Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 10.09.1975, Qupperneq 16

Dagblaðið - 10.09.1975, Qupperneq 16
16 DagblaðiO. Miðvikudagur 10. september 1975 Straumur kennarafélaga í ráðuneytið: Snjóbolti fer af stað Með samkomulagi þvi, sem framhaldsskólakennarar gerðu við rikisvaldiö á laugardags- kvöldið, var ýtt af stað annarri kröfugerð. í þetta sinn er um að ræða Félag háskólamenntaðra kennara. Tildrög málsins eru þau, að i siðustu kjarasamningum þess- ara aðila var staðfestur munur á kjörum og kennsluskyldu há- skólamenntaðra kennara. Hinir háskólamenntuðu höfðu tveggja tima skemmri kennsluskyldu en á móti áttu þeir að kenna for- fallakennslu aukagjaldslaust, ef skólastjóri færi fram á það. Nýting forfallakennslunnar var siðan könnuð og kom i ljós, að hún var um 2%, að sögn Hösk- uldar Jónssonar, ráðuneytis- stjóra i fjármálaráðuneytinu. begar framhaldsskólakenn- arar, sem ekki hafa háskóla- menntun, fóru fram á samræm- ingu á vinnutimaskyldunni, leit- aði ráðuneytið umsagnar Fé- lags háskólamenntaðra kenn- ara. Sagði i umsögninni, að skoðun félagsins væri sú, að launa ætti fyrir menntun. Ef gagnfræðaskólakennarar án há- skólamenntunar fengju um- beðna samræmingu samþykkta, þá myndi Félag háskólamennt- aðra kennara enn fara af stað og fara fram á kjarabætur i formi beinna launahækkana. M.a. þetta var ástæðan fyrir seinaganginum i samningamál- um Félags gagnfræðaskóla- kennara og fjármálaráðuneyt- isins. Skúli Halldórsson, form. Fé- lags háskólamenntaðra kenn- ara, sagði Dagblaðinu, að nú hlyti að fara svo, að félag hans hæfi viðræður við ráðuneytið og það strax i þessari viku. — ÓV RAUTT- GULT- GRÆNT — ökumönnum finnst töfin af umferðar- Ijósunum hvimleið, en órekstrunum hefur fœkkað hjó þeim ó Akureyri Þriöju umferðarljósin eru nú að komast upp á Akureyri. Þau eru á mótum Þórunnarstrætis og Þing- vallastrætis, skammt frá tjald- stæðinu. Áður voru komin ljós á mót Strandgötu og Glerárgötu og Kaupvangsstrætis og Skipagötu. bau ljós hafa gefiö góða raun. Síðan þau voru sett upp, hafa eng- ir stórárekstrar orðiö á þeim gatnamótum, en höföu orðið áð- ur. Afturámóti þykir sumum Akureyringum leiöindatöf að ljósunum — þurfa að biða eftir grænu ljósi, þótt allar götur séu auðar i kringum þá. Umferðarslysum, sem lögregl- an á Akureyri hefur þurft að hafa afskipti af, hefur fækkað það sem af er árinu miðað við sama tlma i fyrra. 6. september 1974 höfðu verið skráð 383 umferðarslys hjá lögreglunni þar, en 5. september I ár voru þau aðeins orðin 296. — SHH Leikfang fyrir þó eldri? A ÞESSAR BRUÐUR FÁST ENGIN FÖT Blaðamaöur og ljósmyndari Dagblaðsins rákust á þessar sérstæðu brúður i leikfanga- verzlun einni hér i bæ. Verðið á þeirri sem liggur er 1645 kr. en hinum 1850 kr. Þetta er vesturþýzk framleiðsla og eru föt til að klæða þær i ekki fáan- leg. (Ljósm. Dagblaðið Björg- vin). BH „Maðurinn var fullur" — ella hefði hann vart brotizt inn í bankann Hann vissi ekki hvert hann var að fara, kappinn sem tók sér spýtu og braut eina rúðuna I Landsbankahúsinu á Akureyri i Igærmorgun. En úr þvi rúðan var farin, var sjálfsagt að fara inn um gatið, og þar var hann hirtur. Lögreglan á Akureyri sagði, að ó- hætt væri að komast að orði eins og rikisútvarpið gerði I hádegis- fréttunum I gær: „Maðurinn var fullur.” — SHH Ekkert nœði við innbrotið Hann fékk ekki mikið næði, mað- urinn sem brauzt inn I Herrahúsið I fyrrinótt. Hann hafði rétt ráð- rúm til að komast inn um gatið, sem hann braut I rúðu á framhliö búðarinnar, áður en lögreglan kom á staðinn og handtók hann. Hann hafði ekki einu sinni ráð- rúm til að velja sér föt. — SHH MEGA HELZT EKKI AUG- LÝSA KEPPNINA ef veður ó að haldast gott íslandsmót í fallhlífar - stökki: „Við verðum bara að passa að auglýsa þessa keppni ekki, og þá fáum við gott veður,” sagði einn af keppendunum i Islandsmóti fallhlffarstökkvara, sem haldið var uppi á Sandskeiði á laugar- daginn var i sólarglætu og vind- strekkingi. Það er árlegur viðburður, að Fallhlifaklúbbur Reykjavikur gengst fyrir móti i fallhlifar- stökki. Að þessu sinni voru kepp- endurnir sex. Fimm þeirra luku keppni, en einn ökklabrotnaði i miðju kafi, eins og fram kom á forsiðu Dagblaðsins Sigur- vegari varð Sigurður Bjarklind. Hlaut hann 27.38,5 stig og varð rúmlega þremur stigum á undan næsta manni, Hannesi Thoraren- sen. Þriðji varð svo Kristinn Zophaniasson og fylgdi hann fast á hæla Hannesar i stigafjölda. Fallhlifaklúbbur Reykjavikur er eina starfandi félag fallhlifar- stökkvara hér á landi og vár stofnað árið 1970. Aður starfaði falthlifaretökkvaradeild innan Flugbjörgunarsveitarinnnr, en hún lognaöist út af fyrir tveimur árum. —AT Lagt af staö niður. Hannes Thorarensen stekkur út. Ferðafélag íslands Föstudagskvöld kl. 20: 1. Land- mannalaugar. 2. Úti bláinn. (Gist I húsi). Laugardag kl. 8: Þórs- mörk. — Allar nánari upplýsingar veittar áskrifstofunni öldugötu 3, svo og farmiðasala. Simar 19533 og 11790. — Ferðafélag tslands. Útivistarferðir. Föstudaginn 12.9. kl. 20. Haust- ferði Þórsmörk. Gist i tjöldum. Fararstjóri Jón I. Bjarnason. Farseðlar á skrifstofunni. Kvennadeild Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra. Föndurfundur verður haldinn að Háaleitisbraut 13, fimmtudaginn 11. sept. kl. 20.30. Stjórnin. Tilkyrmingar Kristileg sænsk hljómsveit til Islands Þann 9. september kemur sænska hljómsveitin Samuelsons i heimsókn til Islands og mun skemmta fólki hér til sunnu- dagsins 14. Samuelsons flytja einkum svokallaða gospel-tónlist og boða með henni fagnaðar- erindið á liflegan hatt. Samuelsons ferðast mikið um heiminn, þeir hafa farið nokkrum sinnum i hljómleikaferðir til Bandarikjanna og eiga fjölda feröa að baki um Evrópu. 1 þessari fyrstu Islandsferð mun hljómsveitin koma sem hér segir: í kvöld, miðvikudag 10. sept. kl. 21 i Stapa. Fimmtudag 11. sept. kl. 20.30 i Filadeldiu Reykjavik. Föstudag 12. sept. kl. 20.30 I Fila- delfiu Rvk og ki. 23.30 i Austur- bæjarbiói Laugardag 13. sept. kl. 20.30 og 23 i Filadelfiu Rvk. Sunnudag 14. sept. kl. 16 i Norræna húsinu og kl. 20 i Fila- delfiu Rvk. Aðgangur er ókeypis á skemmtanir hljómsveitarinnar, en á miðnæturhljómleikana i Austurbæjarbiói gilda aðgöngu- miðar, sem dreift verður ókeypis i miðasölu Austurbæjarbiós, rak- arastofunni við Veitusund, Virkni Ármúla 38 og Filadelfiu Hátúni 2. Munið frimerkjasöfnun Geð- verndar (innlend og erlend). Pósthölf 1308 eða skrifstofa fé- lagsins, Hafnarstræti 5, Reykja- vik. Ýmisfegt Þessar fjórar ungu stúlkur héldu fyrir skömmu basar og hlutaveltu i bilskúr við Skeiðar- voginn og söfnuðu 4.200 krónum. Ágóðann afhentu þær Styrktarfé- lagi lamaðra og fatlaðra. Stúlk- urnar heita, talið frá vinstri: Anna Dóra Guðmundsdóttir, Anna Guðrún Kristinsdóttir, Elin Eva Gunnarsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. Ljósm. Bjarn- leifur. Hafnarfjðrður Auglýsingamóttaka í Hafnarfirði er hjá Þórdísi Sölvadóttur, Selvogsgötu 11, milli 5 og 6 DAGBLAÐIÐ Vedrlð Austan, norðaustan kaldi, skýjað og dálitil rigning öðru hverju. Borgarbókasafn Reykjavikur: Aðalsafn Þingholtsstræti 29, simi 12308. Opið mánudaga—föstu- daga kl. 9—22. Laugardaga kl. 9— 16. Lokað á sunnudögum. Bústaöasafn Bústaðakirkju, simi 36270. Opið mánudaga—föstu- daga kl. 14—21. Hofsvallasafn Hofsvallagötu 16. Opið mánudaga—föstudaga kl. 16—19. SólheimasafnSólheimum 27, simi 36814. Opið mánudaga— föstu- daga kl. 14—21. Bókabilar bækistöð i Bústaða- safni, simi 36270. Bókin heim Sólheimasafni. Bóka- og talbókaþjónusta fyrir aldraða, fatlaða og sjóndapra. Upplýsing- ar mánudaga—föstudaga kl. 10— 12 i sima 36814. Farandbókasöfn. Bökakassar lánaðir til skipa, heilsuhæla, stofnana o.fl. Afgreiðsla i Þing- holtsstræti 29A, simi 12308. Enúin barnadeild er opin lengur en til kl. 19. Kjarvalsstaðir. Sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarvals er opin alla daga nema mánudaga kl. 16-22. Kvennasögusafn tslands að Hjarðarhaga 26, 4. hæð til hægri. Opið eftir umtali. Simi 12204. Bókasafn Norræna hússinser op- ið mánudaga—föstudaga kl. 14—19, laugardaga kl. 9—19. Ameriska bókasafniðer opið alla virka daga kl. 13—19. Árbæjarsafn er opið eftir umtali við forstöðukonu i sima 84412, kl. 9— 10 f.h. Asgrimssafn er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13.30—16. Aðgangur ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar er opið sunnudaga og miðvikudaga kl. 13.30—16. Nátt úrugr ipasafnið er opið sunnudaga, þriðjudaga, fimmtu- daga og laugardaga kl. 13.30—16. Þjóðminjasafniðer opið 13.30—16 alla daga. Sædýrasafnið eropiðalla daga kl. 10— 19. Handritasýning i Árnagarði er opin þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 14—16 til 20. sept- ember. Árbæjarhverfi: Hraunbær 162 mánud. ki. 3.30—5.00. Verzl. Hraunbæ 102 þriðjud. kl. 7.00—9.00. Verzl Rofabæ 7—9 mánud. kl. 1.30—3.00, þriðjud. kl. 4.00—6.00. Breiöholt: Breiðholtssk óli mánud. kl. 7.15—9.00, fimmtud. kl. 4.00—6.00, föstud. kl. 1.30— 3.00. Hólahverfi fimmtud. kl. 1.30—3.30. Verzl Straumnes fimmtud. kl. 7.00—9.00. Verzlanir við Völvufell þriðjud. kl. 1.30— 3.15, föstud. kl. 3.30—5.00. Háaleitishverfi: Álftamýrarskóli fimmtud. kl. 1.30—3.00. Austur- ver, Háaleitisbraut, mánud. kl. 3.00—4.00. Miðbær Háaleitis- braut, mánud. kl. 4.30—6.15, mið- vikud. kl. 1.30—3.30, föstud. kl. 5.45— 7.00. Holt—Hliðar: Háteigsvegur 2 þriðjud. kl. 1.30—3.00. Stakkahlið 17 mánud. kl. 1.30—2.30, mið- vikud. kl. 7.00—9.00. Æfingaskóli Kennaraskblans miðvikud. kl. 4.15— 6.00. Laugarás: Verzl. Norðurbrún þriðjud. kl. 5.00—6.30, föstud. kl. 1.30— 2.30. Laugarneshverfi: Dal- braut/Kleppsv. þriðjud. ki. 7.15— 9.00. Laugalækur/Hrisat. föstud. kl. 3.00—5.00. Sund: Kleppsv. 152 við Holtaveg föstud. kl. 5.30—7.00. Tún: Hátún 10 þriðjud. kl. 3.30— 4.30. Vesturbær: KR-heimilið mánud. kl. 5.30—6.30, fimmtud. kl. 7.1 5 — 9.00. Skerjafjörð- ur—Einarsnes fimmtud. kl. 3.45— 4.30. Verzl. Hjarðarhaga 47 mánud. kl. 7.15—9.00. fimmtud. 5.00—6.30.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.