Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Page 19
DV Fókus FÖSTUDAGUR 7 9. DESEMBER 2003 79 Furðufréttirnar seljast mest Bókin 110 bestu furðufréttir eftir þá Sveppa og Simma í sjónvarpsþættin- um 70 mínútur á Popptíví er mest selda bók landsins ef marka má söluna í verslunum Hagkaupa síðustu vikuna. Bókin hefur til þessa verið inni á topp tíu en að hún skuli hafa náð toppsætinu hlýtur að koma höfundunum og ef- laust fleirum á óvart. Annars halda vinsældir ævisögu Davids Beckltam og Bettýjar eftir Arnald Indriðason áfram. Öxin og jörðin eftir Ólaf Gunnarsson kemur í fyrsta skipti inn á listann og unglingaleiðarvísirinn Hvað er málið? sömuleiðis. hólm, og lagt til atlögu gegn því, þó ávallt í öruggri ijarlægð bak við sinn Sancho, sem reynir oft á tíðum að halda aftur af honum þegar hann kemst í sem mestan ham. í þessu til- felli er það þó Sancho h'gúran, Davíð Oddson, sem er við völd. Þeir hafa farið með sigur af hólmi gangvart vindmyllum sínum, bákninu, en þá birtast hinir raunverulegu risar, og líst þeim verr á blikuna. Don Kíkóti með hvölum, gegnreyk Þorgrímur Þráinsson berst gegn sígarettureyk hvar sem hann sér hann, og virðist ekki á því að gefast upp frekar en Ástþór, þó að tak- rnarkið hafr ekki náðst árið 2000. Hann minnir þó um margt fremur á krossfara en riddara. Helgi Hóseason er ef til vill sá núlifandi Islendinga sem hefur fórn- að sér hvað mest fyrir hugsjónir sín- ar. Hann er nokkurs konar Hug- sjónamaður íslands, og hvorki fálæti samferðamanna né íslensk veðrátta fær bitið á hann. Mögulega mun þó eftirtíðin standa með honum, eins og svo margir lesendur sögunnar um riddarann frá La Mancha gera í dag. Hallur Hallson er maður sem barist hefur fyrir rétti smælingjanna, í þessu tilfelli einmana hvals sem þráði, að minnsta kosti í ímyndun- arafli bandarísku þjóðarinnar, ekk- ert heitara en að snúa aftur á æsku- slóðirnar við ísland. Hann fékk jafn- vel heimsbyggðina á sveif með sér, og bandaríski flugherinn flutti hval- inn til Eyja. Ævintýrið fékk þó heldur dapurlegan endi, þar sem hvalurinn var jarðaður í norskri gröf, án þess að hafa nokkurn tímann hitt fjöl- skylduna aftúr. Og Don Kíkóti íslands er...? Einn maður á þó líklega meira sameiginlegt með Kíkóta en nokkur annar íslendingur, en það er sjálfur Kúreki Norðursins, Hallbjöm Hjart- arson. Hallbjörn hefur tileinkað sér dyggðir kúasmala villta vestursins, þrátt fyrir að sú stétt hafi séð sinn fíf- il fegurri. Hann berst ótrauður fyrir framgangi kúrekans á Skagaströnd, hefur byggt kántrýbæ og heldur út útvarpsstöð, þrátt fyrir að samtíma- menn hans skilji oft lítið í uppátæk- inu. Hann berst þó hvorki við Indjána né vindmyllur, heldur hefur hann staðið fyrir söfnun fyrir lítinn frænda sinn sem þurfti að fara í að- gerð. Hallbjörn fer sínar eigin leiðir, sama hvað tautar og raular, og virð- ist fátt geta stoppað hann. Þó að Don Kíkótar virki oft bros- legir í samtíma sfnum, verður ekki annað sagt en að ef til vill væri þetta betri heimur ef hugsjónarmennirnir væru aðeins fleiri, og efasemdar- mennirnir aðeins færri. 1.110 bestu furðufréttir - Sveppl og Simmi 2. Ósköpin öll - Flosi Ólafsson og Lilja Margeirsdóttir 3. David Beckham - engum líkur 4. Bettý - Arnaldur Indriðason 5. Útkall: Árás á Goðafoss - ’ ■' ■' Óttar Sveinsson 6. Einhvers konar ég - Þráinn Bertelsson 7. Stormur - Einar Kárason 8. Öxin og jörðin - Ólafur Gunnarsson 9. Hvað er málið? 10. Ambáttin - Mende Nazer Listinn tekur mið af söluhæstu bókunum í verslunum Hagkaupa síðustu vikuna. Matreiðslubókum sem fást einungis þar er sleppt. Sveppi Söluhæsti rithöf- undurinn í versl- unum Hagkaupa. Lítil uppskera en góður árgangur Árið 2002 var algert metár í út- gáfu á íslensku hip-hoppi. Þá komu út einar 15 plötur og rapp- senan virtist aldrei ætla að hætta að vaxa. í ár hefur íslenskt hip-hop haldið áfram að blómstra, en plötuútgáfa hefur snarminnkað, enda menn líklega búnir að átta sig á því að það er ekki nóg að taka upp plötu í hvelli og selja hana í BT-til þess að dæmið gangi upp. Ef við sleppum heimabruggi og neðanjarðarútgáfum þá eru ís- lenskar rapp-plötur ársins 2003 ekki nema þrjár talsins. Og þær eru allar nýkomnar út. Þetta eru: Fyrsta plata Chosen Ground: Far; fyrsta plata Reykjavíkur-sveitar- innar Forgotten Lores: Týndi hlekkurinn og fyrsta stóra platan með Skyttunum frá Akureyri: 111- gresið. Chosen Grouríd er verkefni Karls Kristjáns Davíðssonar úr Subterranian sem einnig er þekkt- ur sem Charley-D. Hann fær hér til liðs við sig nokkra tónlistarmenn; Smára Tarf sem spilar á gítar, Andra Pétursson sem spilar á raf- magns-píanó, Pétur sem spilar á bongó-trommur, Söru sem syngur og Sigurð Guðmundsson sem spil- ar á ýmis hljóðfæri. Chosen Ground er hip-hop plata, en þetta er ekki rapp, heldur að mestu leyti instrúmental takta-tónlist. Söng- urinn á plötunni er fyrst og fremst til þess að skapa stemmningu. Röddin er notuð eins og enn eitt hljóðfærið. Tónlistin á Far er undir greini- legum trip-hop hop og reggí áhrif- um, en einnig má heyra áhrif frá grúv-tónlist áttunda áratugarins. Hér er blandað saman forritun, sampli og lifandi hljóðfærum og útkoman er oft frábær, enda hljóð- færin vel valin; rafmagnspíanó, hammond orgel og bongó tromm- ur passa sérstaklega vel við hip- hop taktana. Þetta er ágætis plata og það er ekki beint hægt að kvarta yfir neinu á henni, nema stundum fínnst mér að það vanti aðeins meiri dýpt í hljóminn. í heildina er þetta samt heilsteypt og flott plata. Og umslagið er hrein fegurð. Forgotten Lores hafa verið starfandi í þrjú ár. Þeir eiga að baki nokkra smelli sem komu út á safn- plötum og voru vinsælir á útvarps- stöðinni muzik.is á meðan hún var og hét. Týndi hlekkurinn er þeirra fyrsta plata og maður heyrir strax við fyrstu hlustun að það er mikið í hana lagt. Uppbygging laganna er flott, sándið er betra en maður á Chosen Ground Far kkki að venjast og Forgotten Lores leggja greinilega meira í hljóðheim laganna heldur en flestir aðrir ís- lenskir rapptónlistarmenn. Þeir Byrkir, ClassBje og Diddifel eru líka sérstaklega færir rapparar, textarnir þeirra eru fullir af skemmtilegum pælingum og flæð- ið er fyrsta flokks. Tónlistin á Týnda hlekknum er ekta hip-hop með hugmyndarík- um og ferskum töktum, flottum hljómi, skratsi og innihaldsríkum og vel fluttum rímum. Það eru nokkrir gestir á plötunni, þ.á.m. Skytturnar sem koma sterkir inn í laginu Loftbylgjur. Skytturnar hafa verið starfandi síðan 1998 og slógu í gegn svo um munaði fyrir tveimur árum með laginu Ég geri það sem ég vil, sem var lengi mest spilaða lagið á Forgotten ■ Lores Týndi Hlekkurinn 'kirk'k _ muzik.is. Ótrúlega einfalt en gríp- andi lag með flottum texta sem var löðrandi í unglingslegri sjálf- stæðis-hvöt. Skytturnar hafa verið þróast meira og meira í hljómsveit með hefðbundinni hljóðfæraskipan. Lifandi hljóðfæraleikur setur mik- inn svip á Illgresið, bæði gítarleik- ur, orgel og píanóleikur. Það er engin trygging fyrir góðri útkomu að rappa yfir lifandi hljéðfæraleik og það er ekkert merkilegra eða betra á nokkurn hátt að nota gítar heldur en sampler, en í tilfelli Skyttanna þá gera þessi hefð- bundnu rokkhljóðfæri samt mikið fyrir útkomuna. Tónlistin er sambland af rokki og rappi, en við erum ekki að tala um einhvern rokk-rapp hrylling, heldur eru hin hefðbundnu hljóð- Skytturnar U lllgresið **lli*i i i r-f kkk-ki —«| færi notuð til þess að búa til og skreyta grunninn sem Skytturnar rappa yfir. Þetta heppnast mjög vel og skilar plötu sem er í senn flott rapp-plata, en líka full af grípandi og poppuðum lögum. Á meðal mjög flottra laga á plötunni má nefna Logn á undan stormin- um, Ég ætla aldrei, Á undan hest- inum, Ævintýri og Guðlast. Text- arnir'eru líka góðir, þeir Skyttu- menn hafa sínar meiningar um samfélagið sem þeir búa í og þeir eru ófeimninr að láta þær flakka. Bæði Týndi hlekkurinn og 111- gresið eru á meðal bestu íslensku hip-hop platnanna og á meðal bestu íslensku platnanna á árinu 2003. Það er því óhætt að segja að þrátt fyrir litla uppskeru sé árið 2003 gott ár í íslensku rappi. Trausti Jútiusson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.