Dagblaðið - 11.02.1976, Page 6
6
Dagblaðið. Miðvikudagur 11. febrúar 1976.
150 leiðtogar Kúrda
hengdir á einu ári
Angola:
Þannig lítur Siiddeutsche Zeitung á ástandið þar.
Ný útgáfa gamla lagsins „when the Saints Go
Marching In.’\
Meira en hundrað og fimmtíu
kúrdískir leiðtogar hafa verið hengdir
eða hálshöggnir í írak síðan stjórnvöld
þar náðu samkomulagi við írönsku
stjórnina um framtíð Kúrda. Það var
fyrir tæpu ári síðan, 6. marz 1975.
Þessar upplýsingar koma frá
svissnesku samstarfsnefndinni um
stuðning við Kúrda í Genf.
í bréfi sem nefndin hefur sent mann-
réttindanefnd Sameinuðu þjóðanna
segir einnig, að þúsundir félaga í
kúrdíska frelsishernum hafi verið settir í
fangabúðir í suðurhluta írak, þrátt
fyrir loforð stjórnarinnar um sakar-
uppgjöf.
Stjórnin í Bagdad vinnur markvisst
að því að þurrka út Kúrda sem þjóð-
ernislega heild, með því að gangast fyrir
nauðungarflutningum suður fyrir
Eufrat, þar sem gróður er lítill.
Nefndin, sem sósíaldemókratinn og
þingmaðurinn André Chavanne veitir
forystu kveðst hafa sannanir fyrir því að
í ráði sé að flytja allt að milljón Kúrda
inn á landsvæði, þar sem eingöngu eru
Arabar fyrir.
Mustafa Barzani og menn hans berjast
fyrir tilverurétti sínum.
Harris-(ijónin
SEGJA PATTY UÚGA
Tveir eftirlifandi félagar í
Symbíónesíska frelsishernum ' (SLA),
William og Emily Harris, sögðu í gær-
kvöld að yfirlýsingar Patriciu Hearst
um að hún hafi sætt kynferðislegum
þvingunum og barsmíðum á meðan
hún var með SLA, væru bæði fárán-
legar og ósannar.
Harris-hjónin hljóðrituðu yfirlýsing-
una í matarhléi í réttarhöldunum, sem
haldin eru yfir þeim í Los Angeles
vegna ákæru um mannrán og líkamsá-
rásir. Þau sögðu einnig að Patricia hefði
verið fullkomlega frjáls ferða sinna
allan tímann.
„Henni var aldrei gert mein á
nokkurn hátt. Hún var aldrei neydd til
að gera neitt gegn vilja sínum eftir að
hún gekk til liðs við.SLA,” sagði Emily
Harris í yfirlýsingunni. „Hún var alveg
frjáls ferða sinna eftir þann tíma. Ég
held að það komi bezt í ljós, þegar'
skoðuð er sú staðreynd að hún bjó ekki
með mcr og Bill.”
Patty Hearst sagði fyrir rétti í San
Francisco, að hún hefði verið kynferðis-
lega misnotuð, lamin og henni stöðugt
hótað á meðan hún hafi verið í haldi
hjá Symbíónesíska frelsishernum.
Norski olíugróðinn
lœtur standa á sér
BLUNDAÐ
r
A
ÞIN6I
Japanski forsætisráðherrann Takeo
Miki (t.v.) og helzti ráðgjafi hans,
Ichiro Ide, blunda stundum á leiðin-
legum fundum fjárveitinganefndar
neðri deildar þingsins. Sérstaklega er
það Miki, sem á til að dotta.
Þótt almennt sé búizt við því að
Noregur verði innan skamms eitt
auðugasta ríki Vesturlanda vegna
olíulinda sinna, má einnig býast viði
töluverðri verðbólgu í landinu áður
en mörg ár eru liðin.
Svo segir í skýrslu Efnahags- og
framfarastofnunar Evrópu um
Noreg, en skýrslan kom út í morgun.
í skýrslunni — sem raunar er að
mestu unnin í Noregi eins og aðrar
OECD-skýrslur — segir að eina
leiðin fyrir Norðmenn til að halda
verðbólgunni í skefjum sé að hafa
góða stjórn á tekjuaukningu og hlut-
falli í landinu.
Olíuauðurinn er þegar farinn að
segja til sín í Noregi, þar sem þjóðar-
tekjur.hafa aukizt um 5% á undan-
förnu ári. í ár er búizt við að þær fari
enn stígandi eða um 5.5%.
Verðbólga í Noregi er nú ll,5%á
ársgrundvelli. í skýrslunni er bent á
nauðsyn þess að ná henni niður í
8.5% en það sé ekki hægt nema með
nýjum ráðstöfunum.
Þrátt fyrir fyrirsjáanlega 9%
aukningu útflutnings — olíutekjur
meðtaldar — er ekki talið að
viðskiptahallinn lagist mikið á yfir-
standandi ári, en hann er talinn hafa
verið sem svarar 68 milljarðar 1975.
Harris-hjónin William og Emily, sem
voru handtekin um leið og Patty, segja
hana aldrei hafa verið neydda til að
gera neitt — eftir að hún gekk til liðs
við SLA. Þau eru fyrir rétti í Los
Angeles sökuð um mannrán og líkamsá-
rás.
RITSKOÐUNA RSTJORINN SELDIBÆKUR
SEM HANN HAFÐISJÁLFUR BANNAÐ!
Sænska blaðið Dagens Nyheter skýrði
frá því fyrir sl. helgi, að sænskt fyrirtæki
hefði öruggar heimildir fyrir því að það
hefði átt þátt í að setja af sovézkan
ritskoðara, háttsettan meira að segja.
Ritskoðari þessi starfaði í ríkisstofnun,
Glavlit, þar sein fylgzt var með öllum
bókum og ritlingum, bæði innlendum
og innfluttum. í fimmtán ár seldi hann
það, sem hann gerði „upptækt” á
svartan markað.
Þessi sérstaki ritskoðari, Andrej
Sokolov, tók á móti erlendum bókum
og kannaði efni þeirra. í stað þess að
eyðileggja bækurnar, eins og hann gaf
reglulega skýrslur um, kom hann þeim
á svarta markaðinn, þar sem allar bæk-
ur — hvort sem þær eru andsovézkar
eður ei — eru í geysiháu verði vegna
„bókaskorts,” eins og DN orðar það.
í september sl. var Sokolov leiddur
fyrir rétt og dæmdur í sjö ára
þrælkunarvinnu. Yfirmaður hans,
sagður heita Sokontikov, ú að hafa verið
rekinn úr starfi af Kosygin sjálfum.
Málskjölin hafa ekki verið gerð opin-
bcr en fregnir hafa borizt af þessu í
gegnum óopinberar heimildir. Þó hefur
fengizt staðfest í Glavlit, að mennirnir
tvcir séu ekki starfandi þar lengur.
Spillingarhneyksli eru ekki eins
óvenjuleg í Sovétríkjunum og var til
skamms tíma. En samt sem áður hefur
sovézka pressan ekkert sagt frá þessum
atburöi, enda þótt nær daglega sé ráðizt
gcgn spillingu með dæmum úr daglega
lífinu. En þetta er ekki í fyrsta skipti
sem erlendar bókasendingar lentu hjá
röngum viðtakanda í Sovétríkjunum.
Hér kemur sænska fyrirtækið til sög-
unnar og yfirvöld komast á snoðir um
hvað hefur gerzt.
Sumarið 1974 sendi sænska fyrirtækið
vöruprufu, kvenkápur, til Vnesjtorg,
sovézku utanríkisverzlunarmiðstöðvar-
innar, og spurðist fyrir um hvort áhugi
gæti verið fyrir kaupum á slíkum káp-
um á sovézkum markaði.
Sendingin náði aldrei á réttan stað.
Hún hafði nefnilega verið stíluð á
ákveðinn einstakling. Það er talið vera
persónuleg gjöf og í Sovétríkjunum er
bannað að gefa embættismönnum slík-
ar gjafir. I Glavlit stöðvuðust kápurnar.
Svíunum þótti þetta ekki gott mál og
auglýstu eftir pakkanum. Þegar farið
var að kanna málið þar austur frá, kom
í ljós, að í fjöldamörg ár hafði verið
stolið þar ýmsum persónulegum gjöfum
til einstaklinga í Sovétríkjunum, þ.á m.
hljómplötum, regnhlífum, fötum og
fieiru.
Rannsókn leiddi smám saman í ljós,
að umsvifamikill í þessum starfsaðferð-
um var deildarstjórinn Sokolov. Hann
er sagður hafa verið handtekinn, þegar
170 bögglar með erlendum bókum
fundust í földum hirzlum hans. Sam-
kvæmt skýrslum ritskoðarans var búið
að eyðileggja allar þessar bókmenntir.
Á sovézkan mælikvarða hafðf
Sokolov lifað hátt. Hann átti tvær
íbúðir og tvær konur og fór í sumarleyfi
suður á bóginn.
í réttarhöldunum á yfirstjórn Glavlit
að hafa reynt að þvo hendur sínar og
benda á að með því gefa skýrslur um
evðileggingu bókanna hafi eigandi
þeirra verið enginn. Sokolov hafi því
alls ekki leikið sér að eigum ríkisins.
KREML: Fyrirskipun um brottrekstur kom beint frá Kosygin forsætisráðherra sjálfum, að sögn.