Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Side 11
MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 11
Krefjast úrbóta
UNDIRSKRIFTASÖFNUN: Félag
foreldra og áhugafólks um geð-
raskanir barna og unglinga
stendur þessa dagana fyrir und-
irskriftasöfnun til að krefjast úr-
bóta í málum þeirra. Söfnunin
fer meðal annars fram á vef-
slóðinni www.barnaged.is, en
ætlunin er að afhenda ríkis-
stjórninni undirskriftalistana
þann 10. október næstkomandi,
en þá er alþjóðlegi geðheil-
brigðisdagurinn sem er í ár til-
einkaður börnum og ungling-
um með tilfinninga- og hegð-
unarraskanir.Talið er að 20%
barna á íslandi eigi við geð-
heilsuvandamál að stríða. Talið
er að 7-10% barna í þeim hópi
þurfi á geðrænni meðferð að
halda.
Réðust inn í verslun
LÖGREGLUMÁL: Átök urðu í
verslun við Rangársel í Breið-
holti um miðjan laugardag. Að
sögn verslunareiganda réðust
karl og kona fyrirvaralaust inn í
verslunina og veittust að henni
og skemmdu eitthvað af mun-
um Kona sem býr í nágrenninu
átti þá leið hjá og heyrði hún
lætin sem bárust frá versluninni
og kallaði því eftir aðstoð lög-
reglu. Þegar lögreglan kom á
vettvang var fólkið á bak og
burt. Verslunareigandinn hyggst
kæra verknaðinn en hún mun
hafa þekkt ásásarfólkið frá fyrri
tíð. Samkvæmt upplýsingum
sem DV hefur undir höndum
segir meint árásarfólk frásagnir
verslunareigandans ekki réttar,
og segir að eigandinn eigi líka
sök.
Ók á bíl
UMFERÐARÓHAPP: Ökumaður
og farþegi voru fluttir á slysa-
deild eftir að bílstjórinn hafði
misst stjórn á bifreið sinni með
þeim afleiðingum að hann ók
út af og lenti á kyrrstæðum bíl.
Meiðsl fólksins voru ekki alvar-
leg en bíllinn er talinn ónýtur.
Grunur leikur á að ökumaður-
inn hafi verið undiráhrifum
Mikið sótt í
magaaðgerðir
vegna offitu
Um 225 manns bíða nú eftir
magaaðgerðum vegna offitu á
Landspítalanum
Eftirspurn eftir slíkum aðgerðum
hefur aukist til muna undanfarið.
Þetta er meðal þess sem fram kem-
ur í nýrri greinargerð fram-
kvæmdastjóra Landspítalans um
starfsemi sjúkrahússins fyrstu sjö
mánuði ársins. Einnig kemur fram
að fækkað hefur á biðlistum í aðrar
aðgerðir í flestum sérgreinum,
miðað við sama tíma í fyrra, enda
hefur skurðaðgerðum í heild fjölg-
að um 3% frá því í fyrra. Þó kemur
einnig fram að margir sjúklingar
sem lokið hafa meðferð á sjúkra-
húsinu bíði á legudeildum eftir var-
anlegri vistun utan spítalans, eða
tæplega 150 manns. Hægt gengur
að finna úrræði fyrir þetta fólk.
Vinstrivilla
olli árekstri
Tveir bflar rákust saman á Bisk-
upstungnabraut austan við Skál-
holtsafleggjara í Biskupstungum
um klukkan hálftvö í gærdag. Slysið
varð með þeim hætti að öðrum
bflnum var ekið austur Biskups-
tungnabraut en hinn var að keyra í
gagnstæða átt. Sá síðari mun hafa
verið af bresku bergi brotinn og
þótti hann aka heldur mikið til
vinstri. Þegar bflarnir voru ( þann
mund að mætast ákvað Bretinn því
að sveigja til vinstri að gömlum sið
til að forðast árekstur en hinn öku-
maðurinn gerði slíkt hið sama með
fyrrgreindum afleiðingum. Hægri
horn bflanna rákust saman og urðu
bflarnir óökufærir í kjölfarið.
Meiðsl ökumanna voru ekki talin
alvarleg.
Smáauglýsingar ■
atvinna í boði/óskast
550 5000
Engir hagsmunir að bregða
fæti fyrir viðskiptavin
Kjötvinnslufyrirtækið Ferskar
afurðir á Hvammstanga hefur
fengið þriggja mánaða
greiðslustöðvun vegna lausa-
fjárskorts og greiðsluerfiðleika.
Ástæður greiðslustöðvunar eru
að mati fyrirtækisins aðgerðir við-
skiptabanka þess, KaupþingsBún-
aðarbanka. Algjör trúnaðarbrestur
hafi orðið með aðilum. Segja
Ferskar afurðir að bankinn hafi
m.a. gjaldfellt afurðalán fyrirtækis-
ins sem þó séu í fullum skilum,
haldið eftir háum fjárhæðum um-
fram samninga, spillt orðspori hjá
viðskiptavinum með bréfasending-
um og símhringingum og reynt að fá
birgðir fyrirtækisins kyrrsettar með
innsetningarbeiðni. Greiðslustöðv-
unartímabilið eigi að nota til að
koma nýrri skipan á bankaviðskiptin
og forgangsröðun verkefna. Athugað
verði hvort eða hvaða ólögmætir
viðskiptahættir hafi skaðað Ferskar
afurðir og hvernig megi sækja til
saka og bóta einhvern hluta þess
tjóns sem orðið hafi.
Karl Þorsteins hjá Kaupþingi-
Búnaðarbanka segir að vegna
bankaleyndar geti bankinn ekki
svarað ásökunum Ferskra afurða
efnislega.
„Bankinn hefur augljóslega
engra hagsmuna að gæta að bregða
fæti fyrir viðskiptavin eins og gefið
er f skyn af hálfu Ferskra afurða. Við
munum því ekki aðhafast neitt að
sinni en komi málið til kasta dóm-
stóla munum við svara fyrir okkur.
Við sjáum hvað setur," segir Karl
Þorsteins. gg&dv.is
Meðal efnis eru heimsókn í matarklúbb, uppskriftir úr nýstárlegu hráefni, matreiðslumenn
verða með uppskriftir og snjallar hugmyndir, kunnir íslendingar segja frá eftirlætisréttum
sínum og koma með uppskriftir, fjallað er um vinsæla veitingastaði og ótal margt fleira.
DV Magasíni er dreift í 82 þúsund eintökum.
Umsjón efnis hefur Sigurður Bogi Sævarsson í síma 550 5818 eða sigbogi@dv.is
Umsjón auglýsinga hefur Ingibjörg Gísladóttir í síma 550 5734 eða inga@dv.is