Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Qupperneq 17
76 TILVERA ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER2003
+
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003 TILVERA 17
Tilvera
Fólk ■ HeimHið • Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5813-550 5810
Victoria hætt við að verða hipphoppari
HIPPHOPP: Victoria Adams og
Beckham, fyrrum kryddpía og
núverandi fótboltafrú, hefur
lagt alla drauma um að verða
hipphoppstjarna á hilluna og
ætlar þess í stað að einbeita
sér að fjölskyldunni og halda
sig við popptónlistina.
Bresk blöð hafa að undanförnu
eytt miklu plássi í getsagnir um
erfiðleika í hjónabandi þeirra
Beckhamanna, Davids og Vict-
oriu. Þau hafa að sjálfsögðu
mótmælt öllu slíku tali hástöf-
um.Victoria hefurað undan-
förnu verið á sífelldum þeyt-
ingi milli Madrídar á Spáni, þar
sem David sparkar bolta, og
New York þar sem hipphopp-
gúrúinn Damon Dash hefur
verið að reyna að gera úr
henni stjörnu. Nú er Ijóst að sú
samvinna er á enda, í bili að
minnsta kosti. Ekki virðist
Damon þó hafa haft mikla trú
á söngkonunni því hann sagði
nýlega á MTV-sjónvarpsstöð-
inni að ef hann gæti gert Vict-
oriu eftirsótta gæti hann gert
hið sama við alla. Ekki er Ijóst
hvort ákvörðun Victoriu teng-
ist þessum miður hlýju kveðj-
um læriföðurins.
Myndi aldrei kyssa stelpu
POPPHEIMURINN: Ameríska
poppstjarnan Beyoncé Knowles
segir að Guð hafi ekkert á móti
því að hún dilli sér í mjöðmun-
um og sé dálítið sexí. Honum sé
það hins vegar ekki að skapi að
hún kyssi aðra stelpu. „Ég geri
mér það að góðu að koma fram
eins og kona. Ég hef aldrei haft
áhuga á því að hneyksla fólk
með djörfum uppátækjum,"
segir Beyoncé og vísar þar til
kossanna frægu á MTV-tónlist-
arhátíðinni þegar Madonna fékk
að kyssa bæði Britney Spears og
Christinu Aguilera, heldur inni-
lega fyrir margra smekk.
Beyoncé er kristin vel og segist
aldrei myndu gera neitt sem
Guði væri ekki að skapi.
Kidman vill leika strák
BERNSKUÁRIN: Hollywood-
leikkonan Nicole Kidman segir í
nýlegu viðtali við þýska
tímaritið GQ að hún vilji gjarnan
fara með hlutverk karlmanns í
kvikmynd. „Ég gæti vel hugsað
mér að leika strák svona til
tilbreytingar. Það að bregða sér
í hlutverk stráksins myndi
óneitanlega minna mig á
ýmislegtfrá bernskuárunum.
Faðir minn þráði nefnilega að
eignast son en eignaðist bara
dætur," segir Kidman. Kidman
talar einnig um það í viðtalinu
að hún ætli ekki að skilja eftir
sig neinar skrifaðar minningar.
„Ég ætla að brenna allar dag-
bækurnar mínar, allt það sem ég
hef skrifað niður frá degi til
dags, svo enginn geti lesið það
eftir minn dag," segir Kidman.
KVIKMYNDIR HELGIN 17.-19.OKT.
Sæti Fyrir viku Titill Innkoma, helgin Innkoma alls Fjöldi bíósala
1. - THETEXAS CHAINSAW MASSACRE 28.094 28.094 3016
2. 1 KILL BILLVOL. 1 12.424 43.235 3102
3. - RUNAWAY JURY 11.836 11.836 2815
4. 2 SCHOOL OF ROCK 11.006 54.898 2951
5 17 MYSTIC RIVER 10.445 13.532 1467
6. 3 GOOD BOY 8.932 25.713 3225
7. 4 INTOLERABLE CRUELTY 6.515 22.720 2570
8. S OUT OF TIME 4.002 35.230 2344
9. 8 UNDER THE TUSCAN SUN 3.379 33.657 1663
10. 7 THERUNDOWN 2.780 44.518 2099
11. 10 LOST IN TRANSLATION 1.903 20.964 771
12. 9 SECONDHAND LIONS 1.884 38.406 1610
13. 6 HOUSE OFTHE DEAD 1.763 8.811 1540
14. 12 THE FIGHTING TEMPTATIONS 1.034 28.773 867
15. 11 UNDERWORLD 900 50.503 904
16. 15 PIRATES OF THE CARIBBEAN 653 300.557 493
17. - VERONICA GUERIN 611 611 472
18. 19 FINDING NEMO 511 338.163 445
19. 20 LUTHER 378 3.731 219
20. 13 COLD CREEK MANOR 280 20.825 480
ALLAR UPPHÆÐIR (ÞÚSUNDUM BANDARlKJADOLLARA
Enn einn hryllingurinn
Þegar The Texas Chainsaw
Massacre kom á markaðinn 1974
þótti hún ekki gefa tilefni til mikilla
skrifa. Það fór þó á annan veg,
myndin er komin í hóp klassískra
hryllingskvikmynda. Ekki voru það
gæðin sem gerðu það að verkum.
Myndin ber með sér að vera gerð
fyrir smáaura og er ekki mikið fyrir
augað. Hún hafði samt einhvem
neista sem fleytti henni áfram og
heillaði aðdáendur hryllings-
mynda. Hér á landi var aðdráttarafl
hennar meðal annars fólgið í því að
sá sem lék morðingjann, Gunnar
Hansen, var íslenskur, fæddist í
Reykjavík 1947 og flutti 5 ára gam-
all vestur um haf og fékk sína eld-
skírn sem leikari í þessari mynd..
Jerry Bmckheimer sá í The Texas
Chainsaw Massacre gróðavon og er
það fyrirtæki hans sem stendur á
bak við endurgerðina. Hún sló
heldur betur í gegn í Bandaríkjun-
um um helgina og náði inn um 30
milljónum dollara og skildi aðal-
KEÐJUSAGARMORÐINGINN: Með sögina á
lofti.
keppninautinn, Runaway Jury, eftir
í sárum, en mikið var búist við af
þeirri mynd, enda vel mönnuð.
Vert er einnig að benda á Mystic
River, nýjustu kvikmynd Clints
Eastwoods, sem fær næstmestu að-
sóknina ef miðað er við fjölda sýn-
ingarsala.
Draugur gengur laus
The Matrix Reloaded heldur efsta
sæti myndbandalistans og það þarf
að fara í fimmta sætið til að finna
nýja mynd sem er hryllingsmyndin
Darkness Falls. í 10. og 11. sæti em
svo Boat Trip og The Tmth about
Charlie, nýjar kvikmyndir sem fóm
ekki í kvikmyndahús.
Darkness Falls er gamaldags
draugasaga. I 150 ár hefur skuggi
Mattildu Dixon hvílt yfir bænum
Darkness Falls og em bæjarbúar
sannfærðir um að andi hennar leiki
lausum hala og hún sé að hefna
þess að hún var tekin af lífi fyrir
glæp sem hún framdi ekki. Kyle,
sem kominn er til bæjarins, hefur
séð drauginn.
Hann slapp en
móðir hans var
myrt. Nú er hann
kominn aftur á
bernskuslóðir að
beiðni æskuunn-
ustu sinnar,
Caidin, en níu ára
bróðir hennar hef-
ur sömu martröð-
ina og Kyle hafði
þegar hann var
drengur. Kyle
uppgötvar fljótt að
andi Mattiidu er
raunverulegur og
að ekkert gott býr í
honum. f aðal-
hlutverkum em
Chaney Kyle,
DARKNESS FALLS: Nafn á bæ sem geymir
vel varðveitt leyndarmál.
Emma Caulfield og Lee Cormie.
Leikstjóri er Jonathan Liebesman
sem leikstýrir hér fyrstu kvikmynd
sinni í fullri lengd.
MYNDBÖND VIKAN 13.-19. OKT.
Sæti Aður Titlll Vikur á lista
1. 1 THE MATRIX RELOADED 2
2. 3 THE RECRUIT 5
3. 2 JOHNNY ENGLISH 5
4. 5 STELLA f FRAMBOÐI 5
5. - DARKNESS FALLS 1
6. 4 BULLETPROOF MONK 3
7. 6 VIEWFROMTHETOP 6
8. 7 CONFESSION OF A DANGEROUS MIND 4
9. 8 PHONEBOOTH 7
10. - BOATTRIP 1
11. - THE TRUTH ABOUT CHARLIE 1
12. 11 PEOPLE 1 KNOW 2
13. 9 SHANGHAI KNIGHTS 6
14. 13 CRADLE TO THE GRAVE 8
15. 10 THE HOURS 4
16. 12 PUNCH-DRUNK LOVE 5
17. 14 DRUMLINE 2
18. 18 TWO WEEKS NOTICE 11
19. - NATIONAL SECURITY 11
20. 15 THE HOURS 5
Flóttadómarinn
Um helgino var tekin til almennra
sýnlnga í Bandaríkjunum Runaway
Jury, stjörnum prýdd kvikmynd sem
gerð er eftir skáldsögu Johns Gris-
hams.
Eins og margir vita þá em sögur
Johns Grishams um lögfræðinga og
störf þeirra og hafa kvikmyndir eft-
ir bókum hans ekki síður orðið vin-
sælar en sögurnar. Á tímabilinu
1993 til 1997 vom hvorki meira né
minna en sex bækur hans kvik-
myndaðar, The Firm, The Pelican
Brief, The Client, The Chamber, A
Time to Kill og The Rainmaker. Auk
þess skrifaði hann handritið að The
Gingerbread Men. Þá var eins og
markaðurinn hefði fengið nóg,
enda urðu bækur hans óviðráðan-
legri og ekki eins almenningsvæn-
ar.
Á þessu er nú breyting. Eftir sex
ára hvíld frá Grisham er Runaway
Jury komin til sýningar og er verið
að gera tvær aðrar kvikmyndir, The
Painted House og Mickey, sem
gerðar em eftir skrifum hans. I
undirbúningi er svo sjónvarpssería
eftir The Street Lawyer, einni af
nýjustu bókum Grishams.
Það var mikið um dýrðir í Los
Angeles þegar The Runaway Jury
var fmmsýnd enda mikill stjörnu-
fans í myndinni eins og áður sagði.
í helstu hlutverkum em John
Cusack, Gene Hackman, Dustin
Hoffman, Rachel Weisz, Jeremy Pi-
ven, Jennifer Beals og Bmce Dav-
ison og voru flest þeirra mætt á
fmmsýninguna.
GLÆSILEG: Aðalleikkonan í Runaway Jury,
Rachel Weisz, var glæsileg á frumsýningu.
LEIKARAR: John Cusack, Rachel Weisz, Dustin Hoffman og Jeremy Piven ræða málin fyrir
sýninguna.
VERÐLAUNAAFHENDING: Þórólfur afhenti sönghópnum Blikandi stjörnum verðlaunagrip sem hann líkti við G-lykilinn á hvolfi.
Sú sem veitti honum viðtöku heitir Linda og aftan við hana stendur Kristinn Ingvarsson verkefnisstjóri. DV-myndir Pjetui
Þora að vera öðruvísi
Það er okkur öllum til fyrirmyndar
þegar fólk þorir að „vera öðruvísi",
sagði Þórólfur Árnasonar borgar-
stjóri m.a. er hann heiðraði söng-
hópinn Blikandi stjörnur í Hinu
húsinu í gær.
Þórólfur veittí sönghópnum viður-
kenningu fyrir hina glæsilegu frammi-
stöðu í íslensk-þýska verkefninu Musik
is my life, musik in my life. Það verk-
efni valdi framkvæmdastjórn ESB sem
besta verkefni úr 40.000 er unnin vom
af ungu fólki með skerta möguleika á
síðustu þremur ámm á vegum styrkja-
áætlunarinnar Ungt fólk í Evrópu.
Blikandi stjörnur voru í samstarfi við
þýsku sveitína The Rocers og verkefnið
fólst í gerð geisladisksins „Það er eðli-
legt að vera öðruvísi". I kjölfarið var
unnið tónlistarmyndband við eitt af
lögunum á diskinum, sungið á tónleik-
um, aðstæður ungs fólks með fötlun í
hvom landi vom kannaðar og vinnu-
staðir heimsóttir. Einnig var sungið
fyrir borgarstjóra og sendiherra og rætt
um réttíndamáJ fatlaðs fólks.
Blikandi stjörnur hafa starfað undir
merkjum Sérsveitar Hins hússins frá
því á vormánuðum 2000. Verkefnis-
stjóri sérsveitarinnar og umboðsmað-
ur Blikandi stjarna er Kristínn Ingvars-
son en Ingveldur Ýr Jónsdóttir söng-
stjóri hefur haldið utan um hópinn og
kynnt hann sönglistinni. Blikandi
stjörnur hafa komið fram á listahátíð
fatlaðra, sungið fyrir forseta Islands, á
kirkjuþingi, á þjóðhátíðardaginn, í
sjónvarpi og margt margt fleira. f fram-
haldi af verðlaunum hefúr hljómsveit-
inni nú verið boðið að koma og syngja
víðs vegar um Evrópu. Blikandi stjörn-
ur verða því enn um sinn á frægðar-
himninum. gun@dv.is
Kveðurvið
1000 kossa nótt er lokakaflinn í
þríleik Bubba sem hófst með plöt-
unni Lífið er ljúft sem kom út árið
1993 og var áfram haldið með
hinni ofurvinsælu Sól að morgni
sem kom út í fyrra. Þessar plötur
eiga það sameiginlegt að vera að
upplagi lofsöngur Bubba um ást-
ina, fjölskylduna og lífið almennt.
Á Lífið er ljúft var að finna snilld-
arlög um ástina, eins og Það er gott
að elska og Sem aldrei fyrr. Á Sól að
morgni var Bubbi enn ástfanginn,
en ekki bara af konunni heldur
fjölskyldunni allri og lífinu sjálfu. Á
nýju plötunni heldur hann áfram á
sömu braut, - börnin eru honum
kunnuglegan tón
sérstaklega hugleikin og nafnið á
lokalaginu, Lífið er dásamlegt, seg-
ir allt sem segja þarf um stemning-
una á plötunni.
Bubbi Morthens
1000 kossa nótt
★★★
Þó að Bubbi sé í sjöunda himni
sjálfur þá hefur hann samt ekki al-
veg gleymt þeim meðbræðrum
sínum sem ekki eru jafn lánsamir.
Mamma vinnur og vinnur fjallar
um erfiðleika einstæðrar móður,
Helreiðin er sorgarsaga óreglu-
manns, Jóhannes 8 er
hugleiðing um sekt og
sakleysi og fyrirgefn-
inguna sem skilja má
sem samúðarkveðju til
Árna Johnsens og
Fastur liður, sem að
mínu mati er sterkasti
texti plötunnar, fjallar
á einfaldan en áhrifa-
ríkan hátt um hugleysi
og stríðsrekstur.
Tónlistarlega eiga
plöturnar í þríleik
Bubba margt sameig-
inlegt. Þær eru bornar
uppi af frekar rólegum
og notendavænum popplögum
sem hæfir hamingjuþemanu ágæt-
lega. Nýja platan sker sig ekkert úr
hvað þetta varðar og þar erum við
komin að hennar helsta veikleika.
Hún sker sig ekkert úr. Þetta
hljómar allt svo ofboðslega kunn-
uglega. Hér er fátt sem kemur á
óvart og maður gæti næstum svar-
ið að maður hefði heyrt sum þess-
ara laga áður.
Þó að ég sé ekki endilega þeirrar
skoðunar að Sól að morgni sé ein
af bestu plötum Bubba (Hann hef-
ur jú sent frá sér margar frábærar
plöturl), þá var hún vissulega mjög
vel heppnuð, flest lögin fyrsta
flokks og hún náði að vera í senn
heilsteypt og fjölbreytt. Á 1000
kossa nótt eru nokkur sterk lög,
sérstaklega titillagið, Fagur er fisk-
ur í sjó, Fastur liður og Jóhannes 8,
en sum laganna (og textanna) eru
töluvert undir Bubba-meðallag-
inu.
Það hefur reynst Bubba vel að
dásama lífið. Þjóðin virðist kunna
sérstaklega vel að meta hann þegar
hann er á þeim buxunum. Sól að
morgni seldist t.d. mun meira en
næsta plata á undan, Nýbúinn,
sem var samfélagsrýnin rokkplata
og að mínu mati ekkert síðri.
1000 kossa nótt á eflaust eftir að
gleðja þá fjölmörgu sem dáðu Sól
að morgni, enda er þetta á heildina
litið ágætis plata, vönduð og vel
unnin og innihaldsríkari heldur en
flest það sem boðið er upp á í
popptónlist dagsins í dag. Ég er
hins vegar þegar farinn að hlakka
til að heyra næstu plötu sem verð-
ur vonandi eitthvað allt annað.
Trausti Júlíusson
Sigurvegarar í Catan:
Fara á HM í Þýskalandi
Árlega er hcddið heimsmeistara-
mót í Catan (Settíers) og að þessu
sinni munu keppendur frá 20-30
löndum etja kappi f Essen í Þýska-
landi í lok október. Hvert land hef-
ur rétt á að senda tvo keppendur,
að því tilskildu að spilið hafi verið
gefið út íviðkomandi landi. Þetta er
í fyrsta skipti sem keppendur koma
frá íslandi.
Undanfarnar vikur hafa farið
fram í framhaldsskólum í Reykjavík
innanskólamót í Catan. Lokamótið
fór fram í síðustu viku og mættu 24
keppendur til leiks. Mótinu lauk
með sigri Baldurs Más Jónssonar úr
MS og Gunnars Jóhannsson úr MR
sem munu keppa fyrir íslands
hönd í Essen.
Catan - landnemarnir kom fyrst
út á íslandi í fyrra. Spilið er eitt það
vinsælasta í heimi og er talið að um
15 milljónir spili það reglulega í
Evrópu. Það hefur verið valið spil
SIGURVEGARAR: Baldur Már Jónsson, MS-
ingur, Hálfdan Örlygsson, útgefandi Catan,
og Gunnar Jóhannsson, MR-ingur.
ársins í Þýskalandi og Bandaríkjun-
um.
Auðvelt er að læra spilið en það
krefst útjónarsemi og dirfsku. Spil-
ið er fyrir alla aldurshópa.
I fýrra gáfu spilaspekingar DV
(Gfsli Marteinn, Sigurður Kári o.fl.)
spilinu 6 stig af sex mögulegum, er
þeir dæmdu það ásamt fleiri spil-
um, og var það hæst dæmda spilið.
Opnunartíml:
tll kl. 01:00 alla vlrka daga
tll kl. 03:00 föstu- og laugard
«1 kl. 01:00 sunnudaga
Norðurland
Smáauglýsingar ^
Komdu með bílinn til okkar á
miðvikudögum milli 13.00 og
17.00. Þú getur pantað Ijós-
myndatíma í síma 696 2794 eða
með tölvupósti, akureyri@dv.is.
Við Ijósmyndum bílinn og
aðstoðum þig við textagerð.
Ekkert aukagjald, einungis 950
krónur hver birting.
Afgreiðsla DV er í Akureyri Centrum,
Hafnarstræti 94 (gegnt Bautanum).
+