Dagblaðið - 08.09.1975, Qupperneq 9
Dagblaðið. Mánudagur 8. september 1975.
I
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Sölvi Óskarsson „hálfrakaður
hjá Villa Þór.
Þróttur, litla liðið úr Sœviðarsundi í 1. deild:
En IBV, lið, sem spóð var
toppsœti í 1. deild, féll!
Niki Lauda, Austurriki, tryggði
sér i gær heimsmeistaratitilinn i
kappakstri i Monza á ítaliu, þeg-
ar hann varð 3ji i itölsku
kappaksturskeppninni. Hann hef-
ur hlotið 55.5 stig og aðrir
keppendur geta ekki náð honum.
Heimsmeistarinn frá i fyrra,
Emerson Fittipaldi, Braziliu, er
annar með 39 stig. Reggazzoni,
Sviss, sigraði i Monza — Fitti-
paldi varð annar.
Liem Swie King, Indónesiu,
varð heimsmeistari i gær i ein-
liðaleik karla i badminton, þegar
hann sigraði Fleming Delfs, Dan-
mörku, i úrslitaleiknum á HM i
Kuala Lumpur 15-4 og 15-13. King
er 19 ára og sigraði Danann á 31.
minútu. I undanúrslitum varð
Svend Pri, Danmörku, sem talinn
var sigurstranglegastur, að hætta
vegna meiðsla. Hann lék þá við
Delfs.
Manuel Orantes, Spáni, varð
bandariskur meistari i tennis
i gær, þegar hann mjög óvænt
vann Jimmy Connors, USA, i úr-
slitaleiknum i New York 6-4, 6-3
og 6-3. í undanúrslitum vann
Connors Björn Borg, Sviþjóð, 7-5,
7-5 og 7-5.
Pálssyni, Arsæli Sveinssyni og
svona mætti lengi telja. En bar-
áttuna vantaði — þá er ekki að
sökum að spyrja.
Þróttur — litla liðið við
Sæviðarsund, hefur unnið sig upp
i 1. deild eftir 10 ára fjarveru.
Sölvi Óskarsson hefur náð at-
hyglisverðum árangri með liðið.
Leikskipulag er til fyrirmyndar,
samstilling góð og liðið hefur ver-
ið yngt upp, leikmenn, sem eiga
framtiðina fyrir sér.
Leikurinn um 9. sætið i 1. deild
milli l.B.V. og Þróttar var háður
á Melavellinum á laugardag. Svo
virtist sem Eyjamenn litu á leik-
inn sem formsatriði — þetta yrði
auðveldur sigur.
Liðið var eins og vindlaus
tuðra, sifelldar langspyrnur fram
völlinn, sem ágæt vörn Þróttar
átti ekki i neinum erfiðleikum
með.
I byrjun virtust bæði liðin vera
að þreifa fyrir sér, rétt eins og
þau héldu, að mörkin kæmu af
sjálfu sér. En á 25. min. kom
markið, sem skipti sköpum. Vest-
mannaeyingar tóku útspark, sem
misheppnaðist gjörsamlega, bolt-
inn fór til Halldórs Arasonar og
þrumuskot hans af 20 metra færi
hafnaði neðst i markhorninu fjær
— óverjandi fyrir Arsæl. Nú hélt
maður að Eyjamenn myndu
vakna af sinum Þyrnirósarsvefni
— nei, aldeilis ekki, þeir sváfu
sem fastast.
Það, sem eftir lifði af hálfleikn-
um, var ósköp tiðindalitið.
Þróttarar verkuðu alltaf sterkari.
Strax i byrjun siðari hálfleiks
skoraði Þróttur sitt annað mark
og var þar aftur að verki hinn
ungi og efnilegi Halldór Arason.
Friðfinnur ætlaði að hreinsa, en
tókst ekki betur en svo, að boltinn
fór i Halldór, sem brunaði upp og
skoraði örugglega framhjá Ar-
sæli, 2-0.•
Eftir það var sem Vestmanna-
eyingar sættu sig fyllilega við
aðra deildina. Sá eini sem eitt-
hvað reyndi að gera var Orn
Óskarsson, en hann mátti sin litils
einn.
Alveg er það ótrúlegt, hvað
Vestmannaeyingum hefur farið
aftur siðastliðin tvö ár. Það er
Sölvi Óskarsson, þjálfari Þróttar, hét þvi að raka sig ekki fyrr en
Þróttur værikominn i 1. deild. Tækist það, áttu hinir ungu leikmenn
Þróttar að reyta af honum skeggið og nota i afleggjara, þvi eins og
alþjóð veit eru flestir þeirra svo ungir, að þeim er ekki farin að
gpretta grön. Hér eru þeir Sölvi, Gunnar Ingvason, aldursforseti
liðsins, og Stefán Ó. Stefánsson sem biður spenntur eftir af-
leggjaranum sinum á hársnyrtistofu Villa Þórs I Siðumúla 8, þar
sem athöfnin fór fram.
—hh
Afleggjarar handa Þrótturum
eins og alla baráttu vanti, — sem
einkenndi þetta lið, þegar það var
upp á sitt bezta.
Þróttur á ungt og efnilegt lið.
Hvernig þvi farnast i 1. deild skal
engu um spáö. Þeir eiga framtið-
ina fyrir sér, leikmenn eins og
Halldór Arason, Jón Þorbjörns-
son og Þorvald I. Þorvaldsson.
Vissulega er bjart framundan hjá
Þrótti og verður gaman að sjá
þessa leiknu pilta spreyta sig i 1.
deild.
— hh
t.B.V. liðið, sem allir reiknuðu
með I toppbaráttunni f sumar, er
fallið. Það hefur ávailt verið i
einu af efstu sætum 1. deildar,
unnið bikarkeppnina og staðið i
eldlinunni i Evrópukeppnum.
Liðið, sem vann hvern leikinn á
fætur öðrum I vor, var ekki nema
svipur hjá sjón i tslandsmótinu.
Eitthvað meira en litið hefur farið
úrskeiðis. Liðið hefur mörgum
góðum leikmönnum á að skipa,
s.s. Erni Óskarssyni, Tómasi
KA og IBI
í 2. deild
Um helgina fór fram úrslita-
keppnin um þau tvö sæti, sem
laus voru i 2. deild. Þá léku Vik-
ingar frá ólafsvik, KA og IBt.
Fyrsti leikurinn var á milli KA
og 1B1, sem Akureyringar unnu 3-
2.
Þá léku Isfirðingar við Viking
og sigruðu 2-0. Siðasti leikurinn
var svo háður i gær. Þá áttust við
Víkingur og KA. Eftir að Ólsarar
höfðu haft yfir 3-1 i hálfleik, tóku
Akureyringar heldur en ekki rögg
á sig i seinni hálfleik og tókst að
jafna 3-3.
Það eru þvi KA og IBÍ sem
leika að ári i 2. deild.
Þau lið, sem verða i 1. deild
næsta keppnistímabil eru: IA,
IBK, FH, Breiðablik og Reykja-
vikurfélögin KR, Valur, Fram,
Vikingur og Þróttur. I 2. deild
leika: IBV, 1B1, Haukar, Selfoss,
Armann og norðanliðin Þór, KA ,
Reynir og Völsungur.
—hh.
Stórsigur
Celtic!
Glasgow Celtic hafði mikla
yfirburði gegn Dundee á
heimaveiii sinum á iaugar-
daginn i 2. umferð skozku
deildakeppninnar — og hefði
þess vegna getað gefi Jö-
hannes Eðvaldsson eftir i
landsleikinn gegn Belgum.
Celtic sigraði með 4-0 á
Parkhead og var gamli,
skozki iandsiiðsmaðurinn
Bobby Lennox i mikiu stuði
— skoraði þrjíi af mörkun-
um. Hið fjórða skoraði
McNamara. Gleði var mikil
— en þö langmest, þegar
Jock Stein, framkvæmda-
stjóri liðsins, sem manna
mestan heiður á á stórkost-
legum árangri liðsins siðasta
áratuginn, birtist á veliinum
i fyrsta sinn siðan hann lenti
i bilslysinu mikla i sumar.
Ilonum var fagnað innilega.
Skozku meistararnir
Rangers sigruðu aftur — 2-0
gegn Hearts i Edinborg. Þar
var lieppni með Rangers-lið-
inu, bæði mörkin voru sjálfs-
mörk Hearts-leikmanna.
Fyrst skallaði Anderson i
eigið .mark á 7. min. og
nokkrum mln. siöar varð svo
Murrey fyrir þvi að senda
knöttinn i mark sitt. Úrslit i
aöaldeildinni „Töp ten” urðu
þessi:
Aherdeen—Motherwell
Ayr-St. Johnstone
Celtic—Dundee
Dundee Utd.—Hibernian
llearts—Rangers
2-2
1-0
4-0
1-0
0-2