Dagblaðið - 08.09.1975, Page 8
8
Dagblaðið. Mánudagur 8. september 1975.
Skóli Emils
hefst 10. september
Hóptimar og einkatimar. — Innritun i
sima 16239.
Emii Adólfsson, Nýlendugötu41.
Verð aðeins frá
SVEFNBEKKJA
Höfðatúni 2. — Simi 15587.
W W
NYR ODYR
2JA MANNA
SÓFI
Sjónvarp
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Allra veðra von (A
Raging Calm). Ný, bresk
framhaldsmynd, byggð á
skáldsögu eftir Stan Bar-
sow. 1. þáttur. Nánasti
ættingi. Aöalhlutverk Alan
Badel og Diana Coupland.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son. Myndin, sem er I sjö
þáttum, gerist nú á tímum
og greinir frá miðaldra
kaupsýslumanni, og sam-
skiptum hans við vini og
vandamenn.
21.30 lþróttir.Myndir og fréttir
frá iþróttaviðburðum helg-
arinnar. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
22.00 Frá Nóaflóöi til nútim-
ans. Fræöslumyndaflokkur
frá BBC um menningarsögu
Litlu-Asiu og menningar-
áhrif, sem þaðan hafa borist
I aldanna rás. 2. þáttur.
Hellenar. Þýðandi og þulur
Gylfi Pálsson.
0
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: ,,Dag-
bók Þeódórakis” Málfriður
Einarsdóttir þýddi. Nanna
ólafsdóttir les (4). Einnig
flutt tónlist eftir Þeódóra-
kis.
15.00 Miðdegistónleikar.
Grumiaux-trióið leikur Trió
i B-dúr eftir Schubert. Heinz
Hoppe, Sonja Knittel o.fl.
syngja atriði úr „Fugla-
salanum” eftir Carl Zeller
meðkór og hljómsveit undir
stjórn Carls Michalskis.
Rena Kyriakou leikur á
pianó „Tónaljóð” eftir
Mendelssohn.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn.
17.10 Tónleikar.
17.30 Sagan „Ævintýri Pick-
wicks” eftir Charles Dick-
ens. Bogi Ólafsson þýddi.
Kjartan Ragnarsson leikari
les (7).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn
Guðjón B. Baldvinsson full-
trúi talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.30 Starfsemi heilans.
Útvarpsfyrirlestrar eftir
Mogens Fog. Hjörtur
Halldórsson lýkur lestri
þýðingar sinnar (4).
21.05 Frá Vorhátiðinni i Prag.
Igor Oistrakh og Igor
Cernysev leika saman á
fiðlu og þianó.
a. Sónata eftir Ravel. b.
Þrjár kaprísur eftir Paga-
nini/Szy m ano vski.
21.30 Útvarpssagan: „Og hann
sagði ekki eitt einasta orð”
eftir Heinrich Böll. Böðvar
Guðmundsson þýddi og les
ásamt Kristinu ólafsdóttur
(12).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Búnaðar-
þáttur. Þorsteinn Tómasson
erfðafræðingur talar um
jurtakynbætur og frærækt.
22.35 Hljómplötu safniö i
umsjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
23.30 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Sjónvarp kl. 20.35
ENN EIN FJÖLSKYLDUMYNDIN
1 kvöld hefst i sjónvarpinu nýr
brezkur framhaldsmyndaflokk-
ur I sjö þáttum, sem nefnist
Allra veðra von. Þessi flokkur
er gerður eftir svipaðri formúlu
og Bræðurnir og aðrar slikar
myndir og greinir frá miðaldra
kaupsýslumanni, Simpkins að
nafni og viðskiptum hans við
ættingja og vini, eða öllu heldur
vinkonur. Inn I þetta blandast
svo alls konar fjölskylduerfið-
leikar og önnur slik skemmti-
legheit.
Óskar Ingimarsson, þýöandi
myndarinnar, gat ekki greint
nákvæmlega frá söguþræðin-
um, er við ræddum við hann, þvi
að ekki hafa enn borizt nema
tveir fyrstu þættirnir. Eitthvað
virðist vera athugavert við
samgöngur við Bretland- um
þessar mundir, þvi að ekki
komu heldur nein handrit, svo
að Óskar varð að þýða fyrstu
þættina eftir segulbandi.
Vonandi getum við skýrt bet-
ur frá þessum myndaflokki á
næstunni.
—AT
Daglegt mól í
útvarpinu:
HVERNIG
BEYGIST
ORÐIÐ RÁÐU-
NAUTUR?
„Ég man eftir þvi, að Pétur
Jónsson óperusöngvari söng:
Bliðan lagði byrinn undan björg-
UNUM,” sagði Helgi J. Halldórs-
son I stuttu simtali við DAG-
BLAÐIÐ, en hann er með þáttinn Helgi Halldórsson
Daglegt mál I útvarpinu. ,,! kvöld
svara ég meðal annars bréfi frá >,Ég er kannski farinn að milid- mest Visi, Morgunblaðið og Þjóð-
Ingvari Brynjólfssyni mennta- ast,” sagði Helgi, „ég var tals- viljann. Annars er ég að hætta
skólakennara um beygingu orðs- vert hvassari hér áður. Fólk tek- með þennan þátt,” sagði Helgi.
ins ráöunautur og einnig um ur þá frekar eftir þvl, sem sagt Hann bað okkur lengstra orða
framburð á endingunni — unum. er. Þegar ég svara ekki bréf- að minna blaðamenn og aðra enn
um i þættinum, fjalla ég einkum einu sinni á beygingu sagnarinn-
Við spurðum Helga, hvort hann um málfar I útvarpi og dagblöð- ar að ljá, sem er I þátið — léöi —,
væri ekki of harður I dómum sln- uni. Ekki er það af ásetningi, ef. hefi léð.
um um málfar, meðal annars éS geri blöðunum mishátt undir
málfar blaðamanna, og hvort höfði, en ég les blööin ekki alveg Þátturinn Daglegt mál ' hefst
hann gagnrýndi eitt blaö öörum jafnt. útvarpiö hefur ekki séð kl. 19.35 i kvöld.
fremur. mér fyrir blöðum, og ég hefi lesið —BS-
Dagur og vegur 1 útvarpinu:
FJALLAÐ UM
MISRÉTTIÐ
„Ég verð að játa hreinskilnis- papplrinn,” sagði Guðjón B.
lega, að þetta er ekki komið á Baldvinsson, deildarstjóri, sem
fiytur þáttinn Um daginn og
veginn I útvarpinu i kvöld.
„Eitthváð mun ég þó minnast á
mismunandi orlofsrétt,” sagði
Guðjón.
1 erindi sinu fjallar Guðjón
einnig um misrétti i lifeyris-
sjóðsgreiðslum. Þá kemur hann
að þætti, sem nefna mætti:
Heimilið og kvennaárið, en
hann tengist orlofinu.
„Yfirleitt má segja, að ég fjalli
um það misrétti, sem maður
verður var við,” sagði Guðjón
B. Baldvinsson, „og jafnframt
og kannski ekki hvað sizt kem
ég með ábendingar til laun-
þegasamtakanna I sambandi
við tómstundamál. Þær koma
að visu seint, of seint, eða
kannski er það aldrei of seint að
koma fram með ábendingar.”
Þátturinn Um daginn og veg-
inn hefst kl. 19.40 i kvöld.
—BS~
Guðjón B. Baldvinsson.