Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2003, Blaðsíða 30
46 TILVERA MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2003
Tilvera
Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5824-550 5810
Elton John til spilaborgarinnar Las Vegas
SKEMMTANIR: Enski skalla-
popparinn Elton John hefur
gert samning um að troða
sjötíu og fimm sinnum upp á
Caesar's Palace lúxushótelinu
í spilavítisborginni LasVegas
á næstu þremur árum.
Reyndar mun Elton verða eins
konar staðgengill hinnar
kanadísku Céline Dion þegar
hún tekur sér frí frá söngnum
á sama hóteli.
Elton fær litla fjóra milljarða
íslenskra króna fyrir viðvikið
og hann hefur þegartilkynnt
að sýningin verði kölluð
Rauða píanóið.
„Þarna verða paljettur og tíð
búningaskipti," lofar sprelli-
gosinn og söngvarinn.
Elton karlinn mun væntan-
lega ekki drepa sig úr vinnu
við þetta verkefni. Upplýst
hefur verið að samningurinn
geri ráð fýrir að hann spili
fimm sinnum í viku í fimm
vikur á hverju ári á meðan
samningurinn er í gildi.
Vildi endurtaka
kossaatriðin
meðHughG
Leikonan
Martine
McCutcheon
var svo ánægð
með að fá að
kyssa
hjartaknúsar-
ann Hugh Grant
við upptökur á
væntanlegri ást-
armynd að hún bað margsinnis
um að atriðið yrði tekið upp aftur.
„Ég verð að segja að það var
mikill heiður að fá að kyssa herra
Grant. Ég varð oft að biðja um að
atriðið yrði endurtekið þar sem
mér fannst ég ekki hafa staðið mig
nógu vel. Þetta var tungukoss.
Þegar leikstjórinn biður um
tungukoss verður maður að gera
það sem hann segir," segir
Martine og hefur gaman af.
Myndin sem þau leika saman í
heitir Love Actually og segir frá
þjónustustúlku sem verður ást-
fangin af forsætisráðherra Bret-
lands. Og hann af henni. Martine
leikur gengilbeinuna en Hugh for-
sætisráðherrann. Myndin verður
frumsýnd í Bretlandi í nóvember.
Eyrnagöt
Nýjung
Framþróun í eyrnagatagerð
Rakarstofan
Klapparstíg
Sími 551 3010 j
UMri1lKI81 tltl Slt 2S2S
lenivtlf: Stll? 150-153, «0V 281,2130(214
>&S2? vmmnsstölur Lausardaslnn
- vw iwLuönumi 25. október
»S)
Jókertölur vlkunnar
«11 0|1|2|5|
LITTi
ðlltat &
tr.ittvíkudoaun:
I Vinninfistölut raiövikudaBinn |
22. október
flöaitoiut
Bónustölur
lokertöiur vikunnar
^l4l0|7|8|6|
Nýjar hljómplötur:
íslensk
ástarljóð
Fátt er unaðslegra en að vera
ástfanginn - ástin er svo frísk-
andi. A plötunni íslensk ástarljóð
er að finna sextán klassísk og fal-
leg ástarljóð eftir íslenska karl-
menn í flutningi tíu landsþekktra
söngvara. Flytjendur eru Andrea
Gylfadóttir, Ragnheiður Gröndal,
Stefán Hilmarsson, Regína Ósk,
Eiríkur Hauksson, Hera Hjartar-
dóttir, Friðrik Ómar, Páll Rósin-
krans, Björn Jörundur og Sverrir
Bergmann.
I bæklingi sem fylgir diskinum
segir að ljóðin eigi það sameigin-
legt að fjalla um ástina og örlög
karla og kvenna, ungra og ald-
inna, á breiðum grunni og að
hugmyndin að diskinum sé sót-
t í ljóðabókina „íslensk ástarljóð"
sem Snorri Hjartarson tók sam-
an. Eins og í bók Snorra er víða
leitað fanga og á diskinum er að
finna ljóð eftir Megas, Bubba og
Tómas Guðmundsson, íslenskt
þjóðlag, ljóð eftir Laxness og Dav-
íð Oddsson. Lögin á diskinum em
hugljúf og falleg og eiga án efa
eftir að hlýja mörgum um hjarta-
rætumar þegar þeir hugsa um
ástina sína.
Sálin og
Sinfó—Vatnið
Sálin hans Jóns míns og Sin-
fóníuhljómsveit Islands sendu
nýlega frá sér plötu sem nefnist
Vatnið. Tónlistin á diskinum er
eftir Guðmund Jónsson, gítarleik-
ara Sálarinnar, utan eitt, sem er
samið af Jens Hanssyni saxafón-
leikara, og stef úr verkinu Myndir
á sýningu eftir Mússorgskíj. Text-
ar em eftir Friðrik Sturluson. Auk
fyrrnefndra skipa þeir Jóhann
Hjörleifsson, trommu- og slag-
verksleikari, og Stefán Hilmars-
son söngvari Sálina hans Jóns
míns.
Hugmyndin að samstarfi Sálar-
innar og Sinfóníuhljómsveitar-
innar vakti strax athygli og mér
fannst hún spennandi. Diskurinn
er vandaður í alla staði en tónlist-
in nokkuð JyrirsjánJeg og meira
hefði mátt gera í að nota kraftinn
í Sinfóníuhljómsveitinni.
Egill Ólafsson
- Brot... Mús-
íkúrleikhúsinu
Það er alltaf gaman að láta
koma sér á óvart og það gerir Eg-
ill Ólafsson svo sannarlega á plöt-
unni Brot... Músík úr leikhúsinu.
Diskurinn er einfaldlega það al-
besta sem ég hef heyrt frá Agli til
þessa. Þrátt fyrir að efnið á disk-
inum spanni rúmlega tuttugu ára
tímabil þykir mér hann renna
skemmtilega saman og orkar á
mig sem heild. Til hamingju.
Flytjendur á diskinum em of
margir til að hægt sé að nefna þá
hér en tónlistin er samin fyrir
leikhús á rúmlega tveggja áratuga
tímabili. Elsta verkið er úr Gretti,
sem Leikfélag Reykjavíkur setti
upp 1980, en það yngsta úr Önnu
Kareninu sem flutt var í Þjóðleik-
húsinu í fyrra.
Eins og nafnið á diskinum gef-
ur til kynna er aðeins á’honum
brot af þeirri tónlist sem Egill hef-
ur samið fyrir leikhús og er von-
andi að við fáum að heyra meira í
framtíðinni. kip&dv.is
Kidmaner nýtt andlit Chanel
Stórstjarnan Nicole Kidman hef-
ur gert samning við Chanel um að
vera andlit fyrirtækisins í auglýs-
ingum á hinu fræga ilmvatni Chan-
el No. 5. Baz Luhrman, leikstjórinn
Ben á niðurleið
sem leikstýrði henni í Rauðu myll-
unni, mun leikstýra auglýsinga-
myndbandi sem sett verður á
markaðinn í desember.
Þrátt fyrir alla athyglina sem Ben
Affleck hefur fengið í gegnum sam-
band sitt við Jennifer Lopez þá fer
stjarna hans lækkandi í Hollywood
og er þar að sjálfsögðu um að kenna
lélegu gengi mynda hans. Eftir fjórar
vikur áttu að hefjast tökur á gaman-
myndinni Ghost of Girlfriends með
Affleck í aðalhlutverki. Nú hefúr ver-
ið hætt við gerð myndarinnar sökum
kostnaðar að því er sagt er. Þá er alls
óvíst að Affleck fái að leika Jack Ryan
aftur, en hann lék njósnarann í Sum
of All Fears. Þær sögur ganga fjöllun-
um hærra í HolJywood að Paramount
vilji annan leikara.
Verður Hugh Jackman næsti Bond?
Alltaf eru að komast á kreik nýjar
sögur um hverjir koma til með að
leika James Bond eftir að Pierce
Brosnan tilkynnti að hann mundi
aðeins leika í einni kvikmynd til
viðbótar. Nefndir hafa verið Clive
Owen, Jeremy Northam og Paul
Bettany. Nú eru háværar raddir um
að ástralski leikarinn Hugh Jack-
man sé í náðinni hjá þeim sem
ráða. Þykir hann góður kostur og er
efstur á blaði segir innanbúðar-
maður. Spumingin er hvort hann
kæri sig nokkuð um það. Það gengur
vel hjá honum eins og er og auk þess
er von á fleiri X-Men myndum.
Dustin vill vera á listanum
Samtök bysssueigenda í Banda-
ríkjunum hafa birt lista yfir fræga
einstaklinga sem samtökin telja
óvini sína og beijast gegn banda-
rískum hefðum. A þessum lista eru
meðal annars Julia Roberts,
Ophrah Winfrey, Sarah Jessica
Parker, Britney Spears, Michelle
Pfeiffer og Jerry Seinfeld. Dustin
Hoffman var svo svekktur yfir að
vera ekki á listanum að hann
hringdi í samtökin og bað þau
endilega að láta sig á listann. Sam-
tökin urðu við ósk hans.
Bullock og Armstrong
Sandra Bullock virðist hafa fund-
ið sér nýjan mann eftir að hafa ver-
ið karlmannslaus í langan tíma. Sá
heitir Lance Armstrong og er fræg-
asti hjólreiðakappi heims. Hann er
nýskilinn við eiginkonu sína og
segja vinir leikonunnar að hún sé
yfir sig ástfangin. Það sást til þeirra
á matsölustað á Manhattan og voru
þau mjög upptekin hvort af öðru.
7. LÞ. í HÁTBGSSKÓLA í HEIMSÓKN Á DV: Birta Marlen Lamm, Hannah K.Trönnes, Hekla
Helgadóttir, Heiður Anna Helgadóttir, Hrafnhildur Jónsdóttir, Jón Bragi Gíslason, Eva María
Finnjónsdóttir, Linda Ósk Valdimarsdóttir, Ólafur Hjaltason, Símon Glömmi.Torfi Birningur
Birgisson, Viktoría Ýr Norðdahl, Þorbjörg Sigurvinsdóttir, Þórður Páll Jónínuson og Þórður
Arnar Þórðarson. Kennarinn þeirra heitir Lilja Þorkelsdóttir.