Dagblaðið - 28.01.1976, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 28.01.1976, Blaðsíða 17
Pagblaðið. Miðvikudagur 28. janúar 1976. 17 I Suðvestan kaldi og él I fram eftir degi, en þykkn- I ar upp siðdegis með vax- I andi suð-austan átt, all I hvass og snjókoma eða I slydda i nótt. Hitinn I verður nálægt frost- ^marki. . Sveinn Halldórsson fyrrverandi skólastjóri verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju kl. 15 i dag. Sveinn fæddist 13. janúar 1891 að Skeggjastöðum i Garði. Hann lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Islands 1911. Kennsla varð siðan ævistarf Sveins. Frá 1911 1943 kenndi hann við barnaskólann i Bolungarvik, lengst af sem skólastjóri. Skólastjóri og kennari við barna- skólann i Gerðum Garði frá 1943- 1952. Eftir það starfaði hann sem skrifstofurmaður við bæjar- skrifstofur Kópavogs. Sveinn giftist 1914 Guðrúnu Pálmadóttur ættaðri úr Bolungavik. Hún er látin fyrir nokkrum árum. Þeim varð fimm barna auðið. Stefán Ingimundarson kaupmaður Vogagerði 8, Vogum, andaðist aðfaranótt 26. janúar i Borgarspitalanum. Ágúst Jóhannesson, Hrafnistu áður til heimilis að Grettisgötu 46 lézt i Borgar- spitalanum 25. janúar. Eirikur Þorbergur Sigurðsson, fyrrverandi bifreiðarstjóri, andaðist á Sólvangi i Hafnarfirði 26. janúar. Egiil Ólafsson andaðist að Hrafnistu 26. janúar. Eyjólfur Kolbeinsson verður jarðsunginn frá Landakotskirkju fimmtudaginn 29. janúar kl. 10.30. Margrét Jóhannesdóttir Fifuhvammsvegi 25 Kópavogi, lézt á Landspitalanum 25. þ.m. Hermann Jónasson fyrrverandi forsætisráðherra, verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni fimmtudaginn 29. þ.m. kl. 13.30. Útför hans fer fram á vegum rikisins. Félag einstæðra for- eldra heldur kaffikvöld að Hallveigar- stöðum fimmtudaginn 29. janúar kl. 21. Þar verður á boðstólum kaffi og heimabakað meðlæti. Spilað verður bingó með glæsi- legum vinningum. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. Dómaranámskeið fyrir konur. á vegum F.S.l. verður haldið dómaranámskeið fyrir byrjendur i fimleikastiganum, farið verður yfir 1.-6. þrep. Námskeiðið verður dagana 30. jan.-l. feb. 1976 i Breiðagerðisskóla. Upplýsingar i sima 43931 og 22883 eftir kl. 18. Fimleikasamband Islands. Eyfirðingafélagið minnir á sitt árlega þorrablót næstkomandi laugardag 31 janúar að Hótel Borg. Aðgöngu- miðasala á sama stað fimmtud. og föstud. kl. 5-7 Fjölmennið og takið.með ykkur gesti. Endurhæf ingarráö. Hæfnis- og starfsprófanir iara fram i Hátúni 12 alla daga nema laugardaga og sunnudaga. Simi 84848. Fuvtdir Kvenfclag óháða safnaðarins Fjölmennið á félagsfundinn næst- komandi laugardag 31. janúar kl. 3 e.h. i Kirkjubæ. Kaffiveitingar. V 7V V VQ>' " » Oui^Q 10-20 þús. kr. Skemmdu fyrir 100 þús Tveir piltar 15 og 16 ára hafa viðurkennt innbrotið i Shell-af- greiðslustöðina á Akureyri. Var innbrotið framið um siðustu helgi eins og skýrt hefur verið frá. Saknað var um 19 þús. kr. i skiptimynt, en piltarnir viður- kenna ekki að hafa haft nema um 10 þús. kr. upp úr krafsinu. Skemmdir unnu þeir miklar á innbrotsstaðnum. Er bótakrafa vegna skemmdanna um eða yfir 100 þúsund krónur. Piltarnir hafa báðir gerzt sekir um innbrot og þjófnaöi áður. ASt Kœrði árós á götu í Reykjavík Klukkan rétt fyrir 10 i gær- morgun kærði stúlka frá Akur- eyri árás, sem hún kvaðst hafa orðið fyrir á götu i Reykjavik. Lýsti hún árásarmönnunum. Samkvæmt lýsingu hennar voru mennirnir handteknir laust fyrir kl. 11 i gærkvöldi. Gistu þeir fangageymslur i nótt og voru teknir til yfirheyrslú i morgun. Arás þessi virtist ekki hafa verið alvarlegs eðlis. ASt VORU HANDTEKNIR VIÐ STULD ÚR BÍLUM Tveir piltar, annar 16 ára og hinn yngri af Upptökuheimilinu i Kópavogi, voru handteknir i nótt. Voru þeir uppvisir að þjófnaði úr bilum. Höfðu þeir þá farið i nokkra bila og aðallega stolið útvarpstækjum, kassett- um og ýmsu öðru smávegis. Einhverjar skemmdir eru ætið samfara svona þjófnuðum. Pilt- arnir voru i yfirheyrslum i morgun. ASt Öklodjúpur snjór í Eyjum 1 morgun var ökladjúpur snjór i Vestmannaeyjum. Logn var og hiti um frostmark. Ekki urðu óþægindi af þessari snjó- komu vegna hinna góðu veður- aðstæðna. En ef breytti til frosts eða tæki að skafa gæti ástandið breytzt. Sjaldan hefur snjóað jafnmikið i Eyjum og nú i vetur. ASt. Athugasemd 1 gær birtust i Dagblaðinu nöfn þeirra manna sem játað hafa aðild að barsmiðum sem leiddu til dauða Guðmundar Einarssonar fyrir 2 árum. Egg- ert N. Bjarnason rannsóknar- lögreglumaður hefur óskað þess, að það kæmi skýrt fram, að nöfnin voru ekki eftir honum höfð, eins og hann telur að mátt hafi ætla af orðalagi fréttarinn- ar. ASt Grunaðir um 150 þús. kr. stuld í skipi 1 gærdag saknaði skipverji á Selfossi 150 þús. kr., sem verið höfðu i klefa hans. Skipið liggur i Reykjavikurhöfn. Grunur féll strax á tvo menn. Hóf lögreglan leit að þeim og fundust þeir i nótt. 1 morgun hófust yfirheyrslur yfir þeim vegna þessa máls. Stóðu þær yfirerblaðiðfóriprentun. ASt. Verðbréf óskast Hef kaupendur að vel tryggðum skulda- bréfum. Tilboð óskast send Dagblaðinu merkt „Skuldabréf 41118”. Bloðburðar- börn óskast strax í Hafnarfjörð Hafið samband við umboðsmann, Þórdísi Sölvadóttur, simi 52345. FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI Davíð Sigurðsson h.f., SÍÐUMÚLA 35, SÍMAR 38845 — 38888 Vélstjórar Suðurnesjum! Skrifstofa Vélstjórafélags Suðurnesja verður opin frá kl. 21 til 23 alla daga nema sunnudaga fram til 10. feb. nk. Liggja mun frammi skýrsla um endurskoðun á sjóða- kerfi sjávarútvegsins. Vélstjórar eru hvattir til að kynna sér hana og einnig að fylgjast með þvi sem er að gerast i samn- ingamálum sjómanna. Stjórnin

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.