Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Side 10
1 0 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003
Útlönd
Heimurinn i hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Segist ekki vera leyniskytta
RÉTTARHÖLD: John
Muhammad sagðist í gær ekki
tengjast leyniskyttumorðunum
í Washington DC og nágrenni
á síðasta ári. Hinn 42 ára
Muhammad og 18ára félagi
hans, Lee Maivo, eru grunaðir
um að hafa myrt tíu manns á
þriggja vikna tímabili í október
2002.
Réttarhöid yfir Muhammad
fara nú fram íVirginíu og er
hann sinn eigin verjandi.
„Gögnin munu sýna að ég
hafði ekkert með þessa glæpi
að gera," sagði Muhammad
fyrir réttinum.
Ef Muhammad verður fundinn
sekur á hann yfir höfði sér ann-
að hvort líflátsdóm eða ævi-
langt fangelsi, án möguleika á
reynslulausn.
Stefnir heim
BÓLIVÍA: Gonzalo Sanchez de
Lozado, sem hrökklaðist af for-
setastóli í Bólivíu um helgina
vegna uppreisnar indíána
gegn markaðshyggjustefnu
hans, hét því í gær að snúa aft-
ur til heimalandsins og taka á
ný þátt í stjórnmálum. Hátt í
áttatíu manns féllu í uppreisn-
inni. Lozado og fjölskylda flúðu
til Bandaríkjanna.
Blóðbað á Gaza-svæð
Að minnsta kosti tíu féllu í fimm árásum ísraelskra orrustuþotna og árásarþyrlna
ísraelskar orrustuþotur og árás-
arþyrlur gerðu í gær fimm
grimmilegar árásir á byggingar
og bíla á Gaza-svæðinu með
þeim afleiðinum að að minnsta
kosti tíu manns féllu og meira
en hundrað slösuðust.
f blóðugustu árásinni, sem gerð
var í gærkvöld, féllu að minnsta
kosti sjö manns þegar ísraelskar
árásarþyrlur skutu tveimur flug-
skeytum að bíl í Nusseirat-flótta-
mannabúðum, á miðju Gaza-
svæðinu. Talið er að allt að 75
manns hafl þar að auki slasast f
árásinni.
Að sögn sjónarvotta skutu árás-
arþyrlurnar þremur flugskeytum
að bifreið á aðalgötu búðanna með
þeim afleiðingum að tveir þekktir
Hamas-liðar, sem voru í bílnum,
létust, auk fimm vegafarenda.
Að sögn talsmanns ísraelska
hersins voru mennirnir í bílnum á
flótta eftir að hafa gert misheppn-
aða tilraun til þess að rjúfa landa-
mæragirðingu í nágrenni flótta-
mannabúðanna.
I frétt ísraelsku sjónvarpsstöðv-
arinnar, Rásar tíu, sagði þó að eng-
inn skæruliði hefði verið meðal
hinna látnu og fuliyrt að árásin
hefði verið gerð fyrir mistök.
Haft er eftir íbúa flóttamanna-
búðanna að einn hinna látnu hafi
verið læknir sem var að sinna særð-
um úr fyrri árás þegar hann lést.
Fyrirsátsins hefnt
Svo virðist sem árásirnar í gær
hafi verið gerðar til þess að hefna
fyrirsátsins í nágrenni bæjarins
Ramallah á Vesturbakkanum á
sunnudaginn en þar féllu þrír ísra-
elskir hermenn þegar palestínskir
skæruliðar al-Aqsa herdeildarinnar
hófu skothríð á ísraelska eftirlits-
sveit. Þá var einnig að minnsta
kosti átta heimatilbúnum
sprengjuflaugum skotið frá Gaza-
svæðinu á skotmörk innan ísraels
en þær munu aðeins hafa valdið
litlum skaða á mannvirkjum.
Palestínsk stjórnvöld hafa for-
dæmt aðgerðirnar í gær og ítrekað
kallað eftir vonahléi, en Saeb Er-
ekat, aðalsamningamaður Palest-
ínumanna, lýsti atburðunum í gær
sem þeim blóðugustu og hættuleg-
ustu í mörg ár um leið og hann kall-
aði eftir alþjóðlegri íhlutun til þess
að stöðva blóðbaðið.
Að venju sögðu ísraelar að-
gerðirnar hluta af því sem þeir kalla
baráttu gegn hryðjuverkum en
árásirnar í gær voru þær öflugustu
síðan í apríl sl. þegar níu manns
féllu í flugskeytaárásum á Gaza-
borg.
Þrjár árásir á fjórum tímum
Fyrstu þrjár árásirnar í gær voru
gerðar á innan við fjórum klukku-
stundum, sú fyrsta um kiukkan átta
að staðartíma í gærmorgun þegar
F-16 orrustuþotur gerðu árás á
byggingu í Shajaiya-hverfi rétt
austur af miðborg Gaza nálægt
ífrétt ísraelsku sjón-
varpsstöðvarinnar,
Rásar tíu, sagði þó að
enginn skæruliði hefði
verið meðal hinna
látnu og fullyrt að
árásin hefði verið
gerð fyrir mistök.
Nusseirat-flóttamannabúðunum.
Þar var tveggja hæða bygging,
sem ísraelski herinn segir að hafa
hýst vopnaverksmiðju, lögð í rúst.
Að sögn palestínskra stjórnvalda
munu að minnsta kosti 25 manns
hafa slasast í árásinni og þar af fjög-
ur börn og einn sjötugur karlmað-
ur.
Þremur klukkustundum síðar
skutu ísraelskar árásarþyrlur
tveimur flugskeytum að flutninga-
bíl í miðborg Gaza með þeim af-
leiðingum að tveir Hamas-liðar
sem voru í bílnum og einn gang-
andi vegfaranda létust auk þess
sem sjö nærstaddir slösuðust.
Þriðja árásin var gerð tæpri klukku-
stund sfðar þegar árásarþyrla gerði
flugskeytaárás á bóndabýli í ná-
grenni Shajaiya. Ekki hafði verið til-
kynnt um mannskaða í árásinni en
byggingar voru lagðar í rúst.
Eftir nokkurra klukkustunda hlé
var árásum haldið áfram í gærköld
með áðurnefndri árás í Nusseirat-
flóttamannabúðunum.
Fimmta og síðasta árás gærdags-
ins var svo gerð á sömu byggingu
og í fyrstu árásinni og munu að
minnsta kosti ellefu manns hafa
særst.
Díana prinsessa óttaðist morðsamsæri:
Drottning var andvíg ástar-
sambandi Karls og Camillu
Filippus drottningarmaður á
Englandi sagði Díönu prins-
essu að hann og drottningin
væru andvíg ástarsambandi
Karls ríkisarfa og Camillu
Parker-Bowles.
„Ég get ekki ímyndað mér að
nokkur með réttu ráði myndi fara
frá þér fyrir Camillu,“ sagði Fil-
ippus í bréfi sem hann skrifaði
tengdadóttur sinni sumarið 1992.
Breska blaðið Daily Mirror seg-
ir frá þessu í morgun og hefur eft-
ir Paul Burrel, fyrrum bryta
Díönu. Blaðið birtir kafla úr
væntanlegri bók brytans um
ÓTTAÐIST SAMSÆRI: Díana prinsessa
hafði áhyggjur af því að sviðsetja ætti
bílslys þar sem hún myndi slasast alvar-
lega eða farast.
þessar mundir. Blaðið sagði frá
því í gær að tíu mánuðum áður
en Díana fórst í hörmulegu
bflslysi í París hefði hún skrifað
Burrel og lýst ótta sínum yfir því
að átt yrði við bremsurnar á bíl
hennar.
„Þessi kafli lífs míns er mjög
hættulegur," sagði prinsessan í
bréfinu.
Díana nafngreindi ákveðinn
mann sem hún sagði að væri að
skipuleggja óhapp á bfl hennar,
„bremsubilun og alvarleg höfuð-
meiðsli", eins og þar stendur.
Þetta átti gera til þess að Karl
gæti gengið að eiga Camillu.
Tony Blair líklega til
Norður-írlands í dag
Svo virðist sem Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, hafi náð
sér að fullu eftir veikindin á sunnu-
daginn þegar hann var lagður inn á
sjúkrahús í Lundúnum vegna
óreglulegs hjartsláttar og var hann
væntanlegur til fullrar vinnu í
morgun, eins og venjulega, að sögn
talsmanns forsaetisráðuneytisins.
Læknar höfðu ráðlagt Blair að
taka sér hvfld frá störfum í gær en
hann mætti þó eins og venjulega á
skrifstofu sína í Downingstræti og
dvaldi þar bak við skrifborðið allan
daginn.
Þá er búist við að Blair haldi til
Norður-írlands í dag, en þar virðist
samkomulag hafa náðst milli deilu-
aðila sem felur í sér frekari afvopn-
um írska lýðveldishersins, IRA, og
TONY BLAIR: Blair virðist hafa náð sér að
fullu eftirveikindin.
boðun kosninga þann 26. nóvem-
ber sl., en heimastjórnin var leyst
upp í fyrra eftir að upp komust
njósnir IRA f höfuðstöðum þingsins
f Stormont.