Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 04.12.1975, Qupperneq 10

Dagblaðið - 04.12.1975, Qupperneq 10
10 Dagblaðið. Fimmtudagur 4. desember 1975. wBIAÐIÐ fiýálst, úháð daghlað Útgefandi: Dagblaðið ht. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ititstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason iþróttir: liallur Simonarson Ilönnun: Jóhannes Reykdal Blaðamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Ólafur Jónsson, ómar Valdimarsson. Handrit: Ásgrimur Pálsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Inga Guðmannsdóttir, Maria ólafsdóttir. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson Auglýsingastjóri: Ásgeir Hannes Eiriksson Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Ritstjórn Síðumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir og af- ' grciðsla Þverholti 2, simi 27022. E/n af sjálfhreyfivélunum Póstur og simi er ágætt dæmi um opinbera einokunarstofnun, sem losnar úr tengslum við eigendur sina og viðskiptavini, fólkið i landinu. Stofnun þessi er rekin af embættis- mönnum og hefur ekki einu sinni stjórn yfir sér. Hún metur sjálf tekju- þörf sina og fer að flestu leyti sinu fram. Hún er riki i rikinu. Einokunarstofnanir af þessu tagi þurfa að vera undir stöðugu og ströngu eftirliti. Annars er óhjá- kvæmilegt, að ráðamenn þeirra venjist á óhóflegan lúxus i rekstri og vafasöm vinnubrögð i innkaupum á búnaði. Slikar stofnanir verða gróðarstia spilling-1 ar, jafnvel þótt ráðamennirnir reyni að spyrna við fótum. Póstur og simi notar flókinn og dýran búnað, sem margir framleiðendur gætu útvegað. Samt er þessi búnaður ekki keyptur i opnu útboði til þess að koma kostnaðinum niður. Það er þvi engin furða, þótt við- skiptavinir pósts og sima stynji undan álögum hans. Eitt skýrasta dæmið um vasklega framgöngu pósts og sirna i verðhækkunum er leigan á f jarrit- um og búnaði til þeirra. Fyrir réttu ári nam árs- fjórðungsleigan á búnaði til fjarritunar 40.936 krón- um, en núna nemur hún hvorki meira né minna en 112.460 krónum. Þetta er 175% hækkun á einu ári og geri aðrir betur. Þessi hækkun er ekki i nokkru samræmi við inn- lenda verðbólgu, gengisbreytingar né erlendar verðhækkanir. Hún felur hins vegar i sér örvænt- ingarfulla fjáröflunartilraun stofnunar, sem getur ekki lengur haldið kostnaði sinum i skefjum. Fyrir ári var leiguverðið á búnaði til fjarritunar ekki verulega ólikt þvi, sem var i nágrannalöndun- um. í Danmörku er ársfjórðungsleigan 39.000 krón- ur og i Bretlandi 41.700 krónur. Hér hefur leigan hins vegar hækkað úr 40.936 krónum i 112.460 krón- ur. í öllum þessum tölum er innifalinn söluskattur eða virðisaukaskattur og allar fela þær i sér sams konar aukabúnað, þann aukabúnað, sem nauðsyn- legur er og algengastur er. Og i engum þessum töl- um felst nokkurt notkunargjald. Þetta er grunnleig- an eins og hún er, ef tækin eru ekkert notuð. Af þessu má vera augljóst, að póstur og simi á ís- landi hefur ekki meiri kostnað af leigu búnaðar til fjarritunar en hinar hliðstæðu stofnanir i Danmörku og Bretlandi. Verðið ætti þvi að vera rúmar 40.000 krónur hér á landi. Hinn ársfjórðungslegi einokun- arhagnaður pósts og sima af hverjum fjarrita nem- ur þvi um það bil 70.000 krónum. Fjarritar eru meðal heppilegustu og hagkvæm- ustu samgöngutækja, sem völ er á. Hvarvetna i um- heiminum eru tæki þessi meðal hornsteinanna i rekstri fyrirtækja. Hér á landi væri þjóðhagslega hágkvæmt að auka notkun fjarritunar. En þeirri þróun er haldið niðri með hinum gifurlega háu gjöldum. Grátlegast við þetta er ef til vill, að póstur og simi hagnast ekki einu sinni á okrinu. Einokunarhagn- aðurinn drukknar i eftirlitslitlum og óhagkvæmum rekstri þessarar einu af mörgu sjálfhreyfivélum verðbólgunnar. „örlœti" stjórnar íraks við sigraða fylgismenn Barzanis: KÚRDARNIR REKNIR SUÐUR Á HRJÓSTR- UGAR SLÉTTURNAR Rikisstjórn íraks hefur um skeiðfluttfjölda Kúrda nauðuga frá heimkynnum sinum i gróð- ursælum fjallahéruðum i norðri til hrjóstrugra sléttusvæða i suðurhluta landsins. Þessi stefna stjórnvalda hefur aldrei verið opinberlega yfirlýst en engu að siður eru embættis- menn i Bagdad hvergi smeykir við að viðurkenna hana. Þeir eru aftur á móti ekki reiðubúnir að nefna tölur um fjölda þeirra Kúrda sem þannig hafa verið fluttir á milli. Ekki er heldur hægt að fá staðfest — af eða á — hvort um er að ræða bráðabirgðaúrræði eða hvort verið er að koma stórum hluta i- búa Iraks fyrir i eitt skipti fyrir öll. Tariq Aziz, upplýsingaráð- herra stjórnarinnar og háttsett- ur embættismaður stjórnar- flokksins, Baath-flokksins, hef- ur haldið þvi fram við vestræna fréttamenn að fyrst og fremst hafi fyrrum stuðningsmenn Barzanis, leiðtoga Kúrda, verið fluttir frá iraska Kúrdistan. „Einkum þó njósnarar hans,” segir Aziz. Fjöldinn allur af þvi fólki, sem sendur hefur verið úr einu landshorninu i annað, er — að Mulla Mustafa Barzani. sögn Aziz — stjórnarstarfsmenn sem einfaldlega hafa verið færðir til i starfi. En Aziz segir einnig að fólkinu verði ekki heimilað að snúa til baka á næstunni „af öryggisástæðum”. „Uppreisn Kúrdanna hefur farið út um þúfur,” segir Aziz. „Það er mín skoðun, að við höf- um sýnt þeim mikið örlæti. En maður verður að blanda örlætið með varúðarráðstöfunum þvi ekki viljum við eiga sams konar vandræði yfir höfði okkar i framtiðinni. Þessar öryggisráðstafanir snerta aðeins tiltölulega fátt fólk. „Yfirgnæfandi meirihluti hefur snúið aftur til sinna svæða, nýtur réttinda og skyldna þjóðfélagsins eins og hverjir aðrir, fær læknisþjón- ustu, vinnu og jarðskika á ný.” Azis bætir við að „nokkur landamærasvæði verða að vera fullkomlega örugg. Við ætlum ekki að láta uppreisnarmennina setjast þar að. Ýmist höfum við flutt þá til annarra svæða i norð- urhluta íraks eða þá annars staðar. t stað þeirra búa nú landamæraverðir á þeirra gömlu svæðum ásamt fjölskyld- um sinum.” Myndlist MÁLAÐ AF ÞÖRF Það lofar sjaldnast góðu þeg- ar ungur listamaður stærir sig af því að vilja ekki læra af list annarra, eins og Jóhann G. Jó- hannsson gerði i viðtali fyrir nokkrum árum. Sjálfur hafði hann byrjaði með litla undir- stöðu i myndlist en þeim mun meiri i tónlist og er nú einn af okkar albeztu popptónlistar- mönnum eins og kemur glöggt fram á siðustu breiðskifu hans, „Langspil”. En myndlistin virðist ekki hafa verið hliðar- spor á ferli Jóhanns, þvi henni hefur hann helgað æ meiri tima siðustu ár og þá af brýnni þörf fremur en framagirnd. Nú heldur hann sjöundu einkasýn- ingu sina að heimili sinu, Skóg- arlundi 3 I Garðahreppi, og hefur sú sýning verið framlengd til 7. desember. Þar hefur Jó- hann komiö sér upp góðri vinnu- og sýningaraðstöðu og opinber- ar 56 myndir, sem allar nema ein eru vatnslitamyndir. Er auðsætt á öllu að Jóhann er I stöðugri framför sem málari, þrátt fyrir skort á undirstööu. Sá skortur háir honum mest þegar hann tekst á við hefö- bundið myndefni eins og höfuð eða kroppa en mun betur tekst Jóhanni þegar hann lætur gamminn geisa frjálsan i af- straktmyndum. Þar vinnur hann á nær súrrealskan hátt, ó- rökrænt og notar tilviljanir i málverkinu eftir duttlungum tilfinninganna. Þó virðist hann vera að móta sér fastan stil og myndir hans að taka á sig á- kveðið snið. Slikt er góðs viti, þvi það er listamanni aldrei nóg Jóhann G. Jóhannsson. — Ljósm. Ragnar Th. Sigurðsson. að hella stjórnlaust úr skálum tilfinninga yfir myndflöt eða hvita örk. Þegar öllu er á botn- inn hvolft er hann að reyna að miðla áhorfanda af myndhugs- AÐALSTEINN INGÖLFSSON Um sýningu Jóhanns G. Jóhannssonar að Skógarlundi 3, Garðahreppi un sinni og þvi verður hann að gefa henni „form” eða „stuðul” sem gerir áhorfanda kleift að stiga inn i myndina. Myndir Jó- hanns G. Jóhannssonar bera vitni næmum, bliðum og tilfinn- ingarikum persónuleika sem á ýmislegt ólært. En margur hefur lagt af stað með verra veganesti en brýna tjáningar- þörf.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.