Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Page 23
DV Sport FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003 23 íslenska landsliðið í körfuknattleik spilar tvo leiki gegn bandaríska háskólaliðinu Catawba College á milli jóla og nýárs. Sigurður Ingimundarson, þjálfari liðsins, valdi í gær 20 manna landsliðshóp fyrir leikina en hann ætlar að gera miklar kröfur til sinna manna, sérstaklega hvað varðar líkamlegt atgervi. Fyrst viö getum ekki stækkaö þá verOum við aO styrkja okkur Sigurður Ingimundarson, þjálf- ari íslenska landsliðsins í körfuknatdeik, valdi í gær sinn fyrsta landsliðshóp fyrir tvo leiki gegn bandaríska háskólaliðinu Catawba College sem fara fram á milli jóla og nýárs. Sigurður valdi tuttugu manna hóp að þessu sinni en hann mun skipta hópnum í tvö tíu manna lið sem munu spila sinn leikinn hvort. í hópi Sigurðar eru sjö nýliðar en allir leikmennirnir í hópnum spila með liðum í Intersportdeildinni í körfuknattleik. Nýliðarnir eru Lárus Jónsson úr Hamri, Axel Kárason úr Tindastóli, Egill Jónasson og Guð- mundur Jónsson úr Njarðvík, Ómar Sævarsson úr ÍR, Sævar Haraldsson úr Haukum og Halldór Örn Hall- dórsson úr Keflavík. Vildi tvo menn til viðbótar Sigurður sagði á blaðamanna- fundi í gær þegar hann tilkynnti hópinn að hann hefði gjarnan viljað fá tvo menn til viðbótar við hópinn, þá Helga Jónas Guðfinnsson úr Grindavík og Sverri Þór Sverrisson úr Keflavík, en þeir gátu ekki gefið kost á sér af persónulegum ástæð- um. Að auki eru nokkrir íslenskir leikmenn að spila með erlendum liðum og í bandarískum háskólum og þeir gátu ekki verið með að þessu sinni. Sigurður sagði að þessi tutt- ugu manna hópur, auk leikmann- anna sem spila erlendis, myndi, að stærstum hluta skipa æfingahópinn sem hann velur að loknu tímabili næsta vor. „Ég hef ekki lokað neinum dyrum á menn. Það er fullt af leikmönnum f deildinni sem hafa verið að spila vel en eru ekki í þessum hópi og gætu auðveldlega verið í hópnum næsta vor. Að sama skapi eru nokkr- ir leikmenn í þessum hópi sem eiga ekki öruggt sæti í hópnum í vor. Ég mun nota þessa leiki til að skoða ákveðna leikmenn og sjá hvernig þeir koma út,“ sagði Sigurður. Ekki raðað eftir styrkleika Aðspurður sagði Sigurður að það hefði ekki verið raðað eftir styrkleika í liðin tvö. „Ég ákvað að reyna að setja saman ungt lið og raða nokkrum reynsluboltum með þeim. Ég þurfti að hafa ákveðið jafnvægi í liðunum og það að einhverjir leikmenn séu í liði tvö þýðir ekki að þeir séu ekki meðal tíu bestu leikmanna liðsins.1' Fyrsti landsliðshópur Sigurðar Sigurður tngimundarson, landsliðsþjálfari Ikörfuknattleik, valdi sinn fyrsta landsliðshóp í gær. Sigurður sagði að það væri lítið svigrúm til að fá æfingaleiki eða kalla liðið saman til æfinga á meðan deildin væri í gangi. „Það er ómögulegt fyrir okkur að fá æfingaleiki og ég mun ekki kalla nýjan hóp saman fyrr en mótið klár- ast. Ég mun að vísu hafa samband við þá leikmenn sem ég ætla að hafa í hópnum og styrktar- og þolmæla þá og láta þá síðan fá æfingaáætlun til að vinna eftir. Þegar hópurinn kemur saman eftir mót hefjast stffar æfingar þar sem verður vel tekið á því. Ég vil spila hraðan körfubolta og til þess „Ég mun að vísu hafa samband við þá leikmenn sem ég ætla að hafa í hópn- um og styrktar- og þolmæla þá og láta þá síðan fá æfingaáætlun til að vinna eftir. Ég vil spila hraðan körfu- bolta og til þess að það sé hægt þá verða menn að vera í góðu formi. Ég segi alltafað efvið getum ekki stækk- að þá veðrum við að styrkjast." að það sé hægt þá verða menn að vera í góðu formi. Ég segi alltaf að ef við getum ekki stækkað, þá veðrum við að styrkajst. Flest liðanna í deildinni halda ágætlega á spöðunum varðandi þetta mál en það er alltaf hægt að gera betur. Mér finnst mikilvægt að æfa af krafti en við ætlum einnig að reyna að fá nokkra æfingaleiki. Það er ekki komið á hreint hverjir þessir andstæðingar verða en það er á hreinu að við þurfúm að fá ein- hverja leiki áður en við spilum í Evr- ópukeppninni í september," sagði Sigurður. oskar@dv.ií *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.