Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Qupperneq 14
14 FÖSTUDA6UR T9. DESEMBER 2003 Fréttir DV Þeir töluðu Þingfundir stóðu samtals í átta og hálfan sólarhring fram að jólafríi. Stjórnarand- staðan notaði tvo þriðju hluta ræðutímans. Vinstri-grænir bera þar höfuð og herð- ar yfir aðra stjórnarandstöðuflokka, en fjórir þingmenn vinstri-grænna töluðu meira en allur þingflokkur sjálfstæðismanna. mest ms, Steingrimur J. Sigfusson 12 klst. og 35 mín. ■ ) ■ámm Ögmundur Jónasson: 7 klst. og50 mín. Skipting ræðutímans Steingrímur J. ræðukóngur á ný Klukkustundir á mann •í Þingheimur er kominn í jólafrí til 28. janúar næstkomandi. 32 ný lög hafa verið samþykkt. Sum þeirra hafa verið ákaflega umdeild, en önnur hafa ekki verið lögð fram, svo sem frumvarp um skerðingu atvinnuleysisbúta. Sem fyrr var það stjómarandstaðan sem notar mestan hluta ræðu- tímans, eða tvo þriðju hluta hans fyrir jólahlé. Þingið er enda stundum kallað vettvangur stjórn- arandstöðunnar. Þar hefur Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna, verið ókrýndur ræðukóngur undanfarin ár, og talað manna mest. Við lok 129. löggjafarþings í vor brá svo við að flokksbróðir hans, Ögmundur Jónasson, hirti af honum titilinn og talaði örlítið meira en hann. Steingrímur hefur greinilega ákveðið að spýta í lófana, því það sem af er þessu 130. löggjafarþingi hefur hann talað næstum helmingi meira en Ög- mundur, og kom 130 sinnum upp í pontu. Þess utan hefur Steingrímur verið sérstaklega langorð- ur, því aðrir þingmenn sem hafa komið álíka oft upp í pontu hafa ekki talað nærri eins lengi sam- tds. Ef fram fer sem horflr mun Steingrímur end- urheimta enn á ný titilinn ræðukóngur Alþingis. Vinstri grænir eru raunar málgefnásti flokkurinn á þingi. Þingflokkurinn talar þrefalt meira en Sam- fylkingin, en þó eru þingmenn Samfylkingar tutt- ugu talsins en þingmenn Vinstri grænna aðeins fimm. Guðjón Hjörleifsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, talaði langminnst eða aðeins í þrjár mínútur. Þó sat hann allt þingið fram að þing- frestun og kom aldrei varamaður inn fyrir hann. Raunar kom Guðjón aðeins tvisvar sinnum upp í , pontu, einu sinni tii að gera grein fyrir atkvæði sínu og einu sinni til að flytja ræðu. Ræðan fjallaði um mikilvægi þess að draga úr þeim ferðakostn- aði íþróttafélaga á landsbyggðinni. Þá töluðu ný- liðarnir Katrín Júlíusdóttir og Dagný jónsdóttir einnig lftið, eða 15 mínút- ur hvor. Má velta því fyrir sér hvort flokkamir þeirra séu að gefa þeim færi á að spreyta sig, en aðrir nýlið- ar töluðu mun lengur. Senr dæmi talaði Sigurður Kári Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks- ins, í tæpar tvær klukku- stundir. Steingrímur J. Sigfús- son talaði í hálfan sólarhring „Ég hef nokkrar áhyggjur af því að Ög- mundur muni tvíeflast þegar það sér að hann er að fara halloka, svo maður hefur varann á þegar 130. þing verður gert upp í heild sinni. Ég hélt ég hefði nú talað meira en þetta, en reyndar var ég hálfan mánuð í burtu. En að öllu gamni slepptu þá held ég að það sé viðurkennt að við í Vinstri hreyfingunni grænu framboði berum höfuð og herðar yfir aðra þingflokka hvað varðar eljusemi. Við leggjum mikla áherslu á að vera alltaf til staðar og vera þátttakendur í öllum umræðum. Við erum aðeins fimm manna þingflokkur sem þýðir að hver og einn verður að leggja hart að Guðjón Hjörleifsson talaði minnst allra þingmanna „Ég ákvað að byrja mín þingstörf af hóg- værð. Ég hef verið í töluvert mikilli vinnu fyr- ir kjördæmið en minna tekið þátt í umræðum á Alþingi. Svo fara þingstöf að hausti mikið að ræða mál sem lögð hafa verið framáður. Þetta verður meira á beinu brautinni hjá mér eftir áramót, en þá koma fram tvö frumvörp sem ég hef verið að vinna í“. Hægt að tala endalaust Þingmenn þreytast lítið tungunni og hafa lengstu ræðurnar orðið margar klukkustundir. „Sam- kvæmt teorfunni er örugglega hægt að tala endalaust" segir Guðrún Bjarnadóttir, talmeina- fræðingur. „Eftir ákveðinn tíma fara menn örugglega að þreytast en ég hef ekki séð neinar rannsóknir varð- andi það,“ sagði Guðrún og bætti við að ef menn ætluðu sér langar ræður væri betra ef þeir væru skemmti- legir. „Svo er auðvitað stóra spurn- ingin hvort ein- hver nenni að hlusta," sagði Guðrún að lokum. Guðjón Hjörleifsson þingmaður Sjálfstæðis- flokksins talaði minnst allra, eða aðeins í þrjár mínútur. Hann kom tvisvar í pontu, annarsvegar tii að gera grein fyrir atkvæði sínu, og hinsvegar kaus hann að leggja orð í belg þegar ræddur var stuðningur við íþróttafélög á landsbyggðinni. „Virðulegi forseti. Ég tek undir með hæstvirtum flutningsmanni Hjálmari Árnasyni um tillögu til þingsályktunar um ferðasjóð íþróttafélaga og mikilvægi þess að reynt verði að draga úr þeim mikla ferðakostnaði sem mörg íþróttafélög á landsbyggðinni búa við í dag", sagði hann meðal annars. brynja@dv.is ROBERT BANGSI BARNAFATAVERSt-ON Bæjarlind 1-3 Kópavogi Sími 555 6688 Hannes H. Gissurarson „Reyndar er allt í rólegheitunum núna. En það liggur á að ganga frá Hvað liggur á húsinu mínu. Ég er að leggja parket og mála. Svo liggur á að gera próf í stjórnmálahagfræði í Háskólanum, þá man ég það. Svo liggur á að lesa upp úr bókinni um Lax- ness. Ég er aðallega að lesa upp í kven- félögum, enda er þetta ástarsaga."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.