Dagblaðið - 28.01.1976, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 28.01.1976, Blaðsíða 24
Einar Ágústsson utanríkisráðherra: Kjarnorkuvopn vœru hér ekki án vilja eðá vitundar stjórnarvalda" 1 umræðum utan dagskrár á Alþingi i gær urðu töluverðar umræður um möguleikann á þvi að herlið Bandarikjanna á Keflavikurflugvelli sé með kjarnorkuvopn. Gils Guðmundsson beindi fyrirspurnum um málið til Einars Agústssonar utanrikis- ráðherra um það, á hvem hátt stjómvöld hér hafi fylgzt með þvi hvort hér séu geymd slik vopn, hvort áformaðar séu ein- hverjar aðgerðir til þess að kanna það og þá hverjar þær ráðstafanir yrðu. Einar Ágústsson svaraði þvi til, að það myndi ekki vera án vilja og vitundar islenzkra stjórnvalda, ef hér væru kjarn- orkuvopn, en hins vegar taldi hann sig hafa fulla vitneskju um það, að héc væru engin slik vopn. Hann sagði ennfremur að starfsmenn varnarmáladeildar hefðu farið um völlinn og ekki séð neitt athugavert, eins og fram hefur komið i fréttum. Þó taldi hann vankanta á slikri leit, að þeir menn væru ekki sér- fræðingar i vopnabúnaði og ekki væri hægt að ætla, að þeir þekktu kjarnorkusprengjur. Þá vildi Einar taka það fram, að hann myndi beita sér fyrir þvi að geislamælingar rik- isins eða aðrir islenzkir vísinda- menn yrðu látnir kanna með geislamælingum hvort þarna væru kjarnorkuvopn. Ekki var Einar viss um, hvort hægt yrði að fá aðstoð sérfræð- inga frá Norðurlöndum til þess að koma hingað og aðstoða okk- ur við leit að slikum vopnum og byggði hann það álit sitt á fyrri viðbrögðum Norðurlandaþjóða gagnvart herstöðinni, sem þeir vilja sem minnst afskipti hafa af. —HP. írjálst, nháð dagblað Miðvikudagur 28. janúar 1976. Friðrik ó möguleika ó efsta Verjandi ökumannsins: ,HONUM VAR HÓTAÐ AÐ HANN FÆRISÖMU LEIÐINA EF HANN LJÓSTRAÐI UPP' örn Clausen, hæstaréttarlög- maður, hefur beðið um, að eftir- farandi verði birt, vegna fréttar um játningu þriggja manna um að hafa orðið Guðmundi Einars- syni að bana, og fjórða mannsins um aðild að flutningi liksins: t frétt i Dagblaðinu i gær eru nafngreindir þeir menn,sem við- riðnir eru málið. Af þvi tilefni vil ég taka fram eftirfarandi: Ég vil geta þess strax, að ég legg ekki i vana minn að fjalla opinberlega um sakamál, sem ég hefi verið skipaður verjandi i. 1 máli þessu hefi ég verið skipaður réttargæzlumaður Alberts Klahn Skaftasonar. Réttargæzlumönn- um hinna fjögurra manna var strax i upphafi af dómara fyrir- skipað að tala ekki um mál þetta. Vegna fyrrgreindrar fréttar i Dagblaðinu i gær, tel ég nauðsyn- legt að skýra frá þvi, að umbjóð- andi minn, Albert Klahn Skafta- son, játaði strax i upphafi yfir- heyrslu þátt sinn i máli þessu. Hafði hann verið kallaður til, til þess að aka mönnunum, er þeir földu likið. Að þvi búnu var hon- um hótað, svo sem bókað er i málinu, að hann færi sömu leið- ina, ef hann minntist einu orði á vitneskju sina. Ég tel rétt, að þetta komi fram, þar sem nafn umbjóðanda minshefur verið birt i blöðum.” Dagblaðinu er bæði ljúft og skylt að birta þessa yfirlýsingu lögmannsins. Við hana er engu að bæta nema þvi, að á sinum tima skýrði Dagblaðið frá þvi, að um- bjóðanda lögmannsins hefði verið hótað lifláti, ef hann segði frá. Fram skal og tekið, að nafnið Klahn misritaðist i blaðinu i gær. Var þar skrifað Klein i stað hins rétta, sem hér kemur fram. —BS— I arg Þöójudagur 30 desember 1975 - 91 tbl Bitst|órn Siðumula 12. sim'i 8137?. .iuqlýMnq.ir .,|r,r« iA’.t.. > Hún fellir fötin í vetrarkuldanum á íslandi sœtinu í Wijk aan Zee Friðrik Ólafsson vann Hol- lendinginn Langeweg i 10. um- ferð Hoogoven-mótsins og er núi2. sæti með 6 1/2 vinning. 1 1. sæti er Ljubojevic með 7 vinninga eftir jafntefli við Tékkann Smejkal. Staðan eftir 10 umferðir er þannig: 1. Ljubojevic — 7 vinningar 2. Friðrik — 6 1/2 vinningur 3. Tal — 6 vinningar 4. Kurajica — 5 1/2 vinningur og ótefld skák við Browne. 5. -9. Anderson, Smejkal, Langeweg, Sosonko og Ree — 4 1/2 vinning. 10. Browne— 4 vinningar og ó- tefld skák við Kurajica 11. Dvorecki — 4 vinningar 12 Böhm — 3 vinningar. Skákirnar úr 10 umferð fóru annars þannig: Friðrik — Langeweg: 1-0 Böhm — Ree: 1/2-1/2 Sosonko — Anderson: 1/2-1/2 Smejkal — Ljubojevic: 1/2-1/2 Tal — Dvorecki: 1/2-1/2 Skák Kurajica og Browne var frestað. Geysi umfangs- mikið sakamál Var llkift dyijjft tkammt frí HafnartirAi.cn þcim.aem fcn* Lík ungs manns dysjað skammt fró Hafnarfirðl — manni sem flutti líkið ó staðinn var hótað líflóti h‘yk,hr'£ru Þetta er frétt Dagblaðsins af málinu þann 30. desember síöastliðinn. VERKBANN GEGN SKÆRUVERKFÖLLUM ,,Það er i rauninni ekki nýtt, að vinnuveitendur afla sér heimildar til að setja á verk- bann, einkum er hætta er á skæruverkföllum,” sagði Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri Virinuveitendasambandsins, i morgun. Ólafur sagði, að vinnuveit- endur þyrftu á sliku að halda, ef hætt væri við, að ákveðnir hópar gerðu verkfall og stöðvuðu at- vinnulifið, þótt ekki væri alls- herjarverkfall. A fundi i Vinnuveitendasam- bandinu i gær var samþykkt samhljóða að heimila stjórn sambandsins að setja á verk- bann, þegar ástæða þætti til. Verkalýðsfélögin hafa yfir- leitt samþykkt heimild til verk- falls til handa stjórnum og trúnaðarmannaráðum. Er verið að athuga, hvort stefna skuli að allsherjarverkfalli um miðjan febrúar. —HH Danska nektardansmærin Bibi Kristina kom til Iandsins á mánudaginn og er þegar byrjuð að skemmta iandanum. Hér dvelur hún I þrjár til fjórar vikur og kemur væntaniega einungis fram á veitingahúsinu Sesar. DB-mynd: Ragnar Th. 1 11. og siðustu umferö mótsins hefur Friðrik hvitt á móti Sosonko. Ljubojevic hefur hvitt á móti Tal i loka- umferðinni. Þórarinn Þórarinsson í morgun: „Wilson fœrði sig eitthvað niður á við" — engir samningar — engin samningsdrög „Wilson færði sig eitthvað niður á við, frá brezka tilboðinu um 110 þúsund tonn, en við vor- um ekki með neinar tölur, þar sem boð okkar um 65 þúsund tonn er úr gildi fallið,” sagði Þórarinn Þórarinsson, for- maður utanrikismáianeftidar Alþingis. i morgun i viðtali við Dagblaðið. „Það voru engir samningar, og við erum ekki með nein samningsdrög,” sagði Þórar- inn, sem kom heim i gærkvöld i islenzku sendinefndinni.sem fór til London. Þórarinn sagði, að mest hefði verið rætt um ofveiðina á Is- landsmiðum á hinum löngu fundum, og ekki mætti gleyma, að inni i viðræðutimanum væri borðhald, bæði á sveitasetri Wilsons og i setri forsætisráð- herra að Downingstræti 10 i London. Forsætisráðherra greindi rikisstjórninni frá viðræðunum á rikisstjórnarfundi i morgun. Brezku blöðin i morgun segja, að svartsýni ríki i London eftir viðræðurnar. Times segir á for- siðu, að engir samningar hafi náðst. Reuter-fréttastofan segir, að ekki séu likur á, að samningartakistfljótlega. —HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.