Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Side 27
DV Fókus FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003 27 Aðventukvölil eldrl borgara í Austurbæ Nokkur lyrirtæki buðu eldri borgurunum höfuðborgarsvæðisins til að- ventuákemmtunar í Austurbæ í gærkvöldi þar sem boðið var upp á léttar veitingar auk þess sem nokkrir landsþekktir listamenn tróðu upp. SBA- Norðurleið keyði fólkið endurgjaldslaust frá helstu félags- og þjónustumið- stöðvum til og frá Austurbæ og mæltist þetta mjög vel fyrir hjá eldri kynslóð- inni. Fólk söng og skemmti sér að sögn hið besta þegar listamenn á borð við Ómar Ragnarsson, Hljóma, KK og Magga Eiríks stigu fram á sviðið. Um helgina „Um helgina ætla ég að rnála gluggana heima. Þeir hafa ekki verið málaðir í nokkur ár. Ég er búinn að humma þetta af mér í mörg ár þannig að það er korninn tími á gluggamálun. Svo inná milli mun ég leika pabba. Maður þarf stund- um að hugsa um innlit ekki bara , útlit. Svo er að koma einhver hátíð sem heitir jól. Hún kemur alltaf einu sinni á ári um svipað leyti og það er hætt við því að maður geri eitthvað jóla- tengt. Til dæmis er ég að fara á ballett- sýning hjá dóttur minni á laugardaginn svona einskonar jólasýningu og svo eru það tónleikar á föstudagskvöldið, Frostrósir í Grafarvogskirkju, sem ég ætla að fara á. Á laugardags- kvöldið verð ég kynnir á tónleikum í Smáralind- inni til styrktar krabbameinssjúkum börnum og fram koma meðal annars Kristján Jóhannsson, Sigríður Beinteinsdóttir og einhverjir kórar. En annars hafa helgarnar verið undirlagðar af Dýrunum í Hálsaskógi og skemmtanaiðnaði á kvöldin hjá mér, en nú er komið hálfgert jólafrí og þá sjá aðrir um að skemmta mér. Á sunnu- daginn ætla ég svo að fara með dætrum mínum að kaupa jólatré, býst við að það verði í kring- um tvo metrana þar sem þriggja metra tré er of stórt af fyrri reynslu. Þriggja metra tré er orðið svo latt eftir jólin að það nennir ekki að hjálpa manni að bera sig út um dyrnar þannig að ég læt mér duga aðeins minna tré þetta árið.“ ömÁmason, leikarí Guitar Islancio Björn Thoroddsen og Gunnar Þórðarson Ifóru mikinn ásamt kontrabassaleikaranum Jóni Rafnsyni ]þ egar þeir tróðu upp i Austurbæ i gærkvöldi. Þeir fluttiu nokkur þjóðleg og þekkt lög á sinn sérstaka máta gamla fólkinu tilómældrargleði. jUngir í anda Hljómar frá Keflavik sýndu að 'þeir hafa engu gleymt þótt 40 ár séu liðin frá stofnun sveitarinnar. Höfðu gestir á orði að það veitti þeim ákveðinn innblástur að sjá gömlu 1mennina enn vera að harka uppi á sviði. Þreytumerki Einhverjir voru farnir að sýna þreytumerki wegar á leið skemmtunina eins og myndin ber með sér \enda sögðust viðstaddir ekki vera vanir stikum hasar. iFlestum likaði þó mjög vel við það sem á boðstólnum var <og var mikið klappað þegar skemmtunin var á enda. Sími 550 5000 askrift@dv.is www.visir.is Nytt DV sex morgna vikunnai Ekkert kynningartilboð. Engin frídreifing. Mánaðaráskrift 1.995 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.