Dagblaðið - 07.11.1975, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 07.11.1975, Blaðsíða 2
2 Pagblaðiö. Föstudagur 7. nóvembcr 1975. Viðskiptakjörin við útlönd: Komumst enn ekki úr úlfakreppunni — þrátt fyrir hœkkun á mjöli, lýsi og freðfiski Illa gengur að ná bata á okkar löku viðskiptakjörum við út- lönd. Þótt verðhækkun hafi orð- ið á mjöli, lýsi og freðfiski sem við seljum útlendum, kemur á móti verðhækkun sem búast má við á innflutningi. „Fátt bendir þvi til þess að viðskiptakjörin séu að batna, en kannski eru þau heldur ekki aö versna,” sagði Ólafur Daviðsson, hag- fræðingur i Framkvæmdastofn- un, i viðtali við Dagblaðið i gær. Viðskiptakjörin versnuðu nokkuð á öðrum fjórðungi árs- ins eftir að þau höfðu versnað mikið á fyrsta fjórðungi. Það, sem vitað er um breytingar á þriðja fjórðungi ársins, gefur til kynna að kjörin séu mjög svip- uð. Breytingin er litil, og það sem er, liklega heldur til hins verra. Verð á útflutningi lækk- aði fremur'en hitt á þriðja árs- fjórðungi, en innflutningsverð hækkaði þá heldur ekki svo að heitið gæti. Verð á saltfiski lækkaði til dæmis nokkuð á þeim ársfjórðungi, það er að segja um mitt árið. Breyting, sem varð á gengi i september þegar dollar hækk- aði, var hagstæð fyrir verð á innfluttum vörum þar sem gengi gjaldmiðla rikja sem við kaupum mikið af lækkaði þá nokkuð gagnvart krónu. Þetta hefur áður komið fram hér i blaðinu. Siðasta breytingin, hækkun á verði nokkurra út- flutningsvara okkar, hefur ekki dugað til þess að við gætum snú- iðvöm i sókn á þessu sviði efna- hgsmála sem kannski er hið allra mikilvægasta fyrir okkur á „krepputimum”. —HH QcrcrajHQ Ef þú byrjar aö reykja feröu út á mikla hættubraut. Þad flan gæti endað með þvi aö þú yröir háöur súrefnishylki, eins og sumir lungnasjúklinganna á islenzkum sjúkrahúsum. Þeir ætluöu aldrei aö falla fyrir sigarettunni, en hún náöi aó menga svo i þeim lungun aö þeir ná ekki lengur nægu súrefni úr andrúmsloftinu og veröa aö draga andann úr súrefnishylki, sem þeir þurfa aö hafa meó sér hvert sem þeir fara. Hugsaóu máliö til enda. Reyktu aldrei fyrstu sigarettuna. SAMSTARFRWFFMn IIM RFVlílKm amadmid Peningaveski stolið Hún var sannarlega ekki hepp- in, bóndakonan af Vestfjörðun- um, sem kom á dögunum i inn- kaupaleiðangur til höfuðborgar- innar. Peningaveskinu hennar með hundrað og fimmtiu þúsund krónum var stolið á meðan hún mátaði föt i Hagkaupi við Lauga- veginn. Atburður þessi átti sér stað á þriðjudaginn rétt fyrir lokunar- tima verzlunarinnar. Konan skildi tösku sina eftir i tösku- geymslunni, en tók peningaveskið með sér. Vinkona hennar, sem var með i förinni, geymdi veskið á meðan konan mátaði, en lagði það frá sér smástund. Þegar til átti að taka var veskið horfið. t veskinu voru um 120.000 krón- ur i peningum og ávisun upp á 15.640 krónur frá Búnaðarbank- anum i Búðardal. Þessi stuldur kemur konunni ákaflega illa. Arsiaun bóndakonu eru nú reiknuð 170.000, svo að hana munar um eyrinn. Þeir sem kynnu að geta gefið einhverjar upplýsingar um þjófnað þennan eru beðnir um að snúa sér til rannsóknarlögreglunnar. —AT Styðja INSÍ Aðalfundur Iðnnemafélags Suðurnesja hefur sent frá sér samþykkt þar sem fundarmenn lýsa yfirfullum stuðningi við þær aðgerðir Iðnnemasambands Is- landssem fram hafa farið til þess að opna augu ráðamanna fyrir nauðsyn aukins fjármagns til verkmenntunar: „Fundurinn lýs- ir furðu sinni á þvi tómlæti, sem stjórnmálamenn hafa sýnt þessu mikla hagsmunamáli þjóðarinn- ar að eignast góða iðnaðarmenn. Ennfremur leggur fundurinn á- herslu á aö meistarakerfiö er orð- ið algjörlega úrelt og til þess eins fallið að stöðva iðnþróun á Is- landi,” segir ennfremur i sam- þykktinni. HP Umferðin: 25. banaslysið Lézt í bílveltu í Tálknafirði Banaslys varðá Tálknaf jarðar- vegi i fyrrinótt. Frambyggð jeppabifreið valt út af veginum, skammt frá vegamótunum til Bidudals og varð ökumaður hennar, Sigurður Hjörtur Stef- ánsson undir henni. Mun hann hafa látizt samstundis. Allmikil ising var á veginum og þar sem bifreiðin rann út af er vegkantur- inn um 5 metra hár. Sigurður var verkstjóri við nið- ursetningu véla i rafstöð Raf- magnsveitna rikisins i Tálkna- firði og hafði komið til Patreks- fjarðar i fyrradag. Hann var tæp- lega 33ja ára, til heimilis að Skólagerði 61 i Kópavogi og lætur eftir sig konu og tvö börn. —HP lllaðan cr orðin tvilyft meö gagnsæju plastþaki. Teikningar gerði Vífill Magnússon arkitekt. Db-mynd Ragnar Sig. Blómabúð í f jósi, hlöðu og súrheysturni Sérkennileg verzlun í gamla Breiðholtsbœnum Sérkennileg en glæsileg blómaverzlun verður opnuð i Breiðholtsbænum á morgun. Það er Gróðrarstöðin Alaska sem búðina rekur, en Alaska hefur verið með gróðrarstöð i Breiðholtslandi undanfarin ár. Búðin sem nú verður opnuð er rekin i fjósi, hlöðu og súrheys- turni gamla Breiðholtsbæjarins eftir að umfangsmiklar breyt- ingar hafa verið gerðar á hús- næðinu. Búðin verður rekin með sér- stöku sniði. Blómabúðin er á tveimur hæðum i hlöðunni, einkar snoturlega útbúin. Þar verða allar tegundir blóma og jurta auk kerta, gjafavöru og keramikshluta ásamt fleiru. 1 fjósinu verða einnig alls kyns blóm og stærri jurtir en þar verða jafnframt haldnar ýmiss konar sýningar. Við opn- unina nú verður Glit með sér- staka sýningu og verður renni- bekkur á staðnum svo sýna megi hvernig framleiðslan verður til. Þá verður og sett upp mál- verkasýning i fjósinu og þar sýnd allmörg verk eftir Jón Haraldsson. Verzlunarstjóri nýju Alaska- búðarinnar verður Aad Groene- weg en þar koma til með að starfa 4—6 manns. Þetta er fyrsta blómabúð Breiðholts og gróðrarstöðin verður rekin áfram eins og verið hefur. ASt Landspítalinn: ENGIN FJÖLGUN Á FÓSTUREYÐINGUM „Ekki hefur orðið nein fjölgun á fóstureyðingum siðan nýju lögin gengu i gildi,” sagði Sig- urður Magnússon, yfirlæknir kvensjúkdómadeildar Landspit- alans i viðtali við blaðið. „Að visu höfum við ekki neinar tölur handbærar ennþá, en við höfum ekki talið að aukning hafi orðið, þrátt fyrir rýmkun þá á reglum um fóstureyðingar er lögin höfðu i för með sér.” Sagði Sigurður að fóstureyð- ingar væru nú framkvæmdar á öllum spitölum á landinu. en aðeins á Landspitalanum fyrir þær konur sem búsettar eru hér. 1 þessu sambandi má geta að þróun þessara mála hefur orðið ailmjög á annan veg á Norður- löndunum. Þar hafa fóstureyð- ingar stóraukizt og hafa jafnvel verið framkvæmdar tvisvar — þrisvar á sömu konunni. Hafa læknar þar kvartað yfir þvi, að svo virðist sem margar konur noti þennan möguleika sem getnaðarvörn og væri þar alvar- legur misskilningur á ferðinni. —IIP

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.