Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2003, Side 30
46 TILVERA MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003
skítablettina í teppinu
Hlnn hreinlegi Ridley. Sagt er að hann
sé með ryksuguna á fullu alla daga.
Scott þolir illa
Breski leikstjórinn Ridley Scott
hefur Ijóstrað upp leyndarmáli
sínu um sjúklega
hreinlætisáráttu sína og líkir
sér við aðalpersónuna í nýj-
ustu mynd sinni, Matchstick
Men. Það er leikarinn Nicolas
Cage sem fer með umrætt
hlutverk en þar er um að ræða
mann með hreinlætisæði sem
þolir illa bletti í gólfteppinu.
„Þessi persóna er alveg eins og
ég og í raun er þetta ég," sagði
Scott í viðtali við þýska tímaritið
Spiegel.
„Mér urðu á þau mistök að setja
hvítt gólfteppi á stofugólfið í
húsinu mínu í Los Angeles. Það
leit mjög vel út í upphafi og mér
fannst það frábært. En það átti
eftir að breytast eftir að fyrsti
gesturinn kom í heimsókn. Ég
var algjörlega niðurbrotinn,"
sagði Scott sem vill hafa allt í
röð og reglu.
„Ég þoli illa skipulagsleysi og vil
því hafa hlutina í lagi. Og þar
sem ég er sjálfur vel skipulagður
þá er ég óhræddur við að takast
á við óreiðuna. Það er einmitt
hlutverk leikstjórans að koma
skipulagi á óreiðuna.
JAGGERÁTÍSKU-
SÝNINGU: Elizabeth
Jagger, dóttir
ellirokkarans Micks
Jaggers úr Rolling
Stones, tók þátt í
sýningu á nýjustu
tísku frá hinu forna
skoska tískufyrirtæki
Pringle's í London
um daginn. Með
henni á myndinni er
Stuart Stockdale, yf-
irmaður hönnunar-
deildar fyrirtækisins.
■n
%
Hársnyrtivörur í úrvali
Tískuvikan í Mílanó:
Djarfur klæðnaður
og litskrúðugur
Ítalía varð að mestu rafmagns-
laus aðfaranótt sunnudags.
Skömmu áður hafði hin árlega
tískuvika í Mílanó hafist og tókst að
ljúka sýningunni þann daginn áður
en rafmagnið fór. Flestir af fremstu
tískuhönnuðum á Italíu verða með
sýningu á vor-/sumarkventískunni
2004 í tískuvikunni sem stendur til
5. október. Ef það sem koma skal er
eitthvað í líkingu við þann klæðnað
sem sást um helgina á pöllum sýn-
ingarstaða í Mílanó þá verður sum-
artískan djörf og litskrúðug. Má
ætla að hinir miklu hitar sem voru í
Evrópu í sumar hafi haft einhver
áhrif á hönnuðina sem voru greini-
lega á því að tískan næsta sumar
ætti að taka mið af veðráttunni. Á
myndunum má meðal annars sjá
klæðnað eftir Alessandro De
Benesetti og klæðnað frá Blaunuta.
StofnuB 1918
Rakarastofan
Klapparstig
Sími 551 3010
UmSilHU l Slll LSð 2Í2S
textmit: Stðt 215B-153,
«övni,2me2H
vmninsstfiíur
lausardasmn
27. sept.
9 ) 23) 25) 36) 38)
-s-/ w/ —_______/
«18j
Jökertölur vikunnar
L7J 0 0 0 3
Ltm
aatai á
mtövikudögoia
| Vlnningstölui mlövlkudaginn |
24. september
Aðaltiilur
oo©
É)@§
Bonustölur '
Jökertölur vikunnar
□□□□□
:
i