út og heimilin eyða Útgjöld rfldsins aukast hraðar en tekjur og það þrátt fyrir að tekjur séu að aukast töluvert og langt umfram verðlag. Fyrstu átta mánuði ársins hækkuðu skatttekj- ur rfldssjóðs um 5,8% sem jafngildir 3,8% raun- hækkun milli ára. Rfldssjóður naut nær 4% hærri tekna af tekjuskatti og hvorki meira né minna en 9% hærri tekna af virðisaukaskatti. Þrátt fyrir þetta er halli. í hálffimm-fréttum Kaupþings Búnaðar- banka í liðinni viku er bent á að handbært fé frá rekstri hafi verið neikvætt um 18,3 milljarða króna sem er tveimur milljörðum verri staða en á sama tíma á síðasta ári en 1999 og 2000 var greiðsluafkoma hins vegar jákvæð um sjö millj- arða króna. Útgjöldin aukast því hraðar en tekjur og án tillits til tekna af sölu hlutabréfa jukust tekjurn- ar um 5,3% en ríkisútgjöldin um 6,7% miðað við sama tíma í fyrra. Mikil aukning tekna bendir til þess að umskipti í efnahagslífinu séu að koma fram. Aukning rfldsútgjalda bendir hins vegar til þess að rfldsstjórnin hafi slakað á klónni - að- hald í rfldsíjármálum hefur minnkað. í hálf- fimm-fréttum Kaupþings-Búnaðarbanka segir um þetta. „í ljósi tilvonandi stóriðjufram- kvæmda getur svo mikill vöxtur í rfldsútgjöld- um varla talist æskilegur en miklu máli skiptir að gætt verði aðhalds í stjórnun rfldsfjármála á komandi árum. Venja er þó að reka rfldssjóð með nokkrum halla þegar samdráttur er í hag- kerfmu líkt og á seinasta ári og virkar það til sveiflujöfnunar. Af sömu ástæðum er reynt að skila afgangi í góðæri en langt virðist vera í land að það náist og útlit er fyrir ágætis hagvöxt í ár.“ Eyðslan hafin Á öðrum ársfjórðungi jókst kaupmáttur launa um 3,2% en á sama tíma jókst einkaneysla um 7,5%. Heimilin í landinu eru því byrjuð að eyða meira en launaþróun gefur tilefni til. Ekki verð- ur annað séð en aukin neysla sé íjármögnuð með aukinni skuldasöfnun - verið er að taka út á væntanlegt góðæri og hækkandi laun. Alþingi mun koma sama í vikunni. Eitt mikilvægasta málsem þar verð- ur tekið fyrir, venju samkvæmt, er frumvarp til fjárlaga fyrir komandi ár. DV hefur margsinnis haldið því fram að skattkerfið sé einn veikasti bletturinn á Sjálfstæðisflokknum. í vetur mun koma í Ijóst hvort stjórnarandstaðan getur nýtt sé þann veikleika íslendingar hafa slæma reynslu af því að „drekka“ út á betri tíma. Og jafnvel þó að alit bendi til þess að næstu ár verði hagstæð í efna- hagsmálum er ekki við því að búast að launa- hækkanir verði jafnmiklar og í fyrri uppsveifl- um. Ástæðan er einföld. Þáttur launa í verð- mætasköpuninni er svo stór að vart verður hægt að stækka hann án þess að eitthvað láti undan. Bætt lífskjör og hærri ráðstöfunartekjur heimilanna verður því ekki fjármagnað með hærri launum heldur með lægri sköttum hins opinbera. Verkefni fjármálaráðherra er að tryggja aðhald í rfkisfjármálum en um leið að almenningur fái notið þess góðæris sem fram undan er og sem raunar er þegar hafið. Það get- ur hann aðeins gert með því að draga úr vexti rfldsins og tryggja þannig að aukar þjóðartekjur renni til fyrirtækja og einstaklinga en ekki beint í ríkiskassann. Veiki bletturinn Uppskurður skattkerfisins hefur lengi verið öllum ljós þótt fátt hafi verið aðhafst, ekki síst vegna þess að stjórnmálamenn eru ekki sam- stiga í því að lofa launafólki að halda eftir stærri hluta tekna sinna. I leiðara DV um miðjan ágúst sagði um skattkerfið: „Skattbyrði hefur aukist enda hafa tekjur hækkað. Skattkerfið gengur beinlínis út á að taka stærri skerf af háum laun- um en lágum. Vitleysan í tekjuskattskerfinu liggur ekki síst í því að byrði þeirra tekjulágu hefur aukist meira en þeirra sem hafa háar tekj- ur. Og tekjulágu fólki er beinlínis refsað fyrir dugnað - eftir því sem tekjur þess hækka eykst skattbyrðin. Þannig er innbyggður hemill á dugnað í skattkerfið - dregið er skipulega úr sjálfsbjargarviðleitni og dugnaður er verðlaun- aður með aukinni skattbyrði." Alþingi mun koma sama í vikunni. Eitt mikil- vægasta mál sem þar verður tekið fyrir, venju samkvæmt, er frumvarp til fjárlaga fyrir kom- andi ár. DVhefur margsinnis haldið því fram að skattkerfið sé einn veikasti bletturinn á Sjálf- stæðisflokknum. I vetur mun koma í ljóst hvort stjórnarandstaðan getur nýtt sé þann veikleika. „En til þess þarf að koma fram með heildstæð- ar og raunhæfar tillögur til úrbóta, en ekki ein- hverja niðursoðna, gamla, úrelta leið vinstri- sinnaðra stjórnmálamanna sem vilja allt skatt- leggja," eins og sagði í leiðara DV í ágúst síðast- liðnum. KJALLARI Andrés Jónsson formaður Ungra jafnaðarmanna i Reykjavík Það borgar sig að skoða sjálfan sig við og við: Gera vörutaln- ingu. Komast að því hvað hefur verið gert og spyrja sig hvort það hafi verið rétt eða rangt. Hvað hægt sé að gera betur. Ungliðahreyfingar hafa ósjaldan sinnt slíku hlutverki innan stjórn- málaaflanna sem þær tilheyra - verið samviska flokkanna. Við sem styðjum Reykjavíkurlist- ann verðum auðvitað að viður- kenna að við emm bara mannleg og ekki hafin yfir gagnrýni. Við höf- um gert ýmis mistök. Ég get t.d. ekki betur séð en illa hafi verið far- ið með almannafé þegar byggðar voru nýjar höfuðstöðvar fyrir Orku- veitu Reykjavíkur og að ýmsar Reykjavíkurlistinn þarf að tryggja öfluga innri endurnýjun til að lifa af. áherslur í rekstri Línu.nets hafi ver- ið heldur hæpnar. Við skulum læra af þessum dýrkeyptu mistökum og reyna í framtíðinni að koma í veg fyrir að stjórnmálamenn þurfi að standa í fyrirtækjarekstri. Sjálfstæðismenn hugmyndasnauðir En bendir slíkur vilji til nafla- skoðunar og sjálfsgagnrýni ekki til að kominn sé tími til að hleypa Sjálfstæðisflokknum aftur að í borginni? Nei! Ekki er það svo. Það er sorgleg staðreynd fyrir borgar- búa að Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið með fáar sem engar hug- myndir um hvað megi gera í Reykjavík borgarbúum til hags- DÝRKEYPT MISTÖK: „Ég get t.d. ekki betur séð en illa hafi verið farið með almannafé þegar byggðar voru nýjar höfuðstöðvar fýrir Orkuveitu Reykja verið heldur hæpnar," segir greinarhöfundur og hvetur til þess að Reykjavíkurlistinn læri af mistökunum. Heim með skipi? Eins og hvert mannsbarn veit var á þriðja hundrað forkólfa úr £■ íslensku viðskiptalífi í skemmti- og kynnisferð I Lúxemborg í boði Q Landsbankans um helgina, í til- efni af því að bankaútibú þar var opnað öðru sinni, þ.e. eftir að Landsbankinn keypti það af Bún- aðarbankanum. Það var rifjað upp í ferðinni að þegar Lands- bankinn skipulagði ferðina leit út fyrirað bankinn myndi eignast Flugleiðir en ekki hefði orðið af því. Haft var á orði að fyrst bank- inn hefði ekki eignast flugfélagið heldur aðeins Eimskipafélagið yrðu gestirnir að sjálfsögðu send- ir heim með gámaskipi... Lofað upp í ermina Á fréttasíðu vefsins Flat- eyri.com er frétt um það að Ön- firðingafélagið hafi tekið að sér að uppfæra fréttir á vefnum. Þetta var 17. september í fyrra. Þessi þjónusta Önfirðingafélags- ins fór vel af stað með frétt strax þremur dögum síðar - en siðan hefur ekkert gerst... Sárt saknað í Lúx Talið er að telja megi á fingr- um annarrar handar þá sem ein- hverju skipta í viðskiptalífinu sem Landsbankinn bauð ekki til Lúx- emborgar. Það vakti hins vegar athygli margra í ferðinni - og óá- nægju sumra - að Rannveigu Rist, forstjóra íslenska álfélagsins og stjórnarformanni Landssím- ans, var ekki boðið. Tveir steinar um Laxness Gárungarnir velta nú fyrir sér hvað bók Halldórs Guðmundsson- ar um nafna hans Laxness eigi að heita. Sem kunnugt er skrifar Hall- dór bókina með blessun ættingja skáldsins og fær ásamt Helgu Kress bókmenntafræðingi einka- aðgang að bréfa- og handritasafn- inu sem gefið var þjóðinni árið 1996. Þykir sumum þetta benda til þess að liklegur titill á bókina verði Halelúja Laxness. Þá þykjast gárungarnir hafa heimildir fyrir því að Halldór ætli sér að taka upp hljómmikið millinafn til mótvægis við hinn höfundinn, sem einnig vinnur að bók um Laxness; því muni koma út bækur um skáldið eftir þá Hannes Hólmstein Gissur- arson og Halldór Gljúfrastein Guð- mundsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.