Dagblaðið - 22.11.1975, Síða 2
Oagblaðift. Laugardagur 22. nóvember 1975.
2
Steve McQueen og Natalie Wood i hlutverkum sínum. Ekki ber
á öðru en vel fari á með þeim.
Sjónvarp kl. 22:20 í kvöld:
Frábœr leikur
og fínir leikarar
í kvöldmyndinni
Kvikmyndin a dagskrá sjön-
varpsins i kvöld kl. 22:20 heitir
„Ast og afleiðing”, bandarisk
biómynd frá árinu 1963. Leik-
stjóri er Robert Mulligan. Aðal-
hlutverkin leika Steve
McQueen, Natalie Wood, Edie
Adams og Herschel Bernardi.
Þyðandi er Heba Júliusdbttir.
Myndin, sem á frummálinu
heitir ,,Love with the proper
stranger”, fjallar um unga
stúlku sem verður þunguð af
völdum manns er hún vill ekki
ganga að eiga. Hyggst hún láta
eyða fóstrinu.
Kvikmyndahandbókin okkar
gefur þessari mynd ekki nema
þrjár stjörnur en tekið er fram
að leikur þeirra . Natalie
Wood og Steve McQueen sé
mjög góður. Myndin gerist i
New York-borg og er hún einnig
tekin þar og þykir það auka gildi
myndarinnar mjög. Sýningar-
timi er 1 klst. 35min. —A.Bj.
Sjónvarp kl. 20:35 í kvöld:
Sjúklmgum ruglað saman:
Paul og Dick œtla að
grœða fé á brugg-sölu
„Mannamunur” nefnist
læknaþátturinn i kvöld sem er
að venju á dagskrá sjónvarpsins
kl. 20:35. Þyðandi er Stefán
Jökulsson.
Loftus tilkynnir Duncan að
honum sé falin sérstök umsjá
heilbrigðisráðherra sem vænt-
anlegur sé til St. Swithin til æða-
hnútaaðgerðar.
Eins og vanalega standa þeir
félagar i stórræðum. Paul og
Dick hyggjast selja heima-
bruggið sitt innan spitalans.
Ráðherranum og prestinum er
ruglað saman og þar sem þeir
eiga báðir að gangast undir
sömu aðgerðina uppgötvast
mistökin ekki strax.
Presturinn er látinn fá þá
góðu þjónustu sem ráðherrann
átti að fá og þegar þeir taka tal
saman cr ráðherrann undrandi
á þvi hve vel hefur verið hugsað
um prestinn. Hann hefur fengið
alls kyns kræsingar i mat á
meðan ráðherrann varð aö láta
sér nægja að borða bjúgu.
Presturinn biður hjúkrunarkon-
una að gefa ráðherranum kaffi
oggerir hún það fúslega þvi hún
heldur að hún sé að uppfylla
óskir ráðherrans. Hún hafði rétt
lokið við að benda Bingham á
„ráðherrann”. Bimgham, sem
vissi ekki áður af hinum tigna
sjúklingi, rýkur til og kynnir sig
fyrir „ráðherranum” og dregur
hann með sér til þess að skoða
rannsóknarstofuna.
Á meðan kennir einkaritari
ráðherra til þess að sækja hann.
en gripur i tómt. Ýmislegt fleira
skemmtilegt gerist en Paul og
Dick gleðjasl yfir þvi að geta
enn einu sinni gert Bingham lif-
iðleitt. A.Bj.
Ilulda Jóscfsdóttir hcfur starfað við poppþáttagerð í tvo mánuði.
Útvarp kl. 16:40:
POPP Á LAUGARDÖGUM
„Ég byrjaöi meþ „Popp á
laugardögum” fyrir tveimur
mánuðum og kann geysilega vel
við þetta starf,” sagði Hulda
Jósefsdóttir, er við spurðum
hana um þáttinn.
Laugardagspoppiö er sent út
á svipuðum tima og tiu á toppn-
um. meðan hann var og hét.
Fyrstu kynni Huldu af útvarp-
inu urðu einmitt i sambandi við
þann þátt, er hún leysti stjórn-
andann, örn Petersen, af um
tima.
„Ég reyni að hafa sem mest
af nýju efni i þættinum,” sagði
Hulda um tónlistina, sem hún
tekur til meðferðar. „En ef eng-
ar nýjar plötur hafa borizt frá
siðasta þætti verð ég bara að
leika það sem hendi er næst.”
— En hvaða tónlistarstefnu
fylgir þú helzt i þáttum þinum?
„Ég leik eiginlega hvað sem
er nema þunga tónlist. Hins
vegar hef ég mjög gaman af
soultónlist sjálf og þess vegna
vill oft brenna við að sú músík
verði ráðandi i þáttunum hjá
mér.”
Þvi næst spurðum við Huldu
hvort hún hefði eitthvert sam-
band við hlustendur.
„Ég fæ dálitið af bréfum, en
ekki nærri þvi nógu mikið. Ég
vildi mjög gjarnan heyra meira
frá hlustendum og einnig fá
beiðni um óskalög öðru hvoru.
Mér finnst nauðsynlegt að hafa
þátt með svipuðu sniði og Tiu á
toppnum vegna sambandsins
við krakkana.”
— Hlustar þú á aðra popp-
þætti?
„Nei, mjög litið, vegna þess
hve þeir eru á óhentugum tima.
Annars er samband okkar popp-
þáttastjórnendanna allt of litið.
Við þyrftum að koma okkur
saman, alla vega um plötuinn-
kaup. Við megum öll kaupa
plötur fyrir útvarpið, en þar
sem við tölum okkur aldrei
saman þorir enginn að gera
neitt.”
—ÁT—
„Kemst í jólaskap þegar
á bókamarkaðinum byrjar"
Utvarp í kvöld kl. 20:45:
— segir kynnirinn, Dóra Ingvadóttir
1 kvöld klukkan 20.45 er á dag-
skrá útvarpsins þátturinn A
bókamarkaðinum. Við leituðum
upplýsinga um hann hjá kynni
þáttarins, Dóru Ingvadóttur.
„Þættirnir hófust að þessu
sinni 1. nóvember. Enn sem
komið er eru þeir bara einu
sinni i viku en þegar nær dregur
jólum fjölgar þeim að sjáif-
sögðu. Mér finnst alltaf að jólin
séu virkilega að nálgast þegar
þessir þættir byrja og ég held að
svo sé um fleiri.”
— Hverjir velja kaflana sem
tesnir eru?
„Yfirleitt eru það höfundar
eða þýðendur sem velja kafl-
ana. Einnig reynum við oft að fá
þessa menn til að lesa verk sin
sjálfir. Ef það gengur ekki þá
benda þeir á einhverja sem þeir
treysta.”
Dóra vinnur ekki eingöngu
hjá útvarpinu við að kynna bæk-
ur á bókamarkaði, — hún er
einnig fulltrúi útvarpsst jóra.
Við spurðum hana i hverju starf
hennar væri fólgið:
„Ég er fyrst og fremst ritari
útvarpsstjóra. Einnig sé ég um
erlend viðskipti fyrir útvarpið.
Mesta vinnan er i þvi fólgin að
útvega islenzkum útvarps-
mönnum erlendis tima i stúdió-
um. Einnig hef ég verið i þvi að
útvega erlendum fréttamönnum
hérlendis vinnuskilyrði fyrir
beinar útsendingar til heima-
landa sinna.”
Dóra sá um poppþáttinn Á
nbtum æskunnar um langt
skeið. Heföi hún áhuga á að
snúa sér að sliku aftur?
„Ne -i, það held ég ekki.
Maður má aldrei missa þráðinn,
þvi að þá er maður dottinn út úr
þessu öllu saman. Ég sá um Á
nótum æskunnar i fimm ár og
held að það sé nóg. Annars greip
ég einu sinni i Popphomið og
spilaði þá bara músik sem ég
hef gaman af. Einnig hef ég tek-
ið Óskalög sjúklinga og Lög
unga fólksins i forföllum. Ég hef
gaman af þessu en held að mig
langi ekki að annast svona þátt
aftur.”
—ÁT—
Dóra Ingvadóttir að vinna við þáttinn A bókamarkaðinum.