Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.02.1976, Qupperneq 4

Dagblaðið - 11.02.1976, Qupperneq 4
4 r Dagblaðið. Miðvikudagur 11. febrúar 1976. 1111 1 l,"“" * heyrt það? „Ég hef nú bara ekki myndað mér skoðun... Það mun vera samdóma álit þeirra blaðamanna sem fara út af örkinni og taka fólk tali fyrir spurningadálka dagblaðanna, að kvenfólk á öllum aldri sé slæmt með það að hafa ekki skokðun á nokkrum sköpuðum hlut. .Ja, ég hef nú bara því miður ekki myndað mér skoðun á þessu,” cr afskaplegá venjulegt svar. Hvernig væri að fara að mynda sér skoðun. konur? Hjólbörur á pósthúsinu. Aurar tilheyra löngu liðinni tíð. Og nú er krónan, þessi grlindvöllur peningakerfisins, líka að hverfa. „Gull” peningurinn hverfur en í stað hans kemur lítilmótlegur álpeningur. Dæmigert fyrir peningakerfið okkar, króna, sem eflaust má láta fljóta á vatni. Verðbólgan virðist cflir nokkra áratugi ætla að vcrða í sama stíl og gerðist í Þýzkalandi. Þar hittust menn á pósthúsinu með hjólbörur fullar af peningum, þegar þeir scndu póstinn frá sér. Smáþjófar og stórþjófar Það er ekki úr vegi að hæla keppinautunum í blaðaheiminum svolítið. Athyglisvert viðtal birtist t.d. í Þjóðviljanum á sunnudag. Þar er rætt við Hildigunni Ólafsdóttur afbrotafræðing. Hún telur að hætta eigi eltingaleiknum við smáþjófana, en snúa sér þess í stað að þeim stóru. Einhver hreyfing virðist vera á þess- um málum og vonandi munu dóms- málayfirvöld halda áfram að fanga þá sem svindla stórt en hafa flestir komizt undan lögum. Það er e.t.v. erfiðara verk að ná í stórmennin en lítilmagnana, en fengurinn þeim mun meiri. Óskemmtilegur starfi? Oft hefur mér dottið í hug hvort þeir skrifarar dagblaðanna, sem ætlað er að fylla daglegan kjaftadálk, séu ekki einhverjir ólukkulegustu menn blaðamannastéttar. Menn þessir eru oft gjörsamlega efnisþrota og líklega setur dálkahöfundur Tímans, sá sem skrifar Á víðavangi, margfalt met í ritræpu sinni. Oft virðist sem fokið sé í hvert skjól fyrir vesalings manninum. Þó má virða höfundi það til vorkunnar að hann hefur látið af skrifum um bók- menntir og menningarmál. Þar komst hann að þeirri merku niður- stöðu að Snjólaug Bragadóttir væri að gæðum til á við Véstein Lúðvíks- son! o Síðasti olíudropinn Olíufélögin barma sér ekki síður en aðrir í þessu landi' Þjóðaríþrótt þá stunda bæði fyrirtæki og einstaklingar. Olíufélagið hf., hefur þó með hagsýni og ráðdeildarsemi komið sér upp ágætu húsi við Suður- landsbraut og reyndar er það til fyrirmyndar um margt bæði, frágang og skrcytingar. Á myndinni eru þeir listamenmrnir Magnús Tómass., og Jóhann Eyfells að koma skúlptúr fyrir utan dyra. Aðspurðir hvert nafnið væri sögðu þeir kankvísir: „Ætli það sé ekki Síðasti olíudropinn?” Þingmaður gerir tillögu um byltingu „HMASPURSMAL HVENÆR NÚVERANDIKERFIHRYNUR” Lífeyrisgreiðslur gerðar mannsœmandi Býlting í tryggingamálum, það er hvorki mcira né minna, sem Guð- mundur H. Garðarsson alþingis- maður (S) hefur lagt til. Þingmaður- inn segir að það sé „tímaspursmál” hvenær núverandi kerfi hrynji til grunna „af peningalegum og félag- legum ástæðum”. „Með frumvarpi þessu um Lífeyrissjóð íslands er lagt til að grundvallarbreyting verði gerð á líf- eyristryggingakerfi þjóðarinnar,” segir Guðmundur. „Markmið breyt- ingarinnar er að allir hafi sama rétt til fullnægjandi ellilífeyristrygginga á grundvelli ævitekna, jafnframt því sem tryggt er að allir njóti ákveðins lágmarksellilífeyris er sé í samræmi við framfærslukostnað og verðlags- þróun á hverjum tíma. Þá er það veigamikið atriði í þessu frumvarpi að það tryggir öllum kon- um jafnan rétt til ellilífeyris á við karla, óháð því hvert er starf þeirra eða staða í þjóðfélaginu. Þar með er öllum húæsmæðrum tryggður fullur réttur til ellilífeyris á við annað vinn- andi fólk og lífsstarfi húsmæðra þar með gefið ákveðið verðmætis gildi,” segir Guðmundur. Iðgjöld í samræmi við þörf og verðlag Frumvarpið felur í sér þá grund- vallarbreytingu frá núverandi trygg- inga- og lífeyrissjóðakerfi, að í stað svonefnds uppsöfnunarkerfis, sem felst í tugum smárra og stórra sjóða, er tekið upp einfalt,,gegnumstreymis- kerfi”, sem þýðir að iðgjöld verða á hverjum tíma ákveðin í samræmi við tryggingarþörf og verðlag þegar greiðslur eiga sér stað. Með þessu er stefnt að mikilli hækkun ellilífeyris og öðrum bótum. Nú safnast milljarðar króna í um 100 lífeyrissjóðum landsins. Verð- bólguþróun undangenginna ára og grundvallaratriði í reglugerðum sjóð- anna, að því er tekur til sjóðmyndun- ar til lengri tíma, útiloka að óverð- tryggðir lífeyrissjóðir geti innt af hendi fullnægjandi lífeyrisgreiðslur. Þrátt fyrir hugmyndir um verðtrygg- ingu á útlánum sjóðanna er fyrirsjá- anlegt að* það mun ekki nægja til að greiða viðunandi ellilífeyri hjá fjölda sjóða. „Fé lífeyrissjóðanna brennur því stöðugt í báli verðbólgunnar en aldrað fólk komið á ellilífeyrisaldur situr eftir með sárt ennið,” segir Guðmundur. Fá nú lítið og mestallt frá T ryggingastof nun Sem dæmi um núverandi ástand má taka ellilífeyrisþega óverðtryggðs lífeyrissjóðs sem hóf töku ellilífeyris árið ’70. Almennur láglaunamaður hefði þá getað fengið 7200 krónur á mánuði úr lífeyrissjóði sínum á grundvelli þáverandi kaupgjalds og miðað við 60 prósent réttindi ! Nú fengi hann enn óbreytta krónutölu úr sjóðnum, en hann fengi frá Trygg- ingastofnuninni 16.139 krónur sem Guðmundur Garðarsson í kaffitíma í Alþingi í gær. Hann vill bylta öllu og breyta í málefnum lífeyrissjóðanna (DB-mynd R.Th.Sig.) grunnlífeyri og 11.150 krónur sem tekjutryggingu. Hann fær því samtals 34.489 krónur, þar af 27.289 frá Tryggingastofnuninni, sem eru 79 prósent af því sem hann fær. Lífeyris- sjóður hans er máttlaus. Ellilífeyrir, örorkulífeyrir, barnalífeyrir og fæðingarlaun Guðmundur vill stofna einn alls- herjar lífeyrissjóð fyrir landsmenn. Lífeyrissjóður fslands skuli í framtíð- inni greiða öllum landsmönnum líf- eyri. Honum þykir ekki rétt að láta núverandi lífeyrissjóði renna inn í þennan lífeyrissjóð heldur verði þeim breytt í lánasjóði í vörzlu og eigu þeirra aðila sem hafa myndað sjóð- ina. „Með því að breyta þeim í lánasjóði geta þeir í nánustu framtíð fullnægt því hlutverki sem þeir hafa gert á undangcngnum árum,” segir þingmaðurinn. „Hugsanlegt er að aðilar komi sér saman um að ákveðn- ar greiðslur, til dæmis eitt prósent af dagvinnulaunum, skuli renna í þessa sjóði...” Lífeyrissjóður íslands á samkvæmt frumvarpi Guðmundar að veita elli- lífeyri, örorkulífeyri og barnalífeyri á grundvelli svonefnds „ævitekjuhlut- falls”. Úr honum skal einnig greiða fæðingaralun. Tilgangurinn er að fólk fái í elli- lífeyri nálægt 60 af hundraði af því sem það hefur að meðaltali haft um ævina, fært á verðlag þess tíma þegar lífeyririnn er greiddur. Þetta mundi þýða gífurlega hækkun cllilífeyris sem þá yrði í samræmi við aðstæður þess tíma sem hann er greiddur. Lífeyri eiga menn að geta fengið eftir 67 ára aldur. Lífeyrisgreiðslan er samkvæmt frumvarpinu háð tveimur atriðum. í fyrsta lagi byggist greiðsl- an á tekjum einstaklingsins um æv- ina. í öðru lagi er verðtrygging. Líf- eyrisprósentan, sem reiknuð er, er mælikvarði á hvað einstaklingurinn hefur haft að meðaltali í tekjur um ævina samanborið við samtíðarmenn sína, með þeim hætti að þeir, sem hafa mjög háar tekjur, greiði af líf- eyri sínum til hinna sem eru mjög tekjulágir. Hjón skulu skipta með sér þeim lífeyrisréttindum sem þau afla í sambúðinni. Ellilífeyrisþeginn á að fá 60 pró- sent af meðaltekjum sínum verð- tryggðar í lífeyri. Sá sem aldrei hefur haft neinar tekjur skal fá lífeyri sem eru 30 prósent af meðal^ekjum á hverjum tíma. Frumvarpið gerir með öðrum orðum ráð fyrir að tekjulaust fólk fái ellilífeyri úr Lífeyrissjóði ís- lands. öryrkjar skulu einnig fá 60 prósent af meðaltekjum á hverjum tíma, ef örorkan ér 75% eða meiri, en nokkru minna ella. Rétt til barnalífeyris úr sjóðnum skulu þeir hafa sem ekki eru orðnir 19 ára, ef annað hvort foreldra þeirra er látið. Fæðingarlaun skulu veitt í þrjá mánuði, fyrir fleirburafæðingar í fjóra mánuði. —HH Hjálpar- stofnun safnar handa Guatemala „Við erum farin af stað með söfnun vegna jarðskjálftanna í Guatemala og viljum vekja athygli á gírónúmeri Hjálparstofnunar kirkjunnar, . númer 20000,” sagði Guðmundur Einarpson framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar- innar í samtali við DB í gær. „Við sendum fimmtán hundruð doll- ara (256.500 kr.) strax,” sagði Guð- mundur, „on þetta er ailt fremur flókið því enn hafa stjórnvöld í Guatemala ekki beðið urn hjálp erlendis frá. Þannig er alls ekki vitað hver þörfin raunveru- lega er, enda allar fréttir óljósar.” Rauði krossinn hefur einnig hafið sÉifnun á gírónúmer 90000. -öv.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.