Helgarblaðið - 30.04.1992, Blaðsíða 6

Helgarblaðið - 30.04.1992, Blaðsíða 6
Helgar 6 blaðið Konur ó íslandi eru meb lægri laun en karlar, þó svo ab um sama starfib sé aö ræba. Að kæra meint Kærur vegna meints launamisréttís hafa verið fátíðar hér á landi. Það þýðir samt ekki að tilefhin skorti, heldur hafa slík mál jafnan verið erfið meðferðar og óljós, sem hefur um leið fælt fólk firá því að kæra misréttíð. Með tilkomu nýrra jafnrétt- islaga sem tóku gildi 1991 eru málin auð- veldari viðureignar. A vegum Nonæna jafn- launaverkefnisins hefur ver- ið gefið út kynningarrit um meðferð kærumála vegna launamisréttis kynja. Hildur Jónsdóttir, verkefnastjóri Norræna jafnlaunaverkefn- isins, vonast til að kynning- arritið hvetji þá, sem telja sig beitta launamisrétti, til að nýta sér jafnréttislögin og leita réttar síns. Hildur Jónsdóttir segir að samanburður á störfum hafi hingað til verið helsti akki- lesarhællinn þegar launa- misrétti er metið. Samkvæmt nýju jafnrétt- isiögunum getur fólk borið saman sín störf við sam- bæriieg störf innan fyrir- tækja, þótt þau séu ekki al- veg þau sömu. Þá er t.d. hægt að horfa á hvaða kröf- ur eru gerðar um menntun og hæfni, ábyrgð og að- launa gæslu. Einnig má taka mat á álagi og vinnuskilyrðum þama inn í. I 4. grein jafnréttislag- anna segir: „Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara íyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Með „launum“ í lögum þessum er átt við venjulegt grunn- eða lágmarkskaup og hvers konar frekari þóknun, beina eða óbeina, hvort heldur er Samningurinn um evrópskt efhahagssvæði er viðamikill, svo ekki sé meira sagt Toppurinn á ísjakanum er tvær þykkar bækur. Samningurinn sjálfur telur ekki margar blaðsíður, einungis 45. Hann er 129 greinar en það sem tekur pláss eru bókanir ýmisskonar og yfirlýsingar um túlkanir á því sem stendur í samningnum. Seinna heftíð er síðan viðbætur af ýmsu tagi þar sem oftast er verið að vísa í hinar ýmsu reglugerðir Evrópubandalagsins svo hundruðum og þúsundum skiptir. Þessar reglugerðir, tilskipanir, túlkanir framkvæmdastjómar og annað þvíumlíkt er síðan sá hluti samningsins eða ísjakans sem er undir sjávarmáli. Hér er um að ræða tugþúsundir síðna á skrifræð- ismáli. Þessar síður hafa þingmenn á Alþingi lítið lesið en hafa hins- vegar nokkuð lengi haft undir höndum samninginn sjálfan í ein- hveiju formi. Fyrsta próförkin var gefm út 9. mars en þar vantar allar breytingar sem hafa orðið vegna þess að EES-dómstólnum var hafnað af EB-dómstólnum. Helg- arblaðið leit inn á Alþingi í vik- unni og valdi ftmm þingmenn, einn úr hverjum þingflokki, tii að svara fimm spumingum um samn- inginn. Valið var mjög handahófs- kennt en forðast var að ræða við formenn flokka og meðlimi utan- ríkismálanefndar. Gettu betur Þingmennimir sem svöruðu voru nokkuð fróðir um samninginn og tóku vel í að svara þessum spum- ingum. Einar K. Guðfinnsson (D) vildi þó ekki svara, sagðist ekki vilja gata á EES-spumingum í blöðunum. Það sem helst kom á óvart var hversu óvissir þingmenn- imir vom á því hver hefði orðið niðurstaðan í dómstólamálinu, þ.e. að EB- dómstóllinn hafnaði því að sérstakur EES-dómstóli hefði úr- skurðarvald. Niðurstaðan varð sú að komið verður á fót EFTA-dóm- stól sem dæmir í ágreiningsmálum innan EFTA. Risi ágreiningur um samninginn milli EFTA-ríkis og EB- ríkis verður að láta sameigin- legu EES-nefndina útkljá málið. Hún hefur ekkert dómsvald þannig að náist ekki samkomulag verður ekkert hægt að gera. Eigi að síður er nefndinni ætlaða að taka mið af reglum EB og dómsúrskurðum EB- dómstólsins í hliðstæðum málum. Fyrst voru þingmennimir spurðir að því hvað ísland skuldbyndi sig til að gera ef misræmi kæmi upp milli EES-reglna og íslenskra laga. Þessu svöruðu allir rétt. Sam- kvæmt EES-samningnum skuld- bindur ísland sig tii að innleiða ákvæði í lög þess efnis að reglur EES gildi í því tilviki. Þingmenn- imir svöruðu þessu reæyændar ekki á þennan hátt. Kristín Ast- geirsdóttir (V) sagði að skuldbind- ingin væri að setja ný lög. Jóhann Ársælsson (G) sagði að við yrðum að fara efíir því sem gilli í EB. Jó- hanncs Geir Sigurgeirsson (B) sagði að Island yrði að fara að EES-reglum sem byggðust á EB- reglum. Vilhjálmur Egilsson (D) sagði að í samningnum fælist að íslensk lög ættu að vera í samræmi við EES-reglurnar. Og Sigbjöm Gunnarsson (A) sagði að EES- reglumar hefðu forræði. Þingmennimir gerðu sér allir góða grein fyrir því að EES-regl- umar cm æðri íslenskum lögum, eða einsog Vilhjálmur sagði: „Ef við fomm ekki efiir því emm við að brjóta samninginn. Ekki tungunni tamt Næsta spuming var tæknilegs eðlis. Spurt var hvert hægt væri að vísa máli ef upp kæmi deilumál varðandi tollameðferð. Það er ljóst Jóhannes Geir Sigurgeirsson fékk fjóra af fimm. Vilhjálmur Egilsson fékk fjóra af fimm. að ýms EES-hugtök em þing- mönnum ekki töm á tungu og því vafðist fyrir þeim rétta svarið: Til sameiginlegu EES-nefndarinnar. Sú nefnd er hugsuð sem embættis- mannanefnd og á að hittast einu sinni í mánuði hið minnsta. Hún sér um framkvæmdina. í EES- ráð- inu fer hinsvegar fram pólitísk Kristin Ástgeirsdóttir fékk 3,5. mótun á framkvæmdinni en í ráð- inu sitja ráðherrar. Kristín gaf þetta frá sér, Jóhann hafði það rétt, Jóhannes hélt að málið yrði að senda til sameigin- legs dómstóls EB og EFTA. Vil- hjálmur fór út í mjög flókið svar. Lýsti mismuninum á því hvort ágreiningur væri milli EFTA-ríkja eða milli EB-ríkis og EFTA-ríkis. En þama var hann í raun að lýsa dómstólalausninni. Sigbjöm hélt einnig aðþessu ætti að vísa til dómstóls. Þriðja spurningin var einföld: Geta Bretar áfram innheimt skóla- gjöld af íslenskum námsmönnum sem erlendum stúdentum? I samningum er sérstök yfirlýs- ing þar sem fram kemur að Bretar geta innheimt skólagjöld á ná- kvæmlega sama hátt og nú er. Sigbjöm sagðist ekki halda að Bretar gætu þetta. Vilhjálmur sagði já. Það gerðu einnig Jóhann- es Geir og Kristín. Jóhann skaut hinsvegar á nei. Sigbjörn Gunnarsson var verst upplýstur af þingmönnunum. Hann fékk 2,5. Þá var spurt um hver væri lausn- in á dómstólamálinu. Þar komu allir inn á að frekar hailaði á EFTA í þeim málum. Þingmenn vom al- mennt með það í huga en nákvæm útfærsla á niðurstöðunni var meira á reiki. Þau fengu þetta hálft til eitt stig fyrir þessa spumingu. Hvað meb ríkib? Lokaspumingin var um það hvað fælist í sérstakri yfirlýsingu ríkisstjóma Finnlands, íslands, Noregs og Svíþjóðar um áfengis- einkasölu. Öll svömðu þau þessu rétt þótt sum þeirra skytu á svarið án þess að hafa hugmynd um það. Rétt svar er að ríkisstjómimar lýsa því yfír einhliða að áfengiseinkasölur séu mikilvægur liður í stefnu ríkis- stjómanna i heilbrigðis- og félags- málum. EB kemur ekki þama með mótyfírlýsingu einsog stundum er í samningnum. Vilhjálmur var með þetta á hreinu, Sigbjöm sagði stjómina vilja halda einsksölunni áfram og það sögðu Jóhann og Jóhannes Geir líka. Krístín sagðist líka gefa sér að stjómimar vildu með yfir- lýsingunni geta haldið áfram eink- sölunni. í heild komust þingmennimir ágætlega frá þessu. Mest var sem sagt hægt að fá fimm rétta en eng- inn náði því. Jóhannes Geir og Vil- hjálmur fengu fjóra rétta. Á hæla þeim komu Kristín og Jóhann með þrjá og hálfan og Sigbjöm rak lest- ina með tvo og hálfan. Ekki ber að taka þetta próf mjög alvarlega. HERSTÖÐVAANDSTÆÐINGAR!! Morgunkaffið verður í Hlaðvarpanum, Vestnrgötu 3b, frá kl. 10:30 1. maí. Mætum öll kát og hress og æfum okkur fyrir gönguna!! Miðnefndin Fimmtudagurinn 30. apríl

x

Helgarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.