Dagblaðið - 21.11.1975, Qupperneq 10
10
Dagblaðið. Föstudagur 21. nóvember 1975
„...EKKI SITJA Á SÍNUM
DDEIfl A 11 — segir óánœgður
DHfclVH WW • • • Fáskrúðsfirðingur
Fáskrúðsfjörður í vetrarskrúða. Ljósm. Mats Wibe Lund jr.
Hefurðu yfirleitt áhuga á land-
helgismálinu?
Þórarinn Magnússon afgreiðslu-
maður á Klaustri: „Flestir hafa
það nú, ekki sizt þegar eitthvað
er að gerast I þeim málum eins og
nú.”
Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjala-
vörður: „Ég hef áhuga á þvi, sér-
staklega eftir að upplýsingar
fiskifræðinga um ástand sjávar-
Utvegs komu fram.”
Óánægður Fáskrúðsfirðingur
skrifar:
„Héraðslæknirinn okkar hér á
staðnum hefur verið „vinsæll”
meðal dagblaðanna. Sér i lagi
hafa Dagblaðið og Morgunblað-
ið verið iðin við ósmekklegan
fréttaflutning.
Þvi hef ég verið að velta fyrir
mér hvað þessi blöð meina með
þessu — það virðist sem blöðin
forðist að minnast á það sem
máli skiptir — aðeins aukaat-
riði. Eru þessi blöð að reyna að
bola lækninum frá? BæjarbUar
eru afskaplega ánægðir með
þennan mann og við álitum
hann ekki eiga slikt skilið.
Við höfum haft tannlækni hér
— en þvi miður hætti hann i
sumar. NU stendur tannlækna-
stofan ónotuð. Skyldi læknastof-
an standa jafnlengi ónotuð — ef
læknirinn færi frá?
Svo ég vendi minu kvæði i
kross — framkvæmdir hrepps-
ins. Hér eru sjö manns i hrepps-
nefnd og allir mættu þessir
menn á fjölmennum framboðs-
fundi i vor — að sjálfsögðu hver
með sin loforð upp á vasann.
Hér átti að byggja barna- og
elliheimili — koma upp léttum
iðnaði handa öldruðum og halda
einn opinn hreppsnefndarfund á
ári.
Mörgum góðum FáskrUðs-
firðingnum beinlinis vöknaði
um augu undir öllum þessum
fallegu loforðum — hvilikt
bæjarfélag átti FáskrUðsfjörður
að verða — slikt þekktist áreið-
anlega ekki á öllu Islandi. Allir
myndu lita til Fáskrúðsfjarðar
og segja: Þetta gátu þeir fyrir
austan. Dugnaðarfólk sem
byggir FáskrUðsfjörð.
En nú er ég hræddur um að
tárin séu farin að þoma. Fá-
skrúðsfjörður er ennþá bara
tæplega miðlungsgott bæjarfé-
lag — fólk litur ekki austur og
segir: þetta gátu þeir.
Sparisjóður FáskrUðsfjarðar
gaf hreppnum á sinum tima á-
litlega peningaupphæð til bygg-
ingar iþróttavallar. Hvað hefur
skeð — er ekki glæsilegur
iþróttavöllur kominn — ó, nei.
AkkUrat ekki neitt.
Nokkrir ágætir múrarar buðu
hreppnum vinnu sina til bygg-
ingar barnaheimilis gegn vægu
gjaldi en hreppsnefndin hefur
ekki séð ástæðu til að nota sér
þetta virðingarverða íramlag
iðnaðarmannanna.
Fáskrúðsfirðingar! Við verð-
um að veita hreppsnefndinni
meira aðhald. Það er ekki nóg
að muna eftir hreppsnefndinni
þegar menn opna launaumslög-
in sin. Þetta fólk er kosið til að
framkvæma hluti — byggðar-
laginu til hagsbóta — en ekki
sitja á sinum breiða og....”
KOKHREYSTI
HREPPS-
FÉLAGSINS
Björn Ingólfsson skólastjóri á
Grenivik: „Bæði og, — sjálfsagt
eins mikinn og þegar fært var Ut i
50 mílurnar ”
Hjördís Finnbogadóttir nemi:
„Já, —það hef ég. En samt hef ég
nú ekki fylgzt með eins og
skyldi.”
Sigurður V. Sigurðsson, atvinnu-
laus: „Ég hef fylgzt með málun-
um af áhuga og reikna með að
flestir geri það, alveg eins og gert
var er við færðum Ut siðast.”
Sigurður Greipsson bóndi: ,,Það
hefégog ég heldaðallir hafi það i
svona miklu máli.”
Össur Asmundsson skrifar:
„Mig undrar sú kokhreysti
ölfushreppinga að banna
rjúpnaveiðar. Þeir skirskota til
hættu fyrir smalamenn — en
vart smala menn allt árið.
1 fuglafriðunarlögunum
stendur að öllum islenzkum
rikisborgúrum sé heimil fugla
veiði i afrétt og almenningum ef
enginn einn getur sannað eign-
arrétt sinn á landinu. Hluti af
Krýsuvik tilheyrir Hafnarfirði,
að ég bezt veit. Ég fæ ómögu-
Markhyltingur leggur til:
„Eins og menn vafalaust vita
ogviðMarkhyltingarfengum að
heyra á dögunum var mikil
skothrið hér i hverfinu. Siðar
kom reyndar i ljós að um kin-
verjasprengingar var að ræða,
sem að sjálfsögðu er bannvara.
NU höfum við ágætan lög-
réglumann hér i hverfinu —
lega séð að slysahætta stafi af
rjúpnaveiðimönnum á Hellis-
heiði, Hengli, Vifilsfelli og við
Þrengsli við Geitafell.
En hvað er það þá sem veldur
þessu mikilmennskubrjálæði
ölfushrepps? Ég get ómögulega
áttað mig á þvi. Samkvæmt
áðurnefndum lagaákvæðum á
þetta bann að vera ólöglegt —
nema lögin séu það loðin að
túlka megi þau á fleiri en einn
veg.”
vafalaust færan mann i sinu
starfi. Vegna þess hve þungt
þetta mál liggur á Mosfellingum
finnst okkur bara sjálfsagt og
eðlilegt að þessi ágæti lögreglu-'
maður upplýsi málið. Þannig
mundi hann gera okkur hér i
byggðarlaginu mikinn greiða —
við þurfum þá ekki að eiga á
hættu að vakna við skothrið um
miðja nótt.”
„...við eigum þá ekki
á hœttu að vakna
upp við skothríð"
Hlustaðu vandlega, Villi minn
RNTÖN
Einn lesenda blaðsins koni með þessa mynd til okkar og vildi með
henni minna Vilhjálm menntamálaráðherra á að gefa ekki of
hátiðlegar yfirlýsingar um lausn námslánamála en nota heldur
höfuðið og hlusta vandlega á rök námsmanna,