Dagblaðið - 07.11.1975, Page 14
14
Pagblaðið. Föstudagur 7. nóvember 1975.
r
CABARET
— ein efnilegasta
hljómsveitin
í langan tíma
Nýlega fór hljómsveitarnafnið
Cabaret að sjást i auglýsingum
skemmtistaðanna. Hljómsveitin
er þó ekki ný af nálinni, — hún var
stofnuð fyrir þremur mánuðum.
Meðlimirnir fóru sér þó hægt i
byrjun og vönduðu vel til æfing-
anna.
Óbeint má rekja fæðingu
Cabarettsins til hræringanna sem
mynduðust er Paradís var
stofnuð, en þá leystist hljóm-
sveitin Ernir upp vegna Péturs
kapteins Kristjánssonar. Tveir af
meðlimum Arna, þeir Sveinn
Magnússon, og Ingólfur Sig-
urðsson, hóuðu þá saman i hljóm-
sveit, og útkoman var ,,dúndur-
grúppan” Cabaret.
Þrátt fyrir að stutt sé siðan þeir
félagar hófu að koma fram opin-
berlega hafa þeir þegar getið sér
mjög gott orð fyrir skemmtilega
tónlist. Meira en helmingurinn af
efnisskrá þeirra er þeirra eigin
tónsmiðar. Það virðist þó alls
ekki há hljómsveitinni, nema
siður sé, þvi að hún hefur tveimur
góðum tónsmiðum á að skipa.
Tónlistina, sem Cabaret leikur,
vilja meðlimirnir flokka undir
„léttjazzaða soulfeeling”, en
enginn þarf að láta sér verða
bumbult af þeirri skilgreiningu.
Sviðsframkoma þeirra félaganna
er með liflegra móti, og setja ljós-
kastarar, sem þeir stilla upp,
skemmtilegan svip á sviðið.
Hljómsveitina Cabaret skipa
eftirtaldir:
Tryggvi Július Hubner gitar-
leikari, sem kemur úr Stofnþeli;
Ingóifur Sigurðsson trommu-
leikari, úr örnum; Magnús
Finnur Jóhannsson, söngvari úr
Stofnþeli; Valgeir Skagfjörð
pianó- og mogleikari, sem áður
lék með Hafróti, og Sveinn
Gliturmennin
tróno efst
Toppurinn á brezka vinsældalistanum i þessari viku er afskap-
lega glansandi. David Bowie og Roxy Music tróna þar efst með
glitur og glæsibrag sem á ekkert skylt við tónlist en er þó afar
dæmigert fyrir ástandið i hinum alþjóðlega rokkheimi nútimans
þar sem allt fæst fyrir peninga.
Athygli vekur að Glen Campbell — fyrrum einn leiknasti
session-gitaristi Bandarikjanna — rýkur úr 13. sæti upp i 5. með
lagið „Rhinestone Cowboy” og þykir ýmsum nafn lagsins vel við
hæfi.
Þá er og vert að geta þess að Esther Phillips, sem er i 8. sæti i
London með lagið „What A Difference A Day Makes”, varð fyrst
vinsæl á krám og litlum klúbbum i Bretlandi fyrir rúmlega fjöru-
tiu árum.
ENGLAND
1. (1) Space Oddity.......................David Bowie
2. (7) LovelsTheDrug......................Roxy Music
3. (2) I Only Have Eyes For You ........ArtGarfunkel
4. (3) Feelings.........................MorrisAlbert
5. (13) RhinestoneCowboy.................GlenCampbell
6. (8) What A Difference A Day Makes ....Ester Phillips
7. (5) S.O.S....................................Abba
8. (12) Hold Back The Night...................Trammps
9. (10) Don’t Play Your Rock And Roll To Me....Smokey
10. (4) There Goes My First Love..............Drifters
BANDARÍ KIN
1. (2) Island Girl..........................EltonJohn
2. (1) BadBlood............................NeilSedaka
3. (3) TheGames PeoplePlay...................Spinners
4. (5) Miracles.......................Jefferson Starship
5. (6) Low Rider..................................War
6. (4) Lyin’Eyes ............................ Eagles
7. (9) HeatWave.........................Linda Ronstadt
8. (13) Fly, Robin, Fly ..............Silver Convention
9. (7) WhoLovesYou ...................The Four Seasons
10. (11) TheWay I WantToTouch You .The Captain And Tennille
i Þýzkalandi er „S.O.S.” i efsta sæti, i Hollandi lagið „Morning
Sky” með George Baker Selection, og gamla góða „Love Will
Keep ,Us Together” er efst i Hong Kong. —ÁT/ÓV.
CABARET: frá vinstri Valgeir Skagfjörð, Tryggvi Hubner, Sveinn Magnússon, Ingólfur Sigurðsson og
súpersöngvarinn Magnús Finnur Jóhannsson. PB-mynd — Björgvin Pálsson.
Magússon, bassaleikari úr
örnum. Þeir Ingólfur og Valgeir
sjá um tónsmlðar hljómsveitar-
innar.
Allir eru þessir menn hinir
beztu hljóðfæraleikarar, en ef
nefna ætti einn öðrum fremri
mætti helzt nefna Magnús Finn
söngvara. Hann má hiklaust telja
eitt mesta efni sem hefur komið
fram á sjónarsviðið á siðustu
árum. Rödd hans er með afbrigð
um áheyrileg og sviðsframkoman
með ágætum. Ég spái þvi að
margir eigi eftir að öfunda
Cabarettinn af þeim söngvara.
—ÁT
Pelicon verður 4
monna hljómsveit!
„Höldum öllum möguleikum opnum/'
segir Ómar Óskarsson
„Við höfum ákveðið að vera
bara fjórir og sjá sjálfir um
söngirm. Þar til við höfum æft
hljómsveitina vel upp verður
Herbert með okkur áfram.”
Svo fórust orð Ómari
Óskarssyni, gitarista Pelican,
þegar fréttamaður blaðsins
ræddi við hann i gær Hann bætti
við: „En að sjálfsögðu eru allir
möguleikar opnir á að við
tökum inn söngvara, ef góður
maður býðst.þá gjarnan maður
sem einnig getur gripið i hljóð-
færi.”
Um brottför Herberts
Guðmundssonar úr hljóm-
sveitinni sagði Ómar að aug-
ljóslega hefðu þeir félagar gert
mistök i upphafi þegar hann var
ráðinn. Aðdáendur hljóm-
sveitarinnar hefðu aldrei fellt
sig almennilega við þessa
ráðstöfun, sem auk þess hefði
ekki borið þann árangur, sem
vænzt hefði verið.
„Við erum allsendis óhræddir
að halda fjórir áfram,” sagði
Ómar og brosti breitt, „enda
hefur þessi kjarni alltaf verið
sterkasta hlið hljómsveitar-
innar. Við Jonni (ólafsson
bassaleikari) munum skipta
söngnum bróðurlega á milli
okkar,ogeinnig getur vel komið
til greina að Björgvin (Gislason
gitar- og hljómborðsleikari)
taki lagið við og við ef honum
býður svo við að horfa.”
Brottför Herberts úr hljóm-
sveitinni kom þvert ofan i yfir-
lýsingu Pelican i Dagblaðinu
fyrir viku þess efnis að engar
breytingar á hljómsveitinni
væru fyrirhugaðar. „Ætli
maður neyðist ekki til að skýra
það einfaldlega sem ótimabært
frumhlaup, ” sagði Ómar
Óskarsson um þá yfirlýsingu.
„Allavega erum við allir mjög
sáttir með skipan mála eins og
hún er i dag.”
—óv
Pelicanar loks lausir við áhyggjur af söngvaramálum sinum : Jón Ólafsson, ómar Óskarsson, Björg- ,
vin Gislason og Asgeir óskarsson. DB-myndir, BP.
Harðnandi samkeppni í íslenzkri plötuútgófu:
Um 20 ísl. hljómplötur út fyrir jól
Eik kynnir
plötu sína
í Tónabœ
Þegar allt er tint til má búast
við að um 20 islenzkar hljóm-
plötur verði á markaðinum nú
fyrir jólin og er það um helm-
ings aukning frá þvi i fyrra.
Fáar plötur, en góðar, hafa
komið út það sem af er þessu ári
og hafa þær selzt vel. Stuðmenn
eru i um 7000 eintökum, Lonli
Blú Boysi kringum 6000og plata
Gylfa Ægissonari yfir 3000 ein-
tökum.
Gæðum hljómplatna hefur
fleygt fram hér að undanförnu
með tilkomu þeirra tveggja
studióa sem eitthvað eru, og auk
þess eru framleiðendur farnir
að vanda pressun þeirra að
mun, sem er mikil framför.
Það er hins vegar augljóst að
fullmikil bjartsýni rikir hjá út-
gefendum hijómplatna að telja
að allar þessar 20 plötur seljist
að ráði. Áður var þetta svo að
allar plötur, sem gefnar voru út
á islenzku, seldust og seldust
yfirleitt vel. Þá var ekki úr
neinu að velja og flestir vildu
eignast plötur með islenzkum
hljómsveitum og listamönnum.
Nú er hins vegar hætt við að fólk
hafi ekki ráð á þvi að kaupa
obbann af islenzkum plötum,
sem gefnar verða út, og er lik-
legt að það komi hart niður á
þeim hljómsveitum og lista-
mönnum sem óþekktari eru og
nota þurfa mikla peninga i aug-
lýsingar. Um 1000 eintök þurfa
aö seljast til þess að standa und-
ir kostnaði, en það er auðvitað
misjafnt. Sumir hafa unnið sin-
ar plötur á tiltölulega stuttum
tima hér heima og sleppa senni-
lega vel, en aðrir — og jafnvel ó-
þekktar hljómsveitir — hafa
farið til Ameriku og London og
tekið þar upp með ærnum til-
kostnaði.
Er þvi liklegt að bilið milli
þeirra, sem vel seljast og eru
gamli’r i hettunni, og hinna, sem
nýrri eru, verði. enn stærra en
fyrr. Er það skaði þvi það kem-
ur ennþá betur i veg fyrir að ný-
ir kraftar komi fram. —HP
Hljómsveitin Eik mun kynna
nýútkomna hljómplötu sina i
Tónabæ annað kvöld þar sem
hljómsveitin leikur. fyrir dansi.
Verður það i fyrsta skipti sem
lögin af tveggja laga plötunni
„Hotel Garbage Can" / „Mr.
Sadness” verða leikin opinber-
lega af hljómsveilinni sjálfri.
Nánar verður greint frá plötu
Eikar — auk nýútkominna
tveggja laga platna Megasar og
Bjarka Tryggvasonar— i blaðinu
á miðvikudaginn. —ÓV.
V