Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 28.01.1976, Qupperneq 8

Dagblaðið - 28.01.1976, Qupperneq 8
8 Pagblaðið. Miðvikudagur 28. janúar 1976. FLESTIR NETASJOMENN FÁ AFLA- HLUT AF UFSAVERÐI í 2. FLOKKI Form. LÍÚ telur ummœli um rýtingsstungu í bak sjómanna ekki réttmœt „Ég tel fráleitt að hægt sé að tala um rýtingsstungu i bak sjó- manna vegna verðlækkunar á ufsa i 2. og 3. verðflokki,” sagði Kristján Ragnarsson form. Llú er hann hringdi til blaðsins i gær. ,,Ég harma að slik gifur- yrði sjálfskipaðrar nefndar skuli birt.” Kristján rakti aflatölur fyrra árs og hver hluti ufsi var i heild- arafla landsmanna. Hann hafði ekki aflatölur fyrir janúar i ár. Hann kvaðst og vilja leiðrétta það sem áður hefði komið fram i frásögnum nefndarmanna i Samstarfsnefnd sjómanna, að hann ætti hlut i fiskverkun, ,,og vissi þvi ekki hvoru megin við borðið hann sæti, er hann sæti fundi Verðlagsráðs”. Dagblaðið hefur kynnt sér, að netabátar á Suður- og Suðvest- urlandi róa þennan árstima með ufsanet. Þar sem verðflokkun er stranglega fylgt er heildarút- koma þegar upp er staðið frá uppgjöri sú, að sjómenn fá 2. flokks verð fyrir meginhluta aflans. Gildir þetta t.d. i Vest- mannaeyjum og viðar. I Grindavik hins vegar er mikil samkeppni verkunarstöðva um aö fá báta til að leggja upp hjá stöðvunum. Er ufsinn sums staðar keyptur einu verði, i hvaða stærðarflokki sem hann lendir. Kemur þá meira i hlut sjómanna. Það raskar ekki þeirri staðreynd að hið lögboðna verðer greitt til meginhluta sjó- manna. Það verð hefur verið lækkað samkvæmt tilkynningu sem dreift var 24. jan. Gildir það verð fyrir janúarmánuð all- an. Eru samkvæmt þvi laun sjó- manna sem veiða ufsa i net lækkuð um 33% frá þvi sem áður var. Rýtingsstungan i bak sjó- manna er að verðið er tilkynnt undir lok mánaðarins, og gildir fyrir hann allan, en i upphafi mánaðarins var látið i veðri vaka að verð myndi ekki lækka. i tilkynningu Samstarfs- nefndarinnar frá i gær er þess krafizt að form. Verðlagsráðs svari opinberlega hvers vegna verðlækkuninni hafi verið haldið leyndri þar til verðlags- timabilið er senn á enda. Samstarfsnefndin hefur traustsyfirlýsingu áhafna 120 fiskiskipa og getur þvi ekki tal- izt sjálfskipuð. Það kom ranglega fram að Kristján Ragnarsson ætti i fisk- verkun. Hins vegar er hann full- trúi LIÚ i Verðlagsráði og f jöldi félaga Liú rekur jöfnum hönd- um útgerð og fiskverkun. Hags munir þeirra rekast á þegar verðlagsráð tekur ákvörðun og Kristján Ragnarsson er fulltrúi þessa hóps, sem á tvöfaldra hagsmuna að gæta þegar fisk- verð er ákveðið. ASt. „ÞAÐ ERU EKKI MANNRÉTTINDI - *■ AÐ FÁ SVONA LAUN" Sóknarkonur „Flestar Sóknarstúlkur byrja með byrjunarlaun, þótt þær séu búnar að vera húsmæður i mörg herrans ár. Það finnst okkur i hæsta máta óréttlátt.” Þetta segir Hólmfriður Oddsdóttir, ein Sóknarkvenn- anna þriggja sem við heimsóttum að Hátúni 10A, deild fimm frá Kleppsspitala. Hinar konurnar taka i sama streng. Byrjunarlaunin eru i dag kr. 50.908 á mánuði. ,,Ég er á þriðja árs launum, sem eru kr. 53.718 á mán- uði, en ég vinn aðeins 80% vinnu,” segir Hólmfriður og sýnir okkur nýjasta kaupseðiiinn sinn. Hann sýnir kr. 48.118. Af þvi greiðir Hólmfrlður félags- og lifeyrisgjald. Útborgaðar fær hún kr. 45.905. ,,Ég vil samt heldur vinna minna úti til að geta hugsað sjálf um börnin,.enda kostar það sitt að koma þeim fyrir,” segir Hólmfriður. Hún missti manninn frá 7 börnum þegar það yngsta var eins árs. Tvö elztu börnin voru þá gift, en sonurinn, sem var sá elzti heima, var þá i 5. bekk i menntaskóla og er nú i Þýzkalandi að læra. Hólmfriður segist ekkert hafa getað hjálpað honum við námið. Hann hafi algjörlega þurft að sjá um sig sjálfur. Nú eru aðeins þrjú börn eftir heima 16 ára, 12 ára og 7 ára. Það yngsta er telpa og i fyrra þegar hún var aðeins 6 ára sá hún sjálf um að komast i skólann á hverjum morgni, þar sem allir aðrir á heimilinu voru farnir I skóla eða vinnu. Hólmfriður sagði að ekki væri um að ræða að gefa krökkunum hjól, skiði eða þvilikt. Það væri lúxus, sem ekki væri hægt að veita sér. Hún hefði nóg að gera með að ná endum saman með þessu litla kaupi sem hún hefur og þvi sem hún fær úr tryggingun- um, sem eru nú 32 þúsund á mánuði. ,,Þaö er grátlegt að manni skuli vera boðið upp á sama kaup og 17 ára stúlku, sem er að byrja að vinna,” segir Kristjana Sigurðardóttir. Hún var húsmóðir I mörg herrans ár, áður en hún byrjaði að vinna úti. DB-mynd Bjarnleifur. Hefur gengið sérlega illa að ná endum saman á siðasta ári. „Það má ekkert koma fyrir, ekki einu sinni að þvotta- vél bili, þá fer allt úr skorðum. Það er varla hægt að kalla það mannréttindi að borga svona litið kaup,” segir Hólmfriður. „Það er lika áberandi hvað illa hefur gengið að ná endum saman siðastliðið ár, enda ætti kaupið að vera milli 75—80 þúsund krónur ef kaupmátturinn hefði haldizt eins og var fyrir samningana árið 1974. Ég er lika enn að borga lán af eigin húsnæði og það eru upp undir 200 þúsund á ári.” „Þetta hefst með sparnaði,” segir Bjarnveig Ingimund- ardóttir. Sóknarkonur standa ekki nógu vel sam- an. „Sóknarkonur, sem flestar eru húsmæður, standa alls ekki nógu vel saman,” segir Bjarnveig Ingimundardótt- ir, sem er einhleyp með einn uppkominn son. „Það er ekki nóg að þær tali bara við saumavélarnar sinar. Þær skilja ekkert,” bætir hún við og segir að illa sé mætt á fundum hjá Sókn og allt of fáar konur taki til máls. „Þær mótmæla samt ýmsu sem þar fer fram, þrátt fyrir að þær mæti ekki,” segir Bjarnveig. Hún fær nú borgað eftir hæsta taxta eða 55.111 kr. á mánuði. Hún vann áður hjá saumastofu Borgarspital- ans. Ævistarf hennar hefur verið við saumaskap. Þegar hún byrjaði á Kleppi átti að færa hana niður I byrjunar- laun, en hún mótmælti og þá var kaupið lagfært. „Það er grátlegt að manni skuli vera boðið upp á sama kaup og 17 ára stúlku, sem er að byrja að vinna,” segir Kristjana Sigurðardóttir, sem er búin að vera ekkja 110 ár og á 5 uppkomin börn. Hún er ekki enn komin á hæsta taxta, hefur 53.718 kr. á mánuði. Hún hefur samt bæði unnið á Elliheimilinu og hjá Loftleiðum. Hólmfríður Oddsdóttir fékk útborgað um slðustu mán- aðamót 45.905 krónur. Hún er með þrjú börn á framfæri. Þurfa engin fimm ár til þess að komast á hæsta taxta. Sóknarkonurnar eru sammála um að það þurfi engin 5 ár til að kunna það sem þær eiga að gera, en þá fyrst er borgað kaup eftir hæsta taxtanum. „Við erum hlunnfarnar á allan hátt og svo er höfðað til tilfinninganna, þegar fara á i verkfall. Við getum ekki farið i verkfall, þvi að hver á þá að hugsa um sjúkling- ana,” segir Hólmfriður. Starf þeirra I Hátúninu er ein- mitt i þvi fólgið að huga að sjúkum og hreinsa til i kring- um þá. A deild fimm eru 14 sjúklingar. Sparað i mat og sparað i öllu Bjarnveig segir okkur að sér takist að ná endum sam- an með ýtrasta sparnaði I matarkaupum jafnt sem öðru. Hún lagar slnar fiskibollur sjálf, kaupir ekki tilbúið fars. Hún reynir að kaupa mátulega mikið I matinn og hitar upp afganga, ef nokkrir verða. Mikið er um grauta á hennar heimili og súrmjólk er mikið borðuð. Hún borðar aðeins annað málið heima og stundum borðar hún I mötuneyti deildar fimm, I næsta húsi. Kjötmáltiðin þar kostar 180 kr. og fiskmáltið 120 kr. Oft kaupir hún sér þó jógúrt og brauð I hádeginu og sleppir þá úr máltið. Þær Hólmfrlður, Bjarnveig og Kristjana eru sammála um það að ástæðan fyrir þvi hversu Sóknarkonur standi illa saman sé vegna hinna óllku hagsmuna þeirra. Sumar þurfa ekki að fara að vinna, þótt þær geri það. Þær hafa fyrirvinnu. Þess vegna standa þær ekki eins á rétti sinum og ella. Þetta kæmi svo niður á þeim sem þurfa að framfleyta heimili á þessum litlu launum sem þær þiggja. Á þessu yrði að verða breyting til batnaðar. EVI. STRAUMNES, KJÖT OG FISKUR OG IÐUFELL SELJA HANN LÍKA Nœgur þorramatur í Breiðholtinu: Ráðamenn I verzluninni Hóla- garði léku okkur heldur grátt i gær er þeir sögðu okkur að Hóla- garður væri eina búðin i Breið- holti,sem hefði bakka með þorra- mat á boðstólum. „Við erum ekki alveg sáttir við þessa frétt,” sagði Sigtryggur Jónsson hjá Straumnesi rétt eftir að blaðið var komið út i gær. „Straumnes hefur selt þrettán- réttaðan þorramatarbakka siðan verzlunin tók til starfa 1972.” Kjötiðnaðarmaður Straumness er Ómar Kristvinsson. Siðar hringdu þeir i Iðufelli og Kjöti og Fiski og bentu á sams konar þjónustu i þeim verzlun- um. Sem sagt, það skortir ekki þorramat i Breiðholtinu.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.