Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Side 31
DV Siöast en ekki síst
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003 31
Nýbúin aö skreyta
Borin út 17. desember
Um þessar mundir er ár liðið frá
því að Erla Árnadóttir var borin út úr
íbúð sinni við Rauðarárstíg í Reykja-
vík. Erla var þá nýbúin að setja upp
jólaskraut á heimili sínu og mála
stofuna. Hún var á leið heim úr
vinnu þegar henni varð ljóst að búið
var að tæma íbúðina og hún heimil-
islaus. Þetta var 17. desember; rétt
fyrir jólin. Húsaleigan var í vanskil-
um og sjálf hélt hún að frestur yrði
veittur fram á nýt ár. Svo var ekki.
„Ég fékk að taka jólaseríur sem ég
hafði sett út í glugga en sería sem ég
hafði sett á runna í garðinum er þar
enn. Ég geng stundum fram hjá núna
og horfi á hana. Þetta var skreytingin
mín og ég reyni að njóta hennar þó
hún lýsi nú öðrum,“ segir Erla sem
fékk inni á Hjálpræðishernum eftir
útburðinn í fyTra. Þar var hún fram
yfir áramót og reyndi að gleyma sér í
vinnu yfir hátíðarnar. „Ég vann á elli-
heimilinu Sóltúni og reyndi að vera
þar sem mest. Eftir að ég fór af Hern-
um var ég hreinlega á götunni og fór
oftar en einu sinni upp á Rauðarár-
stíg til að horfa á það sem eftir var af
jólaskreytingunum mínum. Mér
fannst eins og ég stæði til hliðar við
hátíð ljóssins. Jólagardínumar mínar
vom enn í eldhúsglugganum og stof-
an nýmáluð."
Nú em breyttir tfmar hjá Erlu
enda ár liðið frá atburðinum. Jólin
að ganga í garð enn einu sinni og
staðan öll betri. Þó eru sumar minn-
ingar þess eðlis að seint fennir yfir
og þvf leggur Erla enn leið sína upp á
Rauðarárstíg til að skoða gömlu Erla Arnadóttir á Rauðarárstígnum
jólaseríurnar sínar. Sumt gleymist Jólaseríurnarhennarlýsanúöðrum.Sumt
aldrei. gleymistaldrei.
Jólin eru
lífshættuleg
Læknar í Danmörku hafa
sent frá sér viðvönm fyrir þessi
jól þar sem m.a. kemur fram
að aukin hætta sé á að hjarta-
sjúkdómar taki sig upp hjá
fólki yfir hátíðamar. Rann-
sóknir hafa sýnt að venjulega
látast mun fleiri af völdum
hjartakvilla yfir jólahátfðamar
en á öðrum tímum ársins.
Þetta er rakið beint til mikils
og óholls matarræðis, aukinn-
ar áfengisdrykkju og lítillar
hreyfingar yfir hátíðamar enda
em jólin í augum margra tími
afslöppunar og mataráts.
Einnig er algengt að fólk sem
alla jaftia er í aðhaldi leyfi sér
aðeins „frjálslegra" matarræði
og ýmsan annan munað á
þessum árstíma og við því vara
danskir læknar. Þeir benda
fólki á að fara hægt í sakimar
og ekki borða of mikið af mat-
artegundum sem það er ekki
vant að borða reglulega, s.s.
kjöt og sælgæti.
Þá spilar streyta stóran þátt
í þessari auknu hættu um jólin
en eins og flestir þekkja getur
jólaamstrið reynt talsvert á
taugamar. Fólk ætti því að gefa
sér góðan tíma til að slappa af
um jólin en ekki gleyma alveg
að hreyfa sig í öllu matarátinu.
Þetta á sérstaklega við um fólk
sem er í svokölluðum áhættu-
hópum fyrir hjartasjúkdóma
að því er Lars F. Olsen, læknir
hjá Hjerteforeningen í Dan-
mörku, segir. Hann segir þó
enga ástæðu fyrir fólk að ör-
vænta þótt það sé hjartveikt
eða í áættuhópum en brýnir
fyrir fólki að hafa varann á og
hreyfa sig, þótt ekki sé nema
stuttur göngutúr í kring um
húsið svona aðeins til að koma
brennsunni af stað eftfr
stöðugt át.
tmhusgogn.is
SíSumúla 30 -Sími 568 6822
- œvintyri líkust
Borðstofuborð Stóil
I84.000kr, I [18.500kr.l
Kírsuber Kirsuber
Maxim
3ja sæta tauákl.
2ja sæta tauákl.
I84.000kr, l I76.000kr.
’i' fi
TM - HÚSGÖGN
Falleg stofa
sem endurspeglar þinn smekk
omdu í verslun okkar í Síðumúlanum og upplifði
frábært úrval af gæðahúsgögnum við allra hæfi.
Luminer
3ja sæta leðursófi
83.000kr.