Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Side 29
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÚBER 2003 DVSPORT 29
(-
Fjölskylduslagir í borðtennis
BORÐTENNIS: Fyrsta mótið í
Grand Prix-mótaröðinni fór
fram íTBR-húsinu um helgina
en þar börðust systkini til sig-
urs í karla- og kvennaflokki.
Það kom fátt á óvart í karla-
flokki þar sem Guðmundur
Stephensen úr Víkingi vann
bróður sinn, Matthías Steph-
ensen Víkingi, örugglega í úr-
slitum, 4-0, en Guðmundur
lagði Magnús Magnússon Vík-
ingi í undanúrslitum.
Það var síðan systraslagur í
kvennaflokki þar sem Halldóra
Ólafsdóttir vann öruggan sigur
á systur sinni, Magneu Ólafs-
dóttir, 4-0.
SIGURVEGARAR: Halldóra Ólafs-
dóttir og Guðmundur Stephensen
sjást hér með sigurlaun sín.
■iatv' BS':)
' ' |
Blakið að byrja
BLAK: Það styttist í að blakver-
tíðin hefjist en í vetur verður
keppt í 1. og 2. deild í karla- og
kvennaflokki. Blakarar eru
spenntirfyrir komandi tímabili
því talið er að liðin hafi jafnast
og því er von á spennandi
tímabili fram undan. Haldið
verður utan um tölfræði lið-
anna í vetur - stig skoruð úr
sókn, hávörn og uppgjöfum -
og verður hægt að nálgast
þessar upplýsingar á heimasíð-
um félaganna.
Landslið fslands eiga einnig
spennandi verkefni í vændum
en karlalandsliðið fer til
Skotlands í desember og tekur
þar þátt í undankeppni fyrir
Evrópumót C-þjóða. Landslið
kvenna tekur þátt í sömu
keppni ífrlandi íjanúar.
í
Stúdína veiqamikil
sinn annan leik í röð, nú 52-42 sigur á Grindavík í Kennaraháskólanum í gær
ÍS tryggði sér sigurinn með góðum
endaspretti.
ívar Ásgrímsson, þjálfari ÍS, var
ánægður með að liðið var komið á
sigurbraut á ný eftir slæmt tap í
Njarðvík í fyrsta leik.
„Við erum vonandi komin á sig-
urbrautina. Ég var mjög ánægður
með vörnina í dag en sóknin er enn
að hiksta hjá okkur. Þetta er samt
allt að slípast hjá liðinu og ánægjan
er alltaf að vera meiri og meiri með
hverjum leik,“ sagði ívar sem finnst
deildin hafa komið sér á óvart í
upphafi tímabils. „Úrslitin í 1. deild
kvenna það sem af er sýna að ef lið-
in eru ekki á tánum þá tapa þau.
Miðað við úrslitin til þessa kemur
deildin á óvart, annaðhvort eru
betri liðin verri en maður bjóst við
eða þau verri betri. Ég held samt að
hvorki Keflavík né ÍS hafi verið að
spila eins vel og þau geta og þau
eiga bæði mikið inni,“ sagði ívar en
ÍS mætir einmitt Keflavík næst.
Pétur Guðmundsson, þjálfari
Grindavíkurliðsins, var ekki ósáttur
með sínar stelpur þrátt fyrir tapið.
„Það var mikil barátta í mínum
stelpum í þessum leik en við lent-
um í villuvandræðum og fyrir
bragðið misstum við sóknarvopn
úr okkar leik. Við hittum ekki vel og
vorum óöruggar í sókninni. Þetta er
„Úrslitin í 1. deild
kvenna það sem afer
sýna að efliðin eru ekki
á tánum þá tapa þau
leikjunum."
ungt lið og þær eru að læra í hverj-
um leik. Þær þurfa að vinna þessa
leiki sjálfar f vetur og hafa ekki
Kana lengur til að vinna þá fyrir sig.
í lokin, þegar við náðum að minnka
muninn, vantaði okkur einhverja til
að vilja klára leikinn. Sólveig hefur
verið að bera liðið uppi og leikur vel
en það er bara ekki nóg,“ sagði Pét-
ur eftir leik.
Hjá ÍS áttu þær Jófríður Halldórs-
dóttir og Svana Bjarnadóttir báðar
fínan leik og eins voru Lovísa Guð-
mundsdóttir og Alda Leif Jónsdótt-
ir traustar þótt þær hittu ekki vel.
Hjá Grindavík var Sólveig Gunn-
laugsdóttir best að vanda, Guðrún
Ósk Guðmundsdóttir gerði ágæta
hluti og Ólöf Helga Pálsdóttir kom
sterk inn í seinni hálfleik en aðrar
hafa gert betur. ooj@dv.is
ERU AÐ LÆRA f HVERJUM LEIK: Pétur Guðmundsson er þjálfari Grindavíkur í 1. deild kvenna í vetur og stelpurnar leika jafnframt í
fyrsta sinn í nokkur ár án þess að hafa erlendan leikmann innanborðs. Pétur þarf þannig að kenna stelpunum að taka af skarið og vinna
leikina sjálfar og hér er hann að gefa sínum stúlkum góð ráð í einu af leikhléunum í leik fS og Grindavíkur í gær. DV-myndValli
Tvö heimatöp KFI íröð
Tindastóll vann sexstiga sigur á ísafirði, þökk sé stórleik þjálfarans
ísfirðingar töpuðu öðrum
heimaleiknum sínum í röð í
gær þegar frestaður leikur KFf
og Tindastóls, sem vera átti á
sunnudagskvöldið, var leikinn
í Jakanum á ísafirði. Tindastóll
vann sex stiga sigur, 106-112, í
miklum stigaieik þar sem Krist-
inn Friðriksson, spilandi þjálf-
ari gestanna, var maðurinn á
bak við sigur þeirra.
Fyrsti leikhluti var nokkuð hrað-
ur, varnarleikur heimamanna var
ekki nægilega góður en bæði lið
hófu leikinn á maður á mann vöm.
Þriggja stiga skotin duttu bærilega
fyrir gestina og vörn þeirra var
heilsteypt.
Það er nokkuð Ijóst að
varnarleikurinn fór
með heimamenn.
KFÍ breytti um varnaraðferð í
síðari hálfleik, pressaði allan völl-
inn eftir skoraða körfu og féll niður
í svæðisvörn. Táningurinn Sigurð-
ur Þorsteinsson kveikti aðeins í
heimamönnum með körfu og víti
snemma í leikhlutanum og Baldur
Ingi setti síðan þriggja stiga körfu
skömmu síðar og munurinn 3 stig
32-35. KFÍ komst síðan í fýrsta
skiptið yfir í leiknum, 39-37, með
þriggja stiga körfu frá Adam Span-
ish þegar 5:40 vom eftir.
„Hitakúturinn" Kristinn Frið-
riksson komst þá f gang, skoraði 15
síðustu stig gestanna í hálfleiknum
með fjómm þriggja stiga körfum
og þremur vítum að auki, eftir að,
mikið rétt, brotið var á honum í
þriggja stiga skoti. Staðan í hálfleik
50-53 fyrir gestina.
Áfrarn hélt svæðisvörnin hjá KFÍ
í þriðja leikhluta en Tindastóls-
menn höfðu greinilega farið vel yf-
ir lausn hennar í hálfleiknum.
Varnarleikur KFÍ var langt frá því
að vera viðunandi og allt of oft
komust gestirnir inn ívítateig til að
klára sfnar sóknir.
Jeb Ivey hélt þó smávon í sínum
mönnum, hann sá nær alfarið um
stigaskomn heimamanna á þessu
tímabili en það var ekki nóg, mun-
urinn minnkaði ekkert með þess-
ari vörn og þegar 4 mínútur vom
eftir af leiknum höfðu Stólarnir
þægilega forystu, 85-99.
KFÍ skoraði næstu 5 stig og von-
in kviknaði, en áfram héldu þeir að
bjóða andstæðingum sínum inn í
vítateiginn. Tindastólsmenn hittu
síðan bærilega af vítalínunni undir
lokin og lönduðu sigrinum á nokk-
uð ömggan hátt, 106-112.
Kristinn Friðriksson átti
skínandi leik fyrir gest-
ina og var maðurinn á
bak við sigurinn.
Það er nokkuð ljóst að varnar-
leikurinn fór með heimamenn í
þessum leik. Fáum KFÍ-mönnum
verður því hrósað fyrir varnarleik-
inn en Jeb Ivey var bestur í sókn-
inni, Pétur Már og Baldur hittu
ágætlega en Spanich var ekki með
góða nýtingu þrátt fyrir stigin 24.
Kristinn Friðriksson átti skín-
andi leik fyrir gestina og var mað-
urinn á bak við sigurinn.
Hann kom til skjalanna þegar á
þurfti að halda og átti vægast sagt
stórleik. Clifton Cook nýtti sér
gestrisni heimamanna ágætlega
og Nick Boyd átti ágætan leik og á
eftir að komast betur í gang.
í heildina barðist Tindastólsliðið
vel og sigurinn var mjög sann-
gjarn.
kj
Ólöfu Helgu Pálsdóttur f Grindavík en fé-
lagar Öldu [ (S-liðinu, þær Lovísa Guð-
mundsdóttir og Stella Rún Kristjánsdóttir,
eru tilbúnar í hjálparvörninni.
DV-mynd Valli
f
iflaTlTMgl
Staðan í deildinni:
Haukar 2 2 0 167-154 4
Þór Þ. 2 2 0 203-191 4
Grindavík 2 2 0 170-165 4
Snæfell 2 1 1 154-150 2
(R 2 1 1 217-219 2
Njarðvík 2 1 1 182-182 2
KR 2 1 1 193-174 2
Keflavík 2 1 1 207-183 2
Tindastóll 2 1 1 197-198 2
KFl 2 0 2 187-201 0
Breiðablik 2 0 2 180-207 0
Hamar 2 0 2 145-178 0
Stigahæstir að meðaltali:
Derrick Allen, Keflavík 32,0
Raymond Robins, Þór Þ. 32,0
Chris Woods, KR 31,0
Jeb Ivey, KFI 31,0
Eiríkur Önundarson, (R 29,0
Leon Brisport, Þór Þ. 29,0
Reggie Jessie, IR 29,0
Adam Spanich, KFl 28,5
Darrel Lewis, Grindavík 27,5
Brandon Woudstra, Njarðvík 27,0
Michael Manciel, Haukum 27,0
(Lágmark 2 lelkir)
Næstu lelkir.
Hamar-lR fim 23. okt. 19.15
KR-Snæfell fim 23. okt. 19.15
■Tlndastóll-Haukar fim 23. okt. 19.15
Grindavik-KFÍ fös 24. okt. 19.15
Keflavík-Breiðablik fös 24. okt. 19.15
Þór Þ.-Njarðvík fös 24. okt. 19.15
Haukar-lR sun. 26. okt. 19.15 ^ ..
KFÍ-KR sun. 26. okt. 19.15
Tindastóll-UMFG sun. 26. okt. 19.15
Breiðablik-Hamar sun. 26. okt. 19.15
Snæfell-Þór Þ. sun. 26. okt. 19.15
Njarðvík-Keflavík mán. 27. okt. 19.15
KFÍ-TINDASTÓLL
106-112 (50-53)
Dómarar:
Sigmundur Már
Herbertsson og
Björgvin Rúnarsson
9/10
Gæði leiks:
8/10
Ahorfendur:
250.
Maðurleiksins:
Kristinn Friðriksson,
Gangur leiksins: 0-2,9-8,18-24,
(23-30), 32-35, 39-37,48-47, (50-53),
54-61,62-66,69-78, (71-82), 78-91,
85-99,95-103,106-112
y&smiÉiHiJí
Stig skoruð (Fráköst) Stoðsendingar
Jeb Ivey 38 8
Adam Spanich 24 (7) 2
Pétur Már Sigurðsson 19)1)5
Baldur Ingi Jónasson 18(2)2
Lúöv(k Bjarnason 4 0
Sigurður Þorsteinsson 3,1)0
Haraldur Jóhannesson 0 2
Pétur Þór Birgisson 0 (3) 1
Stig skoruð (Fráköst; Stoðsendingar
Kristinn Friðriksson 32 ! ■ 3
Clifton Cook 26 (3) 12
Adrian Parks 21 2
Nick Boyd 20 ihi o
Einar Örn Aðalsteinsson 6 0
Axel Kárason 5 í8) 0
Helgi Rafn Viggósson 2 ) 2
Matthías Rúnarsson 0 (0) 2
SAMANBURÐUR
KFf Tindastóll
21(6) Fríkðst (sókn) 37(18) V
Spanich 7 - Boyd 9, Axel 8, Helgi 7
20 Stoðsendingar 21
Ivey 8, Pétur Már 5 - Cook 12
4 Stolnir boltar 8
Pétur Már 3 - Boyd 3
5 Varin skot 3
Spanich 3 - Boyd 3
12 Tapaðir boltar 13 ^
33/16(49%) 3ja stlga skot 19/11(58%)
23/22(97%) Vftanýting 23/15(65%)
Tindastóli