Dagblaðið - 11.02.1976, Side 7

Dagblaðið - 11.02.1976, Side 7
Dagblaðið. Miðvikudagur 11. febrúar 1976. 7 Erlendar fréttir REUTER n Nœr fjórðungur vinnufœrra Dana starfar hjá ríkinu Framfaraflokkur Mogens Glistrups í Danmörku lagði til á þjóðþinginu í gær, að þingið skipaði sérstaka nefnd, er falið yrði að kanna áhrif hins mikla fjölda ríkis- starfsmanna og tekjur þeirra, sem eru fyrir ofan danskt meðallag. í nýlegri könnun Efnahagsbanda- lags Evrópu kom í ljós að í Dan- innan EBE, eða 23.6% alls vinnu- aflsins. Bretar voru í öðru sæti með 18 % og Vestur-Þjóðverjar í þriðja sæti með 13.1%. SÞ-maðurinn kominn frá A-Tímor Winspeare Guicciardi, sendimaður Sameinuðu þjóðanna á Tímor, kom til Lissabon ffá Ástralíu í nótt til viðræðna við portúgölsku stjórnina, en Austur-Tímor heyrir undir Portúgal. Guicciardi sagðist þurfa að ræða nokkur atriði málsins við portúgölsku stjórnina áður en hann héldi til New York og gæfi Öryggis- ráði SÞ skýrslu sína. Á Austur-Tímor hitti sendimaðuruin m uöningsmcnn indónesísku hernámssveitaiu a. •'j m hafa myndað bráðabirgðast |órn. Honum tókst aftur á móti ekki vegna ónógs öryggis — að komast yfir á þann hluta eyjunnar, sem er í höndum frelsisfvlkingarinnar Fretilin. MPLA aðeins steinsnar frá fullnað- arsigrí — í borgarastyrjöldinni í Angola Marxíska frelsishrevfingin MPLA í Angola virðist nú aðeins örstutt frá yfirburðasigri í borgarastyrjöldinni í landinu. Útvarpið í Luanda sagði frá því í gærkvöld. að sókn væri í fullum gangi á öllum vígstöðvum. Þrjár meiriháttar borgir. Benguela, Lobito og Catumbela. fcllu í gær en frelsis- hreyfingin UNI'FA, sem nýtur stuðnings veslurveldanna hélt þeim áður. Hersveitir MPLA með kúbanska hcrmenn í broddi fylkingar, hafa þegar sigrað þriðjii hreyfinguna, FNLA, í norðurhluta landsins. í fréttum fra Jóhannesarborg segir að 4000-5000 velvopnaðir og vel þjálfaðir hermcnn séu nú við landa- mæri Angola i Namibíu(S\ -Afríku). í skýrslum erlendra leyniþjónustn- manna scgir að litlir hópar MPLA- manna séu þcgar komnir til landa- mærasvæðisins og fylgist þar vel með öllu. Suður-Afríkumenn eru á- kveðnir í að halda varnarlínunum ef ekki verður hægt að komast að pólitísku samkomulagi við MPLA, sem nýtur stuðnings Sovétríkjanna. Forystumenn UNITA sögðu í gær að þúsundir flóttamanna væru nú á suðurleið að ósk yfirstjórnar hreyfingarinnar. Huambo, stjórnar- setur UNII A, féll í hendur MPLA í fyrradag. „Utanríkisráðherra” UNITA, Jorge Sangumba, sagði nær alla íbúa Huambo, sem er á stærð við Reykja- vík, hafa flúið borgina, og því réði MPLA nú stórri draugaborg. Stjórnir Uganda og Togo viðurkenndu í gær MPLA sem hina einu löglegu stjórn Angola. Sigurvegararnir: kúbanskir hermenn hrósa sigri ásamt angólskum félögum sínum í hernumdum bæ í norðurhluta landsins. Bernharð príns harðneitar ásökununum — uin mútuþœgni hinna virtustu manna — myndi beinast að prinsnum eingöngu (hann er æðsti yfirmaður hollenzka heraflans), enda hefðu önnur nöfn ekki verið nefnd í þessu sambandi. Bernharð prins er nú 64 ára. Hann fæddist í Þýzkalandi og nýtur mikilla vinsælda í Hollandi vegna baráttu sinn- ar gegn hernámsliði nazista á stríðs- árunum. Hann hefur harðlega neitað þeim ásökunum, sem fram hafa komið á hendur honum og fagnað stofnun rannsóknarnefndarinnar. Talið er öruggt að rannsóknin muni vekja miklar pólitískar deilur, sem gætu jafnvel leitt til þess að Júlíana drottn- ing, sem er 66 ára, segði af sér og Beatrix prinsessa 38 ára, tæki við ef ásakanirnar reyndust á rökum reistar. Nefndin er þó talin vera á heldur veikum grunni, enda gerir umboðsskrá hennar ekki ráð fyrir að hún kalli fyrir sig vitni, ekki einu sinni í Hollandi. Sjálfstæð þriggja manna rannsóknar- nefnd, skipuð af hollenzku stjórninni, hefur í dag athugun á þeim ásökunum að Bernharð, drottningarmaður, hafi þegið sem svarar 173 milljónum króna mútur frá bandarísku flugvélaverk- smiðjunum Lockheed Aircraft Corpo- ration. Joop den Uyl forsætisráðherra til- kynnti um stofnun nefndarinnar í gær- kvöld eftir að stjórnin komst að þeirri niðurstöðu að Bernharð prins væri emb- ættismaðurinn, sem A.C. Kotchian, stjórnarformaður Lockheed, segði hafa þegið peningana fyrir aðstoð við gerð viðskiptasamninga. Den Uyl sagði á þingi í gærkvöld, að rannsóknin — sem væri í höndum Júlíana drottning og Bernharð prins. Bandaríkjamenn senda Fleirí herskip á Indlandshaf Bandaríski sjóherinn hefur sent fimm herskip til viðbótar inn á Indlandshaf, að því er sagði í lilkynnimju bancian'ska varnamálaráðuneytisins- í gærkvtild. William Greencr, talsmaðurráðunevi- isins, sagði að þessi viðbóiarskip, - ;■ héldu inn á Indlandshaf 14. janúai sl. væru tvö eldflaugaflutfiingaskip, 'í .,i freigátur og olíufluiningaskip. Með þeiiu p'-um.t ! < isKipuiu, sem voru fyrir, eru handai isk berskip á Ind- landshafi nú Otu..i að sogu Greon- ers. Hann bætti því við, að Sovétríkin væru með tuttugu skip á sama svæði, þar af væru fjögur orrustuskip. Skömmu cftir stríðið í Miðaustur- löndum 1973 fjölguðu Bandaríkjamenn siglingum skipa sinna mn Indlandshaf. o o o o Þetta er citt bandarísku hersKipanna. sem send hafa vcrið til viðbótar inn á Indlandshaf, þar scm mikið vígbún- aðarkapphlaup hefur vcrið að gerjast um nokkurt skeið.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.