Dagblaðið - 25.10.1975, Blaðsíða 5
Oagblaðið. Laugardagur 25. október 1975. ^
----------------------------------------------------------------------------------------
TÓMSTUNDIR ERU TIL MARGS GÓÐAR
MYNDLISTIN HEILLAR MARGA
Jóna Finnbogadóttir húsmóðir
einbeitir sér aö lilutateikning-
unni. Já, það getur verið erfitt
að teikna Iitinn hlut.
Ómar Guðmundsson fþrótta-
kennari hefur aðallega áhuga
fyrir tússteikningum.
Halldóri Einarssyni nema i
offsetprenti gengur þolanlega
að festa hlutina á blað.
Þóröi Sigurðssyni finnst verst
að hafa misst af að teikna
stúlkuna, sem var módel, en
hún kemur kannski aftur.
lljá .Magnúsi Guöniundssyni, sem nýlega opnaði blómabúðina
Merkúr á Laugavegi 42, getur maöur orðið margs visari á
uámskeiði sem liann heldur um blómaskreytingar.
DB Mynd Bjarnleifur.
Það er fólk á öllum aldri og úr öllum stéttum sem stundar nám I
myndlist.
lifandi módel heldur en hluti.
Annars hefur hann ekki áhuga
fyrir neinu sérstöku heldur öll-
um þáttum jafnt.
Þetta er tilbreyting —
teikna ekki tennur á
meðan
Þórður Sigurðsson tann-
smiður segir að þetta sé sinn
fyrsti timi, þess vegna hafi hann
þvi miður misst af að teikna lif-
andi módel en von sé til að tæki-
færi gefist til þess seinna á nám-
skeiðinu. „Þetta er tilbreyting.
Ég teikna ekki tennur á
meðan,” segir hann.
Nemendur vilja ekkert segja
okkur um dulda hæfileika eða
hvort við eigum eftir að sjá
myndir þeirra skreyta veggi
einhvers sýningarsalar i
Reykjavik einhverntima i fram-
tiðinni.
Torfi Jónsson kennari segir
okkur að allir hafi hæfileika en
vitanlega á mismunandi svið-
um. Einn sé góður að teikna
módel annar er betri við hluta-
teikningar og sá þriðji hafi bezt
auga fyrir litum. Það sé ótrú-
lega mikils virði að fá góða
undirstöðu, ekki siður i þessu en
til dæmis i reikningi. Betri
dægrastyttingu en teiknun og
málun sé varla hægt aðispreyta
sig á. Þetta, eins og annað, sé
10% hæfileikar og 90% vinna.
Sjónmenntasmekkur
litt þroskaður — hægt
að selja fólki alls konar
drasl.
Torfi benti á að sjónmennta-
srnekkur væri hér litið þroskað-
ur eins og sést á þvi að hægt er
að selja fólki alls konar drasl,
bæði að formi og innihaldi.
Myndlistaskólinn er einnig
með svipuð námskeið. Þar fara
ekki aðeins fram námskeið i
teiknun ogmálun heldur einnig i
almennum vefnaði, myndvefn-
aöi og bókbandi, sem ekki er
siður vinsælt en annað. Menn
byrja þá með 10 óinnbundnar
bækur, sem rifnar eru i sundur
og siðan skornar til og saumað-
ar. Búnar eru til kápur Ur
pappír eða leðri, sem er þó mun
sjaldgæfara. Ýmis tæki þarf til
bókbands, sem fólk leggur ekki i
að kaupa, og kemur það þvi oft á
fleiri en eitt námskeið.
Mikilvægt að tala við
blómin.
„Búðin heitir Merkúrblóm og
dregur auðvitað nafn sitt af
reikistjörnunni Merkúr,” segir
Magnús Guðmundsson, sem
opnað hefur blómabúð að
Laugavegi 42. Raunar selur
hann lika keramik og alls konar
gjafavörur.
„Ég legg áherzlu á að blóma-
skreytingar, sem ég sel, hæfi til-
efninu,” segir Magnús og sýnir
okkur blómaskreytingu sem
hæfir kringlukastara. Neðsteru
brún blóm sem tákna jörðina
sem hann gengur á, bláu kubb-
arnireru krafturinn i kringlunni
og liljurnar efst i skreyting-
unni? Jú, riddarar voru vanir að
mála liljur á skildi sina til forna.
Magnús hefur kennt mikið
alls konar blómaskreytingar
hjá ýmsum félögum og er að
fara af stað sjálfur með nám-
skeið.Og. maður getur orðið þess
visari hvernig á að bjarga blóm-
úm, sem eru að deyja. Ekki sak-
ar að tala við þau, það er meira
að segja mjög mikilvægt. Þá er
fræðsla um að sjá mun á góðum
blómum og slæmum, hvernig
rækta á blóm i heimahúsum og
siðast en ekki sizt hvernig
veizluborð tekur stakkaskiptum
við fallega blómaskreytingu.
Ágætt til að veita
sköpunargleðinni útrás
„Ég hef lært að flosa á nám-
skeiði hjá Þórunni Frans. Það
er mjög skemmtilegt,” segir
húsmóðir ein sem hefur lagt
þetta tómstundagaman fyrir
sig.
Þörunn leggur til allt efni i
myndirnarnema rammann sem
þær eru strengdar á og er um
margskonar myndir að velja,
landslagsmyndir eftirmyndir
af gömlum listaverkum svo sem
Gunnhildur kóngamóðir, Vin-
irnir og Rauði drengurinn, einn-
ig hefur Þórunn gert fyrirmynd-
ir sjálf, t.d. af Surtseyjar- og
Vestmannaeyjagosinu og fengið
kunna islenzka listamenn til að
gera myndir sem nemendur
siðan gera flosmyndir eftir.
Akveðnum verkefnum á að
ljúka fyrir hvern tima svo að
námskeiðið komi að gagni.
Viðmælandi okkar segir þetta
ágætt til að veita sköpunargleði
sinni útrás, auk þess sé miklu
ódýrara að gera listaverk sjálf-
ur en kaupa það. Svo ekki sé tal-
að um ánægjuna af að hafa sina
eigin handavinnu hangandi á
vegg.
Þórunni Frans er ekki fisjað
saman. Hún hélt sina fyrstu
handavinnusýningu þegar hún
var aðeins 13 ára gömul enda
byrjaði hún á þessari tóm-
stundaiðju mjög ung. Nú er svo
komið að hún er i vandræðum
með að koma öllum þessum
hlutum fyrir heima hjá sér og
fær lánaða veggi úti i bæ til að
skreyta.
Gönguferðir geta lika
verið tómstunda-
gaman.
„Það er alltaf viss hópur fólks
sem fer i gönguferðir og þær
verða á döfinni á hverjum
sunnudegi i vetur,” sagði
Tómas Einarsson hjá Ferða-
félagi Islands. Jafnframt
veröur stefnt að þvi að hafa
„Þetta er ennþá skemmti-
legra en ég bjóst við. Já, þetta
er i fyrsta skipti sem ég fer á
svona námskeið.”
Þetta segir Jóna Finnboga-
dóttir húsmóðir, sem er á kvöld-
námskeiði i teikningu og með-
ferð lita i Myndlista- og hand-
iðaskóla Islands, en þangað
sækir fólk á öllum aldri og úr
öllum stéttum.
Jóna hefur aðeins átt við að
mála heima hjá sér og hlakkar
aðallega til að læra meðferð lita
en þegar við litum inn eru allir
önnum kafnir við hlutateikn-
ingar.
„Þetta hefur lengi verið
„hobbi” hjá mér,” segir Ómar
Guðmundsson iþróttakennari,
„en ég hef aldrei lært neitt i
þessum efnum siðan ég var i
skóla.” Hann hefur aðallega
áhuga fyrir tússteikningu.
Halldór Einarsson nemi i
offsetljósmyndun segir að hon-
um gangi þolanlega, þó hafi
honum gengið betur að teikna
Kcnnarinn, Torfi Jónsson,
kennir hópiiuin raunar bara I
lorl'öllum en kennir annars
auglýsingateiknun með Gisla B.
Björnssyni.
stuttar skoðunarferðir um ná-
grenni Reykjavikur á laugar-
dögum, svipaðar og voru fa rnar
með Þór Magnússyni
þjóðminjaverði I kringum
Reykjavik um Alftanes að
Görðum og um Kópavog og
Aðalsteini Sigurðssyni fiski-
fræðingi um Suðurnesið á
Seltjarnarnesi. Var þá gengið á
fjörur og sandmaðkar, skeljar,
flær og mólög skoðuð.
Þátttakendur i svona ferðum
eru á öllum aldri og ekki er óal-
gengt að fjölskyldur leggi land
undir fót með nesti og nýja skó
til að skoða sig um.
Ferðir sem eru næstar á
dagskrá eru gönguferð á Mos-
fell þann 26. október. Þann 2.
nóvember verður gengið inn
með Elliðavatni og um
Heiðmörk. Þann 9. nóvember
fara göngugarpar frá Vifilsfelli
niður að Lækjarbotnum um
Rjúpnadali og Sandfell.
Ekki er farið hratt yfir. Ferð-
irnar taka um 4 tima og miðað
er við að koma heim aftur i
rökkurbyrjun. Alltaf er leiðsög-
maður með.
Útilif hefur lika áætlanir á
prjónunum um gönguferðir i
vetur og fleira. EVI.