Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Page 2
2 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003 OTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRfTSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan auglys- ingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Lífríki Norðursjávar talið að hruni komið - frétt bls. 4 Stórfelldar hækkanir iðgjalda - frétt bls. 6 Wesley Clark fjárvana en sigurstranglegur - Heimsljós bls. 8 Þrungin hamslausum ástríðum - Menning bls. 15 Þora að vera öðruvísi - Tilvera bls. 16-17 Bíó og sjónvarp - Tilvera bls. 26-27 Brotnaði á báðum í reiðikasti Toni Lynn Lycan, 44 ára kona frá Ridgefield í Bandaríkjunum, varð fyrir því óláni á dögunum að fótbroma á báðum í reiðikasti þeg- ar hún stappaði harkalega niður fótum í íbúðinni sinni í þeim til- gangi að láta í ljós óánægju sína með hávaðann í hljómflutnings- tækjum nágrannans á neðri hæð- inni. Lycan byrjaði á þvf að hrópa á nágrannann um að lækka í hljóm- flutningstækjunum en hann brást við með því að hækka enn meir. Hún greip þá úl þess ráðs að stappa í gólfið en á móti greip nágranninn sópinn og barði skaft- inu upp í loftið af öllum kröftum. Það varð til þess að Lycan missti stjóm á skapi sínu og tók nú að hoppa eins og vidaus væri þangað tii báðir fætur gáfu undan og brotn- uðu rétt fyrir neðan hné. Stukku út úr bíl á ferð Ný sókn KIRKJA: Stofnfundur Grafar- holtssóknar verður haldinn í Ingunnarskóla annað kvöld. Mörk nýju sóknarinnar eru Mos- fellsbær og Reykjavík að norð- an, Reynisvatnsheiði að austan og suðaustan, mörk golfvallar Reykjavíkur að sunnan og Vest- urlandsvegur að vestan. Grafar- holtsprestakall verður formlega stofnað næsta sumar. LÖGREGLA; Tveir unglingspiltar voru handsamaðiraðfaranótt sunnudagsins eftir ofsaakstur. Samkvæmt dagbók lögreglunn- ar óku piltarnir sem leið lá eftir Vesturlandsvegi og beygðu síð- an inn á Sæbraut. Lögreglu barsttilkynning um að bifreið piltanna væri á ofsahraða og fóru lögreglumenn þegará vettvang. Piltarnir gerðu sér hins vegar lítið fyrir og stukku út úr bílnum á ferð á Sæbraut og lögðu á flótta. Bíllinn hafnaði á Ijósastaur. Mildi þykir að enginn skyldi slasast. Lögregla náði pilt- unum skömmu síðar. Kom þá í Ijós að ökumaðurinn var bíl- prófslaus og er grunaður um að hafa verið undir áhrifum vímu- efna við aksturinn. Farþeginn er 14áragamall. Haldið til haga Með grein um konukvöld í Debenhams í blaðinu í gær birtist röng mynd, vegna tæknilegra mistaka. Hér kemur sú rétta. I forsvari sýningarinn- ar voru Bryndís Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Deben- hams á íslandi, og AnnaToher stílisti. Hjá henni er hægt að panta tíma og fá góð ráð varð- andi fataval og förðun. 18 ára piltar í átökum - árásarmaðurinn situr inni fyrir hnífaárás: Blindur á auga eftir árás með gaadabelti 18 ára piltur hefur ekki sjón á öðru auga eftir að hann var sleginn með gaddabelti í Keilu- höllinni í janúar síðastliðnum. Árásarmaðurinn kom fyrir dóm í gær en hann er ákærður fyrir stórfellda líkamsárás. Pilturinn kom í fylgd fangavarða enda af- plánar hann 18 mánaða fang- elsisdóm fyrir aðra árás. í fyrra sakamálinu stakk hann pilt í bakið með hnífi á knatt- spyrnuvelli við Háaleitisbraut á sfð- asta ári. Þar var hann einnig sak- felldur fýrir að hafa haft samræði við stúlku sem var undir 13 ára aldri. Pilturinn sem er ákærður hefur borið því við að sá sem hann barði hafi verið að ógna sér og félaga sín- um. Vitni bera að þolandinn hafi verið sleginn með gaddabelti en ágreiningur er um hver það var sem það gerði en ákærði neitar að hafa slegið með öðru en hnefa. Ríkissaksóknari ákærir árás- armanninn fyrir að hafa slegið þol- andann nokkur högg í andltið með gaddabelti „eða“ með krepptum hnefa. Afleiðingarnar urðu þær að pilturinn hlaut 2 cm langt sár og marðist og bólgnaði kringum vinstra auga. Æða- og sjónhimnur sködduðust þannig að af hlaust sjónskerðing sem er svo mikil að Ríkissaksóknari ákærir árásarmanninn fyrir að hafa slegið þolandann nokkrum höggum í andlitið með gadda- belti „eða" með kreppt- um hnefa. kalla má blindu á öðru auga. Pilturinn fer fram á að árás- armaðurinn greiði honum 2 millj- ónir króna í miskabætur. Ákærði, sem afplánar refsidóm fyrir hnífstungu og kynferðisbrot á Kvíabryggju, hefur átt erfitt upp- dráttar hér á landi enda hefur hann talað takmarkaða íslensku þar sem hann er af asískum uppruna. Hann er nú ákærður fyrir að ráðast á ís- lenskan pilt en situr inni fyrir að stinga pilt af sama uppruna og hafa kynferðismök við frænku sína. ottar@dv.is Námsbækur og kjólar með í farteskinu BROTTFÖR: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Erna Guðlaugsdóttir ferðbúnar um fimmleytið í morgun. Guðlaugur Björgvinsson, faðir Ernu, snarar farangrinum í bílinn. DV-myndirGVA Ragnhildur Steinunn Jónsdótt- ir, ungfrú ísland, og Erna Guð- laugsdóttir, ungfrú Reykjavík, flugu til Finnlands í morgun til að taka þátt í keppninni Ungfrú Norðurlönd. „Ferðin leggst mjög vel í mig og undirbúningur hefur gengið vel. Þessi keppni er minni í sniðum en Ungfrú Evrópa og þetta verður allt miklu afslappaðra. Við fáum að skoða okkur vel um í Finnlandi, fara á hestbak og gera fleira skemmtilegt. Þetta verður meira eins og frí miðað við Evrópukeppn- ina,“ segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, ungfrú fsland, sem lagði land undir fót um sjöleytið og hélt utan ásamt ungfrú Reykjavík, Ernu Guðlaugsdóttur. „Við ætlum að nota frí- stundirnar til að lesa og svo skemmtilega vill til að við erum að hluta til í sömu fögum og getum því borið saman bækur okkar," segir Ragnhild- ur Steinunn. Ragnhildur Steinunn og Erna eru báðar háskólastúdentar og því eru námsbækur innan um kjóla og annan búnað sem fegurðardrottn- ingar þurfa að hafa meðferðis. Ragnhildur Steinunn er á öðru ári í sjúkraþjálfun og Erna er á fjórða ári í læknisfræði. „Við ætlum að nota frístundirnar til að lesa og svo skemmtilega vill til að við erum að hluta til í sömu fögum og getum því borið saman bækur okkar," segir Ragnhildur Steinunn. Þess utan tóku stúlkurnár með sér skyr, harðfisk og flatkökur. Vonandi kemur þessi þjóðlegi matur að notum á örlagastundu. Keppin um titilinn Ungfrú Norð- urlönd fer fram í aldagömlum kast- ala sem kallast Vanajanlinna, og er skammt utan við borgina Hameenlinna. Ragnhildur Stein- unn kveðst vona að dómarar leggi annað til grundvallar en gert var í keppninni um Ungfrú Evrópu, sem fram fór í París í síðasta mánuði. „Mér finnst líklegt að þeir dæmi meira eftir karakter og verði á per- sónulegri nótum. Dómararnir í París kynntust okkur lítið, enda fengum við aðeins fjögurra mín- útna viðtal. Vonandi fáum við að vera meira við sjálfar í þessari keppni," segir Ragnhildur Stein- unn. Þær stöllur eru ekki einu fulltrúar þjóðarinnar sem keppa í fegurðar- samkeppni um þessar mundir því þeir Sverrir Kári Karlsson, herra ís- land, og Jón Björgvin Hermanns- son, sem varð í öðru sæti í keppn- inni, eru nú staddir í Helsinki þar sem þeir keppa um titilinn Herra Norðurlönd. arndis@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.