Dagblaðið - 17.10.1975, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 17.10.1975, Blaðsíða 6
6 Pagblaðið. Föstudagur 17. október 1975. HJALLUR H/F Sel brotaharðfisk, mylsnu og þurrkaðan saltfisk nœstu daga HJALLUR H/F Hafnarbraut 6, Kópavogi Opið fró 8—5 virka daga og 1— 5 laugardaga Þetta er ein af mörgum tegundum af hjónarúmum, sem við erum með. Komið til okkar áður en þér kaupið hjóna- rúm, einstaklingsrúm eða springdýnur og athugið gæði og úrval Opið frá kl. 9-7 og laugardaga frá kl. 10-1 'MlMít Springdýnur Heíluhrauni 20/ s: 53044 Hafnarfirði Sænsk borð og stólar í eldhús og borð- stofu. Brún, græn og rauð. GARÐARSHÓLMI Hafnargötu 32, Keflavík. Sími 92 2009 Vinningur i merkjahappdrætti Berklavarnadags 1975 kom á númer 16765 Vinningsmerkinu ber að framvisa i skrif- stofu SÍBS. Suðurgötu 10. KISSINGER UM NIXON: ,HANN VAR ÓEKTA OG SKRÝTINN' Henry Kissingér utanrikis- ráðherra Bandarikjanna hefur óviljandi viðurkennt að honum hafi fundizt Richard Nixon fyrr- um forseti „skrýtinn og óekta”, segir dagblaðið Washington Post. Fréttamaður W-Post sagði að þessi ummæli Kissingers hefðu heyrzt I Ottawa s.l. þriðjudag um hátalarakerfi sem gleymzt heföi að slökkva á og nota átti til þess að flytja ræðu Kissingers til blaðamanna i næsta herbergi við matsal þann er hann snæddi hádegisverð i með rikisstjórn Kanada. Kissinger sagði borðfélögum sinum að forsetinn fyrrverandi „hefði varla getað stjórnað” á meðan á Watergatemálinu stóð. Utanrikisráðherrann sagði að Nixon hefði verið „meö betri forsetum. Svolitið skrýtinn. En hann var mjög ákveðinn. Kom alltaf beint að kjarnanum I öll- um málum”. Kissinger sagði, að Nixon „var mjög óekta maður. Á þann hátt að þegar hann hitti ein- hvern opinberlega var allt þaul- hugsað svo ekkert kom að sjálfu sér frá honum. Honum fannst ekki gaman að hitta fólk og það fór ekki fram hjá neinum”, sagði utanrikisráðherran. 4 Kissinger og Nixon á meðan allt lék.i lyndi. Kissinger hefur allar götur siðan reynt að þvo hendur sinar af samábyrgð með Nixon. Kenía: Jomo Kenyatta herðir tðkin um þinaið Polme boðin ókeypis hœlisvist á Spáni Forstöðumenn taugahælis- ins i Santiago de Compostela á Spáni segja að þeir hafi sent Olof Palme forsætisráð- herra Sviþjóðar skeyti þar sem þeir bjóða honum ókeypis meðhöndlun á hæl- inu. Meðhöndlunin ætti að flýta fvrir andlegum bata Palme. „þjóð hans og allri Evrópu til gagns”, segir I skeytinu. Fyrirstuttu sýndi spænska sjónvarpið myndir frá Svi- þjóð sem sýndu Palme meö safnbauk á götu I Stokk- hólmi. Var hann að safna fé til styrktar fjölskyldum skæruliðanna fimm er teknir voru af lifi á Spáni i siöasta mánuði. Jomo Kenyatta forseti varaði þingheim i Nairobi við þvi að gagnrýnendur stjórnarinnar myndu ekki verða þolaðir. Vara- forseti þingsins og einn af helztu þingmönnunum voru handteknir i gær af óeinkennisklæddum lög- reglumör.num og settir i varð- hald. Eftir handtökurnar hélt Keny- atta ræðu yfir þingheimi og sagði aö svipuöum aðgerðum yrði beitt gegn hverjum þeim þingmanni er ekki styddi rlkisstjórn hans eða stæði I vegi fyrir henni á einhvern hátt. „Fólk virðist hafa gleymt þvi að fálkinn sveimar stöðugt yfir tilbúinn að hremma allt ætilegt”, sagði hann. Til fundarins, sem var lokaður, hafði verið boðað eftir aö Keny- atta hafði lent I mótvindi innan Afrisku þjóðarsamtaka Kenia sem er eini stjórnmálaflokkur þar. Varaforseti þingsins, John Marie Seroney og þingmaðurinn Martin Shikuku voru handteknir á göngum þinghússins i gærkvöldi og opinber tilkynning var gefin út um varöhald þeirra. Þeim var gefið að sök að styðja ekki rikis- stjórnina. MERKIR FORNLEIFA-FUNDIR í ÍRAK Leiðangur sovézkra fornleifa- fræðinga, sem i sjö ár samfleytt hefur stundað uppgröft fornra minja i Irak, hefur fundið ný og áhugaverð atriði I sögu siömenn- ingarinnar, að sögn APN-frétta- stofunnar. Er um að ræöa mörg þúsund ára gamla gripi úr málmi og bvk- ir Sovétmönnunum sem nú hafi sannazt, að röng sé sú skoðun að mennirnir hafi ekki farið að fást við málma fyrr en ca 3500 árum fyrir Krist. — Mennirnir tóku að vinna málma að minnsta kosti þúsund árum fyrr, segir APN. Sérstaklega áhugavert i fundi fornleifafræðinganna eru lík- neski, sex kvennalikneski og tvö dýralikneski. Sovézku visindamennirnir grófu einnig upp nokkra hauga, þar sem ýmislegt markvert kom I ljós. A þessum slóöum hafa hinir dauðu verið grafnir beint undir húsunum i stórum eldhúskerjum. 1 einu kerinu fannst barn. Við fót- gafl kersins var skál með matar- leifum, nokkrum dýrabeinum. Um hálsinn hafði barnið festi með gegnumboruðum skeljum, stein- um og koparkúlum. Þessar kúlur eru helztu konarmunir. sem fund- izt hafa i trak'þar sem áður hét Mesópótamia landið milli Efrat og Tigris. Einnig fannst málmpressa úr kopar og þykir allt þetta, eins og áður segir, benda til þess að maðurinn hafi verið farinn að nota málma — og vinna úr þeim —1000 árum áður en til þessa hef- ur veriö álitiö, að sögn APN. Ný bók fró Solzenitsyn: ,Lenin í Sovézki rithöfundurinn Alex- ander Solzhenitsyn, sem nú býr I útlegð I Ztirich, lét fara frá sér nýja bók I dag. Bókin fjallar um einn frægasta samlanda hans og dvöl hans I borginni og heitir Lenin i Zíirich. Bókin er byggð á ýmsum köfl- um úr triólógiunni miklu, sem rithöfundurinn vinnur að og greinir frá lifi Lenins i útlegð i Zúrich fyrir byltinguna I Rúss- landi 1917. 1 simaviðtali við fréttastofu Reuters sagði Natalya, eigink. skáldsins, að bókin ætti örugg- Zurich' lega eftir að valda miklu fjaðra- foki. Hún hefst á áður óprentuð- um kafla úr „Agúst 1914” og inniheldur einnig kafla úr „Október 1916” og „Marz 1917”, sem höfundurinn hefur enn ekki lokið við. Solzhenitsyn sagði að hann hefði hafið ritun bókarinnar sem er 240 siður áöur en hann var rekinn frá Sovétrikjunum I febrúar 1974 og I henni fjallar hann um Lenin á fremur óþægi- legan hátt sem hann taldi að myndi ekki gleðja sovézka ráðamenn.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.