Dagblaðið - 08.09.1975, Síða 10
10
Dagblaðið. Mánudagur 8. september 1975.
Nú beinist athyglin
að Árna og Marteini
— hjá atvmnumannaliðunum í Frakklandi og Belgíu
Magnús Gislason blaða-
maður Dagblaðsins 'a
landsleiknum i Liege
Belgiu skrifar:
Teitur Þórðarson miðherji. „Ég
var einu skrefi of innarlega, þegar
ég fékk sendinguna, svo ég stóð
ekki nógu vel að knettinum til að
geta komið honum i markið, — það
var gremjulegt i jafnágætu færi.”
Arni Stcfánsson: ,,Ég sá knöttinn
koma svifandi, Jón stökk upp fyrir
aftan Lambert, svo ég missti sjón-
ar af knettinum eitt augnablik,
sem nægði til þess að ég náði ekki
til hans i tæka tiö, þegar Belginn
skallaði. Annars fannst mér þetta
léttari leikur en gegn Frökkum,
færri opin færi, en hins vegar hálka
vegna náttfalls á vellinum.”
Matthias Hallgrimsson: ,,Ég kunni
ágætlega við að vera færður aftur,
þá er ég meira i knettinum. Mið-
herjastaðan er meiri slagur, i færri
skipti, oftast i glimu við tvo eða
fleiri. Ég hefði gjarnan viljað hitta
betur í bezta færinu, — en ég var
langt frá marki. Við náðum mun
betri leik ntina en i Nantes og ég er
ekki óánægður með úrslitin.”
Asgeir Sigurvinsson fyrirliði: ,,Ég
gerði það með vilja að reyna að ná
hraðanum niöur, það var betra
fyrir okkur og stundum varð ég að
fara mér hægt, þegar engir voru til
sóknar. Liðið var mun betra en
gegn Frökkum, en mér fannst
dómarinn lélegur og leyfa ljót
brot.”
Arni Þorgrimsson og Jens
Sumarliðason voru að brjóta
saman bhninga liðsins þegar við
litum inn i klefann eftir leik. „Tap
er alltaf tap, en þeir voru eigi að
siður ánægðir með frammistöðu
landsliðsins, — sérstaklega mark-
vörzlu Árna, — en allir höfðu staðið
sig með ágætum, og vonandi tækist
ekki verr til i Moskvu.”
Marteinn Geirsson :Uppstilling var
betri á vörninni en i Nantes. Ég er
vanur að leika með Jóni miðvörð i
Framliðinu. Ég kunni ekki al-
mennilega við mig gegn Frökkum,
þá lék Gisli hægra megin við mig,
— en nh færðist ég þangað og Jón
kom vinstra megin við mig.
Belgiska liðið fannst mér jafnara
en það franska, — samt voru fram-
herjarnir frönsku sneggri og
erfiðari viðureignar en Belgarnir,
enda opnaðist vörnin varla nokkuð
sem heitið gat hjá okkur í kvöld.”
Arni Stefánsson fékk varla næði til
að fara i bað fyrir fréttamönnum
og ljósmyndurum. Svo aðgangs-
harðir voru þeir að hann var
myndaður svo til kviknakinn —
hvort sem sú mynd verður nU birt
eða ekki. Þá hefur það flogið fyrir
að atvinnulið séu með Arna i „sigt-
inu” og fulltrUar þeirra hafi fylgzt
með honum bæði i Frakklandi óg
Belgiu, svo og Marteini Geirssyni.
Ekkert mó gefa eftír
■ og þá er staða manns í liðinu í hœttu, segir Guðgeir Leifsson
Frá Magnúsi Gíslasyni/
Liege:
„Lið mitt er mí ekki nema með
eitt stig eftir fjóra leiki,” sagði
Guðgeir Leifsson, atvinnumaður i
knattspyrnu i Belgiu, þegar við
hittum hann ásamt föður hans Leifi
Einarssyni, sem kom með isl.
hópnum til Frakklands og Belgiu,
en mun dveljast hjá syni sinum um
vikutima.
„Þetta er ólikt þvi sem gerist i á-
hugamennskunni, harðari skóli. Ef
maður stendur sig ekki, er nógur
mannskapur á varamannabekkj-
unum til að taka við, svo ekkert má
gefa eftir. Ég hef ekki getað sýnt
allar minar beztu hliðar, að
minnsta kosti ekki hin löngu inn-
köst. Knötturinn er eiginlega alltaf
i leik, ólikt þvi, sem gerist i áhuga-
mennskunni. Þótt við séum eigin-
lega á botninum sem stendur, er
svo litill munur á liðunum, að mikið
á örugglega eftir að ganga á, áður
en lýkur og röðin að breytast.”
sagði Guðgeir.
„Konan og börnin kunna ágæt-
lega við sig hér þenran stutta tíma,
sem þau hafa dvalið ytra og ég er
farinn að venjast breytingunni, —
nú er bara eftir að sjá, hvernig
frammistaðan verður.”
Fjöldi ísl. óhorfenda
setti svip ó leikinn
Frá Magnúsi Gíslasyni/
Liege:
Islendingar settu mjög svip sinn
á landsleikinn við Belga i áhorf-
endastúkunni. Flestir komu frá
Luxemburg og höfðu þeir með sér
gjallarhorn og hvöttu landa sina ó-
spart meðan á leiknum stóð, með
hrópum og söng, jafnvel islenzkum
kvæðum, eins og „Fyrr var oft
i koti kátt”, og „Afi minn fór á hon-
um Rauð.” Að leikslokum biðu
margir þeirra fyrir utan búnings-
klefana eftir Arna Stefánssyni
markverði og tolleruðu hann fyrir
markvörzluna, — og hvöttu is-
lenzku þjóðina til að gera vel við
knattspyrnumennina og þvi til
áréttingar rétti einn viðstaddra
veskið sitt til Arna, — en hann tók
að sjálfsögðu ekki við þvi.
Belgiumenn hafa verið mjög
rausnarlegir við Islendinga og sýnt
þeim mikla vinsmed i hvivetna.
Meðal annars fengu þeir að taka
æfingu á vellinum i Liege kvöldið
fyrir landsleik. Slikt mun með fá-
dæmum hér, ef ekki einsdæmi, og
gat Tony Knapp þess sérstaklega,
hvað þetta lýsti miklum vinarhug
Belga til Islendinga.
■ ■
Landsliðið ætti ekki að þurfa að
fara með skegghýjung til Rúss-
lands vegna rakvélaleysis. Eftir
leikinn við Belga voru þeim afhent-
ar rafmagnsrakvélar, gjöf frá bel-
giska knattspyrnusambandinu.
■ ■
Albert Guðmundsson, fyrrver-
andi form. KSI, horfði á leik Is-
lands og Belgiu, i Liege. Kom Al-
bert hingað i sérstöku boði
Belgiska knattspyrnusambandsins,
en fátitt mun vera, að fyrrverandi
formenn fái slik boð, en þetta lýsir
bezt, hverrar virðingar hann nýtur
meðal knattspyrnuforystunnar I
Belgiu vegna samskipta hennar við
Island.
■ ■
Franska sjónvarpið fór þess á
leit við Albert Guðmundsson, aö
hann kæmi fram i þætti, sem það
hugðist gera um feril hans i Frakk-
landi og sýna i sambandi við lands-
leik Islands og Frakkl. Siðan átti
að ræða um landsleikinn að honum
loknum ásamt nokkrum fyrrver-
andi knattspyrnumönnum en þvi
miður gat ekki orðið af áætlun
Frakkanna, þar sem Albert sá sér
ekki fært vegna anna að fara til
Frakklands á þeim tima sem
Frökkum hentaði. Ekki er þó loku
fyrir það skotið að unnið veröi aö
sllkum þætti siðar.
Einn fór yfir 8000
Leonid Litvinenko, Sovét, varð
sigurvegari I Evrópukeppni
landsiiða i tugþraut, sem iauk i
Bydgoszcz i Póllandi I gær. Hann
hlaut 8030 stig. Kcppendur voru
frá sjö þjóðum. Sovétrikin sigr-
uðu — hlutu 23.631 stig. Pólland
varð I öðru sæti með 22.824 stig og
Sviþjóð i 3ja með 22.763 stig. Slð-
an komu A-Þýzkaland, V-Þýzka-
land, Finnland og Frakkland.
Fyrrum heimsmethafi, Avilov
Sovét, varö annar með 7973 stig —
en hann hafði forustu eftir fyrri
daginn, 4077 stig. Katus, Póllandi,
varð 3ji með 7950 stig og Hcdmark
Sviþjóð, fjórði mcð 7867 stig. Su-
vitte, Finnlandi, varð fimmti með
7760 stig — cða aöeins bctri
árangur, en Stefán Hallgrimsson
náði i gær. Schreyer, A-Þýzka-
landi, varð sjötti með 7658 stig.
Við munum segja nánar frá
keppninni á morgun.
|
Frá Magnúsi Gíslasyni,
blaðamanni Dagblaðsins á
landsleiknum i Liege í Bel-
gíu:
Eftir ósigurinn í Nantes
var það álit margra, að ís-
lenzka landsliðið hefði lítið
að gera í sinn næsta mót-
herja, Belgíumenn. Þeir
voru taldir eiga mun sterk-
ara lið en nágrannarnir,
Frakkarnir, eins og
frammistaða þeirra á und-
anförnum árum hefur
reyndar sannað. Meira að
segja skrifuðu frönsku
blöðin, að það eina, sem
skyggði á sigurinn í
Nantes, væri, að með hon-
um hefðu Frakkar gert is-
lendingana að of auðunn-
inni bráð fyrir Belgana, —
brotið þá niður andlega.
Kviöalaust var þvi ekki fyrir
hina mörgu Islendinga, sem lögðu
leið sina á leikvanginn i Liege,
sumir langt að komnir, að horfa á
islenzku knattspyrnumennina
ganga i bláhvita búningnum inn á
rennisléttan grasvöllinn, — bað-
aðan flóðljósum. En litla Island
kom rétt einu sinni á óvart i al-
þjóðlegri knattspyrnu, — sigraði
að visu ekki, það var borin von, —■
en veitti Belgunum kröftuga mót-
spyrnu. Aðeins éitt mark skildi
liðin að, hálfgert heppnismark,
skorað rétt undir lok fyrri hálf-
leiks.
Hinir nærri 12 þúsund Belgiu-
menn, sem komu til a
leikinn, hafa vafalitið
stórum sigri, mörgum
Knattspyrnulandslið þei
augsýnilega að láta þá \
aðnjótandi. Strax eftir
dómarinn, Lund Sören:
blásið i flautu sina, —
slapp sæmilega frá
þrátt fyrir iélega linu
stoð, — hófu Belgar s
leiftursnöggum sendinf
sett á fulla ferð til að kr
sigur hið fyrsta.
En sóknarloturnar b:
íþrótl
islenzku vörninni eins oj
á hamravegg-leikinn ú
Arni Stefánsson varði a
snilli, að orð brestur t
— með einni ui
ingu, þegar Lambert,
Belgana, skallaði knötti
á lokaminútu fyrri I
Elmar Geirsson átti i
Colls, en virtist ekki ha
til að ná knettinum. Ci