Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003 Fréttir DV Kennari píndi nemendur Fjörutíu og fimm ára kennari var í gær dæmdur sekur um að hafa beitt íjóra nemendur í grunnskól- anum á Skaga- strönd ofbeldi. Maðurinn tók drengina föstu hálstaki, sneri upp á eyrun á þeim og límdi fyrir munn þriggja þeirra með sterku lím- bandi. Hann játaði brotin skýlaust, missti vinnuna og iðrast gjörða sinna. Hann hefur ekki áður gerst brot- legur við lög fyrir utan eitt umferðarlagabrot. Hann fékk 45 daga skilorðsbund- inn fangelsisdóm í Héraðs- dómi Norðurlands vestra. Vífilfell láti af hendi málverk Vífilfell hf. hefur verið dæmt í Hæstarétti til að uppfylla að fullu starfs- lokasamning við fyrrum starfsmann sinn sem fór frá kók-fram- leiðandanum til Ölgerðar Egils Skalla- grímssonar. Vífilfell dró af starfslokasamningnum þau laun sem starfsmaður- inn hlaut hjá Ölgerðinni. Dómur héraðsdóms var starfsmanninum í vil en málinu var áfrýjað til Hæstaréttar í sumar. Hæstiréttur dæmdi í gær Vífilfell til að borga dráttarvexti af launum þeim sem kveðið var á um í starfslokasamningnum og afhenda málverkið „Sjálfs- mynd" eftir Helga Frið- jónsson gegn greiðslu upp á 120 þúsund krónur, eins og starfslokasamningur kvað á um, auk 600 þús- und króna í málskostnað. Lögregla rannsakar skipulagt vændi á nokkrum hótelum í Reykjavík. Taliö er að vændiskonur hafi verið fluttar inn og þær dvalið hér stuttan tíma í senn en unnið mikið. Stipagt vfflidi á hótehn '9* Margar erlendar atvinnuhórur hafa verið til sölu á íslenskum hótelum að undanförnu. Lög- regla telur það fullvíst þótt málið sé ekki upplýst enn. Bresk kona og íslenskur karlmaður sæta nú rannsókn lögreglunnar í Reykjavík en grunur leik- ur á að þau tengist alþjóðlegri vændisstarfsemi sem stunduð hafi verið á að minnsta kosti nokkrum hótelum í Reykjavík. Rannsókn lögreglu á málinu er umfangsmikil og hefur staðið frá því síðastliðirtn vetur. fslendingurinn var handtekinn síðsumars. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, verst allra frétta af rannsókninni. Iiann viðurkennir þó að mál einnar stúlku sé til skoðun- ar. „Já, og tengsl hennar við menn hér á landi. Við handtókum mann og lögðum þá hald á ýmis gögn. Þessi gögn eru enn til skoðunar hjá lögregl- unni,“ segir Hörður. Sem fyrr segir er talið að vændiskonurnar hafi verið margar og af ýmsu þjóðerni. Flestar rnunu hafa haft búsetu í Bretíandi og falboðið þjónustu sína á Netinu. Þær hafi síðan komið hingað til lands og dvalið á hótelum í borginni - þar sem karlmenn, íslenskir og erlendir, hafi borgað fyrir kynmök við þær. DV sagði frá því í sumar að grunsemdir væru uppi um að umboðsmenn stúlknanna hérlendis væru nokkrir. Starfsemin væri skipulögð og um- boðsmennirnir tækju jafnan um 40% af innkomu vændiskvennanna. Þeir héldu konunum aukin- heldur uppi og greiddu ferðakostnað þeirra til og frá landinu. Heimildir DV í sumar hermdu að háttsemi stúlknanna hefði gefið vel í aðra hönd, þær hafi haft um 300 þúsund krónur fyrir um fjögurra daga vinnu. Talið er að stúlkurnar hafi komið hingað til lands stuttan tíma í senn, sinnt störfum sínum og síðan horfið af landi brott. Nokkrar stúlkur munu hafa komið aftur til landsins í sama tilgangi. Fregnir herrna að nokkrar þeirra hafi viðurkennt fyrir lögreglu að hafa stundað vændi víðsvegar um Evrópu. Á þessu stigi vill Hörður ekki tjá sig um efn- isatriði málsins - fyrir utan þá staðreynd að fyrrnefnt par sæti rannsókn. Hann segir málið enn á rannsóknarstigi. Grunur sé uppi um að einn eða fleiri Islendingar hafi komið að skipu- lagningu vændis á hótelum í Reykjavík. „Við erum að reyna að komast að því hvert umfang málsins var og hvort fleiri séu viðriðnir það. Rannsóknin heldur áfram og henni miðar ágæt- lega,“ segir Hörður Jóhannesson yfirlögreglu- þjónn. arndis@dv.is Nýjasta tækni og vísindi „Samkeppni um viðbót- arfjármuni þýðir að menn þurfi að hafa raunhæfar hugmyndir sem em líklegar til árangurs," sagði Davíð Oddsson um nýja stefnu stjórnarinnar í vísindum og tækni. í henni er lögð áhersla á að háskólar keppi um viðbótarstyrki til rann- sókna. Með því fýrirkomu- lagi á að efla háskóla sem rannsóknarstofnanir og treysta efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæði fs- lands. „Sú undirstaða sem ís- lenskt þjóðfélag byggir á er öflug áhersla á vísindi og tækni," sagði Davíð. „Við höfum nú þegar náð þeim árangri sem Evrópusam- bandið stefnir á 2010 og eig- um ekki að sætta okkur við neitt minna en fyrsta sæti.“ Davíð er andsetinn af Sverri Nú er Svarthöfði ekkert endilega neitt pólitískur í eðli sínu og skilur illa pólitík. En undanfarnir mánuðir hafa verið svo skemmtilegir. Það er engu líkara en Sverrir Hermannsson hafi tekið sér bólfestu í forsætisráð- herra en sjaldan eða aldrei hefur Davíð Oddsson verið jafn yfirlýs- ingaglaður og á síðustu vikum. Mað- urinn talar í heimsfréttafyrirsögn- um. Nógu var hann kjaftfor áður en nú er hann hreinlega æðislegur. Minnir óneitanlega á Sverri Hermansson en fáir aðrir en Davíð hafa komist með tærnar þar sem sá fyrirsagnasmiður hefur hælana. Þess vegna er í rauninni eins og Sverrir sé að stjórna Davíð. Sitji heima hjá sér með Vúdú-dúkku og láti hann brillera í hverjum einasta fréttatíma, öllum blöðum og flest- um útvarpsstöðvum. Það kemur enginn að tómum kofunum þegar Davíð er annars vegar. Hvort sem ræða á bankamál, pólitík, fjölmiðla eða Saddam nokkurn Hussein. Alltaf vella upp úr honum fyrir- sagnirnar. Eina spurningin sem Svarthöfði setur við þetta ógurlega samsæri er auðvitað sú staðreynd að Sverrir er að kynna ævisögu sína. Mætir með bréf frá Davíð (sem að sjálfsögðu breytast í fyrirsagnir) og æsir aUa upp í að hafa áhuga á pólitík. Enda fjallar bók hans að mestu um pólitík og því hentar þessi umræða honum öll al- veg ógurlega vel. Hvort sem það er bankamálið eð,a önnur mál. En fólk á kaffihúsum sem Svarthöfði sækir er farið að tala um að best væri hrein- lega að fá Sverri aftur f bankana. Vegna þess að hann fór bara í lax ein- staka sinnum og tók ekki hundruð milljóna fyrir það þótt dýrt hafi verið. Hann er mikill meistari, hann Sverrir Hermannsson. Svarthöfði átti ekki von á þessu frá honum en aug- ljóst er að bókin á eftir að skjótast upp alla metsölulista strax um helg- ina. Svaithöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.