Dagblaðið - 10.10.1975, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 10.10.1975, Blaðsíða 19
Dagblaðið. Föstudagur 10. október 1975. 19 Apótek L -, • Kvöld-, nætur- og helgidaga- varzla apótekanna vikuna 10.-17. október er i Laugavegsapóteki og Holtsapóteki. Það apótek, sem fyrr er nefnt, annast eitt vörzluna á sunnudög- um, helgidögum og almennum fridögum. Einnig næturvörzlu fra kl. 22 að kvöldi til 9 að morgni virka daga en kl. 10 á sunnudög- um, helgidögum og almennum fridögum. Kðpavogs Apóteker opið öll kvöld til kl. 19, nema laugardaga er opið kl. 9—12 og sunnudaga er lokað. Apótek Hafnarfjarðar er opið virka daga frá kl. 9-18.30, laugar- daga kl. 9-12.30 og sunnudaga og aðra helgidaga frá kl. 11-12 f.h. Arb'æjarapótek er opið alla laug- ardaga frá kl. 9-12. eru læknastofur lokaðar, en lækn- ir er til viðtals á göngudeild Landspitalans, simi 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfja- búðaþjðnustu eru gefnar i sim- svara 18888. Reykjavik: Lögreglan simi 11166, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100 Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100. Hafnarfjörður: Lögreglgn simi 51166, slökkvilið og sjtikrabifreið simi 51100. Eftirfarandi spil kom nýlega fyrir í keppni i Danmörku. Eftir að norður hafði opnað á einu hjarta runnusuður norður i sex lauf. Vestur spilaði út tigulniu — en austur hafði doblað þegar norður sagði fjóra tigla — keðjusögn sem sagði frá fyrstu fyrirstöðu i tigli. Spilið er skemmtilegt — hvernig hefðir þú spilað i sæti suðurs? 4kK4 VAK10865 ♦ á . ♦ 10542 ▲ DG6 V D743 ♦ KD64 * D7 ♦ Á1093 I9 ♦ G1082 + AKG3 íferð spilarans í suður, þegar spilið kom fyrir, heppnaðist anzi vel. Hann fékk alla slagina þrettán. Tigulás blinds sá um fyrsta útspilið — og litlu laufi spilað á kóng. Þá hjarta á kóng blinds og aftur lauf. Brúnin lyft- ist á suðri þegar drottning aust- urs kom — drepin á ás, og litlu laufi spilað á tiu blinds. Þar með áttu mótherjarnir ekki fleiri tromp. Hjartagosi vesturs féll á hjartaás blinds — og tiunni spil- að. Þegar austur lét litið kastaði suður tigli heima — við munum að hann átti hjartaniuna einspil i byrjun. Nú, tian átti slaginn og við þurfum þá ekki að hafa fleiri orð um spilið. Suður trompaði hjarta og lagði siðan spilin á borðið. Átti það sem eftir var. ▲ 8752 y G2 9753 «986 A skákmóti i Búdapest I ár kom þessi staða upp i skák Farago og Kirov, sem hafði svart og átti leik. Sjúkrabifreið: Reykjavik og Kópavogur simi 11100, Hafnar- fjöröur simi 51100. Tannlæknavakt er í Heilsu- verndarstöðinni við Barónsstig alla laugardaga og sunnudaga kl. 17—18. Simi 22411. Reykjavik — Kðpavogur Dagvakt:K1.8—17 mánud.—föstud., ef ekki næst i heimilislækni, simi 11510 Kvöld- og næturvakt: Kl. 17—08 mánud.—fimmtud., simi 21230. Hafnarf jörður — Garðahreppur Nætur- og helgidagavarzla, upp- lýsingar i lögregluvarðstofunni, simi 51166. A laugardögum og helgidögum Rafmagn: 1 Reykjavik og Kópa- vogi simi 18230. 1 Hafnarfirði i sima 51336. Hitaveitubilanir: Simi 25524. Vatnsveitubilanir: Simi 85477. Simabilanir: Simi 05. Bilanavakt borgarstofnana Sími 27311 Svarar alla virka daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólar- hringinn. Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og i öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnanna. Borgarspitalinn: Mánud.—föstud. kl. 18.30—19.30. La u g a r d . —s u n n u d . kl. 13.30—14.30 og 18.30—19. Ileilsuverndarstöðin: kl. 15—16 og kl. 18.30—19.30. Skákin tefldist þannig: 1.----- Hd8+ 2. Ke2 — Hd6 3. Hxd6 — Hxd6 4. a3 — Bxa3 5. Rxa5 og skákinni lauk með jafntefli. Gat hvitur teflt betur? — Já. Eftir 1. -----Hd8+ 2. Rd4+ hefði hvitur unnið skiptamun og þar með skákina. Grensásdeild: kl. 18.30—19.30alla daga og kl. 13—17 á laugard. og sunnud. Ilvitabandið: Mánud.—föstud. kl. 19—19.30, laugard. og sunnud. á sama tima og kl. 15—16. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15—17 á helgum dögum. Scdvangur Hafnarfirði: Mánu- dag — laugard. kl. 15 — 16 og kl. 19.30— 20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15—16.30. Landspitaiinn: Alla daga kl. 15—16 og 19—19.30. Fæðingar- deild: kl 15—16 og . 19.30—20. Barnaspitali Hringsins:kl. 15—16 alla daga. Fæðingardeild: Kl. 15-16 og 19 30- 20. 1 æðingarheimili Reykjavikúr: Alla daga kl. 15.30-16.30. Kleppsspftalinn: Alla daga kl. 15- 16 og 18.30-19.30. Flókadeild: Alla daga kl. 15.30-17. Landakol: Mánud.-laugard. kl. 18.30- 19.30. Sunnud. kl. 15-16. Barnadeild alla daga kl. 15-16. „Auðvitað áttirðu hóp af aðdáendum áður en við giftum okkur. Pabbi þinn var nú enginn dropa- teljari, þegar hann veitti vln.” Hvað segja stjörnurnar Spáin . gildir fyrir laugardaginn 11. október. Vatnsberinn (21 .jan.-19.feb.): Bréf, dálitið seint á ferð, kemur senn og þú losnar við áhyggjur. Sennilega verður þú beðinn um að sinna einhverri borgara- legri skyldu eða boðið heim til vinar. Fiskarnir (20.feb.-20.marz): Peninga- málin þarfnast umhugsunar. Talaðu hreint út við aðra og komdu málum á hreint. Eitthvað spennandi i ástalifinu framundan. Hrúturinn (21.marz-20.april): Stjörnurn- ar sýna bréf sem ætti að svar. á átundinni. Gefðu ehgin skrifleg loforð fyrr en þú veizt meira um vissa ráðagerð, annars kanntu að iðrast þess. Nautið (2l.april-2l.mai): Hafðu engaV áhyggjur af persónulegu vandamáli. Ræddu það við einhvern þér eldri, sem þú treystir. Þá mundu fá þau ráð sem munu reynast vel. Tviburarnir (22.mai-2l.júni): Einhver breyting i einkalifinu. Þetta er breyting til batnaðar, þótt svo virðist ekki i fyrstu. Merki á lofti um ferðalög og mikil útgjöld. Krabbinn (22.júní-23.júlí): Erfið aðstaða virðist ver að lagast, loksins. Þér léttir ef viss persóna hverfur úr nágrenninu og svo virðist sem hún muni gera það. Ljónið (24. júlI-23. ágús): Ferðalag sýni- legt I dag. Það verður óskað eftir aðstoð þinni við einhvern ókunnugan, sem á i erfiðleikum. Með þessu móti muntu þó i leiðinni öðlast aðdáun einhvers af hinu kyninu. Meyjan (24.ágúst-23.sept.): Fréttir af fæðingu liklegar i dag, og þær munu verða til mikils góðs. Skemmtilegt kvöld fylgir óvæntri heimsókn. Vertu viðbúinn anna- sömum degi eftir morgundaginn. Vogin(24.sept.-23.okt.): Ef þig langar mikið i eitthvað, kann náinn vinur að hjálpa þér. Þér mun ganga vel i félags- lifinu i kvöld og þú munt hafa áhrif á per- sónu af hinu kyninu. Sporðdrekinn (24. okt.-22.nóv.): Vertu á verði i dag, þviað gamansemi þin kann að valda misskilningi. Nokkur merki eru um spennu, sem gæti valdið þér erfiðleikum siðla dags. Bogmaðurinn (23. nóv.-20. des.): Dagur heppni I einkalifinu. Þú ættir nú að endur- skoða framtiðaráætlanir. Margt bendir til þess, að þú ættir að leita sérfræðings. Steingeitin (21.des.-20.jan.): Þér liður betur I dag, ef þú reynir að gera öðrum til geðs. Treystu ekki persónu, sem þú þekkir ekki mjög vel. Peningamál valda nokkrum áhyggjum. Afmælisbarn dagsins: Tilbreytingalitiö ár i flestum atriðum Eftir rólega byrjun ættir þú að verða ofan á i mikilvægu máli Fjárhagurinn ætti að batna. Hinir ógiftu lenda varla i hjóna bandi i ár, en ýmislegt bendir til ásta. T-/2f Taktu þessu rólega, og littu neðst á siðuna!

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.