Dagblaðið - 07.11.1975, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 07.11.1975, Blaðsíða 1
trialst, áháð daghlað Emmanuelle — ■ r er komin til Islands l.árg.—Föstudagur 7. nóvember 1975 — 50.tbl. 'Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022 Margfalt íslandsmet: RÍKISHALLINN NÁLGAST FJÓRA MILLJARÐA í ÁR Skuld ríkisins við Seðlabankann hœkkaði í síðasta mánuði um 2 milljarða upp í 8 milljarða Gifurlegur og hriðvaxandi halli er i rikisrekstrinum. Skuld rikissjóðs við Seðlabankann óx um tvo milljarða i október, úr 6 milljörðum i 8 milljarða, sam- kvæmt áreiðanlegum heimild- um i Seðlabankanum. Hallinn i rikisrekstrinum er að verða fjórir milljarðar á ár- inu, sem er margfalt meira en áður hefur þekkzt. Fjármála- ráðherra talaði hins vegar um 1270 milljón króna halla i fjár- lagaræðu sinni hinn 28. október. „Skuldin óx anzi mikið i októ- ber,” sagði Jóhannes Nordal seðlabankastjóri i morgun. Hann kvaðst ekki vilja staðfesta framangreindar tölur en hafn- aði þeim ekki. Hann sagði, að áætlanir breyttust stundum hratt. Jó- hannes Nordal svaraði neitandi spurningu blaðamanns um það, hvort reynt hefði verið að gera minna úr hallanum en rétt er til að auðvelda lántökur erlendis. —HH HUS BRANN OG HRUNDI í EYJUM í NÓTT — sjá baksíðu VONIR FRIÐRIKS VAXA ENN ,,Nú, hann lék þá þessu. Þvi hafði ég ekki búizt við. Hverju svarar hann, ef hinn leikur svona?’ Svona spyrja áhorfendur sjáifa sig og hver annan á skákmótinu — og spennan er óskapleg. — Sjá bls. 18 26. dauðaslysið í umferðinni á árinu 71 ARS KONA LET LIFIÐ I MORGUN Var á gangbraut á leið yfir Miklubraut Kona, 71 árs að aldri, lét lifið i umferðarslysi á Grensásvegi i morgun. Er þetta 26. dauða- slysið i umferðinni það sem af er þessu ári. Konan var á leið fótgang- andi yfir gangbraut á Miklu- braut austan Grensásvegar. Var hún á leið að strætis- vagnastöð þarna skammt frá. Volkswagen bifreið var i sömu mund ekið vestur Miklu- braut. ökumaður kveðst hafa ekið yfir á grænu ljósi og ekki séö til ferða konunnar eða orð- ið hennar var fyrr en i þeirri andrá sem hún skellur á hægra framhorni bilsins. Kastaðist konan siðan upp á bilinn og við það brotnaði framrúðan. Barst hún siðan með bilnum yfi.'öli gatnamótin og lá á gangbraut vestan gatnamótanna er öllu var lok- ið. Billinn er stórskemmdur eftir. Konan var látin er komið var með hana i slysadeild Borgarspitalans. A blaðsiðu 2 er sagt frá 25. dauðaslysinu i umferðinni, en það varö úti á landi. ASt. — sjá bls. 4 Óstöðvandi íslendingar — Ólafur H. Jónsson og Axel Axelsson fá frábœra dóma í þýzkum blöðum — íþróttir í opnu Pelican verður fjögurra manna hljómsveit! Sjá popp bls. 14-15 BAT HVOLFDI - EINN FÓRST - BAKSÍÐA

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.