Dagblaðið - 07.11.1975, Blaðsíða 6
6
Hagblaðið. Föstudagur 7. nóvember 1975.
Whitlam að sigra
í valdabaráttunni
miklu í Ástralíu
Oougli Wliillam lorsætisráð-
lierra.
Gough Whitlam, forsætisráð-
herra Ástraliu, virðist vera um
það bil að sigra i þeirri valda-
baráttu sem farið hefur fram i
landinu að undanförnu. Hann
hefur nú neitað tilboði frá Mal-
colm Fraser, leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar i Canberra, um að
binda enda á þá stjórnmála-
kreppu sem geisað hefur i land-
inu vegna valdabaráttu þeirra
tveggja.
Fraser bauðst til að hætta
stöðvun f járlagafrum varps
stjórnarinnar gegn þvi að Whit-
lam lofaði að halda kosningar á
miðju næsta ári. Whitlam neit-
aði.
Fraser lagði fram tilboð sitt
eftir að hann hafði átt fund með
landsstjóranum, Sir John Kerr.
Skrifstofa forsætisráðherra
sendi frá sér yfirlýsingu eftir að
tilboð stjórnarandstöðuleiðtog-
ans var komið fram, þar sem
sagði að stjórnin vildi fullvissa
þjóðina um að „stjórnmálaleg
vandamál liðandi stundar eigi
að leysast i þinginu, ekki með
samningamakki i bakdyrum”.
David Solomon, blaðafulltrúi
forsætisráðherrans, sagði
skömmu siðar á fundi með
fréttamönnum: ,,Ef þið efizt
eitthvað um þýðingu þessarar
yfirlýsingar, herrar minir, þá er
hún hrein neitun á tillögu hr.
Frasers.”
Undir stjórn Frasers hefur
stjórnarandstaðan i öldunga-
deildinni tvisvar neitað að sam-
þykkja fjárlagafrumvarpið
vegna þeirrar afstöðu forsætis-
ráðherrans, að vilja ekki efna til
almennra þingkosninga þegar i
stað.
Fraser sagði eítir fund sinn
með landsstjóranum að hann
væri enn þeirrar skoðunar, að
Whitlam hefði farið inn á hættu-
Malcolm Fraser leiðtogi
stjórnarandstöðunnar.
lega braut þegar hann lýsti þvi
yfir um sl. helgi, að stjórn hans
myndi sitja sem fastast og hót-
aði jafnframt að nota ótil-
greindar „löglegar aðferðir” til
að útvega fjármagn til stjórnar-
rekstursins — án samþykkis
þingsins.
TaliðeraðWhitlam hafi ætlað
að afla lánsfjár erlendis til
reksturs rikisins. Þaðhefur þó
ekki fengizt staðfest.
Portúgal fœr
EFTA-stuðning
Hentugur stóll skiptir jniklu
um heilsu yðar og vellíðan.
I.itiö inn, sjón er sögu rikari. Opið á laugardögum kl. 10—12.
Landsins bezta úrval og þjónusta.
Framleiðandi:
STÁLIÐJAN H.F.
usgogn
Grensásvegi 7.
S. 83360.
Aðildarlönd Friverzlunar-
samtaka Evrópu - EFTA —
hafa komizt að grundvallar-
samkomulagi um að setja á
stofn 100 milljón dollara (16.6
milljarða isl. kr.) sjóð til
stuðnings við portúgalska
iðnaðaráætlun.
Aðildarlönd samtakanna
hafa einnig ákveðið að veita
Portúgal lengri aðlögunar-
tima á innfluttum tollavörum.
Iðnþróunarsjóðurinn til
handa Portúgai verður
notaður til að fjármagna
einstök verkefni og smærri
iðnfyrirtæki i Portúgal á
næstu fimm árum.
H.H. hvíldarsfóllinn hœgt að
leggja niður bakið.
TR einmg an arma
Hótun USA um oð hœtta í ILO:
„Hœttum — en
hœttum þó ddd"
Bandaríkjastjórn tilkynnti í gær formlega að hún
hefði í huga að hætta þátttöku í starfi Alþjóða verka-
lýössambandsins ILO. Jafnframt sagði í bréfi
stjórnarinnar að hún gerði sér vonir um að þurfa
ekki að taka þetta skref.
NIGERIUMENN LEYSA
SEMENTSVANDAMÁLIÐ
í fimm siðna bréfi frá Henry
Kissinger utanrikisráðherra
Bandarikjanna til höfuðstöðva
ILO i Genf sagði að jafnvel þótt
Bandarikjastjórn hefði hafið
undirbúning þess að hælta þátt-
töku i störfum ILO, þá „er það
ekki samkvæmt vilja okkar og
við búumst ekki við að svo
verði.”
Bandarikjamenn hafa hingað
til aldrei hætt störfum i stofnun
Sameinuðu þjóðanna. 1 stofn-
skrá ILO segir að aðildarriki
verði að tilkynna með tveggja
ára fyrirvara um úrsögn sina.
Óánægja Bandarikjamanna
með starfsemi ILO hefur verið
megn á undaníörnum misser-
um. Sú óánægja náði hámarki i
júni sl. þegar ársþing ILO sam-
þykkti að veita áheyrnarfulltru-
um samtaka Palestinuaraba
(PLO) aðild að samtökunum.
Nigeriskar hafnir, sem nú eru
yfirfullar af sementsskipum, ættu
að vera orðnar tómar og opnar
eftir sex mánuði, sagði
kRom*
HÚSQÖQ
Konur og karlar
samgöngumálaráðherra Nigeriu,
Shehu Yaradua, undirforingi, i
samtali við fréttamann Reuter-
fréttastofunnar i London i gær.
Nigeriumenn hyggjast endur-
skipuleggja innflutning á sementi
og auka á hafnaraðstöðu, þannig
að hægt verði að taka á móti
sementinu á fleiri en einum stað.
Tugir skipa, fullhlaðin sementi,
blða nú á ytri höfninni i Lagos.
Skipin komu til landsins eftir að
stjórnarstofnanir höfðu pantað og
gert samninga um kaup á 20
milljón tonnum af sementi.
Sérstök rannsóknarnefnd hefur
verið sett á laggirnar til að kanna
hvers vegna allt þetta sement
hafi verið pantað þegar engin
aðstaða var til að taka á móti þvi.
Ráðherrann sagði að móttöku-
aðstöðu yrði komið upp i hafnar-.
borgunum Port Harcourt og
Warri — auk Lagos — og með þvi
að leigja þrjú smærri skip, þá
væri hægt að flytja 24 þúsund tonn
á dag til lands. Með þvi að taka
tillit til regntimabilsins, þá gætu
þessir flutningar tekið sex
mánuði.
Aðeins tvær milljónir tonna
hafa verið fluttar til lands enn
sem komið er. Aðrar tvær
milljónir tonna biða I skipum úti
fyrir ströndinni — og hvorki
meira né minna en 16 milljón tonn
eru á leiðinni.
Helmingur þess kemur á næstu
þremur árum, að sögn ráð
herrans. Greindi hann einpig frá
þvi að samningaviðræður hefðu
verið teknar upp við um það bil
áttatiu sementsframleiðendur
um afpöntun á sementinu og
skaðabætur til þeirra vegna þess.
—100 skip, sem ekki fylgdu sett-
um reglum, verða ekki afgreidd,
sagði ráðherrann.