Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003 Fréttir DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson, ábm. Ritstjóran lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjórar Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - Aðrar deildin 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifmg@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Kaka ársins Landssamband bakara- meistara hefur blásið til samkeppni um Köku ársins 2004. Þema keppninnar að þessu sinni er súkkulaðikaka. Búa á til einfalda en góða súkkulaðiköku úr ódýru og aðgengilegu hráefiii. Skil- yrði er þó að afkökunni sé ríkulegt súkkulaði- bragð og hana sé hægt að baka í öll- um venjuleg- um bakarí- um. Kökimni á að skila undir didnefni í bakara- deild Hótels-og mat- vælaskólans í Kópavogi, föstudaginn 9. janúar á milli klukkan 16 og 17. Typpi í fjörðinn Forsvarsmaður Reður- safnsins á Laugavegi hefur sent erindi til bæj- aryfirvalda í Hafnarfirði og spurst fyrir um hvort áhugi sér a að hýsa safn- ið í Firðinum. Húsaleiga mun vera dýr við Lauga- veginn og með þessu viU Sigurður Hjartarson, framkvæmdastjóri safnsins, leysa húsnæð- ismál þess til frambúð- ar. Ekki er farið fram á að Hafnarfjarðarbær komi að rekstri Reður- safnsins á einn eða ann- an hátt. Fáir séð Klettinn Gerð hefur verið könnun meðal íbúa í Grafarvogi um viðhorf þeirra til listaverksins „Klettur- inn“ sem setthefúrver- ið upp við göngustíg í Staðarhverfi. Afþeim sem tóku afstöðu voru 31 prósent ánægðir með staðsetningu verksins, 32 óánægðir en 55,5 pró- sent aðspurðra höfðu aldrei séð verkið! Jólasirkus Veitingahúsið Sirkus við Klapparstíg opnar jóla- markað í bakgarði hús- næðis síns í dag. Kennir þar margra grasa og flest tilvalið til jólagjafa. Ekki síst fyrir þá sem vilja gefa tónlistargjöf því nóg verður af henni enda er framkvæmda- stjóri jóla- sirkussins í bakgarðin- um Raggi bassaleik- ari í Botn- leðju. Á varðbergi gegn barnaníðingum Hrollvekjandi var viðtal sem sýnt var á Skjá einum nýlega í þætti sem bandaríski sjónvarpssálfræðingurinn Dr.Phil átti við dæmdan barnaníðing og nánar er sagt frá aft- ar í blaðinu í dag. Níðingurinn hafði verið dæmdur í fjörutíu ára fangelsi eftir að játað að hafa níðst á fjölmörgum börnum og var þar þó greinilega ekki hálf sagan sögð. Hann hafði játað sekt sína og viðurkenndi út af fyr- ir sig að það sem hann hafði gert börnunum væri rangt, fullkomlega rangt. Eigi að síður fullyrti hann að ef hann yrði látinn laus, þá myndi hann halda uppteknum hætti. Hann myndi einfaldlega ekki ráða við sig. Engu breytti þótt maðurinn hefði í fang- elsinu gengist undir einhvers konar geldingu með efnameðferð; hann myndi samt halda áfram að níðast á börnum. Enda er löngu sannað mál að barnaníðingar láta ekki stjórnast af kynhvöt. Glæpir þeirra eru framdir af allt öðrum ástæðum. Þeir eru að sækjast eftir valdi, yfirburðum yfir varnar- laus bömin. Kynlíf kemur málinu ekki við - og þaðan af síður einhvers konar „ást“ eins og þeir halda þó gjarnan fram sjálfir. Glæpir þeirra eru viðbjóðslegar aðferðir til að lítillækka það varnarlausasta sem til er, börnin okkar. Og upphefja sitt eigið fátæklega sjálf á þeirra kostnað. Annað býr ekki að baki. Þetta viðurkenndi barna- níðingurinn í viðtalinu við Dr.Phil nokkuð hreinskilnis- iega, þótt framan af hefði hann uppi nokkrar vífillengj- ur. En hvað sem leið hrein- skilni hans, jafnvel einlægni, og líka hvað sem leið gelding- unni og margskonar meðferð sem hann hefur sætt í fangels- inu, þá vissi hann manna best að ekkert myndi duga. Ekki var síður erfitt að hlýða á manninn lýsa því hvernig fólk ætti helst að þekkja barnaníðinga. Því lýsingin hljómaði eins og verið væri að lýsa óskadraumi hvers krakka - fullorðinn maður sem sýnir börnum enda- lausan áhuga og endalausa velvild, er sífellt tilbúinn að passa og snattast út um allt með krakkana, hlýlegur maður og hjálpfús. Sem sé ekki endilega subbulegur dónakall sem hefst við í dimmum skúmaskotum. Raunar orðaði barnaníðingurinn það svo að besta leiðin til að þekkja hans Kka úr hópnum væri að leita að „þeim sem virtist tilbúinn að leggja sig endalaust fram“ fyrir börnin. Þetta þurfum við að hafa í huga þegar við neyðumst til að leiða hugann að svona málum - og því miður verðum að sætta okkur við að gera það í auknum mæli. Því hverju sem um er að kenna virðast skemmdar manneskjur leggj- ast í auknum mæli á börnin okkar. Þótt það sé sorgleg til- hugsun fyrir þá fjölmörgu sem hafa saklaust yndi og ánægju af því að starfa með eða kringum börn, þá verður slíkt fólk að sætta sig við að foreldrar hafi héðan í frá aug- un opin fyrir því hvort eitthvað misjafnt kunni að vera á seyði. í flestum tilfellum mun ekki vera um neitt slíkt að ræða, en áhættu má enga taka. Þannig hafa barnaníðingar líka grafið undan trausti fólks hverju á öðru. Það verður því miður svo að vera meðan við reynum að uppræta þennan viðbjóð. Illugi Jökulsson borist trett o ■O o 'O í DV þann 18. nóvember síðast- liðinn var birt grein um „pýramídafyrirtæki" svokölluð sem teygt hafa anga sína til íslands. Þar var meðal annars minnst á fyrirtæk- ið GoldQuest sem skaust fram í dagsljósið hér á landi á sfðasta ári með umfangsmikla sölu á gullpen- ingum sem slegnir hafa verið til minja um ýmis stórmenni og merka viðburði. Þótt sum „pýramídafyrir- tækjanna" séu talin helstil vafasöm fyrirbæri og hafi jafnvel verið sökuð um lögbrot, þá var engu slflcu haldið fram um GoldQuest Aðeins var sagt frá starfseminni og síðan vitnað til Sigurðar Amar Leóssonar, for- sprakka GoldQuest á íslandi, sem taidi af og frá að fyrirtæki hans ætti nokkuð skylt við „pýramídastarf- semi“. Jafiíframt sagði í frásögn blaðamanns DV að álitamál væri hvort líta bæri á GoldQuest sem „pýramídafyrirtæki" eða „fiölþrepa sölufyrirtæki". Og loks að löglærðir menn hafi gert úttekt á GoldQuest bæði hér og erlendis án þess að finna neitt athugavert Eitthvaö hefur hún veríð ein- kennileg, endursögnin á þessari frétt sem barst til Hong Kong, þar sem GoldQeust hefur aðalbæki- stöðvar sínar. Fyrir skömmu barst nefniiega á DV bréffrá fyrirtækinu þar sem lýst er yfir „djúpri sorg“ vegna þess að þessi frétt hafí birst í „yðar virðulega dagblaði". Þá segir að nefnd grein sé „röng, mjög misvísandi ogþurfí leiðréttingar við“ Fyrirtækið vonar að DV bregðist nú skjótt við og leiðrétti „rangfærslurnar“ þar sem fyrirtæk- ið hafí þegar „orðið fyrir tapi og tjóni vegna fréttarinnar". Þetta væri nú allt gott og blessað ef tilefni beiðninnar um leiðrétting- ar væri í einhverju samræmi við hina upphaflegu frétt Svo er reynd- ar alls ekki. En þeir kynxnngarfull- trúar eða hvað þeir heita sjoppukall- Þetta væri nú allt gott og blessað ef tilefni beiðninnar um leiðréttingar væri í einhverju samræmi við hina upphaflegu frétt. Fyrst og fremst amir sem fara fram á þessa leiðrétt- ingu fyrir GoldQuest vinna svo sannarlega fyrir kaupinu sínu, því ekki bara fara þeir fram á leiðréttingu fyrir rangfærslur sem öngvar em, heldur em þeir líka búnir að skrifa leiðrétting- una sem þeir vilja að birtist í DV! Altso eins og blaðamaður á DV - hefði skrifað þá leið - réttmgu. . • ' ^Íí, “Leiðrétting- in“ byrjar svona: „Fyrir hönd DV, lýsum vérþvíyfír að vér iðrumst sárlega hinnar röngu fréttar. Vér biðjum innilega fyrirgefningar fyrirtækið GoldQuest International Ltd, við- skiptavini þess og alla starfsmenn fyrir þau óþægindi sem vér höfum valdið með þessu. Þann 18. nóvember 2003 gerði blaðið þau leiðu mistök að hafa birt á bls. 14 og 15 grein þar sem vér héldum því fram ranglega og affull- komnu skeytingarleysi að GoldQuest væri pýramídafyrírtæki. Félagið, kallað GoldQuest, hafði samband við blaðið ogfórfram á að fá að skýra mál sitt. Síðan skýrði fé- lagið frá sannleikanum um starf- semi sína. Blaðið ræddi síðan við herra W. Royce Lane sem er yfírmaður lögfræði- \ deildar GoldQuest og hér á eftir fylgir yfír- lýsing hans... “ Síðan fyigir, í all- löngu máli, sú frásögn sem GoldQuest lætur sem DV hafi haft eftir herra Royce Lane. Við sjáum ekki ástæðu tfi að birta hana orð- rétta enda gengur hún út á að GoldQuest stundi ekki ólöglega starfsemi, en því var reyndar aldrei haldið fram í DV, eins og fyrr grein- ir. Jafnframt erum „við" látin „hafa eftir" herra Royce Lane að ef starfsemi GoldQuest væri ekki í alla staði lögleg og siðleg, þá myndi maður á borð við Jóhannes Pál 2. páfa varla hafa tekið per- sónulega á móti forsvarsmönnum peningaútgáfu fyrirtækisins - en einn minnisp eninganna sem félag- ið hefur séð um sölu á er með mynd páfans. Jafnframt er tekið fram að ýmsir þjóðhöfðingjar, til dæmis kóngurinn í Taflandi, hafi tekið vel á móti forkólfum GoldQuest og veitt þeim áheym í höllum sínum og hirðum. Því næst minnir herra Royce Lane hinn ímyndaða blaðamann DV á þijú atriði sem öll ganga út á hversu fínt og gott félag GoldQuest er, og síðan lýícur þessari „frétt DV“ á þennan hátt: ““Ljóst skal vera að við kvörtum ekki undan sanngjömum kvörtun- um þeirra sem halda því fram að við höfúm ekki staðið við þá sölusamn- inga sem GoldQuest hefúr gert, en ef einhveijar slflcar kvartanir hafa borist, þá vil ég fá að frétta af þeim fyrstur rnanna," sagði herra Lane..." ísamtali við DV. Eða þannig. Svona eiga sýslumenn að vera! Við munum nú ihuga vandlega að hætta sjálf frétta- skrifum, leggjast í sukk og svínarí og rétt halda nægjanlegri meövitund yfir bládaginn tfi að taka við „fréttum" frá kynningarfulltrú- um, ímyndarsmiðum og öðrum sjoppuköllum sem vfija taka að sér að skrifa fréttir blaðsins!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.