Dagblaðið - 11.02.1976, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 11.02.1976, Blaðsíða 9
9 Dagblaðið. Miðvikudagur 11. febrúar 1976. 44 brezkir togorar ó olfriðoða svœðinu í gœr Ögrandi sóknarþungi brezkra togara ó íslandsmið — opinberir talsmenn Breta fara með ósannindi „Blaðastyrkirnir" TÍMINN SKULDAR RÍKINU MILLJÓN! Blöðin sem þiggja „ríkisstyrk”, það er að segja dagblöðin nema Dagblað- ið, eru komin í skuld við ríkið! Vísir skuldar þó ekkert. Tíminn skuldar mest, eina milljón. Svo fór þegar fjármáalaráðuneytið skar niður „blaðastyrki” á síðasta ári að ekki var dregið úr eintakafjöldan- um sem ríkið kaupir. Því voru blöð- unum greiddar hærri fjárhæðir en vera átti. Þetta kemur til frádráttar „blaða- styrkjum” í ár. Skuldir blaðanna við ríkið eru frá 425 þúsund krónum upp í milljón. Að sögn Höskulds Jónssonar ráðu- neytisstjóra í fjármálaráðuneytinu greiddi ríkið í fyrra áskriftir að dag- blöðunum sem hér segir: Þjóðviljinn 3.847.500 krónur Vísir 3.836.250 krónur Morgunblaðið 3.825.000 krónur Tíminn 3.690.000 krónur Alþýðublaðið 3.465.000 krónur Þá var greitt fyrir áskrift að Nýjum þjóðmálum 765 þúsund krónur. Til viðbótar voru 725 þúsund krónur greiddar sérhverjum þing- flokkanna sem styrkir til „lands- málablaða” og þingflokkum falið að útbýta því fé. í eftirlitsflugi gæzluflugvélarinnar TF-SÝR yfir miðunum í dag kom fram að brezku togararnir voru 45 og þar af voru 44 á alfriðaða svæðinu við Norð- austurland, undir vernd. Landhelgisgæzlan hefur tekið saman yfirlit yfir fjölda brezkra togara hér við land í janúar og febrúar 1975. Reyndust togararnir í janúar vera að meðaltali 15.5 á dag, og i febrúar voru þeir 26.4 að meðaltali. Nú í janúar og febrúar hafa brezku togararnir yfirleitt verið í kringum 40 og stundum upp í 50 og þar yfir, til dæmis 16. janúar51 og 17. janúar52. Þessi mikli fjöldi brezkra togara er hér við land nú á þessum árstíma, þegar brezkum togurum fækkar í öllum útgerðarbæjum á Bretlandi, samkvæmt upplýsingum brezkra blaða. Þessi sóknaraukning Breta í janúar og febrúar á íslandsmið er bæði ögrandi og harkalegar aðgerðir af þeirra hálfu, þegar opinberir talsmenn í Bretlandi láta hafa eftir sér að Bretar séu að minnka sóknina á íslandsmið. -BS- Grátt grín leíkið í Álverinu: Tilkynnt um sprengjur á vinnusvœðinu Síðdegis á mánudag var hringt í Álverið í Straumsvík og sagt að þar væru handsprengjur sem springz myndu innan ákveðins tíma. Starfsmenn voru að sjálfsögðu látnir vita um hótun þessa og lög- reglan í Hafnarfirði fékk sprengju- leitarflokk frá Keflavíkurflugvelli til þess að fínkemba svæðið. Ekkert fannst þar af ðprengjum, enda talið að þarna váeri einhver gárunginn á ferðinni. „Þetta er alltaf alvarlegt mál,” sagði Ragnar Halldórsson forstjóri Alversins í viðtali við Dagblaðið „Við vildum ekki hætta á neitt vegna þess hversu algengar svona hótanir eru orðnar erlendis og því voru þessar ráðstafanir gerðar.” Sagt er að kjötbollur sem fram- reiddar eru í mötuneyti starfsfólks í Straumsvík, gangi undir nafninu handsprengjur og menn hafi þarna verið að gera grín, þótt gamanlaust væri. -HP. VERÐUR VERKFALL r A KEFLA- VÍKUR- FLUGVELLI? Verzlunarmannafélag Suðurnesja samþykkti á fundi sínum nú nýlega að ef tih verkfalla kæmi myndi sú vinnu- stöðvun einnig ná til félagsmanna sem vinna á Keflavíkurflugvelli. Nær vinnustöðvunin þá til allra íslendinga sem vinna á skrifstofum á Vellinum og við ýmis þjónustustörf. Þótt herafli Bandaríkjanna á Kefla- víkurflugvelli sé ekki, sem atvinnurek- andi, aðili að Vinnuveitendasambandi íslands telja félagsmenn rétt að þeir lúti sömu kjörum og sambandið, þar til samningar takast. Fram til þessa hefur verið viðhaldið þeirri reglu að samið væri upp á það kaup er um semdist við kjarasamninga og vinnu því haldið áfram. —HP. 900 LITS JÓN VARPST ÆKI BÍÐA KAUPENDA SINNA Um níu hundruð litsjónvarpstæki að verðmæti um 60 milljónir króna standa nú í tollvörugeymslu og á skipaafgreiðslum og bíða þess að viðskiptaráðuneytið taki ákvörðun um hvort þau skuli seld eða ekki. Ekkert hefur gerzt í þessum sjónvarpsmálum síðan 30. október en ráðuneytið tók þá ákvörðun að taka litsjónvörpin af frílista til að spara gjaldeyri. Innflytjendur litsjónvarpstækja eru þrír, — Heimilistæki, Nesco og Radíóbúðin., Heimilistæki bíða með rúmlega 200 tæki í vörugeymslunni, Nesco með 135, en ekki reyndist unnt að fá tölu tækjanna frá Radíó- búðinni. Hins vegar geta lesendur nokkurn veginn reiknað út lagerinn þar. Ljóst er að töfin, sem orðið hefur á ákvörðun um þetta innflutningsmál hefur skaðað þessi fyrirtæki nokkuð. Þau þurfa að greiða pakkhúsleigu, vexti frá verksmiðjum og ekki má gleyma þeim álitshnekki sem þau og raunar þjóðarbúið allt verða fyrir vegna þessara tafa. Oli Anton Bieltvedt forstjóri Nesco sagði í samtali við DB að hann hefði rætt við Ólaf Jóhannesson fyrir nokkrum dögum. Ráðherrann, sem áður hefði ekkert getað sagt um gang mála, hefði verið jákvæður í þetta skipti og talið að málin myndu skýrast á næstu dögum. — Þetta staðfesti Björgvin Guðmundsson skrifstofustj. í viðskiptaráðuneytinu. „Ég reikna með að það fari að losna Starfsmaður Heimilistækja sýnir hluta af litsjónvarpslækja- birgðum fyrirtækisins. DB-mvnd Björgvin. eitthvað um þetta mál á næstunni,” sagði Björgvin, „það er orðið bráð- nauðsynlegt að ákveða hve mikill innflutningur verður leyfður. Hins vegar er ekkert meira um málið aó segja eins og er.”. -ÁT-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.