Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR MÁNUDAOUR 29. SEPTEMBER 2003 Útlönd Heimurinn íhnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is Sími: 550 5829 Rumsfeld bauð í stríðsleik TINDATALEIKIR: Donald Rums- feld, landvarnaráðherra Banda- ríkjanna, fékk heldur dræmar undirtektir hjá starfsbræðrum sínum í NATO þegar hann bauð þeim að koma í tindáta- leik í næstu viku og ímynda sér að hraðsveitir NATO tækju þátt í innrás í ónefnt land í Mið- Austurlöndum. Leikurinn átti að fara fram á haustfundi land- varnaráðherra NATO í Colorado Springs í næstu viku. Danska blaðið Berlingske Tidende segir að meira að segja George Ro- bertson, framkvæmdastjóra NATO, hafi ekki litist á tillögur Rumfelds. Er Robertson þó ekki vanur því að setja sig upp á móti Ameríkönum. Ráðherr- arnir munu því bara ræða um möguleika hraðsveitanna. Gamlir í próf DANMÖRK: Danskir ökumenn mega eiga von á því, þegar þeir verða sjötugir og vilja end- urnýja ökuskírteinið sitt, að þeir verði þeir látnir í próf sem á að meta hvort einhver merki séu um elliglöp, ef hugmyndir stjórnvalda um aukið umferð- aröryggi ná fram að ganga. Sé svo, verða hinir sjötugu að reyna aftur við bílprófið. Blair sér ekki eftir neinu Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tók í gær undir yfir- lýsingu George W. Bush Banda- ríkjaforseta og vopnabróður frá því á laugardaginn og sagðist ekki sjá eftir neinu í sambandi við þátttökuna í hernaðarað- gerðunum í írak. „Ég sé ekki eftir neinu og hef ekkert að afsaka í sambandi við írak. Þvert á móti er ég hreykinn af því sem við gerðum og hermenn- irnir okkar hafa unnið frábært starf. Þeir eiga heiður skilinn og eru hetj- urnar okkar,“ sagði Blair í útvarps- viðtali hjá BBC skömmu áður en landsfundur Verkamannaflokksins hófst í borginni Bournemouth í suðurhluta Englands í gær. Eins og Bush sagðist Blair ekki í neinum vafa um það að Saddam hefði ekki aðeins verið alvarleg ógn við nágranna sína heldur líka allan heiminn. Hann hvatti fólk til þess að bíða rólegt eftir nýrri skýrslu um gjöreyðingavopnaáætl- un Saddams, sem yrði birt innan skamms. Lifum í öruggari heimi „Allur heimurinn veit að Saddam hafði yfir gjöreyðingarvopnum að ráða og vann að frekari þróun þeirra. Við lifum því í öruggari heimi í dag eftir að hafa hrakið hann frá völdum og þrátt fyrir að hafa ekki enn fundið neinar sann- anir fyrir gjöreyðingarvopnaeign fraka og þrátt fyrir þann óstöðug- leika og ofbeldi sem við stöndum enn frammi fyrir í landinu, þá tel ég að það hafi verið rétt hjá okkur að taka þátt í hernaðaraðgerðunum," sagði Blair og bætti við að breskir hermenn yrðu áfram í frak meðan þeirra væri þörf. „Iraska þjóðin fær nú tækifæri tif þess að byggja upp stöðugleika og lýðræði sem mun hafa varanleg áhrif um öll Mið-Austurlönd.“ Úreltar upplýsingar notaðar Bush-stjórnin hefur einnig þurft að svara óþægilegum spurningum að undanförnu eftir að leiðtogar leyniþjónustunefndar bandaríska þingsins sökuðu bandarfsku leyni- þjónustun, CLA, um að hafa notað gamlar og úreltar upplýsingar í skýrslu sína sem gerð var til að rétt- læta hernaðaraðgerðir í frak. „Ég sé ekki eftir neinu og hefekkert að afsaka í sambandi við írak. Þvert á móti er ég hreykinn af því sem við gerðum og hermennirnir okkar hafa unnið frábært starf. Þeir eiga heiður skilinn og eru hetjurnar okkar." sagði Blair. Helstu talsmenn Bush-stjórnar- innar hafa þegar svarað þessum ásökunum leyniþjónustunefndar- innar og fullyrt að ákvörðunin um hernaðaraðgerðir í Irak hafi verið byggð á nýrri og nákvæmari upp- lýsingum. Condoleezza Rice, öryggismála- ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta, fullyrti í gær að nýrra leynilegra upplýsinga hefði verið aflað áður en ákvörðun var tekin og þær hefðu að mati stjórnvalda réttlætt stríð. Powell lifir í voninni Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem harðast hefur barist fyrir því að fá víðtækan stuðning alþjóðasamfélagsins við uppbyggingarstarfið í írak með samþykkt nýrrar ályktunar í Ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að minnkandi líkur væru á því að þjóðir eins og Ind- land, Pakistan og Tyrkland sendu herlið til íraks án samþykkis Örygg- isráðsins. „Við höfum þegar gefið upp alla von um að Indverjar sendi herlið til fraks en stjórnvöld í Tyrklandi, Pak- istan og Bangladesh eru enn að skoða málið," sagði Powell, sem enn lifir í voninni um að ný ályktun sem greiði fyrir því að aðrar þjóðir geti sent herlið til fraks, verði sam- þykkt í Öryggisráðinu. De Villepin bjartsýnn Dominique de Villepin, utan- ríkisráðherra Frakklands, sagðist í gær bjartsýnn á að Bandaríkja- menn fengju nýja ályktun í gegn í Öryggisráðinu, en ítrekaði fyrri af- stöðu Frakka um að færa þyrfti pólitísk völd í hendur Iraka sjálfra sem fyrst. Sir Jeremy Greenstock, sendi- fulltrúi Breta í frak, sagði aftur á móti í gær, að Bandaríkjamenn og Bretar þyrftu ekki nauðsynlega á hjálp alþjóðasamfélagsins að halda til þess að koma á friði í frak. „Það væri samt til bóta að fá víðtækari aðkomu alþjóðasamfélagsins við uppbygginguna en það þýðir ekki að við getum ekki gert það sem þarf að gera með þeim herafla sem er þegar í landinu," sagði Greenstock. Bandarískar hersveitir og íraska lögreglan hófu í morgun víðtæk- ustu leitaraðgerðir að stuðnings- mönnum Saddams Husseins f Tik- rit og nágrenni og var ráðist inn í að minnsta kosti fimmtán hús án þess að nokkuð fyndist. Aðgerðin var ákveðin eftir að stórt vopnabúr hafði fundist í Tikrit á laugardag og þar á meðal 23 SA-7 loftvarna- flaugar. TONY BLAIR: „Allur heimurinn veit að Saddam hafði yfir gjöreyðingarvopnum að ráða og vann að frekari þróun þeirra," segir Blair. ítalir aftur farnir að sjá handa sinna skil: Rafmagnið komið á Rafmagn er nú aftur komið á um aila Ítalíu eftir straumrofið aðfaranótt sunnudagsins. Það náði til alls landsins, að undan- skilinni eyjunni Sardiníu. Talið er að brotin trjágrein í Sviss hafi valdið rafmagnsleysinu. „Rafmagn komst aftur á um alla Italíu í gærkvöld," sagði Andrea Bollino, framkvæmdastjóri ítalska orkunetsins, í morgun. Hann sagði þó að grípa yrði til einhverrar skömmtunar í dag til að koma í veg fyrir of mikið álag á kerfið. Fjögur dauðsföll eru opinber- lega rakin til rafmagnsleysins sem varð klukkan 3.20 að staðartíma aðfaranótt sunnudagsins og urðu nærri 57 milljónir manna fyrir barðinu á því. Að sögn talsmanns svissneska raforkufyrirtækisins Atel má rekja ósköpin til þess að að tré snerti 380 þúsund volta háspennulínu nærri bænum Brunnen í Sviss um ldukk- an þrjú aðfaranótt sunnudagsins. Það óhapp olli keðjuverkunum því skömmu síðar duttu tvær flutn- ingslínur frá Frakklandi einnig út. Háðir annarra rafmagni „Eftir það duttu allar tengingar við Ítalíu út," sagði talsmaður Atel. Hann sagði að lélegt skipulag ítalska raforkukerfisins hefði síðan gert illt verra. ítalir eru mjög háðir utanað- komandi rafmagni og kaupa sautján prósent þess rafmagns þeir þurfa frá nágrannaríkjunum Sviss og Frakklandi. Antonio Marzani, iðnaðarráð- herra ftalíu, hvatti til þess að rann- sókn yrði þegar hafin á straumrof- inu og ástæðum þess. Embættismenn í ítölskum orku- fyrirtækjum hafa varað við alvar- legum veilum í raforkuerfi Ítalíu í kjölfar rafmagnsleysisins. Þetta er í fjórða sinn á tveimur mánuðum sem straumrof verður hjá milljónum manna. Fyrst í Bandaríkjunum og Kanada. Þá fór rafmagn af hluta Lundúna og nú síðast af stórum svæðum í Dan- mörku og Svíþjóð. STRAUMROF: Rafmagn fór af allri Italíu aðfaranótt sunnudagsins þegar Rómverjar voru að skemmta sér á menningarnótt. Mikið öngþveiti myndaðist þegar borgarbúar komust hvergi þar sem miklar truflanir urðu á samgöngum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.