Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Side 24
24 TILVERA ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003
„ íslendingar
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Netfang: aettir@dv.is
Sími: 550 5826
Fimmtíu ára
Arnþrúður Karlsdóttir
útvarpsmaöur á Útvarpi Sögu og Bylgjunni
4*, Arnþrúður Karlsdóttir, útvarps-
maður á Útvarpi Sögu og Bylgj-
unni, Laugavegi 39b, Reykjavík, er
fimmtug í dag.
Starfsferill
Arnþrúður fæddist í Flatey á
Skjálfanda. Hún lauk fyrri önn Lög-
regluskólans 1974, seinni önn skól-
ans 1975, stundaði nám á vegum
Rannsóknarlögreglu ríkisins
1977-80, nám í Öldungadeild MH
1979-83, lauk cand.mag-prófi frá
Blaðamannaháskólanum í Ósló,
stundaði nám við Háskólann í Ós-
ló, lauk þar ex.phil.-prófi og prófi í
fjölmiðlafræði og stundaði nám í
lögfræði við HÍ 1990-94.
—' Arnþrúður hóf störf hjá Lögregl-
unni í Reykjavík 1974 og starfaði
þar í almennri deild, í kvenlög-
regludeild, slysarannsóknadeild
1975-76 og við fíkniefnadeild. Hún
starfaði hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins 1977-81, var síðan frétta-
maður hjá Ríkissjónvarpinu og
dagskrárgerðarmaður hjá RÚV og
Bylgjunni 1981-84, fréttamaður
RÚV í Noregi 1984-88, fréttamaður
NRK, norska sjónvarpsins og
norska útvarpsins, var 1. varaþing-
maður Framsóknarflokksins í
Reykjavík 1995-99, kaupmaður við
tískuvöruverslun í Reykjavík
1995-2002 og hefur 'verið útvarps-
maður við Útvarp Sögu frá því í
ágúst 2002 og verið með þjóðfé-
lagsumræðuþætti á sunnudögum,
f klóm Arnþrúðar, á Bylgjunni frá
sl. vori.
Amþrúður var fslandsmeistari f
kringlukasti kvenna 1971, er marg-
faldur íslands-, bikar- og Reykja-
víkurmeistari með meistaraflokki
Fram í handknattleik og lék 38
landsleiki með fslenska kvenna-
landsliðinu á árunum 1969-76.
Arnþrúður sinnti ýmsum trúnað-
arstörfum í íþróttahreyfingunni,
var formaður Landsliðsnefndar
kvenna og sat í stjórn HSl 1989-91,
og sat í dómstól HSÍ um skeið. Hún
sat í stjórn Lögreglufélags Reykja-
víkur og hefur verið formaður Gigt-
arráðs Islands frá 1995.
Fjölskylda
Fyrri maður Arnþrúðar er Hösk-
uldur Gísli Pálsson, f. 19.5.1952, yf-
irlögregluþjónn morðdeildar, bú-
settur í Reykjavík. Hann er sonur
Páls Eiríkssonar, aðstoðaryfirlög-
regluþjóns í Reykjavík, og Svanfríð-
ar Gísladóttur húsmóður.
Dóttir Arnþrúðar og Gísla er Arn-
þrúður Anna, f. 3.3. 1980, nemi.
Seinni maður Arnþrúðar er dr.
Gunnar Þór Jónsson, f. 19.6. 1942,
sérfræðingur í bæklunarlækning-
um og yfirlæknir í Svíþjóð.
Sonur Arnþrúðar og Gunnars er
Einar Karl, f. 8.1. 1992.
Hálfbróðir Arnþrúðar, sam-
mæðra, er Sverrir Bergmann Bergs-
son, f. 1936, læknir, heila- og tauga-
sérfræðingur, búsettur í Garðabæ.
Alsystkini Arnþrúðar eru Guð-
mundur Karlsson, f. 1941, skip-
stjóri, búsettur í Hafnarfirði; Bald-
ur Karlsson, f. 1943, vélstjóri, bú-
settur í Hafnarfirði; Pálmi Karls-
son, f. 1944, skipstjóri í Noregi;
Ragnar Karlsson, f. 1946, flug-
vélstjóri hjá Flugleiðum á Keflavík-
urflugvelli; Anna Karlsdóttir, f.
1948, húsmóðir í Reykjavík; Erling-
ur Már Karlsson, f. 1949, kennari á
Seltjarnarnesi.
Foreldrar Arnþrúðar: Karl Páls-
son, f. 20.10. 1908, d. 25.7. 1987,
sjómaður og útgerðarmaður í Flat-
ey á Skjálfanda og st'ðar á Húsavík,
og Marja Helga Guðmundsdóttir, f.
2.9.1914, húsmóðir.
Ætt
Karl var sonur Páls, bakara á
Húsavík og á Akureyri, Jónssonar
og Hansínu Bergvinsdóttur hús-
móður.
Marja Helga er dóttir Guðmund-
ar Karls, útvegsb. í Krosshúsum í
Flatey á Skjálfanda, Jónssonar og
Maríu Jónasdóttur húsfreyju.
Arnþrúður tekur á móti gestum í
Þjóðleikhúskjallaranum eftir kl.
17.00 í dag og kvöld.
Níutíu ára
Guðmundur Guðmundsson
fyrrv. póstafgreiðslumaður á ísafirði
Guðmundur Guðmundsson,
fyrrv. póstafgreiðslumaður, Hlíf II,
Isafirði, er níræður í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Bolungar-
vík og ólst þar upp og á ýmsum
stöðum við Djúp. Hann varð ungur
vinnumaður á ýmsum bæjum við
Djúp og reri úr Ögumesi með Her-
manni Hermannssyni útvegs-
bónda, bróður Guðmundínu,
tengdamóður Guðmundar.
Guðmundur hóf búskap með
konu sinni á landi Birnustaða í
Laugardal 1940, bjó síðan í nokkur
ár á Bjarnastöðum í ísafirði en flutti
til ísafjarðar 1948.
Á ísafirði stundaði Guðmundur
sjómennsku og vörubifreiðaakstur
en lengst af á Pósthúsinu á Isafirði,
sem bréfberi og póstafgreiðslu-
maður, eða í tuttugu og fimm ár.
Guðmundur lét af störfum fyrir
aldurs sakir 1983.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 9.5. 1940
Rebekku Jónsdóttur, f. 22.9. 1920,
húsmóður og fyrrv. starfsstúlku á
heimili eldri borgara. Hún er dóttir
Jóns Jónassonar og Guðmundínu
Hermannsdóttur, bænda á Birnu-
stöðum í Ögurhreppi.
Börn Guðmundar og Rebekku
em Guðbjört Ásdfs Guðmunds-
dóttir, f. 30.10. 1940, og á hún fjóra
syni; Halldór Hermann Guð-
Merkir íslendingar
Sigurjón Ólafeson
Sigurjón Ólafsson myndhöggv- Frank við Listaháskólann í Kaup-
ari fæddist á Eyrarbakka 21. októ-
ber 1908. Hann var sonur Ólafs
Ámasonar, verkamanns á Eyrar-
bakka, og Guðrúnar Gísladóttur
frá Stokkseyrarseli. Sigurjón var
bróðir Guðna apótekara í Reykja-
vík og Gísla bakarameistara, föð-
ur Erlings leikara.
Sigurjón lauk sveinsprófi í mál-
araiðn frá Iðnskólanum í Reykja-
vík 1927, stundaði myndlistar-
nám í Reykjavík og sfðan högg-
myndalist hjá prófessor E. Utzon-
mannahöfn 1928-1935 og dvaldi
við nám í Róm. Hann vann síðan
að höggmyndalist, var búsettur í
Kaupmannahöfn 1928-1946 en
síðan við Laugarnestanga við
Reykjavík.
Sigurjón var sæmdur heiðurs-
peningi úr gulli af Listaháskólan-
um í Kaupmannahöfn og heið-
urspeningi Eckersbergs. Hann er í
hópi virtustu myndhöggvara
þjóðarinnar en standmyndir og
veggskreytingar má víða sjá í
mundsson, f. 10.5. 1942, bifvéla-
virki en kona hans er Þórdís Guð-
mundsdóttir og á hann eitt barn og
fjögur stjúpbörn; Guðríður Guð-
munda Guðmundsdóttir, f. 21.9.
1953, kennari og á hún einn son og
eina kjördóttur; Friðgerður Guð-
mundsdóttir, f. 5.12. 1959, kennari
en maður hennar er Rafn Ragnar
Jónsson og eiga þau þrjá syni auk
þess sem hún á dóttur frá fyrra
Reykjavík, s.s. líkön af Friðriki
Friðrikssyni, Héðni Valdimars-
syni og Ólafi Thors. Þá gerði hann
brjóstmyndir af séra Bjarna Jóns-
syni dómkirkjupresti og Tómasi
sambandi.
Systkini Guðmundar: Sigríður,
nú látin, húsmóðir á Akureyri;
Steinn, nú látinn, sjómaður á Isa-
firði; Sigurvin, látinn; Hannibal, nú
látinn, bóndi á Hanhóli í Bolungar-
vík; Elín, nú látin, húsmóðir í
Reykjavík. Auk þess létust tvö
systkini Guðmundar í frum-
bernsku.
Hálfsystir Guðmundar, sam-
feðra, er Halldóra, hjúkrunarfræð-
ingur á ísafirði.
Foreldrar Guðmundar: Guð-
mundur Steinsson frá Ósi í Bolung-
arvík, d. 1923, sjómaður að Ytri-
Búðum í Bolungarvík, og Guðríður
Hannibalsdóttir frá Tungu í Dala-
mynni, f. 20.7. 1874, d. 1921, hús-
móðir og fiskverkakona.
Guðríður var systir Elínar, móður
Hannibals Valdimarssonar, föður
Jóns Baldvins sendiherra og Arnórs
heimspeldngs.
Guðmundur verður að heiman.
Guðmundssyni skáldi. Af öðrum
verkum hans sem prýða höfuð-
borgina má nefna Klyfjahest, milli
Miklubrautar og Suðurlands-
brautar; öndvegissúlurnar sem
settar voru upp við Höfða, og
minnismerki um stofnun lýðveld-
is á íslandi 1944 sem sett var upp
við Hagatorg. Þá vann hann fjölda
lágmynda og veggskreytinga og
gerði u.þ.b. tvö hundruð manna-
myndir af ýmsum þekktum fs-
fendingum.
Verk Sigurjón er að finna á virt-
um listasöfnum víða um heim og
stytta hans, Móðir mín, úr eir, var
sett upp á Ráðhústorginu í Vejle.
Sigurjón lést 20. desember
1982.
Stórafmæli
90 ára
Ragnheiður Samsonardóttir,
Vallargötu 7, Þingeyri.
Sigurbjörg Sóley Böðvarsdóttir,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum.
80 ára
Albert Magnússon,
Vesturgötu 15, Ólafsfirði.
Guðrún Sigrföur J. Blöndal,
Holtsbúð 87, Garðabæ.
Marfus Héðinsson,
Hólavegi 38, Sauðárkróki.
75 ára
Guðrún Halldórsdóttir,
Hábergi 14, Reykjavík.
Jón R. Einarsson,
Selbraut 86, Seltjarnarnesi.
Lilja Jónasdóttir,
Reykjaheiðarvegi 4, Húsavík.
Sigursveinn Bjarnason,
Túngötu 13, Sandgerði.
Viggó Einarsson,
Gullsmára 8, Kópavogi.
Þorgeir Sigfinnsson,
Miðstræti 10, Neskaupstað.
70 ára
Elfn Ellertsdóttir,
Selvogsbraut 23, Þorlákshöfn.
Hrefna Árnadóttir,
Markarflöt 23, Garðabæ.
Sturla Eirfksson,
Logafold 24, Reykjavík.
Þórður Þórðarson,
Syðra-Langholti 4, Flúðum.
60 ára
Sylvia Lockey
H Gunnarstein,
Wm{*!w smurbrauðsjómfrú og
jfaljL veitingamaður,
í Melbæ 27, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum að
Skipholti 70föstudaginn 24.10.
milli kl. 7.00 og 12.00. Allir vinir og
kunningjar eru velkomnir.
Guömundur Kari Þorbjörnsson,
Rauðalæk 33, Reykjavík.
Gunnar Sigurbjartsson,
Björtuhlíð 9, Mosfellsbæ.
Kristín Engiljónsdóttir,
Norðurbraut 25, Hafnarfirði.
Þórunn Gunnarsdóttir,
Vesturbergi 26, Reykjavík.
50 ára
Auður Finnbogadóttir,
Tindaflöt 3, Akranesi.
Árni Björgvinsson,
Heimavöllum 11, Keflavík.
Jóhann M. Kristjánsson,
Lyngmóum 5, Garðabæ.
Óðinn Traustason,
Mánahlíð 14, Akureyri.
Ólafur tngi Tómasson,
Fjóluhvammi 9, Hafnarfirði.
Páll Halidórsson,
Túngötu 13, Eyrarbakka.
Rannveig Gunnarsdóttir,
Hrafnhólum 6, Reykjavík.
Sigurður Helgi Þórisson,
Auðbrekku 38, Kópavogi.
Svala Ólafsdóttir,
Frostafold 3, Reykjavík.
Sváfnir Hreiðarsson,
Tröllaborgum 12, Reykjavík.
Sævar Þór Guðmundsson,
Melabraut 14, Seltjarnarnesi.
Tryggvi Einarsson,
Lyngbraut 7, Garði.
Þorsteinn V. Gunnarsson,
Lerkilundi 29, Akureyri.
Þórir Traustason,
Skólabrekku 8, Fáskrúðsfirði.
40 ára
ElðurÁgúst Jónsson,
Hólavöllum 9, Grindavík.
Gunnar Margeir Baldursson,
Staðarhrauni 16, Grindavík.
Gunnhildur Hreinsdóttir,
Litluvör 3, Kópavogi.
Helena KristbJ. Hrafnkelsdóttir,
Hlíðarvegi 64, Kópavogi.
Juliane Brigitte Kauertz,
Grýtubakka 2, Akureyri.
Kjartan Hjaltested,
Hjallalandi 19, Reykjavík.
Marglt Elva Einarsdóttlr,
Háaleitisbraut 34, Reykjavík.
Sigrfður Jakobsdóttir,
öldugranda 11, Reykjavík.