Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Page 30
30 DVSPORT ÞRIÐJUDAGUR21. OKTÓBER 2003
Sir Alex í tveggja leikja bann
Glazer kaupir í Man. Utd
KNATTSPYRNA: Sir Alex
Ferguson, framkvæmdastjóri
Man. Utd, var í gær dæmdur í
' tveggja leikja bann ásamt því
að greiða 10 þúsund pund í
sekt fyrir að hafa hellt sér yfir
Jeff Winter sem varfjórði dóm-
ari í leik Man. Utd og
Newcastle á dögunum. Fergu-
son hefur nú 14 daga til þess
að ákveða hvort hann áfrýjar
úrskurðinum eða tekur hon-
um. „Ég held ég geti sagt það
að Sir Alex er vonsvikinn með
þessa niðurstöðu en við mun-
um ekki senda frá okkur neinar
stórar yfirlýsingar á þessari
stundu þar sem þetta hefur
verið langur dagur. Við mun-
um ákveða hvað við gerum
fljótlega," sagði Maurice Watk-
ins hjá Man. Utd.
KNATTSPYRNA: Bandaríski
auðkýfingurinn Malcolm Glaz-
er jók hlut sinn í Manchester
United í gær í tæp 10%. Þetta
er í annað sinn á hálfum mán-
uði sem Glazer eykur hlut sinn
í félaginu en áður hafði hann
aukið hlut sinn úr 5,9% í
8,94%. Glazer er frægur í
bandarísku íþróttalífi en hann
á NFL-liðiðTampa Bay
Buccaneers en hann keypti fé-
lagið þegar það var á botnin-
um og gerði að meisturum í
fyrra. Það er Ijóst að það er
mikil valdabarátta fram undan
hjá félaginu en stærstu hlut-
hafarnir í því hafa verið að
auka hlut sinn undanfarið en
þeir eru J.P. McManus og John
Magnier sem eiga 23,15% hlut.
Kluivert til Newcastle?
KNATTSPYRNA: Newcastle
hefur að undanförnu verið
sterklega orðað við hollenska
framherjann Patrick Kluivert
og nú virðast forráðamenn fé-
lagsins hafa sett allt á fullt í
málinu. Freddie Sheperd,
stjórnarformaður Newcastle,
var á Nou Camp um helgina
þarsem hann sá Barcelona
tapa gegn Deportivo. Eftir ieik-
inn ræddi hann við Joan
Laporta, forseta Barcelona, um
Kluivert. Hollendingurinn lék
ekki í leiknum vegna meiðsla
en hann hefur enn ekki skorað
í deildinni í vetur. „Það er satt
að það er áhugi á Patrick og ég
mun ræða við hann og athuga
hvað hann vill gera," sagði
Frank Rijkaard, þjálfari
Barcelona.
#11 UMMfffff 11 t&f f fMffUJffVJfflUllffflfff f Mll Wfl fvllMlfffwJJvll M •fl/Mflf*
Frá í 4-6 vikur
Skaddaðist á liðþófa í leik gegn Barcelona
Ferill Patreks Jóhannessonar
með Bidasoa fer ekki vel af stað
því að hann er meiddur og
verður ekki með liðinu næstu
' 4-6 vikurnar. Þetta er nokkurt
áfall fyrir Patrek því hann miss-
ir einnig af næstu verkefnum ís-
lenska landsliðsins en hann
hefur ekki verið með því í
nokkurn tíma þar sem langan
tíma tók að fá úr því skorið
hvort hann gæti leikið á Spáni
eftir að hafa verið dæmdur í
leikbann í Þýskalandi í síðasta
leik sínum með Essen.
„Ég var skorinn upp á miðviku-
. ^ daginn síðasta," sagði Patrekur í
samtali við DV Sport frá Spáni í
gær. „Það skaddaðist innri og ytri
liðþófmn hjá mér. Þetta gerðist á
móti Barcelona. Ég reyndi eitthvað
að vera með í kjölfarið en það gekk
ekki og því kom ekkert annað til
greina en leggjast undir hnífinn.
Mér skilst að uppskurðurinn hafi
gengið þokkalega. Að minnsta kosti
var læknirinn nokkuð ánægður
með þetta og hann gerir ráð fyrir
því að ég verði frá í 4-6 vikur,“ sagði
Patrekur sem er ekkert að hella sér í
neitt þunglyndi yfir meiðslunum.
Svekkjandi
„Mér líður þokkalega í dag. Hnéð
. ^ er ekkert svo bólgið og ég mun
væntanlega byrja fljótlega í sjúkra-
þjálfun. Ég vona svo að ég verði klár
í að spila eftir 4-6 vikur. Það er að
minnsta kosti stefnan. Vissulega er
þetta nokkuð svekkjandi en þetta
er bara hluti af þessu lífi. Þetta er
líka sérstaklega leiðinlegt þar sem
maður er kominn í nýtt lið. Það er
líka ljóst að ég verð ekkert með í
næstu verkefnum landsliðsins en
ég stefni að því að komast í liðið í
janúar. Það er markmiðið," sagði
Patrekur og átti þar við að hann
ætlaði að vera með í Evrópukeppn-
inni sem fram fer í Slóveníu í janú-
ar en undirbúningur fyrir mótið
hefst um mánaðamótin þegar ís-
lendingar leika þrjá æfingaleiki við
Pólverja.
Fyrir utan þessi meiðsli og slakt
gengi Bidasoa í upphafi móts er
Patrekur bjartsýnn á framtfðina og
honum líður vel á Spáni.
„Mér líst ágætlega á þetta allt
saman. Þetta er allt öðruvísi en í
Þýskalandi. Ég er ekki alveg kom-
inn inn í málið enn þá og það tekur
smátíma þannig að þetta eru nokk-
ur viðbrigði. Svo hefur liðinu ekki
gengið neitt sérstaklega vel í upp-
„Mér skilst að upp-
skurðurinn hafi gengið
þokkalega. Að minnsta
kosti var læknirinn
nokkuð ánægður með
þetta og hann gerir ráð
fyrir því að ég verði frá
í 4-6 vikur."
hafi móts þannig að þetta er búið
að vera frekar erfitt en ég er bjart-
sýnn og er viss um þetta á allt eftir
að blessast," sagði Patrekur og bæt-
ir við að það sé allt annar blær á
öllu á Spáni en í Þýskalandi. „Fólk-
ið hér er allt öðruvísi. Spánverjarn-
ir eru frekar slakir á því en Þjóð-
verjarnir eru frekar stífir. Fólkið lif-
ir meira lífinu hérna á Spáni. í
Þýskalandi eru menn alltaf að
spara og flippa svo út þegar þeir
verða sextugir en hérna lifir fólk
fyrir daginn í dag,“ sagði Patrekur
og hló dátt og ljóst að engan bilbug
er á honum að finna. henry@dv.is
MEIDDUR: Patrekur Jóhannesson leikur ekki með Bidasoa næstu vikurnar og hann missir einnig af landsleikjum Islands og Póllands um
mánaðamótin vegna meiðsla.
FÉLAGI JÓraS
ARNÓRS:
Antoine Wal@Ít
er orðlnrt lak
maðtir paljjs
^ayericks oy
, Jpilar vlð hiuy ui
jons Arnór. Sji’f-
■jjssóháyUeiur.
Walker skipt til Dallas
Verður félagiJóns Arnórs eftir að Dallas og Boston skiptu á 5 leikmönnum
Mark Cuban, eigandi Dallas,
Mavericks, er ekki hættur að
hræra í leikmannamarkaðnum
í NBA-deildinni þrátt fyrir að
hafa verið duglegur að safna
að sér leikmönnum í haust. í
gær fékk hann stjörnuleik-
mann Boston Celtic, Antoine
Walker, til Dallas í skiptum fyrir
þrjá leikmenn og valrétt í ný-
liðavalinu á næsta ári.
Jón Arnór Stefánsson fær því
enn einn stjörnuleikmanninn sér
við hlið en íýrir eru hjá liðinu leik-
menn á borð við Dirk Nowitzki,
Steve Nash, Michael Finley og
Antawn Jamison en þann síðast-
nefnda fékk Dallas í ágúst í skipt-
um við Golden State. Þegar meðal-
skor þessara ijögurra leikmanna og
Walkers er lögð saman skoruðu
þeir 104,4 stig að meðaltali í leik á
síðasta tímabili og það verða því
greinilega mög sóknarvopn hjá
Dallas í NBA-deildinni í vetur.
Dallas-liðið fékk einnig bakvörð-
inn Tony Delk frá Boston en lét í
staðinn miðherjann Raef LaFrentz,
Tékkann Jiri Welsch og Chris Mills
auk valréttar í fyrstu umferð næsta
Jón Arnór Stefánsson
fær þvíenn einn
stjörnuleikmanninn
sér við hlið í Dallas.
nýliðavals.
Danny Ainge, sem nú stjórnar
málum hjá Boston, kom nokkuð á
óvart með því að láta Walker fyrir
ekki betri eða þekktari leikmenn
en þetta en hann lét hafa eftir sér
að þessi skipti hefðu aldrei farið í
gegn nema af því að tékkneski bak-
vörðurinn Jiri Welsch var með í
pakkkanum en sá var einmitt einn
helsti samkeppnisaðili Jóns Arnórs
í Dallas-liðinu.
Walker, sem er 27 ára framherji,
þykir reyndar einoka boltann held-
ur mikið og taka of mikið af léleg-
um þriggja stiga skotum en hann
var með 20,1 stig, 7,2 fráköst og4,8
stoðsendingar að meðaltali á síð-
asta tímabili. Walker er 2,06 á hæð
en ber mikið uppi boltann. Hann
tók samt alls 582 þriggja stiga skot í
fyrra eða 7,5 að meðaltali í leik.
Þessi skipti ættu ekkert að spilla
fyrir möguleikum Jón Arnórs á að
vera með í vetur en fyrsti leikur
liðsins er gegn Los Angeles Lakers í
lok mánaðarins. ooj@dv.is