Dagblaðið - 10.10.1975, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 10.10.1975, Blaðsíða 6
6 Dagblaðið. Föstudagur 10. október 1975. KAU PMAN N ASAMTÖK ÍSLANDS Kaupmenn athugið: Félag matvörukaupmanna og Félag kjöt- verzlana boða til sameiginlegs félags- fundar að Hótel Sögu, Átthagasal, laugar- daginn 11. október kl. 15. Fundarefni: verðlagsmál. Stjórnirnar. í frystikistuna: Nýtt fyrir húsmœður Glæný ýsuflök, heilagfiski og smálúða. Mikið úrval af öllum hugsanlegum fisk- tegundum. Ýtrasta hreinlæti, f Ijót og góð þjónusta. Opið til kl. 7 í dag og 9-12 á morgun. FISKÚRVALIÐ Skaftahlíð 24 FISKÚRVALiÐ Sörlaskjóli 42. Pöntunarsími 85080 Karatefélag íslands meðlimur i World Union Karate Organization. Fullkomið 6 vikna sjálfsvarnarnámskeið. — fyrir konur: fyrsti flokkur — 25 nem- endur. — fyrir karla: annar flokkur — 25 nem- endur. Við bjóðum upp á eftirfarandi námskeið: 1. Karate 2. Júdó 3. Aikido 4. Ju-jitsu Karte-námskeið fyrir alla aldursflokka, karla og kon- ur:Fyrsti flokkur 30 nemendur. Annar flokkur 30 nemendur. Aðalkennari: Reynir Santos, 3. Dan. Athugið: Tekið verður við greiðslum um leið og innritun fer fram. Innritun fer fram að Vesturgötu 4. Föstud. 10.10. frá kl. 19 til 22, laugard. 11.10. frá kl. 9 til 19 og sunnud. 12.10. frá kl. 10 til 17. Upplýsingar i sima 25860 eftir kl. 19. IKF íslendingur við friðargœzlu í Mið-Austurlöndum „Algengt að fá riffílhlaup í núðsnesið á sér»" Þor Gunnlaugsson skrífar frá Jerúsalem Einn íslendingur er í friðargæzlusveitum Sam- einuðu þjóðanna á óf riðarsvæðunum fyrir botni Miðjarðarhafs, Þór Gunnlaugsson, lögreglu- maður úr Reykjavik. Hann sendi Dagblaðinu nýlega bréf þar sem hann segir lauslega frá lífi og starfi friðargæzlumanna. Bækistöðvar Þórs eru í Jerúsalem, borginni helgu. 1 bréfi hans, sem er skrifað 25. fyrra mánaðar, segir m.a.: Borg dauðans „Ég fór i gær skyndiferð til Beirut, sem er eitt af eftirlits- svæðum okkgr fyrir utan Ismalia, Kairo, Tiberias og Amman í Jórdaniu. Beirút er ein skemmtilegasta borg sem ég hef komið til en nú er hún i orðsins fyllstu merkingu borg dauðans. Sorp er þar á götunum i hundruðum tonna. Innan um sorpið eru lik fórnardýra upp- reisnarmanna, rotnandi. And- rúmsloftið er þrungið rotnunar- lykt. Rottur á stærð við meðal- minka ganga um i sólinni. Hit- inn er oftast um eða yfir 34 stig á Celcius. Borgin hefur verið vatns- og rafmagnslaus i marga daga og hætta á drepsóttum er yfirvof- andi. Maður verður að taka sig vel saman i andlitinu til að horfa upp á þennan hrylling, en ekki er hægt að komast hjá þvi að fara þarna um ætli maður inn i borgina og út úr henni aftur. Kúlurnar á eftir okkur Á veginum frá Beirútigegnum SS AGHmANSl 18 UNAU1H08IUD HRSOKS y CNlREE IHÍERÖilE SAHS ASTSRISAIIOK SEECIAIE x'i't no-ián miox ruuin Þór Gunnlaugsson I einkennisbúningi gæzlusveita Sameinuðu þjóðanna. Syr að landamærum tsraels (Rus—hanikra) eru tugir Shearman-skriðdreka, ca 35—40 tonn að þyngd hver. Ekki er laust við að maður sé var um sig þegar farið er þar um þvi komið hefur fyrir að þeir sendi kúlur á eftir okkur til að láta andúð sina i ljós. Ekki er okkur leyft að hafa meðferðis myndavélar þvi slikt gæti valdið skelfilegum mis- skilningi og jafnvel dauða. t þessi ferðalög förum við stundum ofti viku. Lifið hér i Jerúsalem er við það sama, daglega finnast smá- ar og stórar sprengjur, heima- tilbúnar, viða i borginni og borgarbúar eru vel á verði gagnvart torkennilegum hlutum á almannafæri. Borgarbúar sjálfir eru virkj- aðir gegn óaldarmönnum. Eru þeir settir i hin ýmsu hverfi að næturlagi, samkvæmt skipun stjórnvalda. Þeir ganga um meö vélbyssur i borgaralegum klæðum i ibúðahverfum og fylgjast með hverri hreyfingu. Meö vélbyssuna i bíó Ekki er óalgengt að maður skreppi i kvikmyndahús og hafi þá hermann sér við hiið, vopn- aðan ,,úzzi”-vélbyssu. Skot- hylki eru tekin til vörzlu af dyraverði sem sjálfur er her- maður. Leitað er vel á öllum, bæði i handtöskum og innan- klæða.” I siðara bréfi Þórs Gunn- laugssonar, sem skrifað er tveimur dögum siðar, 27. september, segir hann litillega frá skærum þeim, er orðið hafa i Beirút að undanförnu. Siðan segir Þór: Riffil í miðsnesiö „Þrátt fyrir nýja friðarsamn- inga við Kairo er ekki hægt að segja að þessir höfðingjar séu skemmtilegir viðfangs á landa- mærunum. Þar sem við þurfum að fara um er daglegur við- burður að riffilhlaupi sé stungið upp i miðsnesið á manni til að leggja frekari áherzlu á kröfur um skilriki. Þetta er gert jafn- vel þótt maöur sé i einkennis- búningi Sameinuðu þjóðanna og bifreiðin merkt UN með hvitum stöfum, sem eru svo stórir að þá má sjá úr flugvél i 5000 feta hæð. Fyrir nokkrum vikum skutu egypzkir landamæraverðir á eftir einum trukknum okkar til að láta i ljós andúð sina á SÞ. Kúlan fór i gegnum stálhurðirn- ar eins og þær væru úr pappa og hafnaði i mælaborðinu við tal- stöðina. Það munaði aðeins millimetrum að kúlan hitti bil- stjórann — sem var grannur vexti.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.