Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2003, Qupperneq 6
6 FRÉTTIfí MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2003
Hlíðasmára 15 • Sírnt 535 2100
rM
AlJCElHtö
Beint leigu-
flug með
lcelandair
í allan vetur!
I I
DDL
5. og 19. nóv.
í 2 vikur:
/ Flug fram og til baka
með flugvallarsköttum.
Sumarhúsa-
eigendur
og aðrir
farþegar
til Spánar!
Tilvalið
tækifæri
til að stytta
veturinn.
FERÐIR
www.plusferdir. is
Frá Akureyri og Egilsstöðum til Keflavíkur
TVISVAR; Flugfélag Islands hefur
bætt við nýjum ákvörðunarstað
innanlands. Félagið hefur tekið
upp reglubundið áætlunarflug
ffá Akureyri og Egilsstöðum til
Keflavíkur. Þetta er í fyrsta skipti
sem Flugfélag Islands setur upp
slíkt áætlunarflug. Flogið verður
alla sunnudaga og fimmtudaga
til að byrja með, en gert er ráð
fyrir að fjölga ferðum ef viðbrögð
við þessari nýju þjónustu verða
góð. Flogið erfrá Akureyri til Eg-
ilsstaða og Keflavíkur kl. 11.00 og
til baka sömu leið frá Keflavík kl.
17.10. Með þessu býðst að nýju
flug milli Akureyrar og Egilsstaða
sem legið hefur niðri um nokk-
urra ára skeið. Þetta flug gefur
möguleika á beinu flugi út á land
eftir að til landsins kemur í stað
þess að aka fýrst til Reykjavíkur.
ill
Aðventuflug til Danmerkur
AIRGREENLAND; JóliníKaup-
mannahöfn eru engu lík. Yndis-
legt er að rölta um miðbæinn og
skoða í verslanir og markaði og
drekka danskan jólabjór. Sveinn
Jónsson, bóndi á Kálfsskinni í
Eyjafirði, er fararstjóri og verður
hann með skoðunarferð um
Kaupmannahöfn. Flogið verður
út fimmtudaginn 4. desember
með Air Greenland. Á föstudeg-
inum er verslunarleiðangur, farið
á Strikið með viðkomu í lllum
Magasin. Einnig verður farið í
konunglega postulínsverslun. Á
laugardag verður farið um gamla
bæinn og Amalienborg skoðuð
ásamt Löngulínu og Vorrar frúar
kirkju. Um kvöldið er íslend-
ingapartí. Á sunnudeginum verð-
ur farið íTívolí og á fallegan jóla-
markað. Heim á mánudeginum.
Búist við olíugjalds-
frumvarpi í haust
OLÍUGJALD: Forsvarsmenn olíufélaganna eru farnir að gera ráð fyrir að þungaskattur verði settur á olíu með lagasetningu í haust. Þá
verði tekin upp litun á allri gjaldfrírri olíu en talið er mögulegt að hrinda því í framkvæmd í fyrsta lagi 1. janúar 2005.
Hörður Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Olíudreifingar
ehf., segir félagið enn ekki hafa
neinar tímasetningar í höndum
varðandi upptöku væntanlegs
olíugjalds samkvæmt frum-
varpsdrögum fjármálaráðherra
þar um. Hann telur í fyrsta lagi
mögulegt að hrinda þessu í
framkvæmd 1. janúar 2005.
Olíudreifing ehf. annast dreif-
ingu á allri olíu fyrir Olíufélagið hf.
(ESSO) og Olíuverzlun fslands
(OLÍS). Er félagið langstærsti dreif-
ingaraðilinn hér á iandi, með um
70% markaðshlutdeild. Hörður
segir erfitt fyrir Olíudreifingu að
fara að huga að framkvæmdinni
þar sem verulega skorti á skilgrein-
ingar í þeim frumvarpsdrögum
sem þeir hafi séð. „Þar vantar að
skilgreina ýmis hugtök og ekkert
fylgir um það hvernig menn hyggj-
ast láta framkvæma þetta. Við höf-
um einvörðungu skoðað málið út
frá okkar forsendum og miðað við
það sem við höfum kynnt ökkur
annars staðar og heimfært upp á
staðhætti hérlendis. Það eina sem
við vitum núna er að þetta er til
umræðu í þingflokkunum. Ráð-
herra ætlar sér væntanlega að
koma þessu í gegn á haustþingi."
- Var ekki talað um eins árs að-
lögunartíma fyrir olíufélögin?
„Jú, það var talað um það. Ef
þetta fer í gegn núna þá höfum við
séð það fyrir okkur að þetta gæti
verið 1. janúar 2005. Það er fyrsti
möguleikinn á að koma þessu á.“
Hörður segist hafa kynnt sér
þessi litunarmál árið 1997 ásamt
Ólafi Jónssyni hjá Skeljungi.
„Ráðherra ætlar
sér væntanlega að
koma þessu í gegn á
haustþingi
Þá hafði fjármálaráðuneytið kall-
að þá til að skoða þessi mál. Fóru
þeir til Danmerkur að skoða litun-
armál þar hjá fimm olíufélögum,
en þá stóð fyrir dyrum að taka upp
litun á olíu hjá Dönum. Það er hins
vegar enn ekki komið til fram-
kvæmda. Hörður sagði málið hafa
tafíst vegna væringa um að í litun-
arefninu væru einhver krabba-
meinsvaldandi efni. „Síðast þegar
ég frétti af þessu í sumar bjuggust
þeir jafnvel við að þetta yrði komið
í gagnið undir lok þessa árs og voru
menn búnir að búa sig undir það.“
I Noregi hefur litun á dísilolíu
verið stunduð um nokkurn tíma.
Það er að hluta til með svipuðu
sniði og kemur til með að verða
hérlendis. Norðmenn lita olíu þó á
öðrum forsendum en hér er mein-
ingin að gera og ræðst það af um-
hverfissjónarmiðum og innheimtu
mengunarskatta. Hér verður aftur á
móti tekin upp litun vegna færslu á
þungaskatti inn í olíuverðið. Vegna
þess verður öll olía sem ekki á að
bera þungaskatt lituð. Það eru um
3/4 hlutar allrar dísilolíu sem hér er
seld og er m.a. notuð á skip, at-
vinnutæki, varaaflstöðvar og fleira.
Hugmyndin er að skoða mögu-
leika á því að flytja inn litaða olíu
eða lita olíuna beint við uppskipun
í innflutningshöfn.
Hjá fjármálaráðuneytinu voru
það fréttir að olíugjaldsfrumvarp
ráðherra, sem kynnt var í ríkisstjórn
í sumar, hefði verið lagt fyrir þing-
flokkana til skoðunar. Ekki liggur þó
fyrir hvenær það verður lagt fram til
afgreiðslu á Alþingi. hkr@dv.is
Hagnaður Landsbankans jókst um 69% fyrstu níu mánuði ársins:
Tekur 23 milljarða króna
lán til eflingar bankanum
Landsbanki (slands hefur geng-
ið frá stærstu erlendu lántöku
sinni frá upphafi. Um er að
ræða 250 milljónir evra eða 23
milljarða íslenskra króna.
Lánið er til fjögurra ára, sem er
lengri lánstími en íslenskir bankar
hafa áður notið í skráðum skulda-
bréfum erlendis. Er þetta gert með
útgáfu skuldabréfa á alþjóðlegum
skuldabréfamarkaði innan svokail-
aðs EMTN-fjármögnunarramma
Landsbankans og er lántakan liður
í endurfjármögnun og fjármögnun
á vexti bankans.
69% hagnaðaraukning
Fyrir helgi gaf Landsbankinn út
afkomutilkynningu vegna rekstrar
bankans fyrstu níu mánuði ársins
2003. Þar kom fram að hagnaður
Landsbanka íslands hf. nam 2.967
milljónum króna fyrir skatta, sam-
anborið .við 1.863 milljónir króna
fyrir sama tímabil á fyrra ári. Hagn-
aður eftir skatta nam 2.514 milljón-
um króna samanborið við 1.489
milljón króna hagnað fyrir sama
tímabil í fyrra. Hefur hagnaðurinn
aukist um 69% þrátt fyrir að fram-
lag á afskriftareikning útlána hafi
verið aukið verulega, eða úr 1.930
milljónum króna í 3.238 milljónir
króna á milli tímabila og að óskráð
hlutabréf hafi verið færð umtals-
vert niður. Arðsemi eigin fjár eftir
skatta var 21,3%, en var 12,8% fyrir
sama tímabil á árinu 2002.
Þá jukust rekstrartekjur Lands-
bankans um 37% á fyrstu níu mán-
uðum ársins og voru 13.808 milljónir
Landsbanki Islands hf.
króna í samanburði við 10.105 millj-
ónir fyrir sama tímabil á fyrra ári. Þar
af voru vaxtatekjur 6.600 milljónir og
þóknunartekjur 4.491 milljón króna.
Aulcna tekjumyndun má rekja til
meiri umsvifa, einkum á sviði verð-
bréfastarfsemi, fyrirtækjaráðgjafar,
stækkunar heildareigna samstæð-
unnar og almennt batnandi stöðu á
verðbréfamörkuðum sem lýsir sér
m.a. í hækkun á úrvalsvísitölu Kaup-
hallar fslands um 37% á tímabilinu.
Heildareignir bankans jukust um
91 milljarð króna eða 33% á fyrstu
níu mánuðum ársins 2003 og námu
368 milljörðum króna þann 30. sept-
ember 2003. Heildarúdán hafa auldst
um 33% og námu 286 milljörðum
króna og innlán jukust að sama skapi
um 36% og námu 148 milljörðum
króna í lok september 2003.
í móðurfélaginu voru 915 stöðu-
gildi í lok september samanborið við
907 í árslok 2002. Að auki em 79
stöðugildi í dótturfélögum bankans.
Landsbankinn gerir ráð fyrir að arð-
serni eigin fjár eftir skatta fyrir allt
árið 2003 verði líklega yfir þeim
markmiðum sem bankinn hefur sett
fram, en þau em 13-15%. hkr@dv.is