Dagblaðið - 05.03.1976, Side 1
Ritstjórn Sí6umúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022.
LOÐNAN
W
LA VIÐ NYJU
ÍSLANDSMETI
r
Staisði
Það lá við nýju Íslandsmeti í loðnu-
veiði á einum sólarhring í gær, en
undir kvöldið dofnaði aðeins yfir
veiðunum og eftir miðnættið varð
ljóst að þúsund tonn vantaði á
metið. 18.030 tonn veiddust í gær, en
metið var sett 11. febr. sl. Eftir
miðnættið glæddist veiðin aftur og
varð hún mjög góð framan af nóttu.
Þannig voru tæp fjögur þúsund
tonn komin að landi kl. 8 í morgun
en loðnunefnd bjóst við að þá færi að
hægja á, nú eru víða orðnar tafir við
landanir. Enn er hægt að .frysta og er
mikið unnið við það, en loðnan er nú
alveg á síðasta snúningi gagnvart.
frystingurvni, vegna þess hve hrognin
eru orðin laus í henni.
Þegar svo er orðið ástatt fyrir loðn-
unni, leggst hún mun þyngra í næt-
urnar en ella og rifu margir bátar eða
hreinlega sprengdu nætur sínar ,í
gær. A.m.k. tíu bátar komu því
aðeins með slatta að landi í gær.
Mun fleiri rifu þó nætur sínar og
slitu en tókst samt að fylla sig. í nótt
rifu einnig margir en ekki var
kunnugt um neinn sem komið hafði
með slatta af þeim sökum.
Mikill ákafi er nú í sjómönnum og
virðast þeir staðráðnir í að bjarga því
sem bjargað verður. Ekkert hefurenn
spurzt til nýrrar göngu fyrir austan,
og kann þetta því að vera loka-
spretturinn í ár. Nú eru um 200 þús-
tonn komin á land en voru 340 á
sama tíma í fyrra. —GS
- MARGIR BATAR SPRENGDU NÆTURNAR Helga RE með fullfermi í Reykjavíkurhöfn í gær, 270 tonn.
DB-mynd: Björgvin.
Haukur, vörubílstjóri hjá Sjófangi,
brosti breitt þegar hann var búinn að Allt klárt?!. . .og
„svindla” sér fremst í röðina. Þorsteinn RE leysti frá og var kominn á fulla ferð út úr höfninni fyrr en varði.
Mynd: Björgvin.
Skyldi maður þekkjo það?
R0K0G RIGNING LANGT
YFIR MEÐALLAGI í FEBRÚAR
— og hlýindin haldast áfram
í febrúarmánuði var úrkoma í
Reykjavík tvöföld miðað við meðal-
úrkomu, eða 150 mm. Ekki hefur
mælzt jafnmikil úrkoma í febrúar
síðan árið 1959. Hiti var hins vrgar
yfir meðallagi á öllu landinu.
Norðanlands og austan var um það
bil 2° hlýrra en í meðalári, cn suð-
vestanlands var vik hitans frá meðal-
ári innan við hálft stig.
Meðalhiti var 0,3° í
Rcykjavík og á Akureyri, cn á Höfn í
Hornafirði var hann 2°. Á Hvera-
völlum var 5° frost að meðaltali og
6° frost var til jafnaðar á Sand-
búðum.
Sólskinsstundir í Reykjavík voru
32 en þær eru 57 í meðalári. í
Reykjavík var einnig mjög storma-
samt en veðurhæð náði 9 vindstigumí
6 daga.
Á Akureyri var úrkoma í meðal-
lagi eða 49 mm og þar náði veður-
hæðin aðeins einu sinni 9 vindstig-
um.
Veðurfræðingurinn sem við rædd-
um við í morgun sagði að næstu daga
yrðu hlýindi um allt land og ekkert
sjáanlegt scm gaet i haft áhrif á það í
bili.
A.Bj.
Spírinn reyndisf
vera vodka
— bls. 8
Kisurnar
eiga
margo
aðdá-
endur,
- og
hatursmenn
— bls. 9
FLENSAN,
— haltu þig
innan dyra,
segja lœknar
— baksíða
Meira brak finnst
Leitinm að mönnunum sjö sem
saknað er af Hafrúnu frá Eyrarbakka
verður haldið áfram í dag. Verður
leitað úr lofti og fjörur gengnar.
Leitað verður vestur með Reykjanesi
og allt til Snæfellsness.
í gær fannst enn brak úr bátnum
og mb. Höfrungur frá Grindavík festi
net sín í flaki um 4 mílur SSV af
Grindavík. Með netunum sem
náðust kom upp sjónvarpsloftnet sem
var á Hafrúnu. Verður þessi staður
kannaður vandlega í dag. ASt