Dagblaðið - 17.10.1975, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 17.10.1975, Blaðsíða 5
nagblaðið. Föstudagur 17. október 1975. Utvarp Sjónvarpið í kvöld kl. 20,40: Kastljós ÁKVÆÐISVINNUTAXTAR, VERKFALLSRÉTTUR BSRB, KVENNAFRÍIÐ byggingamanna og svo sá þriðji, sem skýrir álit skýrsl- unnar um þróunina, Guðmund- ur Einarsson verkfræðingur. Guðjón Einarsson stýrir um- ræðum. Þá verður rætt um verkfalls- heimild til handa BSRB og veröur Kristján Thorlacius i forsvari og skiptist á skoðunum við fulltrúa frá fjármálaráðu- neytinu, Vilhelm G. Kristinsson stýrir umræðum. Þá fór Guðjón á nokkra vinnu- staöi I Reykjavik og ræddi við konur um kvennafriið þann 24. október, en nú fer óðum að styttast i þann umtalaða dag. EVI. Ákvæðisvinnutaxtar i bygg- ingariðnaðinum verða meðal annars á dagskrá i Kastljósi I kvöld. Nýlega fór fram rann- sókn á þróun byggingariðnaðar- ins i landinu og komu á- kvæöistaxtar mjög til umtals, hvort tekið væri tillit til i þeim hversu verkefnin væru stór og hvemig hagræðingin væri á vinnustað. Rætt var við nokkra hús- byggjendur og framkvæmda- stjóra Breiðholts hf. og fléttast svör þeirra inn i umræðurnar I sjónvarpssal. Þar kemur einn fyrir Meistarasamband bygg- ingariðnaðarmanna, Gunnar Bjönvsson, annar frá Sambandi Föstudagur 17.október 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13,00 Við vinnuna: Tónleikar 14.30 Miðdegissagan: ,,Á fullri ferð” eftir Oscar Clausen. Þorsteinn Matthiasson les (5). 15.00 Miðdegistónleikar. Fil- harmóniusveit Vinarborgar leikur Sinfóniu nr. 3 i D-dúr op. 29 eftir Tsjaikovski; Lor- in Maazel stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphorn. 17.10 Tónleikar. 17.30 Mannlff i mótun. Sæ- mundur G. Jóhannesson rit- stjóri á Akureyri rekur minningar sinar frá upp- vaxtarárum i Miðfirði (9). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.40 Húsnæðis og byggingar- mál. Ólafur Jensson ræðir við Elinu Pálmadóttur, for- mann umhverfismála- nefndar Reykjavikurborg- ar, og Þór Magnússon þjóð- minjavörð um húsfriðun og umhverfisvernd. 20.00 Frá tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar tslands i Há- skólabiói kvöldið áður. Stjórnandi: Alun Francis. Einleikari: Agnes Löve. a. ,,JO”, nýtt verk eftir Leif Þórarinsson. b. Pianókons- ert i A-dúr (K488) eftir Moz- art. c. Sinfónia nr. 3 eftir Schumann. Kynnir: Jón Múli Árnason. 21.30 tJtvarpssagan: „Fóst- bræður” eftir Gunnar Gunnarsson. Þorsteinn ö. Stephensen leikari les (3). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. íþróttir. Umsjón: Bjarni Felixson. 22.40 Afangar.Tónlistarþáttur i umsjá Asmundar Sveins- sonar og . Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. d ^Sjónvarp Föstudagur 17.október 20.00 Fréttir og veður 20.30 Dagskrá og auglýsingar 20.40 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónar- maður Guðjón Einarsson. 21.30 Úr sögu jassins.Sveiflan á Fjórða áratugnum. 1 þættinum verður m.a. rætt við ýmsa fræga jassleikara frá timum „swingsins” s.s. Count Basie, Bennie Good- man, Jo Jones, Lionel Hampton o.fl. Þýðandi Jón Skaftason. 22.05 Skáikarnir Breskur sakamálamyndaflokkur. 12. þáttur. Leyst frá skjóðunni. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.55 Dagskrárlok. ÁNÆGJULEGUR „EINS KONAR JASS"Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ Sjónvarpsþátturinn „Eins konar jass”, sem sýndur var sl. laugardagskvöld, er tvimæla- laust með betri músikþáttum sem sýndir hafa verið I langa tið. Fór þar saman skinandi „pródúsjón” Egils Eðvarðsson- ar — sem virðist á margan hátt ferskastur og smekklegastur „pródúsenta” sjónvarpsins — og ágætur hljóðfæraleikur og flutningur hljómsveitarinnar. Helzti kostur þessa þáttar var látleysi hans, afslappað and- rúmsloft. Hljóðfæraleikurunum leið greinilega vel og þeir virt- ust njóta þess sem þeir voru að gera. Það þarf ekki að fara sérlega dult með þá staðreynd að is- lenzkur jazz er steindauður. Það hefur sannazt á jazzkvöldum sem haldin hafa verið i höfuð- borginni að undanförnu. Má taka sem dæmi jazzkvöld á Loftleiðum nýverið, þar sem allt var eins og undanfarin 10-15 ár: sömu mennirnir spiluðu, sama fólkið hlustaði ásömu lögin Svo hefur virzt sem ungir og áhugasamir jazzleikarar væru ekki til hérlendis. Þeir Halldór Pálsson saxófón- og flautuleik- ari og Erlendur Svavarsson trommuleikari (sem nú er far- inn úr landi og starfar við hljóð- færaleik i Noregi) eru einna lif- legastir og frumlegastir — og það sannaðist skemmtilega á laugardagskvöldið. En félagar þeirra þrir, Pálmi Gunnarsson, Magnús Eiriksson og úlfar Sig- marsson, áttu lika sina góðu kafla og saman — i félagi við nefndan Egil Eðvarðsson — stóðu að þætti sem ástæða er til að þakka fyrir. Þvi ekki að sjá hann aftur? Eða þá annan i svipuðum dúr. —ÓV Sjónvarp Útvarpið í kvöld kl. 19,40: Húsfriðun og umhverf- isvernd — í þœttinum „Húsnœðis- og byggingamól" „Ég er ekki enn farinn að taka þáttinn upp, en ætlunin er að tala um húsfriðun og um- hverfisvernd,” sagði Ólafur Jensson sem sér um þáttinn Húsnæðis- og byggingamál. Ólafur mun ræða við Elinu Pálmadóttur, formann um- hverfismálanefndar Reykja- vikur, og Þór Magnússon þjóðminjavörð sem er for- maður húsfriðunarnefndar á Islandi, en sem kunnugt er þá er þetta ár húsfriðunarár Evrópuráðsins. Ólafur sagði að plaggöt hefðu viða verið hengd upp til að minna á húsfriðunarárið og meiri umræður hefðu verið i fjölmiðlum og manna á meðal um vernd húsa en áður. Fyrir nokkrum dögum var hér staddur Norðmaður sem flutti erindi um þessi mál i Norræna húsinu. Ólafur sagðist myndu vikja talinu að Grjótaþorpi sem nú er mjög i brennidepli. Mikill munur væri á vernd húsa, sem búið væri i, og varðveizlu húsa, svo sem eins og i Arbæn- um. Þá er Bernhöftstorfan sér á parti þar sem ekkert er gert. Væri ekki úr vegi að hugsa sér að þar væri hægt að skapa skemtilegt mannlif i nálægð Menntaskólans og Stjórnar- ráðsins. EVI Þessa mynd tók Bjarnleifur þegar ibúar Grjótaþorps tóku sig til og hreinsuðu til I hverfinu. ELDAVÉLAR 6 litir: Titan — hvít Avocado — græn Kopper — brún Poppy — rauð Marin — blá Antik — gul Gerð HE — 6644 Utanmál. HxBxD 54x58x62 Með eða án klukku og stillirofa fyrir ofn. Verð: Hvit án klukku kr. 55.700. Klukka kr. 10.200. ELDAVÉL með hitahólfi. Gerð E 6644 Frístandandi á hjólum, 90 cm borðhæð. Með eða án klukku og stilli- rofa fyrir ofn. Utanmái: HxBxD = 90x58x62 cm. Verð: Hvit án klukku kr. 66.100 ELDAVÉLASETT Bökunarofn gerð IB-66-4 Helluborð gerð IH-7224. Helluborð gerð IH-6624 Ofn með stafaklukku og stillirofa fyrir ofn. Verð: Hvit sett kr. 73.620 Verð i lit um það bil 12% hærra. KOMIÐ OG SKOÐIÐ Greiðsluskilmálar. Örugg viðgerðarþjón- usta. v/óðinsgötu/ simi 10322 Hafnarfirði Simi 50022

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.