Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Page 32
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR 550 55 55 Við tökum við fréttaskot- um allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 kr. Fullrar nafnleyndar er gætt. Rekstrarþjónusta Öruggur rekstur tölvukerfa 0 TOLVUMIÐLUN s í m 1: 5 4 5 5 0 0 0 -www.tm.is Á FLUGI: (annað sinn á tæpri viku fór Sigmundur Sæmundsson ásamt félaga sínum yfir Grænlandsjökul á snjósleða. Danskir ferðaskrifstofuaðilar stóðu að ferðinni en hugmyndin er að bjóða slíkar ferðir fyrir fjóra sleðamenn í einu. Sigmundur Sæmundsson afturyfir Grænlandsjökul -á 20 tímum: Mér líður frábærlega „Mér líður alveg frábærlega," sagði Sigmundur Sæmundsson, 36 ára Reykvíkingur, við DV í gærkvöld þegar hann var ný- kominn yfir Grænlandsjökul í annað sinn á tæpri viku á vélsleða sínum ásamt dönskum samferðamanni. Sigmundur er fyrsti maðurinn sem gerir slíkt á vélsleða og hraðinn í ferðinni yfir jökulinn í seinna skiptið - á bakaleiðinni - var mikill. Hún tók aðeins um 20 klukkustund- ir, þar af fóru fjórir tímar í svefn á bandarísku ratsjárstöðinni DYE 2, vestan megin við há- jökulinn. Þegar við komum á hæsta punktinn á leið- inni sýndi tækið mitt 2.480 metra hæð. „Við lögðum ekki af stað fyrr en klukkan hálf fimm síðdegis á sunnudag og ókum í rigningu upp í 1.700 metra hæð. Eftir það tók við hálfgerð íslensk snjókoma. Þegar við komum á hæsta punktinn á leiðinni sýndi tækið mitt 2.480 metra hæð. Við ókum mjög hægt en síðan náðum við 40 til 50 km hraða á klukkustund. Þegar við komum að DYE 2 vorum við búnir að leggja að baki 355 kílómetra frá þeim stað sem þyrlan flutti okkur á frá Angmagsalik, upp að sleðun: um,“ sagði Sigmundur. Þeir sváfu ágætlega í fyrrinótt þangað til þeir lögðu í hann aftur áleiðis niður í Syðri-Straumfjörð - um 230 kílómetra vegalengd. Þang- að komu þeir svo eftir hádegið í gær og voru heldur kátir við kom- una þangað. Spáð hafði verið versnandi veðri uppi á jöklinum, ekki síst sunnan til, þannig að þeir voru fegnir að komast til byggða að afloknu vel heppnuðu ferðalagi á sérbúnum fjögurra strokka Arctic Cat vélsleðunum. Sigmundur var fenginn í ferðina til að vera leiðsögumaður með GPS-tæki en að henni standa danskir ferðaskrifstofuaðilar sem hyggjast bjóða ferðir fyrir fjóra ferðamenn í einu ásamt tveimur leiðsögumönnum næsta sumar. Jeppaleiðangur, m.a. með ís- lendingum, hefur farið yfir jökulinn og algengt er að fólk fari yfir jökul- inn fótgangandi. Þótt merkilegt kunni að hljóma þá hafa menn ekki farið yftr Grænlandsjökul á vélsleð- um áður - ekki fyrr en síðustu daga þegar hinn íslensk-danski leiðang- ur fór yfir hann, fyrst frá vestri til austurs og síðan til baka. Sigmund- ur er hins vegar sá eini sem hefur farið báðar leiðir því á austurleið- inni var annar Dani með honum en sá sem komst með honum á leiðar- enda í gær. onar@dv.is Veðrið á morgun Skýjað með köflum vestan til og smávegis súld við ströndina en bjartviðri austan til á landinu. Hiti 0 til 8 stig að deginum en vfða 1 til 6 stiga frost í innsveitum í nótt, einkum norðaustan til. 6 Veðriðidag 6 0 6 4 Sólarlag Sólarupprás í kvöld á morgun Rvík 17.49 Rvfk 8.38 Ak. 17.27 Ak.8.17 Síðdegisflóð Rvfk 15.27 Ak. 20.00 Árdegisflóð Rvfk 03.12 Ak. 07.45 Veðrið kl. 6 í Akureyri Reykjavík Bolungarvík Egilsstaðir Stórhöfði Kaupmannah Ósló Stokkhólmur Þórshöfn London Barcelona NewYork París Winnipeg morgun heiðskírt -2 skúr 3 -2 alskýjað • -1 skýjað skúr skýjað 4 3 -1 1 4 2 skúr skýjað léttskýjað 15 hálfskýjað 13 skýjað 6 léttskýjað 6 Þorlákur til Fylkis Gerði þriggja ára samning Þorlákur Árnason hefur tekið við stjórnartaumunum hjá Fylki en þriggja ára samningur verð- ur undirritaður í dag. Þorlákur tekur við starfinu af Aðalsteini Víglundssyni sem var sagt upp störfum. Aðstoðarmaður Þor- láks verður gamli Framarinn Jón Sveinsson en Jón verður jafnframt þjálfari 2. flokks fé- lagsins en Þorlákur hefur þó yf- irumsjón með 2. flokknum. „Það er mjög ánægjulegt að þessi mál eru komin á hreint og núna er hægt að horfa fram á veginn," sagði Þorlákur í samtali við DV Sport í gærkvöld. „Þetta hefur ekki tekið neitt sérstaklega langan tíma. Við fórum í viðræður eftir að ég var hætturhjá Val.“ TEKINN VIÐ FYLKI: Þorlákur Árnason sést hér stýra Valsmönnum í hinsta sinn og það var kannski táknrænt að það skyldi vera gegn Fylki í Árbænum. „Það er mjög ánægju- legt að þessi mál eru komin á hreint og núna er hægt að horfa fram á veginn." Nokkur umræða hefur verið um það að Þorlákur hafi farið frá Vals- mönnum til þess að taka að sér starfið hjá Fylki en Þorlákur vísaði þeim sögusögnum á bug og sagði þær algjörlega úr lausu lofti gripn- ar. „Ef svo hefði verið þá hefði ég hætt strax eftir síðasta leik en það er ekki ástæðan fyrir því að ég hætti að þjálfa hjá Val,“ sagði Þorlákur. „Ég skildi við Val í góðu og óska þeim alls hins besta í framtíðinni." Jón Sveinsson verður aðstoðar- maður Þorláks. „Við höfum ekki unnið saman áður. Það var bæði vilji Fylkismanna og minn að fá Jón sem aðstoðarþjálfara. Hann mun sjá um 2. flokkinn en ég meistaraflokk en við munum vinna mjög náið sam- an," sagði Þorlákur, sem sér ekki fram á miklar breytingar á leik- mannahópi liðsins. „Ég held að það verði mjög litlar breytingar," sagði Þorlákur en Sverrir Sverrisson, Finn- ur Kolbeinsson og Gunnar Þór Pét- ursson hafa ekki gert upp hug sinn um það hvort þeir ætli að leika áfram. Fylkismenn hafa ekki borið víurnar í marga leikmenn en heim- ildir eru fyrir því að þeir séu eitt þeirra liða sem eru á eftir Ágústi Gylfasyni. „Það verður svolítið ólíkt að þjálfa Val og Fylki. Valur hefur oft orðið íslandsmeistari en Fylkir aldrei. Fylkir er aftur á móti ungt fé- lag á uppleið og vonandi tekst mér að byggja ofan á það góða starf sem hefur verið unnið hjá Fylki undan- farin ár.“ „Við erum mjög ánægðir með það að þessi mál eru í höfn,“ sagði Ásgeir Asgeirsson, formaður meist- araflokksráðs Fylkis, í samtali við DV Sport í gær.“ Ásgeir segir að búið hafi verið að ræða við aðra þjálfara á undan Þor- láki en það var ekki fyrr en þeir fréttu að Þorlákur væri laus frá Val sem þeir settu sig í samband við hann. „Þorlákur er reyndur þjálfari þótt hann hafi ekki þjálfað lengi í efstu deild. Það fer gott orð af hon- um, hann er mjög metnaðarfullur og við væntum mikils af honum." henry@dv.is WETLANDS JAKKAR BUXUR VÖÐLUR HÚFUR NETT i SPORTVORUGERÐIN HF. SKIPHOLT 5, S. 562 8383 Sm áauglýsingar j 550 5000 ? 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.