Dagblaðið - 11.02.1976, Page 15

Dagblaðið - 11.02.1976, Page 15
Dagblaðið. Miðvikudagur 11. febrúar 1976. HVAÐ BER ÁRIÐ 1976 í SKAUTISÉR? HUÓDBYLGJUR VERÐA NOTAÐAR TIL LÆKNINGA OG ORSAKIR SJÚKDÓMA RAKTARTIL FYRRA LÍFS Allir, eða flestir í það minnsta, íslendingar vita hver Jane Dixon er? sú fræga bandaríska völva. Við sáum í bandarísku blaði spádóma hennar fyrir árið 1976 urn menn og málefni og þótt þar sé um að ræða fólk af bandarísku þjóðerni ætlum við að birta eitthvað af þessum spádómum frú Dixon. Endurholdgun í sviðsljósinu. Ein áhrifamesta uppgötvunin sem gerð verður árið 1976 er tengd leynd- ardómum endurholdgunarinnar. Vísindámenn munu komast að raun um að margir sjúkdómar, þar með talið krabbamein og ýmsar truflanir í taugakerfinu, eiga rót sína að rekja til fyrra lífs okkar. Þessar ótrúlegu uppgötvanir munu opna nýjar leiðir til betra heilsufars. Sálfræðingar og „para”- sálfræðingar munu nota dáleiðslu til þess að finna ýmsa leyndardóma úr fyrra lífi fólks og árangur af slíkum rannsóknum mun koma læknavísind- unum mjög á óvart. Jackie gengur í það heilaga. Árið 1976 verður skcmmtilegt ár fyrir Jackie Onassis. Hún mun breyta líferni sínu og beina því inn á menningarlegri brautir en hingað til. Jackie verður mikið í fréttunum eins og svo oft áður, en nú vegna þess að hún mun ganga í hjónaband á árinu. Dixon heldur því fram að þriðji eiginmaður Jackie verði einhver sem hún þekkir nú þegar. Þetta er valda- mikill maður sem getið hefur sér frægð á vettvangi menningarmála. Jackie verður mjög ánægð yfir gift- ingunni og þetta mun verða ham- ingjusamt hjónaband. Má gera ráð fyrir að hjónavígslan fari fram undir árslok 1976. Völvan segist sjá dökkt ský yfir höfði Fords forseta. Tilraunir til þess að ráða hann af dögum verða gerðar annaðhvort í apríl eða júlí, — haustið verður honum sérlega hættu- legt. En ef hann gætir fyllstu varúðar getur hann síðar litið til baka yfir árið 1976 og séð að hann komst nokkurn veginn klakklaust í gegnum það. Um úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum í haust segir Dixon að svo mjótt verði á mununum með úrslitin að hún geti ekki sagt fyrir um þau. Ófriðsamlegt í neðanjarðarlestum. Dixon sér fyrir nýja öldu úthverfa- óeirða, neðanjarðarlest verður rænt óg farþegarnir rændir og nokkrum verður haldið sem gíslum. Þetta lestarrán verður á New York svæð- inu. Alda óeirða gengur yfir ýmsar borgir í norðanverðum Bandaríkjun- um. Sprengjum verður komið fyrir bæði í verzlunum og í járnbrautar- lestum og lætur fjöldi manns lífið. V Efnahagslífið upp og ofan. Spáin um efnahagslífið er „bæði ANNA Þessi mynd hefur birzt um gjörvallan heim og margir hafa velt vöngum yfir því hvort Jackie og Frank hafi bara borðað saman eftir hljómleikana í september, — kannski cr Frank þessi valdamikli maður sem hún giftist í árslok??? Honum er ráðlagt að gæta vel að heilsu sinni og passa upp á börnin sín. Dóttir hennar, Caroline, verður henni erfið í skauti, en mun stofna til náins kunningsskapar við Caroline Kennedy. Þær nöfnur munu hittast á góðgerðarsamkomu og fara saman í skemmtisiglingu skömmu síðar. Eitthvað slettist upp á vinskap þeirra um haustið, þegar Caroline Kennédy lendir í ástarævintýri með frönskum aðalsmanni, en stúlkurnar verða samt vinkonur ævilangt. Robert Redford lendir í lífshættu við kvikmyndatöku erlendis. Snemma sumars verður hótað að \ ræna börnum Frank Sinatra. Frank sjálfur fær hjartaáfall og ætti hann að fara sér hægt. Telly Savalas (Kojak) á arf í vændum, en ætti að fara varlega þegar hann kvikmyndar í haust. Hann mun detta og slasast illa á fæti. Henry Kissinger mun leggja upp í leynilega ferð til Kúbu, en stjórn- kænska hans mun koma honum sjálf- um í koll og mun hann iðrast ein- hverra gerða sinna. Trúmál og læknisfræði. Dixon sér fyrir að á árinu mun ný alheimstrúarvakning rísa um gjör- vallan heim sem koma muni róti á trúarafstöðu almennings. Þetta verður ekki í sambandi við ný trúar- brögð, en mun blása nýju lífi í kirkju- líf og söfnuði sem farnir eru að rykfalla. Stórkostlegar uppgötvanir á sviði læknavísindanna á árinu 1976 munu færa mörgum blindum sjónina á ný. Vísindamenn munu komast að raun um að hljóðbylgjur á ákveðinni bylgjulengd geti blásið lífi í dauðar taugar. Sú aðferð verður notuð á sjóntaug- ar sem hafa lamazt og einnig til þess að lækna heila- og taugaskemmdir, sem orsaka geðveiki. Nixon aftur á sjónarsviðið Nixon, fyrrverandi forseti, kemur aftur fram á sjónarsviðið og gæfan virðist brosa við honum á ný. Hann mun búa sig undir að taka á ný þátt í opinberu lífi. Ethel Kennedy, ekkja Roberts, mun tilkynna í nóvembermánuði að hún mum giftast árið 1977. Sá sem fyrir valinu verður er bandarískur, úr hennar eigin þjóðfélagsstiga, cn kemur ekkert nálægt stjórnmálum. Grace furstafrú í Monaco mun eiga í heimiliserjum á árinu, og einnig verður eitthvert ósamkomulag í hjónabandinu. góð og slæm”. Mikil gróska verður í Bandaríkjunum á sviði ferðamála’ og í skemmtanaiðnaðinum. En Dixon sér einnig fyrir sér mik- inn fellibyl sem eyðileggur hundruð fermílna landbúnaðarsvæðis í mið- vesturríkjunum. Vegna þessa munu verðhækkanir á matvöru eiga sér stað. Þrátt fyrir grósku á ýmsum sviðum munu fleiri borgir verða gjaldþrota eins og New York borg. Bílaborgin Detroit og Chicago verða meðal þeirra. Nixon karlinn kemur aftur fram á sjónarsviðið og býr sig undir að taka þátt í opinberu lífí á nýjan leik. Dökkt ský hangir yfir höfði Fords forseta, sem verður að gæta vel að sér bæði í apríl — ef hann sleppur þá ber honum að gæta aftur að sér í júlí! og síðan aftur í haust.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.